Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976 Vélbáturinn Hafursey var 37 tonna eikarbátur og hét hann áður Vörðunes. Vélbáturinn Hafursey sökk á sunnudagskvöld Hópuppsagnir á sjúkrahúsum HJUKRUNARFRÆÐINGAR og röntgentæknar hafa hafið hópupp- sagnir vegna óánægju með launakjör. Þessar uppsagnir ná þó ekki til rfkisspítalanna, heldur er hér aðeins um uppsagnir að ræða á Borgar- spftalanum og Landakotsspítala. Hins vegar hafa meinatæknar sagt upp við I.andspftalannn, en ástæður þeirra uppsagna munu fremur vera slæm starfsskilyrði frekar en bág launakjör. VIÐ urðum varir við leka f vélar- rúminu og að sjór var kominn f lestina sagði Jón Sæmundsson úr Grindavík, annar skipverjanna á Hafursey sem sökk á sunnudsgs- kvöldið. Jón sagði að þeir hefðu fyrst orðið varir við leikann um kl. 18:30 þegar gírinn tók að „snuða“ og sáu þeir að sjór var í gólfi vélarrúmsins og nokkur sjór var kominn í lestina. Við reyndum að ausa með handdælu meðan vélin var f gangi, sagði Jón, en svo kölluðum við til Reykjavíkur og báóum um aðstoð. Kyndill var SIGURÐUR Jóhannsson, vegamálastjóri, varð bráðkvaddur f Færeyjum sl. laugardag, þar sem hann var á ferðalagi. Sigurður var 58 ára að aldri. Sigurðar de hinn 16. marz 1918 á Hofsstöðum í Miklaholtshreppi, sonur hjónanna Jóhanns Bjarna Hjörleifssonar og Sigrlðar Jóhönnu Sigurðardóttur. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1937 og prófi í byggingaverkfræði frá Tækniháskóla Danmerkur 1942. Næstu þrjú ár starfaði Sigurður erlendis, bæði í Danmörku og Saksóknari með 23 klám- rit og bækur til yfirlestrar RlKISSAKSÓKNARI fól saka- dómi Reykjavfkur fyrir nokkru, að leggja hald á 4 tiltekin klámrit sem verið hafa til sölu f verzlun- um í Reykjavfk. Sakadómur lét lögreglumenn fá það verkefni að ná saman þessum klámritum. Var þeim tjáð af af- greiðslufólki í verzlununum og öðrum, að á markaðnum væru blöð og bækur með enn grófara málfari en væri að finna í um- ræddum 4 klámritum. Varð það að ráði, að sakadómur aflaði ríkis- saksóknara sýnishorna af klám- blöðum og bókum, sem hægt er að fá keyptar í verzlunum. Erla Jónsdóttir, fulltrúi saka- dóms, tjáði Mbl. I gær, að saman- tekt klámritanna hefði lokið í sfð- ustu viku. Voru tínd til 23 mís- munandi klámblöð og bækur og ailur fengurinn sendur ríkissak- sóknara. Hefur hann nú „bók- menntir" þessar til yfirlestrar og mun væntanlega taka ákvörðun um aðgerðir að lestrinum loknum. staddur um 6 mflur frá okkur og kom hann fljótt til hjálpar. Taug var komið fyrir milli skipanna og var ætlunin að draga Hafursey til Grindavíkur, en eftir um það bil hálftíma tog var lestin orðin hálf- full af sjó. Þá hætti Kyndill að toga og þá var látið reka unz Hrafn Sveinbjargarson kom á vettvang, en við höfðum beðið um að annar bátur kæmi til aðstoðar þar sem Kyndill átti nokkuð erfitt með að athafna sig þvf hann var fullhlaðinn benzfni. Þeir skipverjar Jón Sæmunds- son og Magnús Þorláksson, voru Svíþjóð, en árið 1945 réðst hann til starfa sem verkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins. Árið 1956 varð Sigurður vegamálastjóri og gegndi hann því starfi til dauða- dags. Sigurður kenndi stærðfræði við MR á árunum 1947—55, átti sæti í Sigurður Jóhannsson hafnarstjórn um tfma, einnig í stjórn Verkfræðingafélags Islands og f skipulagsnefnd ríkis- ins um árabil. Þá var Sigurður formaður Ferðafélags tslands frá 1961 og til dauðadags, og einnig átti hann sæti í Almannavarna- ráði ríkisins. Hann var sæmdur riddarakrossi Fálkaorðunar 1961. Eftirlifandi kona Sigurður er Stefanía Guðnadóttir. Nafn manns- ins sem lézt MAÐURINN sem drukknaði f Vestmannaeyjahöfn s.I. laugar- dagsmorgun, hét Ingi Guðmunds- son, Vesturvegi 11A, Vestmanna- eyjum, Hann var fæddur 20 .október 1922 og því rétt tæpra 54 ára þegar hann lézt. Ingi heitinn var einhleypur. um borð i Kyndli meðan látið var reka og beðið eftir Hrafni Svein- bjarnarsyni og hugðust þeir koma taug f bátinn aftur þegar hann væri kominn. Það tókst en aðeins var búið að toga f um 10 mfnútur þegar Hafursey hvarf f djúpið. Jón sagði að báturinn hefði ekki sigið svo mjög meðan þeir biðu en eftir að Hrafn Sveinbjarnarsor. hóf að toga seig Hafúrsey hraðar og sökk eins og fyrr segir eftir aðeins 10 mínútna tog. Magnús Þorláksson og Jón Sæmundsson voru sammála um það að þeir hefðu aldrei verið í verulegri hættu Kyndill hefði komið svo fljótt á staðinn og þeir fóru um borð í hann þegar þeir sáu fram á að þeir voru ekki lengur óhultir um borð í Hafurs- ey. Þeir sögðust ekki hafa blotnað að ráði nema þegar þeir voru að fara um borð í gúmbátinn og þvi hefðu þeir ekki lent í neinni vos- búð. Ekki kváðust þeir hafa lent fyrr í hrakningum á sjó. Vélbáturinn Hafursey GK 84 sem var 37 tonna eikarbátur hefur verið í eigu þeirra Jóns og Magnúsar sem áttu hann ásamt Jóni Ásgeirssyni og höfðu þeir átt hann í tæpt ár. Sjópróf fóru fram i Grindavík í gær. 1 GÆRKVÖLDI efndi forsætis- ráðherra, Geir Hallgrfmsson, til kjördæmafundar á Selfossi. Var þetta tfundi kjördæmafundur for- sætisráðherra, en hann hefur þeg- ar efnt til fundar á Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Vest- urlandi og Vestf jörðum. Fundurinn á Selfossi var fjöl- mennur eða hátt á annað hundrað Á FUNDI stjórnar Innkaupa- stofnunar Reykjavíkurborgar í gær óskaði Albert Guðmundsson, borgarfulltrúi, eftír því í sér- stakri bókun, að því yrði beint til borgarstjóra að hann tilkynnti öllum forstöðumönnum og bygg- ingarnefndum borgarinnar hvernig standa bæri að innkaup- um á vegum borgarinnar almennt og jafnframt yrði starfssvið Inn- kaupastofnunar undirstrikað sér- staklega. Þessi bókun Alberts Guðmundssonar var gerð vegna umræðna um kaup á húsgögnum Hjúkrunarfræðingar og rönt- gentæknar lýstu því yfir skömmu eftir að úrskurður kjaranefndar var felldur, að þeir myndu ekki vilja sætta sig við hann. I kjölfar þessa úrskurðar, sem felldur var vegna launadeilu rikisins og félaganna, áttu að fara samningar milli Reykjavíkurborgar og þeirra og eftir þessa yfirlýsingu skaut borgin máli sínu til kjara- nefndar til þess að fá sama eða svipaðan úrskurð. Töldu félögin engan grundvöll vera til viðræðna um sérákvæði ef ekki kæmu til taxtahækkanir. Þessir starfs- hópar hafa 3ja mánaða uppsagn- arfrest en eins og fram kemur í lögum og reglugerðum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, er ríkisvaldi eða vinnuveitanda í þeim tilfellum að um hópuppsagnir eða fjöldaupp- sagir sé að ræða, heimilt að frem- lengja uppsagnarfrestinn um aðra 3 mánuði, þannig að hann verði 6 mánuðir. Er þetta heimilað til þess að starfsemi falli ekki niður með öllu. HVERFANDI lítil jarðskjálfta- virkni kom fram á jarðskjálfta- mælum norður f Mývatnssveit I gær, raunar var aðeins hægt að greina stöku smáskjalfta á einum mælinum og virtust þeir eiga upptök sfn utan Kröflusvæðisins sjálfs. \ sama tfma og að miklu leyti hefur tekið fyrir skjálfta á manns. Að lokinni framsöguræðu forsætisráðherra voru frjálsar umræður og tóku margir til máls. Ennfremur svaraði forsætisráð- herra fjölda fyrirspurna fundar- manna. Umræður voru fjörugar og stóð fundurinn fram undir miðnætti. A næstu vikum efnir forsætis- ráðherra til kjördæmafunda á Reykjanesi og á Austfjörðum. fyrir heilsugæzlustöð f Árbæjar- hverfi. I bókun þessari tekur Al- bert Guðmundsson fram, að hann telji ekki rétt að samþykkja vítur á framkvæmdastjóra heilsu- verndarstöðvar vegna þessara húsgagnakaupa eins og borgar- fulltrúarnir Sigurjón Pétursson og Alfreð Þorsteinsson höfðu lagt til. Hér fara á eftir bókanir þær, sem gerðar voru I stjórn Inn- kaupastofnunar Reykjavíkur- borgar um þetta mál í gær: framkvæmdastjóri ríkis- spítalanna, sagði í viðtali við Mbl. í gær, að ekki væri hægt að merkja að um nokkrar hóp- uppsagnir væri að ræða á rikis- spítölunum þótt meinatæknar hefðu sagt upp og þá vegna starfs- skilyrða. Davið sagðist ekki eiga Framhald á bls. 46 Grjótjötunsmálið: Fer aftur til saksóknara í mánuðinum GRJÓTJÖTUNSMÁLIÐ er nú til framhaldsrannsóknar hjá saka- dómi Reykjavíkur. Erla Jóns- dóttir fulltrúi við Sakadóm sagði i gær að unnið væri að gagnasöfn- un. Bjóst hún við því að gagna- söfnun lyki í þessum mánuði og yrði þá málið sent aftur til ríkis- saksóknara en hann óskaði eftir famhaldsrannsókn á málinu. þessu svæði er landris það sem átt hefur sér stað samhliða jarð- skjálftunum, úr sögunni og f þess stað er land tekið að sfga 5 £ 10 sinnum hraðar en það reis áður. Að sögn Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings hjá Raun- vísindastofnuninni, er enn margt óljóst um það sem nú er að gerast á Kröflusvæðinu en jarðvísinda- menn eru þó aðeins farnir að geta sér til um ástæður þessara skyndi- legu breytinga sem orðið hafa á jarðfræðilegu ástandi á þessum slóðum. Breytingarnar lýsa sér I því að jarðskjálftatiðnin sem verið hefur sfðustu mánuði og vaxið jafnt og þétt hefur á örfáum dögum hjaðnað að miklu leyti nema hvað sl. laugardag mældist töluverð smáskjálftahrina norður af Kröfluöskjunni. Meðan þessu hefur farið fram hefur hallinn á stöðvarhúsinu á Kröflu kúvent ef svo má að orði komast, því þar sem norðurendi hússins reis áður miðað við suður- Framhald á bls. 46 og Sigurjóns Péturssonar. „Á síðasta fundi stjórnar ISR, þegar fjallað var um kaup á hús- gögnum fyrir heilsugæslustöð í Árbæjarhverfi, var framkvæmda- stjóri Heilsuverndarstöðvarínnar mættur til að gefa upplýsingar um málið. Þótt hann legði til að húsgögnin yrðu keypt af Gamla Kompaníinu h/f, ákvað stjórnin i samræmi við venju að bjóða hús- gögnin út. Við þessa samþykkt gerði framkv.stj. Heilduverndar- Framhald á bls. 46 Siguröur Jóhannsson, vegamálastjóri, látinn Fjölmennur fundur for- sætisráðherra á Selfossi Albert Guómundsson: Innkaupareglur borg- arinnar verdi kynntar Bókun Alfreðs Þorsteinssonar Davíð Á. Gunnarsson, aðstoðar- Krafla: Land sígur nú 5-10 sinnum hraðar en það reis áður

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.