Morgunblaðið - 10.09.1976, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.09.1976, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1976 Útgefandi Framk væmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, sími 22480 Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 50,00 kr. eintakið. Mao-Tse-tung Mao-Tse-tung var einn þeirra stjórnmálaleið- toga, sem markað hafa dýpst spor í sögu þessarar aldar. Hann barðist til valda í fjölmennasta ríki veraldar og ríkti þar í rúm- an aldarfjórðung. Á valda- skeiði hans var kínversu þjóðfélagi umbylt. Þar hef- ur staðið yfir róttækasta tilraun til grundvallar- breytingar í þjóðfélags- skipan og lífsviðhorfum sem gerð hefur verið á okk- ar tímum. Erfitt er að meta þjóðfélagslegan árangur eða afleiðingar byltingar kommúnista i Kína. Kína hefur verið lokað land frá árinu 1949, og lítil sem eng- in vitneskja borizt um hvað þar hefur gerzt fyrr en á allra síðustu árum, að Vest- urlandabúar hafa fengið takmarkað tækifæri til þess að kynnast Kína Maos. Það er eitt af einkennum hinna kommúnísku ríkja, að þau hafa verið lokuð. Að þessu leyti er Kína Mao- Tse-tung á engan hátt frá- brugðið öðrum komm- únískum ríkjum. Raunar má segja, að fram til ársins 1972 hafi Kína verið eitt lokaðasta land í heimi. Þar.gað fóru fáir Vestur- landabúar og þaðan barst lítið af fréttum. Á valdatíma Mao- Tse-tung, tók Kína beinan og óbeinan þátt í tveimur meiri háttar styrjöldum í Asíu. Svokallaðir kínversk- ir sjálfboðaliðar streymdu til N-Kóreu, þegar her- sveitir N-Kóreumanna létu undan síga fyrir framsókn herja Sameinuðu þjóð- anna, sem komu til skjal- anna, þegar kommúnistar í N-Kóreu gerðu innrás í S- Kóreu. Þá veitti Kína N- Viet Nam óbeinan stuðn- ing í formi vopna og vista og sjálfsagt fjármuna einn- ig, meðan á styrjöldinni í Viet-Nam stóð. Kínverjar létu ekki við það sitja að veita skoðanabræðrum sín- um í þessum tveimur ríkj- um stuðning af þessu tagi. Þeir lögðu Tibet undir sig með hervaldi og hafa inn- limað það ríki í Kína með sama hætti og Sovétríkin innlimuðu ýmis jaðarríki í Sovétsambandið. Þeir gerðu einnig árás á Ind- land og lögðu undir sig landamærahéruð þar. Framan af valdatíma Maos í Kína voru samskipti Kínverja og Sovétmanna mjög náin, sérstaklega meðan Jóseps Stalíns naut við í Sovétríkjunum. Eftir að Stalín féll frá, kólnaði sambandið milli Kínverja og Sovétmanna og leiddi að lokum til vinslita og fulls fjandskapar milli þessara tveggja kommúnistaríkja. Áreiðanlega eru þau vin- slit einhver afdrifaríkasti viðburður á vettvangi al- þjóðamála á síðari hluta þessarar aldar. Hin alþjóð- lega kommúnistahreyfing hefur af þessum sökum klofnað í tvennt og raunar síðar í fleiri hluta. Afstaða Kínverja og gagnrýni hef- ur opnað augu margra, sem gerðu sér þess ekki grein áður, fyrir því að Sovétrík- in eru fyrst og fremst heimsvaldasinnað stór- veldi, sem beita hugsjón kommúnismans til fram- dráttar heimsvaldapólitík, sem á sér margra alda sögu. Jafnframt hafa Kín- verjar undir forystu Mao- Tse-tungs lagt ómetanleg- an skerf af mörkum til þess að vara vestrænar þjóðir við að sofna á verðinum gagnvart útþenslustefnu Sovétríkjanna. Að því leyti til hafa Kínverjar undir forystu Maos og vestrænar lýðræðisþjóðir á síðustu ár- um gerzt eins konar banda- menn, myndað óformlegt bandalag til þess að hamla gegn útþenslustefnu Sovétríkjanna. Enginn, sem utan við stendur, er fær um aó meta gildi þeirra þjóðfélags- breytinga, sem orðið hafa i Kina undir forystu Maos og kommúnista þar. Ljóst er þó, að hugmyndir Vest- urlandabúa um lýðræði og almenn mannréttindi, svo sem skoöanafrelsi og tján- ingarfrelsi samrýmast ekki þeirri þjóðfélagsskipan. Hún sýnist hins vegar hafa fengið því áorkað, að þessi fjölmenna og gamalgróna menningarþjóð fæðir sig og klæðir sjálf. Óneitan- lega vekur það athygli að hugmyndir Maos hafa haft djúpstæð áhrif á vissa hópa vestrænnar æsku, sem hafa fylgt marxistum að málum, og hafa tekið upp barájtu fyrir þjóðfélags- hugmyndum Maos en gegn þeirri þjóðfélagsskipan, sem ríkir í Sovétríkjunum og kennd hefur verið við kommúnisma. En hverjum augum, sem menn líta stjórnmálaferil Mao- Tse-tungs og þær þjóðfé- lagsbreytingar, sem hann hefur haft forystu um í fjölmennasta ríki veraldar, er auðvitað ljóst, að hann er eitt af hinum stóru nöfn- um í sögu okkar tíma og áhrifa hans mun gæta með ýmsum hætti löngu eftir andlát hans. Lhast um á fatasýningu og rætt við nokkra aðila, sem þar sýna framleiðslu sína „Idnfræóslan í molum" ÞAÐ sem blasir fyrst við, þegar komið er inn ( Laugardalshöllina á fatasýningu, eru básar Kjóla- meistarafélagsins og klæðskera- meistara. 1 kjólameistarabásnum voru tvær frúr, þær Ingibjörg Júlfusdóttir og Ingibjörg Krist- jánsdóttir. „Við erum að vekja athygli á þeirri staðreynd, að undirstaða fataiðnaðarins eru meistararnir, sem hanna og sníða, og á nauðsyn góðrar verkmenntunar. En menntun á þessu sviði er í algjör- um molum. — Kjólameistari á að hafa að baki þriggja ára nám í iðnskólan- um og þrjú ár í vinnu sem sveinn. Sem stendur er algjör skortur á aðstöðu í Iðnskólanum, ekki pláss fyrir saumavélar jafnvel og teiknikennslu er mjög ábótavant. Annað er, að ekki fæst vinna handa lærlingum, sem hafa áhuga ástarfinu." Framhald á bls. 25 Ætia að vél- prjóna lopapeys- ur til útflutnings „ÞAÐ sem er mest spennandi hjá okkur núna eru peysur úr lopa sem við ætlun að fara að vél- prjóna og reyna það að flytja út,“ sagði Sif Huld Sigurðardóttir f sýningarbás Prjónastofu önnu Þórðardóttur hf. Peysur þessar verða prjónaðar f vélum sem ver- ið er að setja upp um þessar mundir. Sif tjáði okkur að það hefði verið á árinu 1942 að Anna stofn- aði stofu sína. I dag vinna þar um 25 manns og framleiddar eru um 200 — 220 peysur á dag. Peysurn- ar eru fyrir alla aldursflokka karla og kvenna, og fer öll fram- leiðslan á innanlandsmarkað. I fyrstu var allt prjónað í höndun- um hjá önnu Þórðardóttur, en síðan hefur hvert tæknistigið tek- Framhald á bls. 25 „Stórkostiegt að hafa skrimt þetta í 34 ár" 1 SVNINGARBAS „Peysunnar" hittum við fyrir Sofffu Vilhjálms- dóttur, sem er meðeigandi f fyrir- tækinu, sem nú er orðið 34 ára gamalt og þar vinna um 15 manns. „Auðvitað er iðnrekstur erfiður hér og í raun og veru er það stórkostlegt að hafa skrimt þetta i 34 ár. En við höfum alltaf haft frábært starfsfólk, sem hefur unnið hjá okkur að staðaldri. — Ég held, að eitt af þvf sem háir fataiðnaðinum, se léleg iðn- menntun og svo líka að einhverju leyti, hversu fólk virðist þráast við að kaupa íslenzka framleiðslu. Þó fer það vaxandi að íslenzk föt séu keypt, en það er eins og fólk haldi alltaf að aðrir geti gert bet- urenvið." Framhald á bls. 25

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.