Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 30
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER 1976 In Memoriam: Anna Pétursdóttir Anna Pétursdóttir fæddist á Akureyri hinn 11. júní 1914, dótt- ir hjónanna Péturs Péturssonar kaupmanns og Þórönnu Pálma- dóttur. Pétur var sonur Péturs Björnssonar, bónda á Valabjörg- um í Skagafirði og Rannveigar Magnúsdóttur, en Þóranna dóttir Pálma prests Þóroddssonar á Hofsósi og Önnu Hólmfríðar Jóns- dóttur prófasts Hallssonar á Glaumbæ f Skagafirði. Stóðu því sterkir og merkir skagfirzkir stofnar að önnu í báðar ættir. Alsystkin önnu eru Pálmi, skrifstofustjóri Rannsóknarstofn- ana atvinnuveganna, kvæntur sænskri konu, önnu Lísu Péturs- son, og Hjördís, gift Páli Hannes- syni, verkfræðingi. Hálfbróðir önnu er Pétur Pétursson, bóndi á Höllustöðum í Húnavatnssýslu. Anna sleit barnsskónum á Akureyri og lauk þar gagnfræða- prófi. Aðstæður höguðu því þann- ig, að um frekara skólanám var ekki að ræða, enda þótt hún hafi haft prýðilegar námsgáfur. Frá Akureyri fluttist hún með for- eldrum sínum til Siglufjarðar, en sfðan ein til Reykjavíkur. Eftir flutninginn suður helgaði Anna sig skrifstofustörfum og réðst m.a. til Atvinnudeildar Háskóla Islands við stofnun deildarinnar 1936, þar sem hún starfaði til árs- ins 1942. Hinn 8. júlí 1939 giftist Anna frábærlega efnilegum lækna- nema, Kristjáni Jónassyni, en læknisprófi lauk hann tveim árum sfðar. Kristján var sonur hinna landskunnu hjóna Jónasar Kristjánssonar læknis og stofn- anda Náttúrulækningafélags Is- lands og konu hans Hansfnu Benediktsdóttur prófasts Kristjánssonar á Grenjaðarstað. Ekki var um auðugan garð að gresja um framhaldsnám í læknisfræði á þessum árum; bál síðari heimsstyrjaldarinnar bannaði allar bjargir í þeim efn- um f Evrópu. Til Norður-Ameríku lá eina færa leiðin, enda og ekki f kot vfsað, og afréðu þau Kristján og Anna að halda með skipaiest vestur um haf f marzmánuði 1942 að hætti margra annarra fslenzkra námsmanna. Lá leið þeirra fyrst til Kanada, þar sem Kristján stundaði framhaldsnám við Misericordia Hospital í Winni- peg í hálftannað ár, og sfðan héldu þau til Rochester f Banda- ríkjunum, þar sem hann stundaði sérfræðinám í kvensjúkdómum og fæðingarhjálp við hina kunnu Mayo Clinic um þriggja ára skeið, eða til ársins 1946, er þau fluttust alkomin heim til tslands eftir nær fimm ára dvöl vestanhafs. Hinn 5. febrúar 1940 fæddist þeim hjónum sonur, Jónas, rit- stjóri Dagblaðsins, kvæntur Kristfnu Halldórsdóttur, ritstjóra Vikunnar, og hinn 19. apríl 1946 dóttirin Anna Halla, lögfræðing- ur, sem nú stundar framhaldsnám f fræðigrein sinni f Miami, Flór- ida. Kristján læknir andaðist af slysförum 27. júlí 1947 og hafði þá einungis starfað í hálft ár eftir heimkomuna; var hann öllum harmdauði. t Faðir minn. SÆMUNDUR VILHJÁLMSSON Hæðargarði 4, lést í Landspítalanum 3 október Guðný Sæmundsdóttir og fjolskylda t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi SIGURÐUR KRISTJÁNSSON <v. bókhaldari á Siglufirði lézt 25 september sl Jarðarförin hefir farið fram i kyrrþey að ósk hins lá,na Selma Friðbjarnardóttir Jónfna Halldórsdóttir Halldór Axelsson Rikharður Axel Sigurðsson Sigurður Axelsson lézt 2 október + SIGURÐUR JÓHANNSSON vegamálastjóri Stefanla GuSnadóttir. t Þökkum af alhug alla samúð og vinsemd við andlát og útför eigin- manns mins, föður, tengdaföður og afa HRÓLFS BENEDIKTSSONAR prentsmiðjustjóra Ásta Guðmundsdóttir Erna Hrólfsdóttir Jón 0. Ámundason Birna Hrólfsdóttir Einar Sveinsson Ásta Hrólfsdóttir Agnar Fr. Svanbjörnsson Hrefna Hrólfsdóttir og barnaböm Við andlát Kristjáns urðu meiri hamingjuhvörf í lífi Önnu en orð fá lýst. Hygg ég, að sá ástvina- missir hafi skilið eftir sig dýpra ör í innstu veru önnu en nokkurn grunaði, nema sem þekkti hana gerst. Eftir lát Kristjáns vann Anna ýmis skrifstofu- og verzlunar- störf. Hún var m.a. um hríð verzl- unarstjóri blómaverzlunarinnar „Flóru". Þá rak hún með öðrum um tíma barnafataverzlunina „Best“ við Vesturgötu, en 1955 urðu ný straumhvörf I lífi önnu Pétursdóttur, er hún réðst aðal- bókari til Sementsverksmiðju ríkisins, sem þá var í byggingu, og þar starfaði hún til ársins 1969, að örlögin höguðu því þannig til, að leið hennar lá aftur vestur um haf. Ég kynntist önnu fyrst á skrif- stofu Sementverksmiðjunnar, þar sem leiðir okkar lágu saman i yfir 13 ár, og tókst þar með okkur sú vinátta, sem einungis dauðinn fær slitið. Þá var gaman að starfa I Sementsverksmiðjunni, bjart- sýni og stórhugur dr. Jóns E. Vestdals, þáverandi forstjóra verksmiðjunnar, hafði smitandi áhrif á allt starfslið, sem samhent vann að þvi að koma á fót og reka stærstu verksmiðju landsins, er þá til dreifa. Ljóst var, að persónuleiki Önnu var alveg einstæður. Amerfku- dvölin hafði sett djúp spor I venj- ur hennar, smekk og viðhorf á skemmtilegan og jákvæðan hátt. Anna var kona óvenjufríð sýnum, ljós yfirlitum, hávaxin, grönn og tiguleg í fasi og framgöngu allri. Hún var létt á fæti og fjörleg I hreyfingum og verkmanneskja i bezta lagi. Hún var skarpgáfuð kona, skilningurinn skjótur og skýr og hrókur alls fagnaðar, ef þvi var að skipta. Svo bókelsk var hún, að hún lá oft langt fram eftir nóttum, í bókum, íslenzkum sem erlendum. Leikhús sótti hún stöð- ugt í Reykjavik og siðar I New York. Vílaði hún ekki fyrir sér að takast lasin á hendur margra klukkustunda lestarferðir til að njóta þeirrar leiklistar, sem fram var borin á Broadway. Á yfirborðinu var Anna ekki viðkvæm, enda harðger og ærðu- laus, en undir niðri ólguðu til- finningar hennar heitar, blíðar og rikar. Hún gat verið berorð og + KRISTÍN R JOHNSON. andaðist i Winnipeg 1 okt sl. Jarðarförin fer fram 7. okt. Lilja og Jón Árnason. 1057 Dominion st. beinskeytt og oft örðugt, nema fyrir nákunnuga, að átta sig á því, hvort henni var gaman eða al- vara, þvi hún var ætfð létt og glöð. Tepruskapur, kjarkleysi og væmni var ekki að hennar skapi. Hinn 24. ágúst 1956 giftist Anna öðru sinni, Ólafi G. Jóns- syni, stýrimanni að mennt, hinum mætasta manni. Er hann sonur hjónanna Jóns Björgvins Ólafs- sonar sjómanns og Valgerðar Ól- afsdóttur í Hafnarfirði. Þau reistu sér fagurt hús og bjuggu sér og börnunum Jónasi og önnu Höllu gott heimili að Kársnes- braut 107 I Kópavogi, þar sem þau bjuggu við mikinn myndarskap þar til leiðin lá til Bandaríkjanna á ný og Ólafur gerðist innkaupa- fulltrúi tæknideildar Loftleiða f New York, starfi sem hann gegnir enn. Þangað fluttust þau haustið 1969 og bjuggu á Long Beach, New York, allar götur þar til hún andaðist snögglega úr hjartaslagi 24. f.m. 62 ára að aldri, en bálför hennar var gerð frá Fossvogskap- ellu 30. f.m. Fyrir allmörgum árum kenndi Anna sér sjúkdóms, sem hægt og sfgandi grennti heilsu hennar. Þrátt fyrir það iðkaði hún auk bóklestrar fþróttir — gönguferðir og golf af kappi. Sælustu stundir önnu voru e.t.v. þó er hún og Óli fóru f langar reisur heimshorn- anna á milli — Ríó de Janeiro — Jóhannesarborg — Kyrrahafseyj- ar. Þá var Anna f essinu sfnu, er hún lýsti slfkum langreisum, sem einatt voru vel undirbúnar með miklum bóklestri um viðkomandi staði. Alla tfð fór mjög vel á með þeim önnu og Ólafi. Og eftir að hún var orðin tæp á heilsu reyndist hann henni ómetanlegur félagi stoð og stytta til hinztu stundar. Nú er Anna Pétursdóttir öll. Hin fagra mynd hennar máist ekki úr huga þeim, sem kynntust henni, hinn stórbrotni, ærðulausi persónuleiki, minningin sem ylj- ar um ókomin ár og hvetur mann til að bera höfuðið ævinlega hátt, hvað svo sem á dynur, Með þetta í huga kveð ég þessa ágætu vinkonu mína síðustu kveðjunni. Signý Sen. Tryggvi Salómons- — Minningarorð son í dag verður til grafar borinn afi okkar Tryggvi Salómonsson, fæddur að Ytri-Drápuhlíð í Helga- fellssveit á Snæfellsnesi, en hann lést á Landakotsspftala 24. s.I. mánaðar. Foreldrar hans voru Salómon Sigurðsson frá Miklholti í Hraunhreppi f Mýrarsýslu og Lárusína Lárusdóttir Fjelsted frá Kólgröfum í Eyrarsveit. Lárusína var seinni kona Salómons og átti hann frá fyrra hjónabandi 5 börn: Kristján, Sigríði, Friðrik, Helga Hjörvar, og Maríu, og er hún ein á lffi af hálfsystkinum hans. Lárus- fna og Salómon áttu 8 börn sam- an: Kristján, Pétur Lúther, Guð- rúnu, Lárus, Gunnar, Harald og afa. Eftirlifandi eiginkonu sinni og ömmu okkar, Bjarneyju Hólm Sigurgarðsdóttur frá Eysteinseyri í Tálknafirði, kvæntist afi 10. júnf 1933. Með henni átti hann for- eldra okkar: Sigrúnu, Magnús, Láru og Hrafnkel. Húsið þeirra afa og ömmu og garðurinn í Meltröð 10 bera sann- + Dóttir min ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR ÁlfaskeiSi 104 andaðist i Borgarspitalanum 3. október. Fyrir mina hönd og annarra vandamanna, Sigrfður Jónsdóttir. an vott um vinnusemi hans og vandvirkni. Og ekki síst um ást hans á náttúrunni og moldinni, sem hann þráði alltaf að yrkja og gera frjósama. Frá unga aldri minnumst við afa f öllum hans frfstundum við að hlúa að trjám og öðrum gróðri eða laga og snyrta húsið. En það var sama hvað afi átti annrfkt eða hvað hann var þreyttur, alltaf gaf hann sér tfma til að ræða við okkur, hvort sem við þá áttum heima þar eða vorum f heimsókn. Slíkt kom oft fyrir, þvf að það var alltaf auðvelt og gott að tala við hann afa. Hann skildi allt svo vel og tók svo ríkan þátt f lífi okkar, jafnt gleði sem sorg. Hann armæddist aldrei yfir hlutunum. Annað hvort voru þeir I lagi eða ekki, og maður gæti ekki meir en lagt sig allan fram við að bæta þá. Hann var harður af sér tilfinningalega og hlffði sér aldrei við vinnu. Því mat hann það mikils, þegar hon- um var rétt hjálparhönd með glöðu geði. Mikla ánægju veitti það því honum að sonarsonur hans og nafni aðstoðaði hann við húsið daginn áður en hann flutt- ist til Svfþjóðar með konu sinni fyrir ári síðan. Ætlun þeirra var að koma f heimsókn nún um jólin og þá hefði afi séð dóttur þeirra, sem fæddist f sumar og var hans fyrsta og eina langafabarn. En aldrei held ég, að afa hefði komið til hugar að gera upp á milli okkar frændsystkinanna. + Útför föður okkar. GUÐMUNDAR KR. GUÐMUNDSSONAR. fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 7. október kl. 1 3.30. SigrlSur Svava, Kristln og Guðmundur Kristinn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför MARÍU SIGUROARDÓTTIR, Hvassaleiti 30. Guð blessi ykkur öll SigrlSur Emella Bergsteinsdóttir SigurSur Jónsson barnabörn og fjólskyldur útfaraskreytlngar blómciuol Groðurhusið v/Sigtun simi 367 7'. S. Helgason hf. STEINIÚJA [Inholtl 4 Sfmar 26677 og U254

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.