Morgunblaðið - 05.10.1976, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976
15
þúfur eins og hinar fyrri. Astæð-
an var sú krafa Nkomo, sem Bret-
ar studdu, að meirihlutastjórn
yrði mynduð innan tveggja ára.
Valdamikill hópur hægrimanna
í flokki Smiths kom í veg fyrir að
meiriháttar tilslakanir yrðu boðn-
ar og Smith gat aðeins boðið þró-
un i átt til myndunar meirihluta-
stjórnar á eigi skemmri tíma en
tiu árum. Smith neyddist hins
vegar til að halda áfram sáttaum-
leitunum vegna mikils áfalls, sem
efnahagslifið i Rhódesíu varð fyr-
ir þegar stjórnin í Mosambique
lokaði járnbrautarleiðunum til
Indlandshafs I fnarz og þar sem
árásir skæruliða jukust um alian
helming. Smith gerði það að til-
lögu sinni í nokkrum vandlega
orðuðum ræðum og viðtölum að
Bandaríkjamenn reyndu að stilla
til friðar, en með því skilyrði að
um beinar viðræður yrði að ræða
milli ríkisstjórna Bandaríkjanna
og Rhódesiu.
Hvort sem Smith á eftir að
draga i land eða ekki eftir þá
yfirlýsingu sína að hann hafi fall-
izt á tillögur Kissingers, hefur
hann viðurkennt þá meginreglu
að meirihlutastjórn blökkumanna
eigi að taka við völdunum. Ástæð-
an er sú að hann gerir sér grein
fyrir að vonlaust er að heyja
langa og kostnaðarsama styrjöld,
sem jafnvel herforingjar hans
segja að hvítir menn geti ekki
unnið.
Þó hefur jafnan verið haft eftir
Smith að hann sé þess albúinn að
berjast upp á von og óvon, ef
annað komi ekki til greina. Smitn,
sem er 57 ára gamall bóndi og
sonur skozks kjötkaupmanns, hef-
ur orð fyrir að vera harður I horn
að taka. í heimsstyrjöldinni flaug
hann Spitfire-orrustuþotum við
góðan orðstír.
„Ef við afsölum okkur völdum
missum við allt sem við höfum,“
segir starfsmaður Rhódesíufylk-
ingarinnar. Þó að við verðum að
berjast með bakið að veggnum
frestum við að minnsta kosti þeim
degi.“
Smith sagði
eitt sinn að
„sjálfstæði með
skilyrðum væri
ekki sjálfstæði“
— og sú athuga-
semd varpar
skýru ljósi á
flókin vandamál
Rhódesiu.
Því
að blökkumenn
segjast einnig
vilja sjálfstæði
án skilyrða.
Og
þeir telja til-
raun Smiths til
að slá valdatöku
blökkumanna á
frest eitt slíkt
skilyrði.
TEKUR ÁHÆTTU
Smith hefur áður teflt á tvær
hættur. Einhliða sjálfstæðisyfir-
lýsing hans er dæmi um það. Hún
gerði Rhódesíumenn óalandi og
óferjandi í augum heimsins, varð
kveikja skæruhernaðarins, leiddi
til refsiaðgerðanha og varð til
þess að afstaða blökkumanna í
garð hvítra manna harðnaði. Þeg-
ar Elisabet drottning náðaði
svarta morðingja, sem dómstóll i
Salisbury dæmdi til dauða, lét
stjórn hans taka þá af lífi í marz
1968, þrátt fyrir viðvaranir frá
London þess efnis að þeir sem
bæru ábyrgðina gerðu sig seka
um landráð.
I janúar 1973 lokaði hann
landamærunum að Zambíu í mót-
mælaskyni við skæruliðaárasir
þaðan þrátt fyrir harða gagnrýni
heima fyrir bakaði sér þar með
reiði Suður-Afríku manna og
Portúgal, sem þá voru við völd i
Mozambique, því að báðir fluttu
út vörur til blökkumannarikja
með járnbrautum um Rhódesíu.
Og stjórn Smiths vísaði á bug
áskorunum stjórnlagaráðs Rhó-
desíu um að milda umdeild lög,
sem kváðu á um dauðarefsingu ef
vopn fundust í fólki og heimiluðu
bæjarstjórnum að aðskilja fólk af
ólikum kynþáttum í skemmtigörð-
um.
í öllu sem Smith hefur tekið sér
fyrir hendur hefur hann alltaf
getað treyst á stuðning flokks sins
og að minnsta kosti 80 af hundr-
aði hvítra kjósenda, sem eru
90.000 (10.000 blökkumenn hafa
atkvæðisrétt). Hann kveðst einn-
ig njóta stuðnings meirihluta
blökkumanna með tilstyrk
höfðingja þeirra, sem eru 600 tals-
ins, á launum hjá ríkinu og ráða
yfir um 80 af hundraði Afríku-
manna.
En blökkumenn i bæjum og
borgum, sem áhuga hafa á stjórn-
málum, hafna
ættflokkahöfð-
ingjunum, gera
gys að þeim og
kalla þá „svik-
ara“ og „hækj-
ur“ stjórnarinn-
ar.
Bretar hafa
einnig sagt að
þeir viðurkenni
þá ekki sem full-
trúa meirihluta
blökkumanna.
TOYOTA SAUMAVELIN
er óskadraumur konunnar.
Toyota-saumavélin
er mesí selda sauinavclin á Islandi í dai>.
rOYOXAvarahlutaumboðið h.f.#
Ármúla 23, Reykjavík, sími 81733.
Einkaumboð á Islandi.
fannst nafnið Ásarnir sérstak-
lega vel valið, enda góðkunn-
ingjar Dallas-Ásanna, hinna
einu sönnu. Hurlimann er gam-
all makker Mike Lawrence,
eins af Ásunum. Hann harmaði
það eitt, að enginn timi né
aðstaða gæfist til að halda nám-
skeið eða veita aðrar leiðbein-
ingar þeim er óskuðu, sökum
tímaskorts. Stjórn Ásanna vill
eindregið hvetja menn til að
líta inn og kynna sér starfsemi
félagsins, um leið og hún
þakkar hr. og frú A. Hurlimann
fyrir komuna. Stjórnin mun
eiga bréfaskipti við klúbb
Hurlimanns í Kaliforníu, USA,
um ýmis málefni varðandi
bridge-íþróttina. A.G.R.
NYjUNG HELLESENS
Hellesensrafhlöðurnar skiptast í þrjár tegundir, rauðar, bláar
og gulllitaðar.
Nú hefur Hellesens tekið upp þá nýjung að merkja á bak
rafhlaðanna, hvar þær koma að bestum notum.
Merkingar eru þannig, að undir skýringarmyndum eru krossar:
1 kross = góðar. 2 krossar = betri 3 krossar = bestar.
Til þeirra nota sem skýringarmyndir sýna.