Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÖBER 1976 3 ...á ferð með lögreglunni ... á ferð með lögreglunni ...á ferð með lögreglunni ÞAÐ var nóg að gera hjá slysarannsóknardeild lögreglunnar í Reykja- vík seinnipartinn í gær. Mbl. fór með bíl nr. 3 í 2 klst. ferð i gær á tfmabil- inu 16.30—18.30. Sá tími var afar viðburðarrfkur, því árekstrar og slys voru mörg og var talstöðin rauðglóandi allan tfm- ann. Það þurfti marga bfla til að sinna öllum köllunum og þannig gat bíll nr. 3 ekki sinnt nema hluta útkallanna. Lögreglumenn á þrist- inum þennan tfma voru þeir Sigurður Pálsson og Bjarni Bogason. Að- spurðir sögðu þeir mánu- dagseftirmiðdegið alltaf vera slæman tfma í um- ferðinni, og væri þannig alltaf árekstrasúpa á tfmabilinu 16—19. Það fór lfka þannig f gær, því ekki tókst nema einu sinni að renna við á stöð- inni á þessum tfma, þvf hvert útkallið af öðru barst f gegnum talstöð- ina. Fyrsti áreksturinn sem Mbl, kannaði með þeim félögum var á mótum Barónsstígs og Eiríks- götu. Hafði þar rússneskur sendiráðsmaður ekið í hliðina á bifreið ungrar konu. Ekki urðu skemmdir miklar. Aðeins sá á Aftanákeyrslan við gangbrautina fyrir neðan Mjólkursamsöluna (Ljósm. ágðs) Stal bifreið móður sinn- ar og ók á tvær aðrar stöð kallar upp þrist og tilkynn- ir árekstur á Laugaveginum á móts við Mjólkursamsöluna. Þar hafði Morris-bifreið ekið aftan á kyrrstæða Saab-bifreið, sem stöðvazt hafði við gang- braut. Brezka bifreiðin skemmdist mjög mikið og varð að fá kranabfl til að fjarlægja hana. Hins vegar virtust skemmdir á Saab-bifreiðinni ekki miklar. Þegar þessu máli var lokið ókum við inn á Háaleitið. Á Háaleitisbrautinni á móts við Ármúlann hafði verið ekið á gangandi vegfaranda. Þar skammt frá voru svo aðrir lög- reglumenn að rannsaka aft- anákeyrslu, en stúlka sem var að læra á bifreið varð fyrir þeirri ónotalegu reynslu að aft- an á hana var ekið, og það í miðri kennslustund. Nú lá leiðin niður á stöð, en vart höfðum við stigið inn úr dyrunum, þegar hringt var og tilkynnt um slys ofarlega á Háaleitisbraut. Hafði verið ekið á barn á móts við biðskýli SVR. Við ókum í ofboði á slysstað, og það þurfti heldur betur að þeyta sírenuna því mikil um- ferð var á þessum tima, en nú var klukkan um 17,15 og þvl margir á leið heim úr vinnu o.þ.h. Önnur lögreglubifreið var komin á slysstað á undan okkur og tóku þeir þetta mál því að sér. Ekið hafði verið á barn, sem hljóp yfir veginn, og ekki var kunnugt um meiðsli, en Að sögn annars þeirra sem ekið var á kom bifreiðin á móti honum á mikilli ferð, og virtist svo vera sem ökumaður hefði alls ekkert vald á bifreið sinni. Nú var eins og smáhlé væri komið á árekstrasúpunni, og Mbl. kvaddi því. Þegar við innt- um svo frétta síðar um kvöldið var allt á fullu hjá þeim á slysa- rannsóknardeild lögreglunnar því verið var að tilkvnna árekstra út um allt og allar til- tækar bifreiðar á þönum. Frá árekstursstað á horni Barónsstfgs og Eirfksgötu. Jeppinn er bifreið sovézka sendiráðsmannsins, en bifreið konunnar, sem ekið var á, er til hægri við jeppann. Takið eftir stöðvunarskyldumerkinu. bíl konunnar, og ekkert á jeppa Sovétmannsins. Sovétmaður- inn, sem vildi útkljá málið við konuna með þvl að bjóða henni tiltekna fjárupphæð og þannig losna við lögregluskýrslur, bar þvf við að hann hefði blindazt af geislum sólar, þegar hann var að athuga umferð á Baróns- stígnum. Sólin skein úr suðri en konan kom úr hinni áttinni og ók til suðurs. Við vorum ekki nema rétt komnir af árekstursstað þegar Bifreiðin sem pilturinn stal frá móður sinni var mikið skemmd eftir að henni hafði verið ekið á tvær aðrar bifreiðar. barnið skall framan á bifreið- ina. Það gafst lítil stund til að dvelja á þessum stað því nú var tilkynnt um árekstur I Rauða- gerði. Hafði þar verið ekið utan i tvær bifreiðar og sá seki síðan strokið af slysstað. Reyndist hér vera um það að ræða að 14 ára gamall piltur hafði tekið bifreið móður sinnar trausta- taki, meðan hún brá sér að heiman, og farið I ökuferð. Öku- ferðin endaði illa, því drengur- inn ók utan I tvær bifreiðar og skemmdi mikið, auk þess sem hann stórskemmdi bfl móður sinnar. FERÐIR TIL GAGNS OG GLEÐI MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNI „„„ Gler '76 Alþjóðleg sýning Alþjóðleg sýning á skrif- stofuvörum Dússeldorf 7. okt—10. okt. '76 Köln 1 9. — 24. okt. '76. SIAL '76 Alþjóðleg matvælasýning Paris 1 5. — 20. nóv. '76 Pantið snemma Hótelherbergin verða afpöntuð 7 dögum fyrir sýningu. IMB '76 Alþjóðleg vélasýning fyrir fataiðnað imo Köln 3.-7. nóv. '76 Pantið snemma. Hótelherbergin verða afpöntuð 7 dögum fyrir sýningu. Ódýrar Lundúnaferðir eru að hefjast aftur. Brottför hvern laugardag Kanaríeyja- feröir byrja 27. október. Pantið tímanlega. 14.IKA Alþjóðleg matreiðslusýning Frankfurt 21, —28. okt. '76. Pantið snemma. Hótelherbergin verða afpöntuð 7 dögum fyrir sýningu. Allt fyrir barnið Alþjóðleg sýning cologne intemational fair for the & child Köln 8 —10. okt. '76. Útvegum sýningarskrár, sýningarsvæði, aðgöngumiða, hótelherbergs Seljum einnig farseðla með öllum flugfélögum um allan heim á sérstaklega hagkvæmum fargjöldum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.