Morgunblaðið - 05.10.1976, Side 16

Morgunblaðið - 05.10.1976, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976 i m ;ft HOWARD LAWRENCE skrifar frá New York Howard Lawrence er bandarískur tízkuteiknari, sem hefur unnið fyrir íslenzka aðila. Hann mun skrifa við og við um tízku fyir Morgunblaðið. UM árabil hefur það verið eitt aðaláhugaefnið í sam- bandi við kventízku hvar faldurinn er staddur þá stundina. Var í tízku að faldurinn væri um hné, neðan við hné, niðri á miðjum kálfa, eða var faldurinn kannski ein- hvers staðar í námunda við öklann? Þá komu allt í einu menn, sem sögðu að faldur- inn skipti alls engu máli því að nú ættu allar konur, litlar og hávaxnar, mjóar og feitar, ungar og gamlar, og allar þar á milli, að klæðast síðbuxum og kjólar og pils væru búin að vera. Þeim sem hafa það að atvinnu aó búa til föt eða skrifa um föt og mest áhrif hafa á tízku, er talsvert í mun að jafnan sé uppi nokkur ágreiningur um tízkuna. Því skiptast þeir í hópa, sem með engu móti geta komið sér saman um hvort skóhælar eiga að vera háir eóa lágir, hvort konur eigi að vera í síðbux- um eöa pilsum eða hvort hárið eigi að vera stutt eða sítt. Venjulega kemur á daginn, að enginn einn hópur hefur haft á réttu að standa meðal annars vegna þess að engum dettur í hug að viðurkenna annað en eigin sjónarmið. Þegar hausttízkan fór aó koma fram á sjónarsviðið varð smám saman ljóst að aðaláherzla hefur verið lögð á mitti konunnar. Kjólar eru mjög áberandi þattur í tizkunni og á öllum þeirra er mittið áberandi og á sínum stað. Nú er ekki ætlunin að konur hafi kjóla nær einvörðungu til spari- brúks, heldur ber mikið á alls konar hversdags- kjólum. Þær sem ein- hverra hluta vegna vilja ekki útvega sér kjóla ættu að klæðast pilsum og hafa við þau belti, þvi að með því móti er hægt að ná „lín- unni“ sem nú er í tízku. Hér eru nokkrar gerðir af hinum ómissandi beltum, og á hinum myndunum má sjá hvernig hægt er að nota þau. Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Sýning Vilhjálms Bergssonar ,,Ljós og lífrænar víddir” EK voit i'kki. í hvt’ miklum ma'li ha'jjt sé ah kalla sýnanfíu Vilhjálms Bt'rMssonar í sýnin}>- arsölum Norræna hússins yfir- litssýninnu, t>n víst t'r, aú hún na'r vfir marf»t það helsta, t*r frá þessum málara hefur komiú allt frá árinu 1964 og fram á dafjinn í da}>. A árinu 1964 Kerú- ust einmitt þa-r breytinftar í málverkí hans. er mörkuðu það þróunarskeið er enn stendur yfir. Myndstíll málarans, er hafði áður einkennst að mestu af óheftum vinnubrögðum í meðferð forma, varð nú yfir- vt'gaðri, jafnframt því sem þau urðu ha'gari og kröfuharðari. — Formin tóku nú að fá á sig svip mt'itlaðs jafnvægis og kraf- an um einföldun og takmörkun varð stöðugt áleitnari. Um langt skeið einkenndist form- skipanin af einu aðalformi er tók á sig ýmsar myndír, t.d. í þeim málverkum, er hann nt'fndi ..HvtT' og „Svif“, — lit- irnir urðu þá gjarnan myrkir og dulúðugir. en hvít form skáru einatt flötinn, svo að stundum minnti á tennur stórhvelis. Því na*st komu litirnir smám saman aftur í þeim myndum, er hann nefndi gjarnan „Samlífrænar víddir" (Kjarni I, II, III, o.s.frv.), þá kom í ljós árangur- inn af fyrri ögun og takmörkun í formum og lit. Gott dæmi um sterkar myndir i þeim stíl eru myndirnar „Kjarni'' I og „Kjarni" 5, sem eru báðar á sýningunni. Hér er það rúmið, himingeimurinn, tenging forma með línum, sem er aðal- inntak myndhugsunarinnar og í þeim anda hefur hann unníð síðan, og grunntóninn í mynd- um sínum síðustu árin nefnir hann réttilega „Ljós og lífræn- ar vfddir". A tímabíli álitu ýmsir, að Vilhjálmur hefði þrengt full- mikið að myndheimi sínum og stæði jafnvel á endamörkum hans, og nokkrar myndir af smærri gerðinni, er hann átti á samsýningu, sem undirritaður sá, gátu gefið til kynna, að lista- maðurinn væri í lægð, formin virkuðu nokkuð bæld og þving- uð, — en nýjustu myndirnar á þessari sýningu afsanna allar slíkar hugrenningar, og hafi þær átt einhverja stoð, þá hefur Vilhjálmur unnið sig upp úr lægðinni aftur svo að um munar, því ég sé ekki betur en að nýjustu myndir hans séu með því ferskasta og sterkasta er eftir hann liggur. Má hér sérstaklega benda á hinar þrjár stóru myndir hans er skipa endavegg fremri salar (nr. 33—35), og einnig flestar aðrar nýrri myndir hans, t.d. þá er Listasafnið festi kaup á, sem eykur mjög á fjölbreytni mynda þeirra er safnið á fyrir eftir Vilhjálm, og hefði safnið í þvi skyni sér að skaðlausu mátt bæta við mynd nr. 13 „I miðju", sem er óvenjuleg í formi frá hendi Vilhjálms þótt hún beri sterk svípmót stílbragða hans. Að kunna að bregða út af fast- skorðaðri leið en halda þó full- um stíleinkennum sínum er einmitt aðall hins gilda mynd- listarmanns. Einstakir ná hér svo langt, að allt ber svip per- sónu þeirra hvar sem þá ber niður, jafnyel þótt þeir bregðí fyrir sig stíl annarra málara og er t.d. Pieasso gott dæmi hér um. Myndir Vilhjálms geta virst tormeltar, og þær eru það vafa- lítið fyrir leikmenn í flestum tilvikum, — þó kunna hinar miklu víddir og furðuheimar að grípa suma strax við fyrstu kynni. Það er likast því sem skoðandinn skynji segulskaut og sjái inn í alheimsvíddir, byggðar upp af línum, strend- ingum, hring- og egglega form- um, og stundum er líkast því sem reykský eða ófreskar slæð- ur umlyki eða felist innan í formunum, og gefur það mynd- unum dulúðugan svip. Fyrir Vilhjálmi virðist vaka að tengja þessi atriði hvort öðru þannig að skoðandinn skynji þau með- vitað sem ómeðvitað, — hið hlutlæga inntak myndanna kallar á huglægar kenndir sem við finnum og könnumst við, þótt ekki verði þær jafnan skil- greindar. Rúmið í sinni margbreytilegu mynd hefur lengi freistað málara sem viðfangsefni, og ekki sízt síðan geimöld hófst með spútnikum og síðar mönnuðum geimförum sem stöðugt verða fullkomnari, og engin takmörk virðast því sett hvað nýjar uppgötvanir og ný skref áhrærir. Þetta hefur að sjálfsögðu víkkað rúmskyn listamanna og orðið þeim vaki að margvíslegum viðfangsefn- um og einnig breikkað mynd- hugsun þeirra, sem i sjálfu sér er mikilvægast. Frá fyrstu tið hefur þetta haft áhrif á hérlenda listamenn í ýmsum myndum og einna sterkast hjá Vilhjálmi Bergs- syni, sem hefur þó markað list sinni þröngar skorður og virðist búinn ótakmarkaðri viljafestu og þráhyggju til nýrra land- vinninga. — Þetta er fjölbreyttasta sýn- ing sem Vilhjálmur hefur haldið, — en þó grunar mig að hún hefði orðið ennþá ferskari með nýjum myndum einvörð- ungu og hefði algjörlega staðið fyrir sínu. Vilhjálmur hefur undanfarin ár verið búsettur i Kaupmanna- höfn, sem er mjög skynsamlegt fyrir mann með slík viðhorf, og þangað mun hann senn halda aftur til nýrra átaka. P^n fram á sunnudagskvöld gefst borgar- búum tækifæri til að kynnast myndveröld hans og er ekki að efa að marga fýsi þess.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.