Morgunblaðið - 05.10.1976, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976
13
Sigriður : „Ætli það sé nokkur fjarstæða að segja að bústofn foreldra
okkar hafi verið 30—60 kindur og 2 kýr fyrir heimilið."
Ólafur: „Faðir okkar var bókbindari og hafði töluverðar aukatekjur
af því en það hlýtur að hafa verið erfitt að framfleyta öllum þessum
krökkum."
Sigríður: „Mér finnst það afrek hjá þeim með svo litla jörð.“
Ólafur: „Manni finnst það óhugsandi nú.“
Sigríður: „Þetta var erfitt á margan hátt og vegna smæðar túnsins
varð að slá I bröttustu hllðum á skikum þar og til þess að raka saman
var auðveldast að renna sér á rassinum, þvl brattinn var svo mikill.
Hver skiki var nýttur."
Ólafur: „Svo þröngt var oft I búi hjá foreldrum okkar að það leyfði
ekkert af þvl að við hefðum að borða, oft aðeins stuttan tlma á ári, þvi
oft var björg við bæjardyrnar. Þegar unnt var brá pabbi sér I
silungsveiði innj á heiði, fuglaveiði og garðrækt höfum við ávallt lagt
stund á hér.
Það var hjá okkur gömul kona og pabbi undraðist oft hvað hún komst
af með litið fæði þegar litið var að borða og hve mikið hún gat borðað
þegar nóg var til að borða, sérstaklega silungur. Hún drakk mikið kaffi
og stundum nægði það henni I marga daga."
Ég veik nú talinu að uppruna þeirra og ætt til Bólu-Hjálmars, en
hann var langa-, langafi þeirra. Sigrlður Hjálmarsdóttir var langamma
þeirra og Ingibjörg Lárusdóttir, dóttir Sigrlðar, var amma þeirra og
móðir þeirra var Sigrlður Ólafsdóttir, dóttir Ingibjargar.
Ég vissi að þrjú systkinanna, sérstaklega fást nokkuð við yrkingar,
Ingibjörg, Sigríður og Ólafur.
Ólafur: Ef Sigga myndi yrkja eins mikið og ég, ætti hún miklu fleiri
góðar vlsu en ég.
Sigríður: Það bekenni ég ekki, Óli er beztur.
Ólafur: Annars held ég að Ingibjörg sé bezt.
En hvort sem þau eru sammála eða ekki þá lifir vísan þarna, hin
þjóðlega list og sjálfsagt er að heyra nokkrar:
Margar vísur hefur Ólafur gert þegar tækifæri hefur gefizt. Vindum
okkur til dæmis I réttir s.l. haust:
Hress í fasi, hýr (lund,
hlýju masi feginn.
Enn á glasa góðri stund,
grfp ég vasaf leyginn.
Eitt sinn á réttardegi mætti Ólafur þremur kátum rlðandi við réttina
og þegar þeir stöðvuðu hesta slna hjá honum tóku þeir allir upp pela
slna um leið og réttu skáldinu. Þá kvað Ólafur:
Fagurlega á glösin gljár,
glæst af vfni hreinu.
Sjaldan hef ég sólir þrjár
séð á lofti f einu.
Og hér koma nokkrar sitt frá hverju tilefninu:
Brosin glettin, blikar gler,
brúnaléttur, fagur.
Loksins þetta orðinn er
indæll réttardagur.
Andinn léttist, öls þvf glóð,
auðnu mettar haginn.
Sæll og glettinn syng ég ljóð
svona á réttardaginn.
Vftin öll ei varast má
verða á gleðifundum
gullhúfurnar ýmsum á
illa settar stundum.
Ég f brjósti á mér yl
undír þykku hýði.
Enda gerir ekkert til
um mig þó að hrfði.
Forðum út ég fór að sá
fræi göfgra kynna.
Sfðan sprettur arfi á
akri vina minna.
Hættuleg er hreinskilnin
heimskra manna siður.
Heillin getur, góði minn,
glutrazt alveg niður.
Þögnina segi ég sigur minn og tap
sjaldan á f jöldinn hlutdeild f mfnu geði.
Hláturinn glaður hressir oft mitt skap,
en hávaðalaus er öll mfn dýpsta gleði.
Nóttin hljóða, hlýjan gefur,
hljóm f Ijóðastreng.
örmum góðum um mig vefur
eins og móðir dreng.
Varlega vildi Sigríður fara I að leyfa mér að heyra vfsur eftir sig en
þó lét hún þrjár sigla:
Vetrarvfsa
Hjúpa náir hugans lönd,
hlýju þrá og drauma,
nú þó fái frostsins hönd
f jötrað bláa strauma.
Sumarvfsa
Mitt út færist sjónarsvið
sorg er f jær og kvfði
þegar hlær mér hlýjast við
z heiðablærinn þýði.
Hestavfsa
Bjart er heið um hugarsvið
hverfa greiðast þrautir
hér sem breiðar hóum við
hlæja reiðarbrautir.
Það var ævintýri að koma I Forsæludal, hitta fólk úr bergi íslands,
fólk með rammíslenzkt hjartalag, Islenzkan tón.
iGrein: Árni Johnsenl
OSRAM
flurpipur
lítur
so
r
'V.
Hlýlegur litur
Mikið Ijósmagn
Það hefir sýnt sig að litur 30 ó flúrpíp-
um fró OSRAM hentar einkar vel við
íslenzkar aðstæður.
Mest Ijósmagn allra flúrpera frd OSRAM
80 Im/W miðað við 40 W Ijósrör.
(Ath. litur 20 gefur sama Ijósmagn en
liturinn er blórri og því ekki eins hlý-
legur).
Góð reynsla ó skrifstofum, leikfimisöl-
um, fundarherbergjum, stigahúsum,
vinnustöðum, fyrir útilýsingu o.fl. o.fl.
Litarsamsetning: Mikið gult, sem gef-
ur mikið Ijósmagn. Rautt, sem veitir hlý-
legan blæ.
Góður litur gegn skammdegi og kulda.
OSRAM
Gólfdúkurinn frá
BYKO
Þar sem mikið er gengið, het-
ur BYKO jafnan gólfklæðninguna,
sem endist bezt. Þar sem minna geng-
ur á, hefur BYKO það, sem ódýrast
er. Hverju, sem þú stefnir að, hefur
BYKO það rétta undir iljarnar, gólf-
dúka eða flísar, fjölbreytt úrval efnis
og lita.
Þar sem fagmennirnir verzla,
er yöur óhætt
BYGGINGAVÖRUVERZLUN BYKO
KÓPAV0GS SF
NYBÝLAVEGI8 SÍMI:41000 vM/