Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 28
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKT0BER 1976
Ónæmisaðgerðir hafn-
ar gegn mænusótt
ÖNÆMISAÐGERÐIR gegn
mænusótt hófust að nýju I Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur mánu-
daginn 4. október og verða f vetur
á mánudögum kl. 16.30—17.30.
Til að halda við ónæmi gegn
mænusótt, þarf að endurtaka
Vegagerð og
skólabygging
Fáskrúðsfirði 1. okt.
ÝMSAR framkvæmdir hafa verið
hér i sumar, svo sem gatnagerðar-
framkvæmdir og nú fyrir
skemmstu var lögð oliumöl á 450
metra langan kafla. Hingað eru
komin 1000 tonn af olíumöl sem
geymd verða til næsta sumars og
lögð þá. Unnið hefur verið við
steypuvinnu á seinni hluta nýja
barnaskólahússins og ráðgert er
að steypa húsið upp í haust ef tíð
leyfir.
— Albert.
ónæmisaðgerðina á þvf sem næst
5 ára fresti, allt að 50 ára aldri.
Heilsuverndarstöðin vill því
leggja áherzlu á, að þeir sem eru
fæddir 1957, 1952, 1947, o.s.frv.
(þ.e. verða 20, 25, 30 ára o.s.frv.
árið 1977) fái þessa ónæmisað-
gerð nú i vetur. Verða þær þá I
beinu framhaldi af þeim ónæmis-
aðgerðum, sem börn fá á barna-
deild og I skóla.
Fólk er þvi hvatt til að taka
þetta til greina og stuðla að betri
ónæmisvörnum gegn mænuveiki
og auðvelda skipulag. Jafnframt
er bent á að ónæmisaðgerð þessa
er ekki hægt að fá yfir sumar-
mánuðina, þ.e. frá júní til
október.
Ónæmisaðgerðin er ætluð Reyk-
víkingum 20 ára og eldri og er
ókeypis.
Vinsamlega hafið með ónæmis-
skírteini.
Guðfinna Helgadóttir eigandi og verzlunarstjóri (t.h.) ásamt aðstoðar-
stúlku.
Ný verzlun í Árbæ
Þetta sjúkrarúm I Sjúkrahúsi Akraness er
Kiwanisklúbbsins Þyrils á Akranesi
ein af mörgum gjöfum
Fjölþætt starfsemi
Kiwanisklúbbsins Þyrils
ÞYRILL heitir Kiwanisklúbbur
þeirra Akurnesinga. Hefur
klúbbur þessi starfað f sex ár og
látið málefni bæjarfélagsins sig
miklu varða. Þannig hafa Sjúkra-
húsi Akraness, dagheimilinu,
kirkjunni og slysavarnadeildinni
Hjálpinni o.fl. verið afhent tæki
eða fjárstyrkir frá klúbbnum. 1
frétt frá klúbhnum segir að
klúbbnum hafi einungis verið
þetta kleift vegna góðra undir-
tekta hjá bæjarbúum, þegar leit-
að hefur verið til þeirra.
A þjóðhátiðarári afhenti klúbb-
urinn Byggðasafninu kútter Sig-
urfara, en nú nýverið hafa félag-
ar í klúbbnum lokið við að steypa
undirstöður undir kútterinn við
safnið. Þá unnu klúbbfélagar i
vor að undirbúningi að utanhúss-
múrverki Dvalarheimilisins
Höfða.
Endurskinsmerki voru gefin
öllum nemendum Barnaskóla
Akraness sl. vetur. Þann 23.9 var
þeim skóla svo afhent að gjöf
augnaprófunartæki sem kostaði
650 þúsund krónur. Fyrir hönd
klúbbsins afhenti Þröstur Stef-
ánsson forseti klúbbsins gjöf
þessa, eri viðstaddir voru stjórn
og styrktarnefnd klúbbsíns. Nú
hefur verið kjörinn forseti Þyrils
næsta ár, og er það Ingólfur
Steindórsson.
Á FÖSTUDAG var opnuð ný
verzlun I Arbæ, nánar tiltekið að
Hraunbæ 102 b, en þar kemur til
með að rfsa nokkurs konar verzl-
unarsamstæða. Verzlunin hefur
hlotið nafnið Virka og eru eigend-
ur hennar Helgi Axelsson og Guð-
finna Helgadóttir, sem jafnframt
er verzlunarstjóri.
Á boðstólum verða ýmiss konar
gjafavörur, fléttaðir stólar og
borð og auk þess mikið úrval
hannyrðavara. Þetta mun vera
eina verzlun sinnar tegundar I
Árbænum og sögðust eigendurnir
vona að hún yrði til að spara
Árbæingum sporin og veita þeim
og öðrum þjónustu, en þarna eru
mjög góð bílastæði, sem sannar-
lega þykir kostur i öllum þrengsl-
unum, sem viða eru.
Flestar vörurnar eru fluttar inn
frá Noregi og Danmörku og m.a.
eru seldar þarna hannyrðir, sem
náð hafa miklum vinsældum með-
al karlmanna erlendis.
Verzlunin er 102 fermetrar að
stærð og innréttuð úr trönum,
sem setja ákaflega skemmtilegan
svip á verzlunina. Þar hefur einn-
ig verið innréttað sérstakt horn
fyrir börn, með stólum fyrir þau
og blöðum við þeirra hæfi, þannig
að þeim þurfi ekki að leiðast með-
an pabbi og mamma verzla.
Ákveðið hefur verið að setja
upp leikfangamarkað fyrir jólin
og jafnvel að halda því áfram, en
það hefur þó ekki verið endan-
lega ákveðið.
Verzlunin verður opin á venju-
Fríhöfnin:
Salan nálgast
árssöluna ’75
HEILDARSALA frfhafnarinnar á
Keflavlkurflugvelli frá áramót-
um sl. til 1. september nam 547.7
milljónum króna en var 644
milljónir allt árið I fyrra, aó sögn
Ólafs Thordersen, forstjóra frf-
hafnarinnar.
Heildarsalan frá áramótum til
1. ágúst sl. var 405,7 milljónir en
var á sama tíma i fyrra 308,8
milljónir. í krónutölu er þetta því
31.4% aukning en miðað við doll-
ara er aukningin 7,6%.
Ölafur kvaðst gera sig mjög
ánægðan með þá aukningu, þar eð
yfir háannatimann gæti frihöfnin
naumast annað meiri sölu en þeg-
ar væri fen'gin.
Verið er að vinna
að verulegum endurbótum á frí-
höfninni um þessar mundir; verið
er að stækka komuverzlunina og
verður þar tekin upp sjálfs-
afgreiðsla, sem hefur í för með
sér að öll afgreiðsla gengur mun
skjótar en verið hefur.
legum afgreiðslutíma verzlana og
auk þess til 19.00 á föstudögum og
frá 9.00—12.00 á laugardögum.
Vitni
vantar
FÖSTUDAGINN 1. október varð
árekstur á mótum Snorrabrautar
og Grettisgötu. Þar rákust saman
bifreiðin Ö-3679 og lítil fólksbif-
reið, sem dökkhærð kona með
gleraugu ók. I fyrstu var talið að
ekki hefði orðið tjón á ö-
bifreiðinni, en síðar kom í ljós að
um tjón var að ræða. Er öku-
maðurinn vinsamlegast beðinn að
hafa samband við slysa-
rannsóknardeild-lögreglunnar.
Þriðjudaginn 28. sept. kl. 14.05
varð árekstur milli fólksbifreiðar
og vörubifreiðar á Skúlatúni við
Ræsi. Ef vitni hafa verið að
óhappinu eru þau vinsamlegast
beðin að hafa samband við Slysa-
rannsóknardeild lögreglunnar.
Svar við „opnu bréfi til
samgönguráðherra” frá
Elíasi Davíðssyni kerfisfr.
VEGNA „Opins bréfs til
samgönguráðherra" frá
Elfasi Davfðssyni, sem
birtist hér I blaðinu þ. 17.
september, hefur ráð-
herra óskað eftir birt-
ingu eftirfarandi svars:
NÆR allar spurningar Elíasar
fjalla um alþjóðastofnun fjar-
skipta um gervihnetti, Intelsat.
Núverandi rekstursform
Intelsat tók gildi 12. febrúar
1973, en starfsemi stofnunar-
innar hófst 1964 með 19 þátt-
tökulöndum, nú eru þátttöku-
löndin 93.
Island undirritaði samningin
um Intelsat 14. febrúar 1972 og
var hann fullgiltur af Alþingi
með þingsályktun 27. janúar
1975. Alrangt er að nokkur
leynd sé yfir þessum upplýsing-
um og sést það best á því að
allur samningurinn um Intelsat
er birtur í Stjórnartíðindum
bæði á Islensku og ensku og þar
aðgengilegur fyrir alla, sem
hafa áhuga á honum. Eignar-
hluti Islands í Intelsat er o.o5%
og er það minnsti hluti, sem
hægt er að eiga. '
Upphaf samningsins um
Intelsat er: „Aðilar samnings
þessa hafa í huga meginreglu
ályktunar 1721 XVI. allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna um,
að svo fljótt sem verða megi
skuli komið á fjarskiptum um
gervihnetti milli þjöða heims á
alþjóðlegum grundvelli án mis-
mununar“.
Hlutverk Intelsat er að setja
upp og reka gervihnetti til fjar-
skipta og leigir stofnunin út
afnot þeirra. Eignarhlutföll I
Intelsat eru aðallega miðuð við
notkun aðildarlandanna á
gervihnöttunum. Bandaríkin
eru stærsti eigandi og notandi
Intelsat með tæp 30%, en sú
hlutdeild fer minnkandi með
vaxandi notkun og þar með vax-
andi eignaraðild annarra ríkja.
Comsat (Communications
Satillite Corporation) er undir-
ritunaraðili Bandarikjanna og
framkvæmda- og rekstursverk-
taki fyrír Intelsat til ársins
1979. Allar meiriháttar fram-
kvæmdir undir stjórn Comsat
skulu samþykkjast af ráðinu og
framkvæmdastjóra Intelsat. á
þessu tímabili stjórnar Comsat
hönnun, byggingu og uppsetn-
ingu gervihnatta. Comsat fyrir-
tækið var upprunalega stöfnað
að tilhlutan Bandaríkjastjórnar
i þeim tilgangi að annast gervi-
hnattafjarskipti fyrir Banda-
ríkin.
Æðsta stjórn Intelsat er þing
hluthafanna (ríkjanna), sem
haldið er á tveggja ára fresti.
Þar næst kemur þing undirrit-
unaraðila, sem haldið er árlega.
Eftirlit með framkvæmdastjórn
Intelsat er í höndum ráðs 25
fulltrúa undirritunaraðila, en
það heldur fundi oft á ári.
Norðurlönd standa saman að
einum fulltrúa í ráðinu. Núver-
andi forseti ráðsins er með
eignarumboð fyrir Bretland og
Irland. Framkvæmdastjóri
Intelsat er útnefndur af ráðinu
og er ráðning hans háð sam-
þykki þings hluthafanna.
Svör við þeim spurningum
Eliasar, sem ekki hefur verið
svarað hér að framan eru þessi:
Spurning 4.
Engin samskipti hafa verið
milli Intelsat ogstarfsmanna
pósts og sima enda gerir samn-
ingur Intelsat ekki ráð fyrir
sliku.
Spurning 5.
Póstur og simi mun senda út
almennt útboð um byggingu
jarðstöðvar þegar endanleg
heimild liggur fyrir þar að lút-
andi og hefur þeim aðilum, sem
sýnt hafa áhuga á að selja jarð-
stöð hingað verið tilkynnt það.
Spurning 7.
Intelsat getur varla beitt
neinni einokunaraðstöðu, þar
sem mikil samkeppni rfkir um
fjarskipti um gervihnetti og út-
hafssæsíma. Allar þjóðir greiða
Intelsat sömu gjöld fyrir sams
konar notkun hvar sem er í
heiminum.
Spurning 8.
Intelsat hefur engin umráð
yfir þeim töxtum, sem aðildar-
rikin taka fyrir fjarskiptaþjón-
ustu. Leigugreiðslur aðildar-
ríkjanna til Intelsat fyrir sjálf
gervihnattasamböndin hafa
lækkað ár frá ári þrátt fyrir
vaxandi dýrtíð og spáir Intelsat
því að leigurnar haldi áfram að
lækka.
Spurning 9.
Intelsat leggur aðeins til
rásir í gervihnöttum til flutn-
ngs á fjarskiptum en hefur alls
engin Itök I fjarskiptunum
sjálfum og er þvf fráleitt að
halda að stofnunin fari að sölsa
undir sig fréttamiðlun, gagna-
banka o.fl. hjá aðildarríkj-
unum.
Halldór E. Sigurðsson.