Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 40
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 YTRI-NJARDVIK Simi 92-1601 Postholf 14 Hurða og gluggaframleiðsla ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976 ÓLGUSJÓR var í vestur- höfninni í gær í rokinu sem þá var. Áttu sumir í erfiðleikum með báta sína eins og myndirnar bera með sér. Á einni er maðurinn einn um borð í trillunni og ræður lítt við hana, á annarri er annar maður kominn um borð til hjálpar og sú þriðja sýnir hvar trillan er hífð á land til að hún sökkvi ekki i höfninni. 60—70 ungmenni í fíkniefnamálinu GÆSLUVARÐHALD 21 árs gamals manns, sem setið hefur inni f tvo mánuði vegna rann- sóknar hins umfangsmikla ffkni- efnamáls, var f gær framlengt um 30 daga. A sunnudagskvöldið var 24 ára gömlum manni sleppt úr gæzluvarðhaldi vegna sama máls. Nú sitja ínni 4 ungmenni vegna rannsóknar þessa ffkniefnamáls, sem mun vera það umfangsmesta sem Ffkniefnadómstðllinn hefur fengið til meðferðar. Arnar Guðmundsson, fulltrúi við Fíkniefnadómstólinn, sagði í samtali við Mbl. í gær, að geysileg vinna hefði farið f þetta mál að undanförnu. Hefur málið stöðugt hlaðið utan á sig og sagði Arnar að nú hefðu milli 60 og 70 ung- menni flækzt í málið á einn eða annan hátt. Hann sagði að rannsóknin þokaðist áfram en sífellt kæmu fram fleiri angar, sem þyrftu rannsóknar við. Arnar sagði að lokum, að um væri að ræða smygl og dreifingu á ýmsum tegundum fíkniefna, svo sem hassi, marihuana og hassolfu en ekki væri hægt að gefa upp neinar tölur um magn á þessu stigi enda breyttust þær sffellt. Siæm staða Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins: Freðfiskdeild þurr- ausrn — 90 milljón krónur vant- ar í loðnudeildina TVÆR deildir af þrem innan Verðjöfnunarsjóðs sjávarútvegsins standa nú mjög illa að vigi. 1 loðnudeild sjóðsins mun vanta um 100 milljónir króna til að hægt sé að standa skil á greiðslum vegna loðnumjöls á s.l. vetrarloðnuvertfð, og freðfiskdeild sjóðsins er nú þurrausin, en þar var til nokkurt fé um s.l. áramót. Öðru máli gegnir um saltfiskdeildina, þar hefur safnazt verulegt fé og sjóðseign þeirrar deildar mun vera yfir milljarður króna. Davíð Ólafsson seðlabanka- stjóri, formaður sjóðsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að freðfiskdeildin væri nú þvi sem næst tóm og gæti hún ekki staðið undir neinum greiðslum lengur. Fé hefði verið greitt úr þessari deild sjóðsins allan fyrri hluta þessa árs og reyndar fram undir þennan dag, en nú væri búið að þurrausa hana. Sömu vand- kvæðin væru í loðnuafurðadeild sjóðsins. Þar vantaðí einar 90 milljónir króna til að geta gert upp loðnumjöl fyrir síðustu vertíð. Þá sagði hann að saltfiskdeild sjóðsins stæði með blóma og væri yfir 1 milljarður króna þar inni, enda hefði saltfiskverkun gengið mjög vel á undanförnum árum. Morgunblaðið sneri sér til Matthfasar Bjarnasonar sjávarút- vegsráðherra f gærkvöldi og spurði hann hvort einhverjar sér- Alþingi kvatt saman til fund- ar 11. okt. n.k. FORSETI tslands hefur sam- kvæmt tillögu forsætisráðherra kvatt Alþingi til fundar mánudag- inn 11. október n.k., og fer þing- setning fram að lokinni guðsþjón- ustu í Dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30. stakar ráðstafanir væru nú fyrir- hugaðar vegna sjóðsins, þar sem fiskverðsákvörðun er á næsta leiti. Sagði sjávarútvegsráðherra, Friðrik og Guðmundur í 3.-4. sæti ÞEIR Friðrik Ólafsson og Guðmundur Sigurjónsson eru nú f 3.—4. sæti á skákmótinu f Novi Sad f Júgóslavfu með 3 vinninga og eina biðskák hvor. Efstur er Vukic með 3‘A vinning og biðskák og f 2. sæti er Smejkal meö 3'A vinning. Biðskákirnar verða tefldar ár- degis f dag, en eftir hádegi hefst 6. umferð mótsins. í fimmtu umferð tefldi Friðrik við Vukic og Guðmundur við Garcia. í sam- tali við Morgunblaðið í gær- kvöldi sagði Guðmundur Sigurjónsson, að hann ætti að- eins betra tafl gegn Garcia, en búast mætti við jafntefli. Friðrik virtist eiga aðeins lak- ari stöðu gegn Vukic, en eftir að hafa skoðað skákina vel f gær, væri ekki ósennilegt að þar yrði einnig jafntefli. Fjórða umferð mótsins var Framhald á bls. 46 að málefni Verðjöfnunarsjóðs væru alltaf öðru hvoru til um- ræðu og reyndar við hverja verðlagningu. Matthias Bjarnason sagði, að staða freðfiskdeildar væri mjög slæm, öllu hefði verið eytt úr sjóð- um þegar verðfall varð á freðfisk- mörkuðunum og þrátt fyrir verð- hækkanir á mörkuðunum á þessu ári, hefði ekkert komið inn í sjóð- inn vegna hækkana innanlands. Um saltfiskdeildina og hina góðu stöðu þar væri það að segja, að þar hefðu engin áföll orðið frá því að hún var stofnuð og ekki væri hægt að færa fjármagn á milli deilda. Þá sagði raðherra að ríkissjóður hefði oftar en einu sinni tekið á sig ábyrgð á því viðmiðunarverði, sem ákveðið væri hverju sinni til að tryggja eðlilegan rekstur fyrir- Framhald á bls. 46 Kranabíll hafnaði á hvolfi niðrí á dekki Vestmannaeyjum, 4. október. ÞAÐ bar til er verið var að hffa dekkvindu um borð f Bylgju VE hér f höfninni f gær, að kranabill sem notaður var til að þess að hffa spilið valt skyndilega og hafnaði á hvolfi niðri á dekki bátsins. Tveir menn sem þar voru og kranastjór- inn sluppu naumlega undan. Báturinn skemmdist furðu- lega lftið og sömu sögu er að segja af bflnum. Bylgja lá f Friðarhöfninni og var verið að koma dekkvindu fyrir. Til þess var notaður stór kranabfll. Var búið að hffa spilið á loft og snúa bómunni út yfir bát- inn, þegar kranastjórinn sem stóð við hlið bflsins á bryggjunni tók eftir því að bfllinn var að velta út yfir bátinn. Kranastjórinn tók þá til bragðs að láta sig detta niður á dekk bátsins til að komast undan og slapp hann þar naumlega. Sömu sögu er að segja af skipstjóra og vél- stjóra bátsins. Þeir stóðu á dekkinu, tilbúnir að taka á móti spilinu, þegar bfll valt skyndilega fram af bryggju- kantinum. Tókst þeim með snarræði að vfkja sér undan bflnum er hann skall á hvolfi á dekkinu. Kranabfllinn skemmdist nokkuð mikið og er bóman talin ónýt. Skemmdir á bátn- um urðu mjög litlar aðrar en þær, að stunnur á dekkinu bognuðu. Fréttarltari Vladimir Ashkenazy Foreldrar Ashkenazy koma á laugardag FORELDRAR Vladimirs Ashkenazys munu koma til landsins nk. laugardag, að þvf er Ashkenazy skýrði Morgunblaðinu frá í gær. Ashkenazy var þá staddur í Lundúnum, en þangað var hann að koma úr löngu tónleikaferðalagi. Bjóst hann við því að koma til landsins í dag. Að sögn Ashkenazys munu foreldrar hans dvelj- ast hér á landi í tíu daga. Þá kvaðst hann sjálfur þurfa að halda af stað í hljómleikaferð að nýju en sagði að hann vonaðist til þess að foreldrar hans myndu fara með honum þessa ferð. 10 milljón króna tjón í bruna í Borgarnesi AÐ MINNSTA kosti 10 millj. kr. tjón varð f Borgarnesi f gær, þeg- ar svonefnt Grfmshús brann til kaldra kola f gærmorgun. Verið var að svfða svið með gaslömpum þegar eldurinn kom upp og kviknaði f einum gaskútinum með fyrrgreindum afleiðingum. Ólafur Sverrisson kaupfélags- stjóri í Borgarnesi sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær, að Gríms- hús stæði alveg á hafnarbakkan- um. Að nokkru leyti væri það notað sem geymsla fyrir kaupfé- lagið og í sláturtíðinni á haustin væri það notað til að svlða sviða- hausa. Nokkrir menn hefðu verið við að svíða um kl. 9 í gærmorgun, skyndilega hefði byrjað loga upp úr einum kútnum og ekki tekizt að koma honum út. Fólk hefði þó komizt út úr húsinu áður en gas- kúturinn sprakk. Slökkviliðið var komið á vett- vang eftir nokkrar mínútur en þá var húsið alelda. Tók slökkvistarf um eina klkkustund. í húsinu voru geymd um 60 tonn af fóðri og er það talið gjörónýtt og þil- plötur fyrir 2—3 millj. króna eyðilögðust í eldinum. Að sögn Ólafs Sverrissonar nemur tjónið I brunanum a.m.k. 10 millj. kr. en skemmdir voru ekki að fullu kannaðar i gær- kvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.