Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 48
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÖBER 1976 Enginn er annars bróðir ( leik.... Þessi mynd er úr leik Manchester City og Leicester fhaust og er greiniiegt að mönnum hefur hitnað I hamsi. Fremstir I flokki eru Dennis Tueart, Manchester City, og Keith Weller, Leicester. Manchesterliðín á toppinn UIMNU BÆÐI LEIKI SÍNA Á LAUGARDAGINN EN LIVERPOOL OG MIDDLESBORO GERÐU JAFNTEFLI MANCHESTER United tðk við forystuhlutverki I ensku I. deild- ar keppninni í knattspyrnu á laugardaginn, er liðið vann sigur á Leeds United á útivelli á sama tfma og þau tvö lið sem fyrir voru á toppnum, Liverpool og Middles- brough, gerðu jafntefli f innbyrð- is leik sfnum sem fram fór á heimavelli Liverpool. Stigafjöldi þessara liða er þó hinn sami; öll hafa þau 11 stig eftir 8 leiki og það hefur Ifka hitt Manchesterlið- ið, Manchester City, sem vann sigur á heimavelli sfnum á laug- ardaginn er það mætti þar West Ham United. Urslitin á laugar- daginn þýða Ifka það, að Leeds United, — liðið sem allra liða lengst hefur verið á toppnum I Englandi, er nú f fjórða sæti neð- an frá, og verður ekki annað séð en það muni verða f fallhættu f vetur ef svo heldur fram sem horfir. Staða Derby County, sem einnig hefur um nokkurt skeið verið f hópi beztu liðanna f Eng- landi, er lfka heldur fskyggileg um þessar mundir, og á laugar- daginn fékk liðið mjög slæman skell f leik sfnum við Birming- ham eða 1—5. Er það ekki oft sem Derby tapar með svo miklum mun. 1 2. deild hefur Chelsea og Wol- verhampton — tvö gamalkunnug lið, hins vegar tekið forystuna og hefur Chelsea hlotið 13 stig í 8 leikjum. Er það bezti árangur sem lið i 1. og 2. deild hefur náð í ár. Er Chelsea-liðinu nú óspart hrós- að fyrir góða knattspyrnu og því spáð velgengni í vetur. Hið sama má segja um Ulfana, sem sagðir eru leika mjög beitta sóknar- knattspyrnu um þessar mundir. Manchester United fékk óska- byrjun í leik sínum við Leeds á laugardaginn þar sem staðan var orðin 2—0 þegar eftir niu mínút- ur. Gerry Daly skoraði á sjöttu mínútu eftir góða sendingu frá Gordon McQueen, og þremur mín- útum siðar bætti Steve Coppell öðru marki við._Eftir að United hafði náð þessari æskilegu for- ystu, snerist leikurinn öndverður þeim. Leeds sótti miklu meira og tókst þeim Joe Jordan og Allan Clarke að skapa sér hin ákjósan- legustu marktækifæri í fyrri hálf- leiknum. En þaó var þröskuldur á vegi þeirra að netmöskvunum í United markinu. Sá nefnist Alex Stepney, en hann varði frábær- lega vel Ieikinn út, og hreinlega bjargaði báðum stigunum fyrir United í þessum leik. Áhorfendur að leiknum voru 44.512. 45.107 áhorfendur urðu vitni að fádæma leiðinlegum leik Liver- pool og Middlesbrough í ausandi rigningu í Liverpool. Strax og dómarinn gaf merki um að leikur- inn skyldi hefjast röðuðu allir leikmenn Middlesbrough sér í vörn inn við eigin vítateig og það var sama hvað Liverpool- leikmennirnir gerðu, Middles- brough tókst að verjast öllum áhlaupum þeirra og tókst ætlun- arverk sitt — að sleppa með markalaust jafntefli. Kevin Keegan, Jimmy Case, Steve Heighway og Ray Kennedy áttu allir marktækifæri í leiknum, eft- ir að hafa einleikið i gegnum vörn Middlesbrough, en þegar þeir voru komnir I skotfæri urðu þeir of seinir á sér og sókn þeirra rann út í sandinn. 1 leik Tottenham og West Brom- wich Albion hafði Tottenham töglin og hálgdirnar í fyrri hálf- leik og lék þá skemmtilegan og beittan sóknarleik. Á 35. mínútu bar þessi sóknarleikur árangur er Chris Jones skoraði og skömmu síðar bætti Peter Taylor öðru marki við. Taylor var keyptur til Tottenham frá Crystal Palace i síðustu viku og gaf Lundúnaliðið um 200.000 pund fyrir hann. I seinni hálfleik dró Tottenham lið sitt í vörn og hugðist greinilega freista þess að halda fengnum hlut. En það tókst alls ekki. Eins og svo oft áður var vörn liðsins ákaflega óörugg og áður en lauk hafði W.B.A. skorað fjögur mörk — flest næsta ódýr. Þau gerðu Tony Brown út vítaspyrnu á 52. mfnútu, Mick Martin á 63. mín- útu, Ray Treacy á 66. mfnútu og Mick Martin á 88. mínútu. Áhorf- endur voru 23.495. Leikur Manchester City og West Ham var mjög daufur og leiðinlegur til að byrja með á laugardaginn — svo leiðinlegur að áhorfendur voru farnir aó púa og flauta á leikmennina. Undir lok fyrri hálfleiksins tókst Gary Owen að skora fyrir Manchester- liðið og hleypti mark þetta miklu lífi í leikinn. Dennis Tueart breytti stöðunni í 2—0 fyrir Man- chester City þegar á 3. mínútu seinni hálfleiks en Alan Taylor rétti stöðu West Ham United á 69. mínútu. Það dugði þó skammt þar sem Asa Hartford skoraði þriðja mark Manchester City tveimur mínútum síðar. Mike Doyle varð það sfðan á að skora sjálfsmark, þannig að staðan var orðin 3—2. Stóð þannig unz ein mfnúta var eftir af leiknum en þþá skoraði Hartford sitt annað mark og inn- siglaði sigur Manchester-liðsins. Áhorfendur voru 37.795. Mick Ferguson skoraði sitt sjö- unda mark á þessu keppnistíma- þili fyrir Coventry þegar á fyrstu Framhald á bls. 27 Best rekinn af velli KNATTSPYRNUDÓMARAR I Englandi höfðu f fyrsta sinn meðferðis rauð og gul spjöld er þeir mættu til leikja sinna á laugardaginn. Þurftu þeir all- oft að grfpa til gulu spjaldanna og gefa leikmönnum áminning- ar, en aðeins einu sinni var rauðu spjaldi brugðið á loft. Og sá sem fékk að sjá það var enginn annar en átrúnaðar- goðið George Best, sem rekinn var af velli I leik Fulham og Southampton, en þann leik vann Southampton með umtals- verðum yfirburðum eða 4—1. Best var rekinn af velli fyrir að mótmæla dómum æ ofan f æ og upp úr sauð er Southampton skoraði mark úr aukaspyrnu, sem Best taldi óréttmæta. Sýndi hann þá dómaranum dónaskap og óvirðingu og fékk brottrekstur af velli fyrir. Fulham varð þvf að leika með einum manni færra á vellinum það sem eftir var. Rodney Marsh, annar frægur leikmað- ur Fulhamliðsins gat heldur ekki leikið þennan leik vegna meiðsla sem hann varð fyrir fyrra laugardag. 1. DEILD L HEIMA UTI STIG Manehester United 8 I 1 1 6- -5 3 2 0 9- -3 11 Manchester City 8 4 0 1 9- -6 1 2 0 4- -2 11 Liverpool 8 3 1 0 6—1 2 0 2 5- -5 11 Middlesbrough 8 4 0 0 5- -1 0 3 1 0- -2 11 Everton 8 2 1 1 6- ■3 2 1 1 7—4 10 Ársenal 8 2 1 1 6—4 2 1 1 8- -6 10 West Bromwich Álbion 8 2 1 1 7—4 1 2 1 5- -5 9 Ipswich Town 8 2 2 0 8- -4 1 1 2 6- —9 9 Leicester City 9 1 3 0 6- -5 0 3 1 1—3 9 Stoke City 9 3 1 0 5- -2 0 2 3 1 —7 9 Aston Villa 8 3 0 1 12—4 1 0 3 3 —5 8 Birmingham City 8 2 1 1 7- -3 1 1 2 5—6 8 Newcastle United 8 I 3 0 5—4 1 1 2 6- —6 8 Coventry City 8 3 1 1 9- -6 0 1 2 2 -5 8 Queens Park Rangers 8 3 0 1 5- -5 0 2 2 6- -8 8 Bristol City 8 1 2 1 7- -5 1 1 2 2—4 7 Norwich City 8 2 1 1 5- -5 0 1 3 1—6 6 Tottenham Hotspur 8 1 2 1 2- -3 1 0 3 6- -11 5 Leeds United 8 1 2 1 6- -6 0 1 3 2- —6 5 Derby County 8 0 3 I 4- -5 0 2 2 3 —9 5 West Ham United 8 1 2 1 2- -3 0 1 3 4- —11 l 5 Sunderland 8 0 2 2 2- -5 0 2 2 3 —7 4 2. DEILD L HEIMA UTI STIG Chelsea 8 3 1 0 7:4 3 0 1 5:5 13 Wolverhampton 8 2 1 1 9:2 2 2 0 11:4 11 Blackpool 8 2 0 2 7:5 3 0 1 8:3 10 Millwall 8 3 1 0 8:0 1 1 2 5:8 10 Bolton Wanderes 8 3 0 1 10:5 1 1 2 4:6 9 IIull City 8 3 1 0 9:2 0 2 2 2:7 9 Sheffield United 8 2 3 0 8:4 0 2 1 2:4 9 Fulham 8 2 2 0 7:3 1 1 2 5:8 9 Notts County 8 2 0 2 4:3 2 1 1 7:9 9 Oldham Athletic 8 2 2 0 6:2 1 1 2 3:8 9 Notthingham Forest 8 2 1 1 11:8 0 3 1 4:5 8 Bristol Rovers 8 2 1 1 7:5 1 1 2 2:4 8 Charlton Athletic 8 2 1 1 11:8 1 1 2 5:9 8 Charlisle United 8 2 2 0 9:6 1 0 3 4:11 8 Plymouth Argyle 8 2 1 2 9:6 0 2 1 4:7 7 Luton Town 8 1 1 2 6:7 2 0 2 5:6 7 Burnley 8 2 1 1 6:3 0 1 3 1:6 6 Blackburn Rovers 8 1 1 1 3:2 1 1 3 3:9 6 Hereford United 8 2 0 2 6:8 0 2 2 7:11 6 Cardiff City 8 1 1 2 5:6 1 0 3 5:8 5 Southampton 8 1 2 1 7:5 0 1 3 2:12 5 Orient 8 1 1 2 5:4 0 1 3 0:6 4 ENGLAND 1. DEILD: Arsenal — Queens Park Rangers 3—2 Birmingham — Derby 5—1 Bristol City — Ipswich 1—2 Coventry — Leicester 1—1 Leeds — Manchester Utd. 0—2 Liverpool — Middlesbrough 0—0 Manchester City — West Ham 4—2 Norwich — Newcastle 3—2 Stoke — Aston Villa 1—0 Sunderland — Everton 0—1 W.B.A.—Tottenham 4—2 ENGLAND 2. DEILD: Bolton — Blackpool 0—3 Carlisle — Charlton Athetic 4—2 Chelsea — Cardiff 2—1 Hereford — Wolves 1—6 IIull — Notthingham forest 1—0 Millwall — Bristol Rovers 2—0 NottsCounty — Oldham 1—0 Orient — Blackburn 0—1 Plymouth — Luton 1—0 Sheffield Utd. — Burnley 1—0 Southampton — Fulham 4—1 ENGLAND 3. DEILD: Brighton—Crystal Palace 1—1 Chester — Peterborough 2—1 Gillingham—Chesterfield 2—1 Lincoln — Sheffield Wed. 1—1 Mansfield — Bury 5—0 Oxford—Tranmere 1—1 Preston — York 4—2 Reading — Swindon 4—1 Rotherham — Grimsby 3—2 Shrewsbury — Portsmouth 4—1 Walsalt — Port Vale 3—1 ENGLAND 4. DEILD: Barnsley — Huddersfield 2—1 Bradford—Brentford 3—2 Cambridge — Southend 2—3 Darlington — Aldershot 2—1 Exeter — Crewe 3—0 Newport—Torquay 0—0 Rochdale — Boumemouth 0—0 Scunthorpe — Hartlepool 2—0 Swansea — Southport 2—1 Watford — Halifax 0—0 SKOTLAND URVALSDEILD: Ayr United — Rangers 1—1 Celtic — Hibernian 1—1 Dundee United — Motherwell 2—0 Hearts — Kilmarnock 2—2 Partick Thistle — Aberdeen 2—2 SKOTLAND 1. DEILD: Airdrieonians — Montrose 0—2 Arbroath — Queen of the South 2—0 Clydebank — East Fife 2—1 Hamiiton — Falkirk 1—2 Morton — St. Johnstone 3—1 Raith Rovers — Dumbarton 1—1 St. Mirren — Dundee 4—0 SKOTLAND 2. DEILD: Berwick — Queens Park 0—3 Brechin — Alloa 1—2 Dunfermline — Albion Rovers 2—1 Meadowbank — East Stirling 3—1 Stenhousemuir — Forfar 2—1 Stirling —Clyde 3—2 Stranraer — Cowdenbeath 2—0 VESTUR-ÞVZKALAND 1. DEILD: Borussia Dortmund — Bayern Miinchen 3—3 Fortuna Dusseldorf — Karlsruher SC 3—0 Eintracht Braunswick FC Saarbruecken 1—0 Tennis Borussia — Hamburger SV 1 —1 Eintracht Frankfurt — Borussia Mönchengladbach 1—3 Rot-Weiss Essen — MSV Duisburg 1—5 FC Köln — Schalke 04 2—0 Werder Bremen — VFL Bochum 2—0 FC Kaiserslautern — Hertha Berlfn 0—2 AUSTURRlKI 1. DEILD: Rapid — Lask 4—1 Voeest Lin — SSW Innsbruck 2—1 Adraira Wacker — Austría WAC 4—6 A-ÞVZKALAND 1. DEILD: Union Berlfn — Sachsenring Zwickau 1—Tl Lokomotiv Leipzig — Chemie Halle 0—0 Stahl Riesa — Dynamo Berlfn 0—3 Rot-Welss Erfurt — Frankfurt 1—2 Dynamo Dresten — Carl Zeiss Jena 1—1 Hansa Rostock — Karl-Marx Stadt 2—1 Dynamo Dresden hefur forystu f deildinni en Dynamo Berlfn er f öðru sæti. Bæði liðin hafa hlotið 8 stig. FRAKKLAND 1. DEILD: Paris St. German — St. Etienne 2—0 Lyons — Valenciennes 2—0 Nancy — Metz 4—1 Reims — Bordeaux 2—1 Bastia — Troyes 3—0 Sochaux — Marseilles 1—2 Lille — Nantes I—3 Rennes — Laval 1—3 Anger — Lens 3—2 SVISS 1. DEILD: Basle — Servette Geneva 4—1 Chenois Geneva — Sion 1—0 Grasshoppers — Bellinzona 8—2 Lusanne — St. Gallen 5—0 Winterthur — Neuchatel 1—1 Young Boys — Ziirich 1—1 UNGVERJALAND 1. DEILD: Ferencvaros — Ujpest Dozsa 3—0 MTK VM — Honved n Haladas — Videoton Zalaegerszeg — Vasa* ó—0 Raba Eto — Diosgyo* Bekescsaba — Salgotarjan Csepel — Kaposvar 2 Dorog — Szeged -1 Tatabanya — Dunaujvaros 2—0 Ferencvaros er f forystu f deildinni með 16 stig, en sfðan koma Ujpest Dozsa með 16 stig og Haladas með 15 stig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.