Morgunblaðið - 05.10.1976, Qupperneq 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÖBER 1976
29
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthlas Johannessen,
Styrmi* Gunnarsson
Þorbjörn Guðmundsson
Björn Jóhp nsson.
Árii Garoar Kristinsson.
Aðalstræti 6, sími 10100
Aðalstræti 6, sími 22480
Áskriftargjald 1000,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 50,00 kr. eintakið.
Hvað
veldur?
Saía - áfengis var með
fádæmum mikil í vínbúð-
um borgarinnar sl fostudag;
*.-j^mbærileg við sölu fyrir verzl-
• ' lírtarmannáHelgi og á Þorláks-
messu að sögn útsölustjóra
Meginorsökin var máski sú, að
þennan dag féll saman útborg-
un viku- og mánaðarkaups. En
afleiðingarnar létu ekki á sér
standa. Um kvöldið og nóttina
þurfti lögreglan margoft að
hafa afskipti af drukknu fólki á
heimilum, í öldurhúsum og á
götum úti Utköll lögreglunnar
við Hverfisgötu urðu nokkuð á
annað hundrað talsins þessa
einu nótt Fangageymslur fyllt-
ust af ölvuðu fólkí og nokkrir
voru sendir til yfirheyrslna hjá
rannsóknarlögreglunni vegna
margvíslegra afbrota. Fjöl-
margir unglingar, sumir vart af
barnsaldri, voru keyrðir heim til
sín vegna ölvunar og sumum
komið fyrir á upptökuheimilinu
í Kópavogi
Lögregluvarðstjóri sagði í
viðtali við Morgunblaðið sl
sunnudag ,,Við höfum orðið að
hafa afskipti af krökkum allt
niður i 12 ára aldur vegna
ölvunar. Og það alvarlegasta
að minum dómi er, að oft,
þegar við komum með ungl-
inga heim, eru heimilin ekki
undir það búin að taka við
þeim vegna ölvunar foreldra."
Það er vissulega ástæða til
að staldra við þessar staðreynd-
ir. Ekki sízt hópdrykkju ungl-
inga á ýmsum stöðum í borg-
inni, allt niður í barnsaldur;
sem og bakgrunninn, ölvun
foreldra i heímahúsum, sem
ekki eru færir um að veita börn-
um sínum móttöku er lögregl-
an flytur þau heim. Margur
heldur því fram að hér sé um
undantekningar að ræða, en ef
svo er, eru þessar sorglegu
undantekningar sjúklega marg-
ar.
Hverjar eru orsakir slíkrar
meðferðar á áfengi, sem hér er
að verða þjóðarböl, en á sér
fáar, ef nokkrar hliðstæður hjá
menningarþjóðum, sem þó
hafa haft áfengi um hönd öld-
um saman? Sjálfsagt eru orsak-
irnar margþættar og þarfnast
tafarlausra félagslegra athug-
ana víð. Naumast er velferðar-
þjóðfélaginu einu um að
kenná, því fleiri þjóðír búa við
nægtir, jafnvel í enn rikari mæli
en víð, þó þar sé ekki sambæri-
legar hliðstæður að finna. Engu
að síður eru rúm fjárráð for-
senda áfengiskaupa í þeim
mæli sem hér á landi eiga sér
stað, og velferðarþjóðfélagið
skilur e.t.v. eftir vanfyllt tóma-
rúm í frítíma alls þorra fólks. Ef
til vill er orsakanna að hluta til
að leita i því að of mörg heímili
hafa brugðizt uppeldisMutverki
sínu, -» m k ýmsum þáttum
þes^ Ef til vill skortir hóflegan
aga í stað taumlauss frjálsræðis
og undirstrikun háttvísi og sið-
gæðis. í þvi sambandi má held-
ur ekki gleyma því að helftin af
uppeldi og þroska barna og
unglinga er sótt til fræðslukerf-
isins barna- og unglingaskól-
anna. Er þar e.t.v. pottur brot-
inn varðandi þátt siðræns
"þroska og háttvísi?
Hvarvetna virðist og alið á
þjóðfélagslegri óánægju, sem
stuðlað hefur að brenglaðri af-
stöðu fólks til samfélagsins.
Hófleg og rökstudd gagnrýni er
að vísu bæði réttlætanleg og
nauðsynleg. En þegar þar er
komið að menn líta á þjóðfélag-
ið sem í raun er ekkert annað
en samfélag þjóðfélagsþegn-
anna, sem fjandsamlegt fyrir-
brigði, sem rétt sé að snið-
ganga á hverja lund, þá er
komið að hættumörkum. Slikir
öfgar bjóða upp á rangsnúna
afstöðu og hegðan, sem getur
brotizt út með ýmsum hætti.
Sumir ganga jafnvel svo
langt í orsakaleit fyrir drykkju-
siðum íslendinga að tala um
veilur í þjóðarskapgerð okkar,
áhrif skammdegis á sálarlíf
okkar og fleira af því tagi. Hvað
sem slíkum bollaleggingum
líður hefur enginn heilbrigt
hugsandí maður horft fram hjá
þvi að brjóta þarf blað i
meðferð okkar á áfengi. Það
verður því aðeins gert með
árangri að viðhorf almennings i
þessu efni breytist verulega.
Slik hugarfarsbreyting kemur
ekki af sjálfu sér. Hún krefst
samátaks ekki sízt í fræðslu,
bæði á heimilum og i skólakerfi
þar sem agi og reglusemi komi
á ný við sögu eða i rikara mæli
en nú er. Heimilin, skólarnir,
kirkjan og hin margvíslegu
æskulýðsfélög eiga hér sameig-
inlegt verk að vinna. Orsök
ófremdarástandsins kann að
liggja fyrst og fremst hjá hinum
eldri en þó þarf einkum að
horfa til æskunnar í þessu efni,
því að hennar er framtiðin.
Efalítið eru skoðanir skiptar
um, hvern veg bregðast skuli
við þessum vanda. Félagslegar
athuganir á orsökum þess,
hvers vegna íslendingar um-
gangast vin með öðrum og
miður æskilegum hætti en aðr-
ar þjóðir, sem og á hinni vax-
andi vínnotkun barnungs
æskufólks, gætu leitt ýmislegt i
Ijós, sem varðaði veginn til úr-
bóta Þær yrðu a.m.k. heiðar-
leg viðleitni í þá átt. Lengur er
ekki hægt að láta sitja við orðin
tóm og fljóta sofandi að
feigðarósi.
Willy Brandt:
Forsætisrádherra
Helmut Schmidt kanzlari kýs f
Hamborg.
Schmidt í sjónvarpinu að ósam-
lyndi hægri og vinstri afla innan
Jafnaðarmannaflokksins ætti
sinn þátt í úrslitunum, ekki sfzt f
suðurhlutanum, þar sem vinstri
öflin hefðu verið afar hávær að
undanförnu og orðið til þess að
hægri sinnar hefðu að þessu sinni
snúið baki við flokknum. Þó ekki
með því að kjósa FDP-flokk
Genschers — eins og búizt hefði
verið við heldur með þvf að greiða
CDU-CSU atkvæði. Harður áróð-
ur þessara systurflokka gegn
sósfalisma og tilraunir til að búa
til grýlur úr vinstri öflunum inn-
Framhald á bls. 46
Helmut Kohl
jafnaðarmanna í
Hessen sagði af sér
Bonn, Wiesbaden 4. okt.
NTB, Reuter.
A SUNNUDAGSKVÖLDIÐ sagði
þekktur jafnaðarmannaforystu-
maður, Albert Osswald, forsætis-
ráðherra i ríkinu Hessen, af sér.
Gerðist þetta örfáum mínútum
eftir að kjörstöðum f landinu var
lokað. Osswald viðurkenndi í
sjónvarpsviðtali f fyrri viku, að
hann hefði þegið 100 þús. mörk
(um það bil 7,6 millj. ísl. krónur)
frá umdeildum fjármálamanni.
í afsagnarbeiðni sinni sem var
birt strax kveðst Osswald leggja
áherzlu á, að hann hafi ekki birt
yfirlýsingu um þetta fyrr vegna
kosninganna til nýs þings.
Hessen er eitt mikilvægasta
vígi jafnaðarmanna. Þar hafa
jafnaðarmenn ráðið lögum og lof-
um sfðan í heimsstyrjöldinni
sfðari og Osswald hefur verið for-
sætisráðherra f fylkisstjórninni
SÍðan árið 1969. Hann hefur
einnig verið forseti efri deildar
þingsins og verið þar af leiðandi
staðgengill forsetans, Walters
Scheel. Osswald sagði að
fjármálamaður sá sem hann hefði
þegið peningana frá væri Tibor
Rosenbaum, sem er fæddur í Ung-
verjalandi. Hann var áður banka-
stjóri f Genf en bankinn varð að
hætta starfsemi fyrir tveimur ár-
um vegna gjaldþrots. Rosenbaum
var síðar handtekinn og ákærður
fyrir afleita bankastjórn. Banki f
Hessen sem Osswald var stjórnar-
formaður í átti 36% hlutabréfa í
svissneska bankanum.
Hinn raunverulegi sigur-
vegari þýzku kosninganna
Stemmningin döpur í
stjórnarherbúðunum
Frá Sverri Schopka
f Hamborg.
KRISTILEGIR demókratar unnu
mikinn sigur I kosningunum f
Vestur-Þýzkalandi á sunnudag.
Þeir hlutu 48.6% atkvæða eða 244
þingsæti af 496. og bættu þar með
víð sig 3.7% eða 19 þingsætum.
Næstir komu jafnaðarmenn
með 42.6% eða 213 þingsæti. Þeir
töpuðu 3.2% eða 17 þingsætum.
Frjálslyndir hlutu 7.9% eða 39
menn kjörna og nam tap þeirra
0.5% og fá þeir þvf tveimur þing-
mönnum færra en áður. öfga-
flokkarnir hlutu alls 0.9% og eng-
an kjörinn. Kjörsókn nam 91%
eða álfka og 1972.
Eins og þessar tölur bera með
sér fengu núverandi stjórnar-
flokkar, jafnaðarmenn og frjáls-
lyndir, alls 252 menn kjörna og
hafa þvf mjög nauman meirihluta
eða átta þingsæti alls. I sfðustu
kosningum, 1972 náðu þeir að fá
46 fleiri þingmenn en kristilegir
demókratar. Stemmningin f
stjórnarflokkunum er þvf heldur
döpur þessa stundina.
Schmidt kanzlari og Genscher,
leiðtogi frjálslyndra, hafa þó báð-
ir lýst þvf yfir að þeir muni halda
stjórnarsamstarfinu áfram þrátt
fyrir kosningaúrslitin.
Helmut Kohl og Franz-Josef
Strauss, leiðtogar kristilegra
demókrata, eru að vonum ánægð-
ir með árangurinn þvf litlu mun-
aði að þeir fengju algeran meiri-
hluta einsog einu sinni áður hef-
ur komið fyrir, en það var árið
1957 þegar flokkur Adenauers
þlaut 50.10% atkvæða.
Sigur kristilegra demókrata var
mestur f Suður-Þýzkalandi, sér-
staklega f Bæjaralandi þar sem
flokkur Strauss fékk 60% at-
kvæða sem er einstakt met.
Helmut Kohl hefur lýst þvf yfir
að flokkur hans ætli að mynda
stjórn og f dag gekk hann á fund
Walter Scheel, forseta,/Þýzka-
lands, til að tjá honum álit sitt.
Forseti útnefnir kanzlaraefni
sem á von á meirihluta f þinginu,
en þingið kýs sfðan kanzlara.
Kohl hefur ennfremur sent
frjálslyndum bréf og boðið þeim
stjórnarsamstarf. Talið er að þeir
muni svara málaleitun hans á
morgun, þriðjudag.
Núverandi þing situr fram f
desember en 14. desember verður
nýr kanzlari kosinn og stjórn
mynduð á eftir. Mestar Ifkur eru
þó á þvf að núverandi stjórn sitji
áfram, en með átta þingmanna
Bonn, Moskva, London 4. okt.
Reuter. NTB.
FORD Bandarfkjaforseti hringdi
á sunnudagskvöld til Helmut
Schmidts, kanzlara Vestur-
Þýzkalands, og óskaði honum til
hamingju með sigur f vestur-
þýzku kosningunum. I Moskvu
var sigri stjórnarflokkanna einn-
ig fagnað og þeir talinn sigur
fyrir detentestefnuna milli Aust-
ur- og Vestur-Þýzkalands.
Talsmaður Alþjóðasambands
jafnaðarmannaflokks, sem hefur
aðsetur I London, sagði að þar
væri ánægja með að Jafnaðar-
mannaflokkurinn hefði sigrað i
kosningunum, þrátt fyrir harða
atrennu frá hægriöflunum í land-
inu. Muni þvf verða haldið áfram
á þeirri braut sem Jafnaðar-
mannaflokkurinn hafi markað
með stjórn sinni.
Frá Noregi bárust þær fréttir
að Káre Willock, leiðtogi Hægri-
meirihluta verður mjög erfitt að
stjórna landinu.
Þess má geta að stjórnin sem
Willy Brandt myndaði að loknum
kosningum 1969 hafðí 12 þing-
manna meirihluta og átti þó erfitt
um vik eins og seinna kom á
daginn.
Helmut Schmidt þarf 249 at-
kvæði til að ná kjöri sem kanzlari
og má þvf ekki mikið bera út af
þegar kosningin fer fram. Fari
svo að hann nái kosningu verða
sennilega litlar breytingar gerðar
Framhald á bls. 46
flokksins, hafði sagt að enda þótt
CDU-CSU hefðu ekki náð meiri-
hluta væri þó ljóst að Kristilegi
Demókrataflokkurinn hefði unn-
ið stórmikinn sigur með því að fá
um það bil 49% atkvæða. Hefði
stefna Kristilega demókrata-
flokksins bersýnilega vakið traust
kjósenda.
1 Sovétríkjunum var sagt ítar-
lega fra kosningunum og lögð á
það áherzla að Helmut Schmidt
kanzlari hefði fengið umboð til
þess frá kjósendum sínum að
halda áfram við framkvæmd aust-
urstefnunnar sem löngum hefur
verið kennd við Willy Brandt.
Tass sagði að Schmidt væri sigur-
vegari kosninganna og sagði að
fylgisaukning Kristilegra
demókrata væri sakir þess að
ýmsir leiðtoga flokksins hefðu
verið tilneyddir I kosningabárátt-
unni til að viðurkenna að slökun
spennu væri eina raunhæfa for-
sendan fyrir því að Austur- og
armannaflokkurinn og með-
stjórnarflokkur hans hafa naum-
an meirihluta á væntanlegu
þingi.
Helmut Kohl er 46 ára gamall.
Hann var yngstur formaður
kristilegra demókrata þegar hann
tók við formennsku í þeim flokki í
júní fyrir þremur árum. Dr. Kohl
getur að verulegu leyti þakkað
sér heiðurinn af þeirri endur-
skipulagningu, sem gerð hefur
verið á flokki hans og má síðan
rekja til hins mikla fylgis sem
flokkurinn sópaði til sín nú.
Þegar Kohl var kjörinn formað-
ur rak hann ýmsa háttsetta starfs-
menn flokksins og færði þá til
dæmis fram á sjónarsviðið dr.
Kurt Biedenkoph, prófessor í hag-
fræði, og fyrrverandi rektor
Ruhrháskóla. Gekkst hann fyrir
því að dr. Biedenkoph yrði ritari
flokksins.
Þeir skipulögðu siðan herferð
Framhald á bls. 46
Vestur-Þýzkaland gætu haldið
áfram eðlilegum samskiptum. Bú-
izt er við að Brezhnev flokksleið-
togi Sovétríkjanna muni fljótlega
ákveða hvaða dag hann muni
koma i opinbera heimsókn sina til
Vestur-Þýzkalands. Þaðvartalinn
óbeinn stuðningur við Schmidt að
hann var ófáanlegur að ákveða
dag fyrir heimsókn sína fyrir
kosningarnar.
í Austur-Berlin er sagt að um
það bil 70% allra íbúa þar hafi
fylgzt með sjónvarpsútsendingum
frá kosningunum og vakti það
mikinn fögnuð að sögn Reuters,
að stjórnarflokkarnir héidu velli.
Var það almenn trú, að þvi er
fréttamaður Reuters segir, að aft-
urhvarf yrði til kalda striðsins ef
Kristilegir demókratar kæmust
til valda og þá yrðu og lagðar
auknar hömlur á að Austur-
Þjóðverjar fengju að flytjast til
Vestur-Þýzkalands.
V-Þýzkaland:
Viðbrögð jákvæð við því að
stjómarfiokkamir héldu velli
Schmidt: „Á þessu stigi málsins
hafa slikar breytingar ekki komið
til tals.“
Viðbrögð blaða
Viðbrögð dagblaðanna I dag eru
i svipuðum dúr og forsvarmanna
flokkanna á sunnudagskvöldið.
Hægri sinnuðu blöðin velta þeirri
spurningu fyrir sér, hvort
Genscher muni standa við yfir-
lýsingar sínar um áframhaldandi
samstarf við jafnaðarmenn, en
frjálslynd blöð efast ekki um að
því samstarfi verði haldið áfram.
Blaðið Bild, sem er hægri sinnað,
spyr á forsíðu hvort Genscher
muni ekki velja öruggari kostinn,
þe. samvinnu við hægri flokkana.
„Er það réttlátt?“ spyr Bild „að
þeir sigruðu — stjórnarflokkarn-
ir — skuli nú eiga að starfa saman
gegn hinum raunverulegu sigur-
vegurum?"
Þá leggur Bild áherzlu á þá
erfiðleika sem muni skapast við
svo nauman meirihluta stjórnar-
innar. Frjálslyndu blöðin, til
dæmis Siiddeutsche Zeitung,
segja sigur stjórnarinnar nauman
og að CDU-CSU séu nú óneitan-
lega stærsti þingflokkurinn í
Bonn. Samt sem áður geti sá
meirihluti, sem stjórnarflokkarn-
ir hafa, nægt, ekki sízt þar sem
FDP-flokkur Genschers — hafi
tekið ákveðnari afstöðu i
vinstristefnu sinni á síðustu árum
og þvi sé minni hætta á að þing-
menn hlaupi yfir til hægri flokk-
anna eins og brögð hafi verið að
fyrr. Blöðin eru yfirleitt
samdóma um að ekki sé hægt að
tala um neinn einn sigurvegara
kosninganna. Urslitin séu enda
afar mismunandi eftir kjördæm-
um. Stærstan megi telja sigur
Franz Josefs Strauss og CSU I
Bayern og þar er jafnframt mesta
tap Jafnaðarmanna. Sem dæmi
má nefna að í Miinchen tapa
jafnaðarmenn fjórum þingmönn-
um af fimm, en áður var Miinchen
eitt höfuðvígi Jafnaðarmanna-
flokksins. Yfirleitt tapi stjórnar-
flokkarnir alls staðar, ef miðað sé
við síðustu þingkosningar 1972,
en standi I stað eða bæti örlitið
við sig ef miðað sé við siðustu
fylkiskosningar. Blöðin virðast
ekki telja neina eina skýringu
einhlíta á þessari hægri sveiflu.
Schmidt kanslari hafi þó nefnt i
sjónvarpi á sunnudagskvöld að
heimskreppan og afleiðingar
hennar hafi haft áhrif á kjósend-
ur, þrátt fyrir að stjórnarflokk-
arnir hafi í kosningabaráttunni
lagt áherzlu á sterka stöðu Þýzka-
lands og hversu vel þeim hafi
tekizt að stemma stigu við
einkennum kreppunnar. Þessi
skýring kunni að stinga í stúf við
almenningsálit erlendis á þýzkum
efnahag, en bendi til að stjórnar-
flokkunum hafi ekki tekizt að
sannfæra landa sína um styrk-
leika Þýzkalands I samanburði við
nágrannalöndin.
Óánægðir kjósendur
jafnaðarmanna kusu
ekki flokk Genschers
Þá viðurkenndi Helmut
ir nú að loknum kosningum að
hann og flokkur hans séu sigur-
vegarar kosninganna og þvf sé
eðlilegt að honum verði falin
stjórnarmyndun. Þó er allt á
huldu um það enn, þar eð jafnað-
STJÓARNARFLOKKARNIR I Vestur-Þýzkalandi, undir forystu
Helmuts Schmidts kanslara, héldu meirihluta f kosningunum á sunnu-
dag, en kristilegir demokratar, CDU, og systurflokkur þeirra CSU, í
Bayern unnu mjög á, svo að meirihluti stjórnarflokkanna er sérdeilis
naumur. Kristilegir demókratar og CSU fengu nú 48.6% atkvæða og
juku þingmannaf jölda sinn f Bundestag um nítján úr 225 f 244, og varð
þessi aukning að mestu á kostnað Jafnaðarmannaflokks Helmuts
Schmidt sem fékk nú 42.6% atkvæða en hafði 45,8 fyrir fjórum árum.
Flokkurinn fékk nú 213 þingmenn á móti 230 árið 1972. Samstarfs-
flokkur jafnaðarmanna, Frjálsi demókrataflokkurinn undir forsæti
Hans Dietrich Genschers, fékk 7,9% atkvæða og 39 þingmenn sem er
ögn minna en 1972 þegar flokkurinn fékk 8.4% og 41 þingmann.
Meirihiuti stjórnarflokkanna þinginu hefur þvf minnkað úr 46
sætum i átta þingsæti. Engu að siður lýsti Schmidt kanslari þvf yfir að
hann og samstarfsflokkur hans myndu stýra landinu áfram og tók
Hans Dietrich Genscher, formaður FDP, undir það.
Helmut Schmidt kanslari var sagður hafa búizt við þvf f fyrri vikur
að stjórnarflokkarnir myndu að kosningum loknum hafa um 20 sæta
meirihluta. Kristilegír demókratar, sem nú hafa unnið nftján þingsæti
hafa ekki unnið jafn stóran kosningasigur sfðan Konrad heitinn
Adenauer fékk meirihluta upp á 50.2% fyrir 21 ári.
Kjörsókn var 91 % en var 91,1 % f sfðustu þingkosningum.
Magdalena Schram, blaðam. Mbl. sem er stödd f Þýzkalandi segir hér
á eftir frá umsögnum forystumanna og ummælum blaða eftir að
úrslitin lágu Ijós fyrir.
Frá fréttamanni
Morgunblaðsins í Munchen,
Magdalenu Schram.
Helmut Kohl:
Willy Brandt fyrrverandi kanznlari ræðir við Helmut Schmidt eftirmann sinn á fundi sósfaldemókrata f
gær um úrslit kosninganna f Vestur-Þýzkalandi.
Bonn 4. okt. Reuter.
EINS og fram hefur komið f frétt-
um hefur Helmut Kohl, leiðtogi
kristilegra demókrata, lýst þvf yf-
KOSNINGASTÖÐUM í Þýzka-
landi var lokað kl. 6 á sunnudags-
kvöldið. Samstundis hófust
sjónvarpsútsendingar frá aðal-
stöðvum flokkanna vlðs vegar um
landið og tölvur tóku þá þegar að
segja fyrir um úrslitin. Jafnskjótt
og fyrstu tölvuspár lágu fyrir
voru frambjóðendur og for-
svarsmenn flokkanna spurðir
álits, enda átti eftir að koma í ljós,
þegar talningu atkvæða var lokið,
að tölvurnar komust ótrúlega
nálægt hinu sanna. Formenn
fjögurra stærstu flokkanna voru
teknir tali, þeir Willy Brandt,
form. jafnaðarmanna, Helmut
Kohl, formaður kristilegra
demókrata, Franz Josef Strauss,
form. CSU, og Hans Dietrich
Genscher, form. FDP.
Helmut Kohl lýsti sig sigurveg-
ara kosninganna og sagði að nú
væri CDU-CSU aftur orðinn
stærsti þingflokkurinn í Bonn og
því teldi hann eðlilegt að sér yrði
falin stjórnarmyndun. Hann
kvaðst vera vongóður um að sam-
starf tækist við FDP, flokk
Genschers, en nægur tfmi væri til
slfkra umræðna, þar sem kanslari
verður ekki valinn fyrr en eftir
14. desember. Formaður systur-
flokks CDU, Franz Josef St auss,
hrósaði sigri, en flokkur nans
náði 60% atkvæða í Bayern, eina
fylkinu, sem þeir bjóða fram f.
Lfkt og Kohl benti Strauss á, að
CDU-CSU væri stærsti flokkur
landsins og ætti því siðferðilegan
rétt til stjórnarmyndunar.
Strauss sagði einnig að sam-
kvæmt brezkum kosningalögum
myndi flokkurinn nú skipa sterka
meirihlutastjórn.
„Þetta er stór dagur í sögu
Evrópu", sagði Willy Brandt for-
maður jafnaðarmanna. „Flokkur-
inn hefur staðizt stórárásir og náð
næst beztum úrslitum frá upp-
hafi.“ Aðspurður um viðbrögð
Kohl og Strauss sagði Brandt
aðeins: „Meirihluti er meirihluti,
Walter Scheel ásamt konu sinni á
kjörstað f Bonn.
hversu smár sem hann kann að
vera.“
Hans Dietrich Genscher, for-
maður FDP, lagði áherzlu á að
samstarf við hægri flokkana
kæmi alls ekki til greina.
Flokkurinn hefði háð kosninga-
baráttuna á þeim grundvelli og
samstarf stjórnarflokkanna héldi
áfram og útilokað væri með öllu
að gengið yrði á bak fyrri yfirlýs-
inga nú.
Síðar um kvöldið kom Helmut
Schmidt fram í sjónvarpinu. Hans
fyrstu orð voru: „Kohl verður
ekki kanslari." Hann sagði að
samstarfi núverandi stjórnar-
flokka yrði haldið áfram og annað
kæmi ekki til greina. Schmidt
neitaði ekki, að hann hefði gert
sér vonir um betri úrslit flokki
sínum f hag, en hann sagðist ekki
sjá neina ástæðu til að efa, að
þessi tæpi meirihluti myndi
nægja til að stjórna út kjörtfma-
bilið. Slfkt hefði verið gert áður
sagði hann og minnti á að Aden-
auer hefði byrjað kanslaraferil
sinn með eins atkvæðis meiri-
hluta. Aðspurður um væntan-
legar ráðherrabreytingar sagði
„Eðlilegt að mér verði
falin stjórnarmyndun”
„Mikilldagur í
sóguEvrópu. ’