Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER 1976
Eitt mesta vandamál
skipasmíðastöðvanna
er f jármagnstregðan”
— segja forráðamenn skipasmíðastöðvanna
ALLAR stærstu skipasmfða-
stöðvarnar á Islandi hafa nú næg
verkefni út næsta ár, en hvað þá
tekur við veit enginn. 1 viðtölum
sem Morgunblaðið hefur átt við
forráðamenn stöðvanna kemur
fram, að vegna greiðsluerfiðleika
Fiskveiðasjóðs hefur nýsmfði
seinkað, sem þýðir einfaldlega
hækkanir á skipunum. Mikið er
að gera f viðgerðum og endur-
byggingu hjá stöðvunum, en þar
er Ifka sama sagan, forráðamenn
þeirra segja, að tilfinnanlega
vanti einhvern sjóð til að fjár-
magna þær, þar til Fiskveiðasjóð-
ur kemur inn f myndina að breyt-
ingu eða viðgerð lokinni. Ekki sé
nóg að tala um að flytja viðgerðir
inn f landið, þegar fjármagnið
vanti.
FASTEIGNAVERh/k
Klapparstíg 16,
slmir 11411 og 12811
Land
2 hektara landspilda úr landi
jarðarinnar Reynisvatn við
Reykjavík til sölu.
Flókagata
Húseign tvær hæðir kjallari og
ris um 108 fm að grunnfleti.
Selst í emu lagi eða smærri ein-
ingum. Laus nú þegar.
Hjarðarhagi
mjög góð 4ra—5 herb. íbúð um
117 fm á 4 hæð. Stór stofa, 3
stór svefnherbergi, eldhús með
borðkrók, baðherbergi með teng-
ingu fyrir þvottavél. Gestasnyrt-
ing. Sameigmlegt þvottahús og
þurrkherbergi í kjallara.
Birkimelur
3ja herb. íbúð um 96 fm á 4.
hæð. ásamt einu herbergi í risi.
Góðar geymslur og frystiklefi í
kjallara.
Holtagerði
3ja herb. neðri hæð i tvíbýlishúsi
um 80 fm. Sérhiti. Bílskúr.
Hraunbær
góð 3ja herb. ibúð á 3. hæð.
Suðursvalir.
Gaukshólar
góð 2ja herb. íbúð é 1. hæð.
Flúðasel
raðhús á tveim hæðum um 1 50
fm. Húsið er í smiðum og selst
fokhelt. Tilbúið til afhendingar
um næstu áramót.
Æsufell
góð 2ja herb. ibúð á 3. hæð.
Mikil sameign. Frystiklefi i kjall-
ara
Jón Sveinsson, forstjóri Stálvík-
ur í Arnarvogi, sagði þegar
Morgunblaðið ræddi við hann, að
þeir hefðu haft samning um smíði
á þrem togurum, en smiðinni
hefði allri seinkað vegna greiðslu-
erfiðleika Fiskveiðasjóðs síðan í
nóvember s.l. „Því höfum við
orðið að taka að okkur aukaverk-
efni til að brtía bilið."
„Seinkun á smfði togaranna
tveggja nemur mörgum mánuð-
um vegna þessara erfiðleika og
þriðji togarinn sem við höfðum
samið um, datt upp fyrir þegar
eigið framlag var hækkað úr 10%
í 15%. Stálið f hann liggur þó enn
á hafnarbakka erlendis.
Það þarf að taka ákveðna
stefnu i málefnum íslenzkra
SILFUR-
TÍZKAN
77
Áður í
Laugardalshöll.
Nú í
sýningarsal
okkar.
Fagur gripur
er æ til yndis
SMiUHtdftMA
Iðnaðarhúsið.
Vesturbær — sérhæð
Höfum fengið í einkasölu nýlega 160 fm.
sérhæð með bílskúr. íbúðin sem er á 1. hæð,
skiptist í 4 svefnh., 2 saml. stofur, stórt hol,
gestasnyrting, sér þvottaherb.með sturtuklefa.
Sér hiti. Upphitaður bílskúr. 2 svalir.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
tiUSANÁUSTf
MUSANAUSr! skipa-fasteigna og verðbrefasala
skipa-fasteionaogverðbrífasau Lögm.: Þorfinnur Egilsson, hdl.
VESTURGOTU 16 - REYK IAVIK , ,
Sölustjóri: Þorfinnur Júliusson
skipasmiðja og á ég þar fyrst og
fremst við fjármögnun fram-
kvæmda. Svona greiðsluerfið-
leikar draga okkur alveg niður, og
með þessu móti fara okkar við-
skiptavinir með verkefnin úr
landinu, því ef smíðað er fyrir
íslendinga erlendis er banka-
ábyrgð héðan að heiman og ýmsir
sjóðir eins og t.d. í Noregi sjá um
fjármögnunina. Ef smiði togara,
sem kostar um 500 millj., seinkar
um mánuð kostar það milljónir
kr. I vaxtagreiðslur," sagði Jón.
Gunnar Ragnars framkvæmda-
stjóri SlippstöÓvarinnar h.f. á
Akureyri sagði, að þeir bæru sig
ekki mjög illa hvað verkefni
snerti, öðru máli gegndi um fjár-
mögnun framkvæmda. Slippstöð-
in væri að byggja skuttogara fyrir
Þórð Óskarsson á Akranesi, og
verið væri að innrétta skuttogara-
skrokk fyrir Dalvlkinga og búið
væri að gera samning við Magnús
Gamalíelsson á Ólafsfirði um
smíði fiskiskips. Þessum verkefn-
um yrði ekki lokið fyrr en síðari
hluta næsta árs.
„En nýsmíðin er líka forsenda
þess að hægt sé að halda uppi
góðri viðgerðarþjónustu."
„Frá því I nóvember í fyrra
hefur verið mikill tröppugangur á
greiðslum frá Fiskveiðasjóði, en
sem betur fer virðist þetta vera í
lagi núna sem stendur. Við erum
mjög óhressir yfir þvl hve höllum
fæti við stöndum í fjármögnun í
samanburði við erlend fyrirtæki
og sömu sögu er aó segja af stærri
viðgerðum.
Ef farið er t.d. með skip til
Noregs til breytinga, þá fást 70%
lánuð þar úr sérstökum sjóði. Hér
lítur dæmið þannig út, að enginn
sérstakur sjóður sér um að lána
til þessara framkvæmda fyrr en
að breytingu lokinni, en þá kemur
Fiskveiðasjóður inn í myndina.
Við höfum reynt að bjarga okkur
á eigin spýtur og ennfremur hef-
ur Fiskveiðasjóður reynt að
hjálpa okkur, eftir þvf sem unnt
hefur verið. Þá hefur okkar við-
skiptabanki reynzt okkur mjög
vel. Því miður er það svo að engin
ákveðin regla er til I þessu sam-
bandi og það þýðir ekki að ræða
um að flytja viðgerðir skipa inn í
landið, nema fjármagn sé fyrir
hendi til að sinna viðgerðunum.
Við stöndum fyllilega jafnfætis
erlendum skipasmiðastöðvum,
hvað verð, gæði og vinnuhraóa
snertir,“ sagði Gunnar að lokum.
Jósef Þorgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Þorgeirs og Ellerts
á Akranesi, sagði að þeir væru nú
að ljúka við skuttogarann Júlíus
Hafstein, sem færi til Húsavíkur,
og smíði sementsferju fyrir
Sementsverksmiðju ríkisins væri
hafin, en hún yrði 46.8 metrar á
lengd og ætti að ljúka við smíði
hennar síðari hluta næsta árs.
Hvað þá tæki við vissi enginn.
„Það er einnig mikið að gera I
öllum viðgerðum, en peningar
eru að sama skapi ekki eins mikl-
ir og því verður að fara að öllu
með mikilli gát,“ sagði Jósef.
Tveir fslenzkir listamenn, þeir Hörður Haraldsson og Guðmundur
Sigurðsson, voru meðal þátttakenda á listsýningu, sem haldin var á
norrænni menningarviku f Thisted I Danmörku. Sýndu þeir fimm
myndir, þar á meðal var mynd Guðmundar, „Sfðastí þorskurinn við
Island", hér að ofan. Aðrar myndir á sýningunni voru eftir listamenn I
vinabæjum Thisted ( Noregi, Svfþjóð og Finnlandi.
Kaupmenn andvígir tii-
slökun á gæðakröfum
Morgunblaðinu barst eftirfar-
andi athugasemd frá Félagi mat-
vörukaupmanna varðandi breyt-
ingar á flokkun kartaflna:
I Morgunblaðinu 1. okt. var
greint frá því að af hálfu Land-
búnaðarráðuneytisins hefði verið
ákveðið að slaka á gæðakröfum
við flokkun kartaflna.
I viðtali sem Morgunblaðið átti
við Guðmund Sigþórsson, deildar-
stjóra I Landbúnaðarréðuneytinu,
kom fram að ákvörðun þessi hefði
verið tekin að fengnu áliti ýmissa
hagsmunaaðila m.a. kaupmanna.
Þar sem skilja má þessi um-
mæli Guðmundar á þann veg að
kaupmenn hafi samþykkt þessa
breytingu á flokkun kartaflna vill
Félag matvörukaupmanna taka
fram eftirfarandi:
Kaupmenn eru algjörlega á
Njarðvíkur-
unglingar skora
á borgarunglinga
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning:
Aðalfundur Nemendafélags
Njarðvfkurskóla lýsir andúð sinni
á hegðan og umgegngni jafnaldra
sinna í miðborg Reykjavfkur, nú
að undanförnu. Félagið skorar á
ungfingana að finna sér eitthvað
annað og þarfara að gera en sóða
út höfuðborgina.
Nemendafélag Njarðvfkurskóla
móti tilslökunum á gæöamati
kartaflna. I svarbréfi Félags mat-
vörukaupmanna dagsettu 29.
sept. 1976, við erindi Land-
búnaðarráðuneytisins um breyt-
ingar á flokkun kartaflna, segir
m.a. orðrétt: „Kaupmenn telja sig
ekki geta tekið á sig frekari
áhættu á því, aó gæðum þessarar
vörutegundar hraki."
Tilmæli um niðurröð-
un efnis í sjónvarpinu
Foreldra og kennarafélag Foss-
vogsskóla hefur sent frá sér álykt-
un um niðurröðun sjónvarpsefn-,
is. Er þar beint þeim tilmælum til
útvarpsráðs að þess verði gætt við
skipun dagskrár á vetri komanda
að tekið verði meira tillit til
hvfldarþarfa skðlabarna heldur
en gert hefur verið.
Minnir félagið á umsagnir
lækna um að ófullnægjandi svefn
skólabarna sé að verða að vanda-
máli.
Félagið fer fram á að
fræðslumyndir og annað efni sem
ætlað er börnum verði að jafnaði
á undan því efni sem síður er við
barna hæfi.
Handhreins-
aður dúnn í
sæng kost-
ar 40 þús-
und krónur
GJALDEYRISTEKJUR þjóð-
arinnar af útfluttum æðardúni
og selskinnum nema væntan-
lega á þessu ári um 110
milljónum króna. Þetta kom
fram ( samtali við Odd
Kristjánsson hjá Búvörudeild
SlS f gær. Oddur sagði að ekki
væri byrjað að hreinsa þann
æðardún sem safnað var I vor,
en gera mætti ráð fyrir að
álfka mikill dúnn félli til f ár
og f fyrra. 1 fyrra bárust um 5
tonn af óhreinsuðum dún til
Búvörudeildarinnar og gaf það
um 1,2 tonn af dúni að hreins-
un lokinni.
Hvert kfló af vélhreinsuðum
dún kostar nú 33,600 krónur
og sé dúnninn handhreinsaður
kostar kílóið um 40.000 krón-
ur. Yfirleitt er eitt kíló af dúni
notað í hverja sæng. Bændur
sem leggja inn fá um 70% af
þvf verði, sem áður greindi.
Oddur tjáði blaðinu að um 6
þúsund selskinn hefðu f ár
komið til Búvörudeildarinnar
og væri það svipað og f fyrra.
Hvert skinn, sem fer í 1. verð-
flokk, kostar nú milli 11 og 12
þúsund krónur. Nær öll dún—
og selskinna framleiðslan er
flutt út og þá aðallega til
Þýzkalands og Danmerkur.