Morgunblaðið - 05.10.1976, Síða 14

Morgunblaðið - 05.10.1976, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976 óumflýjanlegu stund þegar völdin verða afhent blökkumönnum," segir Peter Joyce I ævisögu Smiths, „Anatomy of a Rebel“. „Hann er raunsær og veit að þessu hlýtur að koma að lokum, en hann vill fá tíma: tíma til þess að Afrfkumenn og samfélag þeirra geti þróazt, lært og áunnið sér hæfileika til að stjórna skyn- samlega. Hann vonar einlæglega að grundvöllur góðrar stjórnar hafi verið lagður þegar svarti maðurinn tekur að lokum við stjórnartaumunum og að nóg verði af menntuðum, auðugum og reyndum Afríkumönnum til þess að koma í veg fyrir að landið liðist í sundur." Þegar byltingin í Portúgal var gerð f apríl 1974 varð hræring- anna vart um alla sunnanverða Afríku og Smith neyddist ennþá einu sinni til að setjast að samn- ingaborði. Byltingin undirbjó jarðveginn fyrir sjálfstæði tveggja portú- galskra nýlendna, sem voru ná- grannar Rhódesíu í austri og vestri. Hvítir Rhódesíumenn stóðu þar með berskjaldaðir fyrir skæruliðaárásum á víglínu, sem hafði lengzt um allan helming. Sú hætta vofði yfir að járnbrautun- um til Indlandshafs, sem höfðu verið notaðar til að rjúfa við- skiptabannið, yrði lokað. Bæði í Mozambique og Angola leið ekki á löngu þar til myndaðar voru marxistastjórnir, sem hétu stuðn- ingi við skæruliðana er börðust gegn stjórnum hvítra manna I Rhódesíu og Suðvestur-Afríku (Namibiu). Þess vegna var enn ein tilraun gerð til að ná sam- komulagi um stjórnarskrá í des- ember 1974. Heimurinn hafði neyðzt til að fylgjast með ástandinu í sunnan- verðri Afríku síðan Smith tók völdin í nóvember 1965: harðn- andi afstöðu hvitra manna og svartra og auknum árekstrum þeirra, en á sama tíma jókst frjálslyndari skoðunum fylgi I Pretoriu. Forsætisráðherra Suð- ur-Afrfku og forsetar fjögurra Afríkurfkja — Zambiu, Botswana og Mosambique það er grannríkja Rhódesiu og auk þess Tanzanfu sem hefur frá byrjun skotið skjólshúsi yfir skæruliða blökku- manna — áttu frumkvæðið að hinum nýju samkomulagsumleit- unum í Rhódesíu. Þrýstingur frá Vorster varð til þess að Smith lét lausa blökku- mannaleiðtoga, sem höfðu verið í haldi í rúmlega tiu ár, og hóf erfiðar viðræður við þá til að und- irbúa stjórnlagaráðstefnu. Þessar viðræður fóru fram í ágúst í fyrra og fóru út um þúfur eins og fyrri viðræóur, að þessu sinni vegna þeirrar kröfu blökkumanna að skæruliðaleiðtogar, sem voru I út- legð, yrðu fulltrúar á formlegri stjórnlagaráðstefnu. EFNAHAGSÁFÖLL Oliukreppan og kostnaðurinn við stríðið gegn skæruliðum höfðu valdið efnahagslegum skakkaföllum og áhrifa refsiað- gerðanna hélt áfram að gæta. Smith hélt áfram tilraunum sin- um til að komast að samkomulagi við blökkumannaleiðtoga og snemma á þessu ári hóf hann við- ræður við einn þeirra samtaka sem mynda Afríska þjóðarráðið SMIITHS BRETAR kalla hann svikara, blökkumannaleiðtogar kalla hann kynþáttahatara, flestir kalla hann uppreisn- armann, en 270.000 hvftir fbúar Rhódesfu kalla forsætis- ráðherra sinn “good old Smithy“. I augum þessara einangruðu og útskúfuðu hvftu manna stendur Ian Smith vörð um verðmæti heims sem er að líða undir lok. f augum þeirra býður hann heiminum byrginn til þess að varðveita kristni og vestræna menningu og verja þjóð sfna gegn böli kommúnismans. Nú stendur Smith frammi fyrir einhverri mestu eldraun sinni síð- an hann lýsti einhliða yfir sjálf- stæði Rhódesíu og sleit samband- inu við Breta fyrir 11 árum. Hann verður að sannfæra tortrygginn meirihluta hvítra stuðnings- manna sinna um að samkomulag- ið sem hann gerði við Henry Kis- singer, utanrikisráðherra Banda- ríkjanna, sé þeim og sex milljón- um blökkumanna Rhódesíu fyrir beztu. Smith hefur áður þurft að skýra ráðamönnum stjórnarflokksins, Rhódesíufylkingarinnar, og þjóð- inni frá áætlunum, sem hafa miðað að því að binda enda á ólöglegt sjálfstæði landsins og af- stýra vaxandi hættu á algeru kyn- þáttastríði. Hann hefur tvivegis rætt við leiðtoga ríkisstjórnar Verkamannaflokksins í Bretlandi til að reyna að ná samkomulagi um nýja stjórnarskrá. Bðar til- raunirnar fóru út um þúfur vegna þeirrar afstöðu Breta að ógilding hinnar einhliða sjálfstæðisyfirlýs- ingar væri forsenda breytinga á stjórnarskránni. Á það gat Smith ekki fallizt þar sem hann taldi slíkt jafngilda algerri uppgjöf fyrir Bretum. Arið 1971 bauð ríkisstjórn íhaldsflokksins í Bretlandi nýtt samkomulag, sem var Smith meira að skapi. Það kvað á um að blökkumenn og hvítir menn fengju jafnmarga fulltrúa á þingi, gerði ráð fyrir hægfara þróun til myndunar meirihlutastjórnar, en hafði ekki að geyma dagsetningu slíkrar stjórnarmyndunar. Þessar tillögur runnu út í sandinn þegar brezk nefnd kom til Rhódesíu og kynnti sér í þrjá mánuði skoðanir allra landsmanna án tillits til kyn- þáttar eða stjórnmálaskoðana. Leiðtogar blökkumanna óttuð- ust að með brezku tillögunum fengi stjórn hvíta minnihlutans lagalega viðurkenningu um ófyr- irsjáanlega framtíð og börðust hatrammlega gegn þeim. Brezka nefndin tilkynnti að meirihluti Rhódesíumanna, blökkumenn væri mótfallinn tillögunum. Smith var þetta mikið áfall. öll þau 23 ár, sem hann hafði tekið þátt i stjórnmálum, hafði það ver- ið skoðun hans að ef blökkumenn fengju völdin of fljótt yrðu afleið- ingarnar stjórnleysi og djúpstæð- ar ættflokkaerjur og þar hætta á borgarastríði. „EINLÆG VON“ Síðan Smith varð forsætisráð- herra 1964 hefur það verið hlut- verk hans að „slá á frest þeirri Hermaður Mozambique-stjórnar á verði á landamærum Rhó- desíu (ANC) — hreyfingu þriggja and- stæðra fylkinga sem afrfsku þjóð- arleiðtogarnir fengu til að sam- einast fyrir viðræðurnar í ágúst þótt sú sameining væri aðeins til málamynda. Konur þjálfaðar I vopnaburði Mozambique. Hreyfingin klofnaði eftir við- ræðurnar, en Joshua Nkomo, leið- togi hófsama armsins sem starfar í Rhódesiu sjálfri, féllst á að reyna að komast að samkomulagi við Smith. Sú tilraun fór út um I Umtali nálægt landamærum SlDASTA ELDRAUN Brlúge Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Einni umferð af þremur er nú lokið í undankeppni meist- arakeppninnar. Spilað er í þremur 15 para ríðlum og er meðalskor 210. Staða efstu para:A-riðill: Simon Símonarson Stefán Guðjohnsen 242 Jón Baldursson — Guðmundur Arnarson 238 Hannes Jónsson — Benedikt Jóhannsson 233 B-riðilI: Daníel Gunnarsson — Steinberg Rikarðsson 252 Skúli Einarsson — Skapti Jónsson 244 Jón Ásbjörnsson — Sigtryggur Sigurðsson 242 C-riðill: Bragi Hauksson — Óskar Þórðarson 240 Esther Jakopsdóttir — Ragna Ólafsdóttir 239 Jón Hilmarsson — Þorfinnur Karlsson 235 Meistarastigin skiptast þann- ig: Fyrsta sæti gefur 32 stig, annað sætið gefur 22 stig og þriðja sætið 15 stig. Unga fólkið setur svip sinn mjög á keppni þessa og eru ungir spilarar í fjórum efstu sætunum af sex. Nr. 1 í A-riðli, nr. 1 og 2 i B-riðli og nr. 1 i C-riðli. Þess má geta til gamans að Bragi og Óskar sem skipa efsta sætið í C-riðli eru yngstu keppendurnir í keppninni. Frá Bridgefélaginu Ásarnir í Kópavogi Aðalfundur var haldinn á sunnudaginn 26. sept. síðastlið- inn og var ný stjórn kjörin á honum. Hún er þannig skipuð: Jón Páll Sigurjónsson formað- ur, Ólafur Lárusson ritari, Júlí- us Snorrason gjaldkeri, Oddur Hjaltason v-formaður, Trausti Finnbogason með.stj., Magnús Einarsson með.stj. Allt eru þetta ungir menn, sem einhvers má vænta af í framtíðinni. — 0 — Mánudaginn 27. sept. hófst hjá okkur hin hefðbundna Haust-tvímenningskeppni. Þátttaka er með afbrigðum glæsileg, en 28 pör mættu til leiks. Keppnisstjóri er Sigurjón Tryggvason. Staða efstu para eftir fyrstu umferð af þremur: stig. 1. Garðar Þórðarson — Valdimar Þórðarson 193 2. Steinberg Ríkharðsson — Tryggvi Bjarnason 192 3. Guðmundur Pétursson — Sigtryggur Sigurðsson 188 4. -5.Einar Guðlaugsson — Rigriður Rögnv.d. 187 4.-5.Friðjón Margeirsson — Valdimar Jónsson 187 6. Lárus Hermannsson — Rúnar Lárusson 182 Meðalskor var 156 stig og var keppt í tveimur riðlum. — 0 — Nýlega heimsóttu okkur hr. og frú Armin Hurlimann frá óakland, Kaliforniu. Hurli- mann er kunnur keppnis- maður þar vestra, og hefur m.a. unnið sér rétt til þess að kallast „Live-master“. Vöktu þau hjón- in mikla athygli, enda áttu menn kost á að spila við þau, sökum yfirsetu. Voru þau geysi- hrifin af starfsemi Ásanna og

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.