Morgunblaðið - 05.10.1976, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
230. tbl. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976
Prcntsmiðja Morgunblaösins.
Kohl biðlar til frjálsra
demókrata eftir sigurinn
Sjá greinar bls. 20og29.
□
-------------- □
Bonn, 4. okt. Reuter. AP.
HELMUT Kohl, leiðtogi Kristilega demókrataflokksins (CDU), gekk f
dag á fund Walter Scheel forseta og gerði kröfu til kanzlaraembættis-
ins á grundvelli sigurs flokksins f kosningunum f gær að sögn
talsmanns CDU. Kohl sagði blaðamönnum eftir fundinn að hann gerði
ráð fyrir að viðræðunum yrði haldið áfram.
Aður hafði Kohl lýst þvf yfir að á hlaðamannafundi að hann hefði
gert leiðtoga Frjálsa demókrataflokksins (FDP), Hans-Dietrich
Genscher utanrfkisráðherra, ákveðið, skriflegt tilboð um myndun
samsteypustjórnar CDU og FDP f stað núverandi samsteypustjórnar
Sósfaldemókrataflokksins (SPD) og FDP undir forystu Helmut
Schmidts kanzlara, sem beið afhroð f kosningunum þannig að þing-
meirihluti flokkanna minnkaði úr 46 þingsætum f átta.
Kohl kvaðst hafa boðið
Genscher til viðræðna um helgina
um myndun samsteypustjórnar
kristilegra og frjálsra demókrata.
Hins vegar lýsti Genscher yfir
áframhaldandi stuðning við SPD
þegar kosningaúrslitin lágu fyrir
og hét áframhaldandi samvinnu
með sósíaldemókrötum í ríkis-
ar og nýnazistar fengu sáralítið
fylgi, rúmlega 100.000 atkvæði
hvor flokkur. Leiðtogar SPD og
FDP kváðust sannfærðir um að
Þúsundir Bonnbúa söfnuðust saman við ráðhúsið f Bonn á sunnudagskvöld þegar þar var haldin vcizla f
sambandi við kosningarnar f Vestur-Þýzkalandi. Fyrstu kosningaspár sjást á sýningartjaldi framan við
bygginguna.
Ráðherra Fords
lætur af störfum
stjórn.
Kohl sagði að stjórnin hefði allt-
of nauman þingmeirihluta til þess
að geta stjórnað örugglega, naum-
asta meirihluta á þingi í sögu sam-
bandslýðveldisins. „Ég sæki um
stöðu kanzlara. . . Vin-ir mínir og
ég telja að kjósendur hafi veitt
okkur umboð til þess,“ sagði
Kohl, sem nú er leiðtogi stærsta
flokksins á þingi.
Kohl kallaði sigur CDU og syst-
urflokksins CSU i Bæjara-
landi, endurreisn. Hann lét i ljós
ánægju vegna þess að kommúnist-
Norsku 200
mílurnar
tilkynnt-
ar í dag?
Ösló 4. október Reuter.
ODDVAR Nordli forsætisráð-
herra Noregs mun í fyrramálið
tilkynna norska Stórþinginu um
útfærslu efnahagslögsögu Norð-
manna í 200 mílur að því er
áreiðanlegar heimildir i Ösló
hermdu I dag. Norðmenn eiga i
viðræðum við allar þjóðir, sem
stundað hafa veiðar á þessu
svæði, um fiskveiðiheimildir, en
ekkert samkomulag hefur enn
Framhald á bls. 46
Helmut Kohl, leiðtogi kristilegra
demókrata, greiðir atkvæði sitt f
Ludwigshafen.
flokkarnir gætu stjórnað örugg-
lega næstu 4 ár þrátt fyrir naum-
an þingmeirihluta.
Ef Kohl tekst ekki að fá FDP til
liðs við sig — og talið er ólíklegt
að það takist — getur svo farið að
hann láti af starfi forsætisráð-
herra í Rheinland-Pfalz og ein-
beiti sér að þvi að stjórna stjórn-
arandstöðunni á þingi, en um það
vildi Kohl ekkert segja.
Stjórnmálaréttaritarar telja að
hægri sveiflan í kosningunum
geti orðið til þess að frjálsir demó-
kratar endurskoði afstöðu sina
fyrr eða síðar þótt talið sé víst að
þeir muni halda tryggð við sósíal-
Framhald á bls. 46
Washington, 4. október. AP.
Reuter.
EARL L. Butz, landbúnaðarráð-
herra Bandarfkjanna, sagði af sér
f dag vegna niðrandi ummæla um
blökkumenn er hafa valdið miklu
fjaðrafoki. Hann skýrði frá
ákvörðun sinni að loknum fundi
með Ford forseta f Hvfta húsinu,
en óttast er að málið varpi skugga
á sfðustu vikur kosningabaráttu
forsetans.
Butz sagði að hann hefði tekið
þessa ákvörðun einn og teldi hana
bezt þjóna hagsmunum Fords for-
seta og kosningabaráttu hans. Þar
með lýkur ferli eins umdeildasta
ráðherra bandarfsku stjórnarinn-
ar og eins þess orðljótasta. Butz
hefur oft verið gagnrýndur, með-
al annars fyrir hlut hans f korn-
sölu til útlanda og niðrandi um-
mæla um páfann.
Butz sagði blaðamönnum:
„Þetta er gjald sem ég verð að
greiða fyrir vitavert gáleysi i
einkaviðræðum." Hann lagði á
það áherzlu að hann hefði ekki
orðið fyrir þrýstingi frá Hvíta
húsinu og sagði að lélegar athuga-
semdir sínar um blökkumenn
lýstu ekki raunverulegum skoð-
unum sinum. Ford sagði blaða-
mönnum að Butz væri góður mað-
ur og það hefði verið ein erfiðasta
ákvörðun sin í embætti að taka
lausnarbeiðni hans til greina.
Athugasemdir Butz komu fram
i samræðum við John Dean, fyrr-
verandi ráðgjafa Hvita hússins og
söngvarann Pat Boone, sem
spurðu hann þegar þeir fóru sam-
an i flugvél frá þingi repúblikana
i Kansas City i ágúst hvers vegna
hann teldi að blökkumenn styddu
demókrata.
Svo að segja ekkert blað í
Bandarlkjunum taldi athuga-
semdir Butz prenthæfar nema
rokk-blaðið Rolling Stone sem
Dean starfar hjá en þær voru á þá
leið að blökkumenn hefðu aðeins
áhuga á að fullnægja frumþörfum
sinum.
Butz kvaðst vona að kynþátta-
Framhald á bls. 46
Spænskur
ráðamaður
myrtur
San Sebastian, 4. október.
AP. Reuter.
RÁÐUNAUTUR Juan Carlos
konungs, Juan Maria de Araluce
Villar, sem átti sæti í ríkisráðinu,
var ráðinn af dögum þegar hon-
um var ekið heim úr hádegis-
verðarboði I San Sebastian í
Baskahéruðunum í dag.
Þrir lífverðir biðu einnig bana
þegar vélbyssuárás var gerð á bif-
reið ráðherrans og lögreglubif-
reið sem fylgdi henni. Tiu særð-
ust.
Þetta er alvarlegasta pólitiska
morðið sem framið hefur verið á
Spáni síðan skræuliðasamtök
Baska, ETA, sprengdu upp bif-
reið Luis Carrero Blanco forsætis-
ráðherra I desember 1973. Talið
er að banamenn Araluces hafi
einnig verið skæruliðar Baska.
1 milljaröur jarðarbúa
býr í algerri örbirgd
Arsfundur Alþjóðabankans í ManiUa
Manilla 4. október AP
ROBERT McNamara forseti
alþjóðahankans sagði f dag f
ræðu við setningu ársfundar
bankans og Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins, að þjóðir heims réðu
yfir fjármagni til að þurrka út
fátækt f heiminum, en að
iðnaðarþjóðirnar hefðu ekki
staðið við loforð um að leggja
fram fé f þeim tilgangi.
McNamara hvatti til alheims-
samstarfs til þess að útrýma
fátækt fyrir lok þessarar aldar.
Hann sagði að um 1 milljarður
manna á jörðinni lifði f mann-
legri niðurlægingu og algerri
fátækt.
McNamara sagrfi að þjóðir
heims gætu ekki snúið baki við
þessum mannfjölda sem væri
hnepptur i óþarfa fjötra
örbirgðar þvi að efnahagsleg og
tæknileg ráð væru fyrir hendi
til að ráða bót á ástandinu.
McNamara sagði að Japanir og
Bandarikjamenn væru lægstir
á lista bankans yfir þær þjóðir,
sem lagt hafa fram fjármagn til
þróunarrikjanna. Hann sagði
einnig að nokkuð af sökinni
lægi hjá ríkisstjórnum þróunar-
ríkjanna, vegna þess að mikið
af þvi fé sem þau hefðu fengið
hefði verið eytt þannig að
aðeins fáir útvaldir hefðu notið
þess.
Rúmlega 3000 fulltrúar frá
127 ríkjum sitja fundinn, sem
stendur í 5 daga og er gert ráð
fyrir að mestar umræður fári
fram um kröfur þróunarríkj-
anna um meira fjármagn og
Framhald á bls. 46