Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976 23 Dr. Yuri segir að Vfkingarnir hafi átt skemmtílegu liði á að skipa. en leikur þess hafi oft verið of einfaldur, og að liðið hafi gefistai’pp þegar á móti fór að blása. íslenzk lið hina gamaldags leikað- ferð 4—2—4. Núna nota öll liðin leikkerfi sem miða að ákveðnari sóknarleik og fleiri mörkum. Og jafnvel þótt leikkerfið sé hið sama og áður var skoða knatt- spyrnumenn leikinn sjálfan og innihald hans öðru visi en var. Hugarfar þeirra hefur tekið stakkaskiptum. Líkamleg þjálfum leikmanna er nú mun betri, og árangurinn kemúr fram á vellin- um, bæði i auknu þoli og öðru. En ef við lítum á hina tæknilegu hlið í meðferð knattarins þá hafa ekki orðið miklar breytingar frá því sem áður var — að vísu eru auð- vitað til heiðarlegar undantekn- ingar. I leik sínum verða flestum íslenzkum knattspyrnumönnum á margar villur á tæknisviðinu. En í hverju liggja þessar villur og hvað ættu þjálfararnir að leggja áherzlu átil úrbóta? Hvað varðar likamlega þjálfun leikmanna, vinna þeir betur en áður. í knattspyrnu er mjög áríð- andi að leikmenn geti unnið leik- inn út af sama krafti og í byrjun — leikið á fullum hraða. Til þess að svo megi verða, þarf að þjálfa upp mikla snerpu og þol. Til þess að geta stöðugt komið mótherjan- um á óvart þurfa leikmenn að geta verið hvar sem er á vellinum, hvenær sem er i leiknum, og gert skyndiáhlaup þegar svo býður við að horfa. Þessi snerpuþjálfun er ekki nóg hérlendis. í mörgum leikjum hér sá maður það oft að leikmenn misstu niður hraðann þegar kom fram í seinni hálfleik- inn. Þjálfararnir virðast ekki leggja á það áherzlu að unnt er að æfa upp snerpu og þol samtimis. Þá er einnig mjög áríðandi að lið hefji leik sinn af miklum krafti og hver leikmaður sé þann- ig þjálfaður að hann sé viðbúinn þegar frá upphafi að bregðast við því sem gerist á vellinum. Ég hef tekið eftir því i leikjum Islend- inga við erlend lið, að leikmenn okkar missa oft tök á leiknum þegar í upphafi og þar með fer baráttan forgörðum og vonleysió nær yfirhöndinni. Kemur þetta m.a. til af því að islenzkir leikmenn eru ekki þjálf- aðir eins og þeir erlendu, — leggja ekki áherzlu á að hefja baráttuna strax og dómárinn hef- ur gefið merki og leikurinn hefst. kemur fram, að nokkur lið hafa að minu áliti tekið framförum að undanförnu, önnur staðið I stað, og þriðja hópnum hefur sýnilega farið aftur. En hvernig á maður að dæma íslenzka knattspyrnu í heild? Hafa orðið breytingar á síðan ég byrjaði fyrst að fylgjast með íslenzkri knattspyrnu? Vafa- laust hafa orðið miklar breyting- ar. Knattspyrnan i heild hefur tekið breytingum. 1 aðalatriðum er breytingin sú, að hin tæknilega hlið mála hjá leikmönnum er öðru vísi en áður var. 1973 notuðu flest Mér er það öskiljanlegt hvað Framararnir voru siakir á móti Slovan Bratislava, segir dr. Yuri. Þessi mynd er úr þeim leik og sýnir þann leikmann sem dr. Yuri hrósar hvað mest f Framlið- inu, Ásgeir Elfasson, f baráttu við einn Tékkann. Reykjavíkurmeistararnir lágu fyrír „5. bezta" liðinu Valur—Þróttur 21:16 NYBAKAÐIR Reykjavfkurmeist- arar Þróttar höfðu ekkert að gera f „5. bezta lið“ Reykjavfkur, Val, þegar liðin mættust f 1. umferð lslandsmótsins á sunnudaginn. Þróttarar höfðu reyndar frum- kvæðið f fyrri hálfleik en f þeim seinni áttu þeir ekkert svar við ákveðnum Valsmönnum, sem börðust grimmilega f vörninni og léku oft illa á Þróttarvörnina með vel útfærðum leikfléttum. Það kom berlega f ljós f seinni hálf- leiknum, að Þróttarar söknuðu markakóngsins frá f fyrra, Frið- riks Friðrikssonar. Hann hefur átt við þrálát veikindi að strfða f sumar og hefur m.a. þurft að ganga undir aðgerð á sjúkrahúsi. Er alls óvfst hvenær hann kemur til leiks á ný. Lokatölur leiksins urðu 21:16 Val f hag, eftir að staðan hafði verið 7:7 f hálfleik. Þróttarar byrjuðu leikinn reyndar mjög vel. Þeir skoruðu þrjú fyrstu mörkin og menn litu spyrjandi hver á annan og spurðu hvort sigurganga Þróttar i Reykjavíkurmótinu ætlaði að halda áfram. En svo var ekki, Þróttarar náðu ekki að fylgja eft- ir hinni góðu burjun og Valsmenn fóru smám saman að minnka muninn.Allt spil Valsmanna var mjög ráðleysislegt í byrjun og það var ekki fyrr en eftir miðjan hálf- leikinn að Iiðið náði sér á strik f sókninni. Þá tókst Valsmönnum í nokkur skipti að galopna vörn Þróttar og tvö markanna i fyrri hálfleik voru mjög skemmtileg. Þá stökk Bjarni Guðmundsson inn í bláhorninu hægra megin I bæði skiptin. Markvörðurinn stökk út á móti honum, en í stað þess að skjóta sendi Bjarni bolt- ann út á fría menn í vítateignum og var auðvelt fyrir þá að skora þegar enginn var i markinu. Þessa leikbrellu hafa íslenzk lið sáralitið notað, en hún hefur ver- ið áberandi hjá nokkrum erlend- um félags— og landsliðum, sem hingað hafa komið. Endasprettur Valsmanna í fyrri hálfleiknum var það góður að lið- ið náði að jafna metin, 7:7, áður en blásið var til leikhlés. Leikur- inn hélzt í jafnvægi í upphafi seinni hálfleiks, Þróttur skoraði fyrst, Valur jafnaði og Þróttur komst aftur yfir 9:8. En næstu tvö mörk fékk Valur á ódýra markaðnum og komst yfir i fyrsta skipti i leiknum, 10:9. Virtust Valsmenn herðast mjög við það að ná yfirhöndinni I leiknum. Voru þeir mjög ákveðnir i leik sínum næstu mínúturnar, börðust grimmilega bæði f vörn og sókn. Á sama tíma voru Þróttarar anzi óákveðnir, bæði innan vallar og utan, en liðsstjórn þeirra virtist Jafntefli hjá Standard STANDARD Liege, liðið sem Ásgeir Sigurvinsson leikur með I Belglu gerði jafntefli I leik sinum við CS Briigge á útivelli s.l. sunnudag, 1 — 1. Ásgeir Sigurvinsson Iðk ekki með liði slnu að þessu sinni, og mun hann enn eiga við meiðsli að strlða. Lið Guðgeirs Leifssonar, Charleroi lék einnig ð útivelli. Mótherjinn var Antwerpen og fóru leikar svo að Antwerpen vann 2—1. Önnur urslit I Belglu á sunnudaginn urðu: Molenbeek— Beershot 3—1 Winterslag — Anderlecht 1 — 2 Matinois—Courtrai 2—3 Waregem— Beringen 1 — 0 Ostende—Lierse 1 — 3 FC Liege—FC Brugge 1 — 4 Beveren— Lokeren 1 — 1 ekki I allt of föstum skorðum. Þeir náðu reyndar að jafna metin 10:10 og sfðan 11:11 en eftir það komu þrjú Valsmörk I röð og aug- ljóst var að stefndi að öruggum Valssigri. Spurningin var bara sú, hve stór hann yrði. Og miðað við gang leiksins var ekki ósann- gjarnt að sigurinn yrði fimm mörk, 21:16. Ekki er hægt að segja annað en Valsmenn hafi byrjað vel í þessu móti. Slakleg frammistaða þeirra í Reykjavíkurmótinu varð til þess að margir hafa spáð liðinu litlum frama í Isiandsmótinu. Eftir þess- um leik að dæma virðast þær spár algerlega út i loftið, enda er efni- viður nægúr f liðinu, ef litið er á liðsskipan. Ólafur Benediktsson stóð i markinu allan timann og varði með ágætum, m.a. eitt víta- kast. Ólafur er óumdeilanlega okkar bezti markvörður f dag, þannig að Valsmenn eru ekki á flæðiskeri staddir f þeim efnum. Til vara hafa þeir svo Jón Breið- fjörð, sem stendur sig vanalega vel þegar hann er settur inná. I sóknarleiknum ber sem fyrr mest á fyrirliðanum Jóni Karlssyni. Hann er bæði lipur spilari og skotmaður ágætur. Jón skoraði 6 mörk f þessum jeik og jafnmörg mörk gerði Þorbjörn Guðmunds- son. Þorbjörn er mjög vaxandi sóknarleikmaður. Hann hefur geysilegan kraft og enda þótt hann hafi komið vel frá þessum leik hefur maður það einhvern veginn á tilfinningunni, að Þor- björn eigi að geta enn betur. Það sama má reyndar segja um Jón Pétur Jónsson. Hann hefur á síð- ustu árum þróazt úr „litla bróður Óla Jóns" i ágætan handknatt- leiksmann. Hann er samt enn of ragur að reyna hlutina. 1 þessum leik skoraði Jón tvo stórgóð mörk Elnkunnaglöfln VALUR: Olafur Benediktsson 3 Jðn Breiðfjörð 1 Gunnsteinn Skúlason 1 Jóhann Ingi Gunnarsson 2 Bjarni Guðmundsson 2 Karl Jónasson 1 Björn Björnsson 1 Jón Karisson 3 Jón Pétur Jónsson 2 Þorbjörn Guðmundsson 3 Jóhannes Stefánsson 2 Steindór Gunnarsson 3 ÞRÓTTUR: Kristján Sigmundsson 3 Sigurður Ragnarsson 1 Sveinlaugur Kristjánsson 2 Trausti Þorgrlmsson 1 Gunnar Gunnarsson 1 Halldór Bragason 3 Ilalldór Harðarson 1 Jóhann Frlmannsson 2 Gunnar Arnason 1 Björn Vilhjálmsson 1 Konráð Jónsson 2 Bjarni Jónsson 3 HAUKAR Gunnar Einarsson 2 Sturla Haraldsson 1 Sigurður Aðalsteinsson 2 Ólafur Ólafsson 2 Stefán Jónsson 2 Sigurgeir Marteinsson 2 Hörður Sigmarsson 3 Frosti Sæmundsson 3 Þorgeir Haraldsson 3 Arnór Guðmundsson 2 Jón Hauksson 1 VlKINGUR: Sigurgeir Sigurðsson 1 Jón Sigurðsson 1 MagnúsGuðmundsson 2 Ólafur Jónsson 1 Skarphéðinn Óskarsson 2 Erlendur Hcrmaunsson 1 Ólafur Einarsson 2 Þorbergur Aðalsteinsson 4 Viggó Sigurðsson 3 Björgvin Björgvinsson 2 með langskotum en þegar færi gáfust á fleiri mörkum, hætti hann ætíð við. Jóhann Ingi Gunnarsson er mjög lipur spilari og margar sendingar frá honum eru stórgóðar en skotin eru hans veika hlið. Á línunni hefur Valur þrjá ágæta menn, Steindór Gunnarsson, Bjarna Guðmunds- son og Jóhannes Stefánsson, allt vaxandi leikmenn. Stefán Gunnarsson á við meiðsli að stríða og kemur þvf ekki inn í liðið fyrr en siðar og Bergur Guðnason var ekki með í þessum leik. Bergur er byrjaður að æfa aftur og er sagð- ur í ffnu formi, enda þótt hann sé nýorðinn 35 ára. Af framan- greindu má sjá, að Valur þarf vart að kviða vetrinum. Eins og áður sagði vantaði Þrótt greinilega ógnun í sóknarleik sinn á móti Val. Markakóngurinn úr Reykjavfkurmótinu, Konráð Jónsson, var f strangri gæzlu. Hann gerði 5 mörk en átti líka allmargar mislukkaðar tilraunir. Konráð er ágætur skotmaður og hefði vafalaust staðið sig betur, ef Friðriks hefði notið við í þessum leik og athyglin þá ekki beinzt eins mikið að Konráð einum. Bjarni Jónsson var sem fyrr mjög virkur i sókninni en hann skorar helzt til lítið af mörkum. Halldór Bragason var drjúgur að vanda. Þar er á ferðinni maður, sem hefði vafalaust náð langt í hand- knattleiknum, ef hann hefði lagt meiri rækt við hann. Kristján Sig- mundsson stóð sig ágætlega í markinu, sérstaklega í fyrri hálf- leik. Hins vegar voru linumenn Þróttar ekki áberandi í þessum leik, sérstaklega var Trausti Þor- grimsson daufur. Þróttarliðið er spurningarmerki fyrir veturinn, þvf frammistaða liðsins hefur verið misjöfn að undanförnu,- SS. FH Birgir Finnbogason 2 Viðar Sfmonarson 2 J anus Guðlaugsson 2 Guðmundur Arni Stefánsson 2 Arni Guðjónsson 1 Jón Gestur Viggósson 1 Geir Hallsteinsson 2 Arnór Skúlason 1 Guðmundur Magnússon 1 Þórarinn Ragnarsson 2 Júlfus Pðlsson I 1R: örn Guðmundsson 3 Bjarni Hákonarson 1 Ólafur Tómasson 2 Sigurður Svavarsson 2 Bjarni Bessason 2 Gunniaugur Hjálmarsson 2 Vilhjálmur Sigurgeirsson 2 Hörður Hákonarson 1 Brynjólfur Markússon 3 Sigurður Gtslason 1 FRAM: Guðjón Erlendsson 2 Jón Sigurðsson 1 Andrés Bridde 2 Pðlmi Pálmason 4 Jón Árni Rúnarsson 2 Árni Sverrisson 1 Gústaf Björnsson 1 Guðmundur Sveinsson 2 Arnar Guðlaugsson 3 Pétur Jóhannesson 2 Guðmundur Þorbjörnsson 1 Birgir Jóhannesson 1 GRÓTTA: Stefán Stefánsson 2 Stefán Arngrlmsson 1 Hörður Már Kristjánsson 1 Björn Pétursson 2 Sigurður Finnbogason 1 Árni Indriðason 3 Halldór Kristjðnsson 1 Grétar Vilmundárson 1 Georg Magnússon 1 Þór Ottesen 3 Kristmundur Asmundson 2 Gunnar Lúðvfksson 2 '

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.