Morgunblaðið - 05.10.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÖBER 1976
37
Torfi Jónsson
við nokkur
verka sinna.
TORFI Jónsson hefur opnað sýn-
ingu á verkum sfnum I húsnæði
auglýsingastofunnar Graffk &
hönnun að Skúlagötu 61.
Flest verkin eru vatnslitamynd-
ir, málaðar á japanskan pappfr og
einkennast af ljóðrænu f vafi, en
auk þess teikningar og svonefnd
skriftgraffk.
Torfi stundaði nám f Myndlista-
og handfðaskóla Islands og hélt
að þvf loknu til framhaldsnáms f
Hamborg, þar sem hann lagði
stund á hagnýta myndlist. Einnig
Málverk med
ljódrænu ívafi
hefur hann numið listgraffk,
frjálsa teikningu, gerð bóka og
skriftgraffk, sem að sögn Torfa er
algjörlega óþekkt hér á landi enn-
þá.
Torfi hefur hlotið ýmsar viður-
kenningar og verðlaun fyrir verk
sín og má þar nefna 2. verðlaun
fyrir veggspjald fyrir Sinfóníu-
hljómsveit Hamborgar, viður-
kenningu fyrir útlit bóka og enn-
fremur 1. verðlaun fyrir merki í
sambandi við 25 ára lýðveldi Is-
lendinga.
Eftir að Torfi lauk námi gerðist
hann kennari við Myndlista- og
handfðaskólann og kenndi þar í
14 ár, auk þess að kenna nokkur
ár við Iðnskólann. Þá hefur hann
rekið teiknistofu frá því námi
lauk.
„Ég hef haft minni tima til að
sinna þessu hugðarefni mínu
undanfarin ár,“ sagði Torfi, „en
ég hef dregið ýmsar myndir fram
í dagsljósið og finnst gaman að sjá
heildarmynd af þessu."
Sýningin er opin alla virka daga
frá 18.00—22.00 og laugar- og
sunnudaga frá 14.00—22.00.
Örðugleikar á að auka
innflutning frá Portúgal
Á VEGUM viðskiptaráðu-
neytisins hefur um skeið
verið kannað meðal inn-
flytjenda hér á landi hvort
unnt sé að auka innflutn-
ing okkar frá Portúgal, en
Portúgal er stærsti kaup-
andi okkar á saltfiski og
önnur stærsta viðskipta-
þjóð okkar ef litið er á út-
flutninginn í heild.
Að sögn Þórhalls Ásgeirssonar,
ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðu-
neytinu, hefur verið tekið vel f
þetta mál af hálfu innflytjenda en
f ljós hefur komið að ýmis tor-
merki eru á því að unnt sé að
auka innflutninginn verulega frá
þvf sem nú er. Kemur þar helzt
til, að útflutningsframleiðsla
Portúgala sjálfra er fremur fá-
breytt ellegar hentar illa fslenzk-
um markaði og aðstæðum. Þór-
hallur sagði þó, að fullur vilji
væri að hálfu íslenzkra stjórn-
valda að stuðla að því að auka
innflutning hingað frá Portúgal,
þar sem landið ætti í fjárhags-
örðugleikum en væri um leið eitt
helzta viðskiptaland Islendinga.
Kynlegt heymarleysi
Jóhannesar Helga
Siðastliðinn föstudag gerði
biskupinn yfir Islandi at-
hugasemd við ummæli sem Jó-
hannes Helgi hermdi upp á
hann ranglega f Morgunblaðinu
deginum áður. Mér fer sem
biskupinum gagnvart ummæl-
um sem umræddur Jóhannes
hermir upp á mig í sama blaði,
sömu grein. Þessi ummæli hef-
ur hann eftir mér ranglega úr
viðtali f þættinum Nasasjón.
Jóhannes Helgi skrifar:
„Birgir lýsti því yfir — og það
hafa fleiri leikritahöfundar'
gert — að honum hefði ekki
heppnast að skrifa frambærileg
ljóð né sögur.“ — Þessa yfirlýs-
ingu hef ég aldrei gefið. Ég
upplýsti hins vegar í viðtalinu
að mfn fyrsta ljóða- og sagna-
gerð hefði mistekist — enda
var spurt: Hvernig voru þessar
fyrstu ritsmfðar? Flestir rithöf-
undar eiga brösótt upphaf. Eg
hef sannað þá reglu með öðr-
um. Seinna gaf Almenna bóka-
félagið út ljóðabók eftir mig
svo sem Jóhannesi Helga er vel
kunnugt. Einhverjum öðrum
en mér hefur þvf fundist ljóð
mín frambærileg. Ég las einnig
upp ljóðaflokk á Kjarvalsstöð-
um. Það veit Jóhannes og. Gott
ef hann var ekki á staðnum.
Ljóð hafa einnig verið birt eftir
mig f safnriti fslenskra ljóða á
norsku. Vart hefði ég staðið að
þessu sem ég nú hef talið ef ég
hefði ekki álitið ljóð mín fram-
bærileg. Fleira gæti ég tfnt til
ef ég nennti til þess að gegnum-
lýsa þetta heimabrugg Jóhann-
esar Helga. Og hvaða „fleiri"
leikritahöfundar hafa lýst yfir
því að þeir gætu ekki skrifað
frambærileg ljóð né sögur?
Varla þeir félagar Ibsen,
Strindberg og Shakespeare —
eða Jóhann Sigurjónsson, Guð-
mundur Kamban og Jökull Jak-
obsson?
Það er von að Jóhannes Helgi
undrist kynlega útkomu sinnar
eigin visku og þekkingar, enda
spyr hann: „Hvernig ber á
skilja þetta? Ber að skilja það
svo að nóg sé að afhenda leik-
húsunum beinagrind; leikhúsið
sjái svo um að klæða hana holdi
og blása lífi f skapnaðinn? Eru
þá ekki höfundarnir orðnir
tveir eða þrfr?“ — Vesalings ég
og „fleiri" leikritaskáld. Við
getum ekki skrifaó ljóð né sög-
ur — samkvæmt „eigin“ yfir-
lýsingu okkar matreiddri af Jó-
hannesi Helga — og kannski
ekki leikrit heldur. Við verðum
að fá aðra til þess að klæða
beinagrindina og „blása lífi f
skapnaðinn“ og ef til vill tvo
höfunda með okkur að auki. —
Ég hirði ekki um að fræða
Jóhannes Helga um sýningar á
mínum leikritum. Leikhúsfólk
sem að þeim hefur unnið mun
bera að þau hafa hvorki þurf
hjálparkokka né lífsblástur.
Spurningunni ætti Jóhannes að
beina að sjálfum sér. Þar er
svarið. Hann hefur afhent leik-
húsunum beinagrind og veit að
það er ekki nóg. Þar er og sjálf-
gefin skýring á heyrnarleysri
hlustun hans á umrætt viðtal.
Að lokum þetta til og um Jó-
hannes Helga: Hann er undr-
andi á því að ég heillast ef unnt
er að taka hug fólks fanginn.
„Svona tal er della," segir
hann. „Listin á að leysa — ekki
fjötra." — En hvernig skyldi
vera mögulegt fyrir Jóhannes
Helga eða jafnvel Shakespeare
sjálfan að leysa einhvern úr
fjötrum með list nema þeir
yrðu svo miklir lukkunnar
pamfflar að listin tæki hug þess
fjötraða manns fanginn?
Væri ekki ráð fyrir Jóhannes
Helga að skafa úr eyrunum,
leysa sjálfan sig úr fjötrunum
og reyna að verða lukkunnar
pamfíll?
Reykjavfk, 1. október 1976
Birgir Sigurðsson.
VOLKSWAGEN-
EIGENDUR
Lótið smyrja bílinn reglulega.
SMURSTOÐIN
ER OPIN FRÁ KL. 8 F.H.
TILKL. 5:30 E.H.
HEKLA hf.
Lauyavegi 170—172 — Sími 21240.
New York ríki
f lytur út
meiri varning
en
flestlönd.
Við veitum ÞJÓNUSTU ÁN AFGJALDS
og munum aðstoða yður
við að finna það sem þér þarfnist.
í New York ríki eru yfir 40.000 fyrirtæki, sem
geta selt yður hverskyns varning: rafeindatæki,
plast, matvæli, fatnað, sjóntæki, tölvur, vélar og
hundruð annarra vörutegunda
Vörur sem þér kunnið að þurfa á að halda i
fyrirtæki yðar og við samkeppnishæfu verði
Fylkisstjórinn í New York riki veitir ÞJÓN-
USTU ÁN AFGJALDS og við getum látið fram-
leiðendur og seljendur vita um þarfir yðar
Allt sem þarf að gera er að skrifa okkur á
bréfsefni fyrirtækis yðar, lýsa nákvæmlega vör-
unum, sem þér hafið áhuga á og hvernig þér
hyggist nota þær Látið okkur vita hvort fyrirtæki
yðar mundi kaupa vörurnar fyrir eigin reikning
eða I umboðssölu. Getið um banka yðar, við-
skiptasambönd yðar i Bandarlkjunum eða ann-
ars staðar erlendis, venjulega greiðsluskilmála
(bankaábyrgð eða annars konar) svo og aðrar
upplýsingar, sem seljenda koma að gagni
Sendið bréf yðar I flugpósti til:
New York State
Department of Commerce
DEPT. LANC
International Division
230 Park Avenue
New York, N.Y. 1001 7 U.S.A
TELEX: 666705
Þegar við fregnum frá yður munum við senda
upplýsingarnar til framleiðenda i New York riki,
sem best geta þjónað fyrirtæki yðar Þeir munu
svara yður beint
Svar berst fyrr ef beiðnir eru skrifaðar á ensku
NewYork
_JL _ Skrifstofur
otate m zz
Við flytjum meira út en flest lönd.