Morgunblaðið - 05.10.1976, Page 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÖBER 1976
ÍÞRÚTTAIÐKENDUR Á
INU UM 58 ÞÚSUND
53. Iþróttaþing ISl var haldið ð
Akranesi 4.—5. sept. s.l. og sóttu
það 105 fulltrúar af 110 sem rétt
áttu til þingsetu.
Var þingið haldið á Akranesi I
tilefni 30 ára afmælis t.A.
Þingforsetar voru kjörnir: Rfk-
harður Jónsson, Akranesi, og Jón
M. Guðmundsson, Reykjum, og
þingritarar Hannes Þ. Sigurðsson
og Sig. Magnússon.
Meðal gesta þingsins, sem við-
staddir voru þingsetninguna,
voru Danfel Agústfnusson, forseti
bæjarstjórnar Akraness, Asgeir
E. Gunnarsson, bæjarritari,
Valdimar Örnólfsson form.
Iþróttanefndar rfkisins, Þor-
steinn Einarsson, íþr.fulltr.,
Reynir G. Karlsson, æskulýðsfull-
trúi, og Hafsteinn Þorvaldsson
form U.M.F.t. Fluttu þessir aðilar
þinginu kveðjur og ðrnaðaróskir.
Minnzt látinna félaga
1 upphafi íþróttaþings minntist
forseti I.S.l. eftirtalinna aðila,
sem látizt höfðu frá því Iþrótta-
þing kom saman síðast: Her-
manns Jónassonar, fyrrv. forsæt-
isráðherra, Þorgils Guðmundsson-
ar, íþr.kennara, Halldórs Hansen,
yfirlæknis, og Birgis Kjaran,
alþ.manns. — Rakti hann í stuttu
máli þátt þessara manna í vexti og
viðvangi íþróttahreyfingarinnar,
en þingfulltrúar risu úr sætum í
virðingarskyni við minningu
hinna látnu.
Setningarræða forseta ISt
Jafnframt því að lögð var fram
skýrsfa og reikningar ISÍ fyrir tvö
s.l. ár, flutti forseti ISI ýtarlega
setningarræðu, þar sem m.a. kom
fram eftirfarandi:
1. Að á s.l. tveimur árum hefði
íþróttaiðkendum fjölgað um 15%
og væru nú um 58 þús. manns
skráðir íþróttaiðkendur í 18
íþróttagreinum.
2. Að þrátt fyrir mikla fjölgun
iðkenda á síðustu árum, hefði
iþróttafélögum ekki fjölgað eins
og búast mætti við.
3. Að fjárhagur íþróttahreyf-
ingarinnar er stöðugt vandamál.
— Utlagður kostnaður ásamt
hluta af sjálfboðaliðskennslu nam
um 280 millj. króna 1975.
4. Að fjárstuðningur ríkisins
vegna íþróttakennslu á s.l. ári
hafi numið um 2.6% af heildar-
kostnaði og aðeins 1 % ef öll vinna
félagsmanna væri metin til fjár.
5. Að ferðakostnaður utanlands
og innan væri hraðvaxandi vegna
aukinna íþróttasamskipta og að
ISI og UMFl hefðu gert hagstæða
samninga s.l. sumar um Norður-
landaferðir við Flugleiðir h/f og
Ferðamiðstöðina.
6. Að húsnæðisaðstaða Iþrótta-
kennaraskóla Islands að Laugar-
vatni og starfsaðstaða væri óvið-
unandi og fyrirsjáanleg væri
stöðnun og skortur á íþróttakenn-
urum.
7. Að Grunnskóli ISI ynni nú
markvisst að því að mennta vænt-
anlega leiðbeinendur íþrótta- og
ungmennafélaga og mundi m.a.
leita samstarfs við Iþróttakenn-
araskólann.
8. Að koma þyrfti á föstu skipu-
lagi skólaíþrótta og tengja þær
íþróttahreyfingunni.
9. Að enda þótt íþróttafréttarit-
arar hafi oft skrifað ágætlega um
íþróttir og íþróttastarfið, vanti
stundum á að þeir skýri rétt frá
staðreyndum.
Reikningar t.S.t.
Gunnl. J. Briem gjaldkeri sam-
bandsins lagði fram endurskoð-
aða reikninga og skýrði þá. —
Niðurstöðutölur rekstrarreikn-
ings 1975 námu Kr: 28.229.987.00
Breytingar á lögum l.S.l.
Fyrir íþróttaþingi lágu töluvert
viðamiklar breytingar á lögum
ISI og dóms- og refsiákvæðum
lSl, er unnið hafði verið að af
milliþinganefnd. Voru tillögur
milliþinganefndar samþykktar í
flestum tilvikum og ein þýðingar-
mesta breytingin var sú, að skip-
an Sambandsstjórnar var breytt á
þann veg, að nú eiga þar sjálf-
krafa sæti formenn héraðssam-
banda og formenn sérsambanda
innan ISI, auk framkvæmda-
stjórnar sambandsins, eða sam-
tals u.þ.b. 50 manns. Sambands-
stjórnin heldur fundi sína árlega
að vori til. Framkvæmdastjórnina
skipa hins vegar 5 menn eins og
áður.
Miklar umræður — Samþykktir
Að verju voru miklar umræður
á Iþróttaþingi, fastanefndir störf-
uðu og m.a. voru eftirtaldar sam-
þykktir gerðar:
1. Iþróttaþing ISI 1976, sam-
þykkir að skattur sambandsfélag-
anna fyrir árið 1977 og 1978 verði
kr. 20,- á hvern félagsmann 16 ára
og eldri.
2. Iþróttaþing ISI haldið á
Akranesi 4.—5. sept. 1976, skorar
á hæstvirtan f jármálaráðherra, að
hann beiti sér fyrir lækkun tolla
af fþróttavörum þannig að tollur-
inn verði ekki hærri en 35% af
C.I.F.-verði.
3. íþróttaþing ISI haldið á
Akranesi 4.—5. sept. 1976 skorar
á fjármálaráðherra og Alþingi að
breyta grundvelli þess gjalds sem
ISI hefur notið af sölu vindlinga
til þessa. I það horf að f stað
ákveðinnar upphæðar af hverjum
vindlingapakka, komi ‘A hundr-
aðshluti af andvirði hvers pakka.
4. Iþróttaþing ISI haldið á
Akranesi 4. og 5. sept 1976, telur
það mjög miður að ríkisstjórn og
Alþingi skuli enn eigi hafa sinnt
kröfum íþróttahreyfingarinnar
um aukið fjármagn í neinu sam-
ræmi við hækkandi verðlag og
sívaxandi starf og þátttöku lands-
manna í fþróttum.
Fyrir því skorar Iþróttaþing á
þessa aðila að verða við umsókn
Iþróttasambands Islands um
verulega aukna fjárveitingu á
fjárlögum 1977.
5. íþróttaþing ISI haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976 skorar
á hæstvirtan menntamálaráð-
herra að hlutast til um að tillögur
ISl um viðmiðunarstærðir
íþróttamannvirkja skóla verði
lagðar til grundvallar við ákvörð-
un á þátttöku ríkissjóðs i kostnaði
við byggingu íþróttahúsa, sund-
lauga og leikvalla.
6. Trimm
Iþróttaþing ISI haldið á Akra-
nesi 4. og 5. sept. 1976, fagnar
aðgerðum margra sambandsaðila
til eflingar íþróttum og útilífi
meðal almennings, en telur að
gera þurfi enn betur á þessu
sviði.
Þingið samþykkir að kjósa 3ja
manna nefnd er móti framtíðar-
stefnu f TRÍMM-málum á tslandi.
Nefndin skili áliti til sambands-
stjórnarfundar ÍSl vorið 1977.
Nefndinni verði tryggt nægi-
legt fjármagn af því fé sem varið
er til TRlMM-mála á fjárhags-
áætlun ISI 1976 og 1977.
7. Iþróttaþing ISI haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976, beinir
því til hæstvirts menntamálaráð-
herra, að hann hlutist til um að
íþróttasalir ríkisskólanna verði
látnir íþróttabandalögum og
héraðssamböndum í té til afnota
að lokinni kennslu, það er á
kvöldin, um helgar og í leyfum, og
að fylgt verði ákvæðum 25. gr.
íþróttalaga um afnot iþróttafélag-
anna af iþróttamannvirkjum
rfkisskólanna og skóla í sameign
rfkis og bæjarfélags eða sveitar-
félags.
8. Iþróttaþing iSt haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976, skor-
ar á öll sveitar- og bæjarfélög
landsins, að byggja nauðsynleg
fþróttamannvirki til þess að mæta
auknu íþróttastarfi og tekið verði
þá fullt tillit til þarfa skóla og
iþróttasamtakanna.
9. Iþróttaþing ISI, haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976 fagnar
auknu starfi rfkis og sveitarfélaga
að æskulýðsmálum vfða um
landið. Þingið bendir á nauðsyn
þess að koma á virku samstarfi
héraðssambanda og þessara aðila
til að samræma æskulýðsstarf-
semi á sambandssvæðunum.
10. Iþróttaþing ISI, haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976 beinir
þvf til hæstvirts heilbrigðis og
tryggingarmálaráðherra, að
hraðað verði útgáfu reglugerðar
um slysatryggingar fþróttafólks,
sbr. lög frá 16. maf 1975.
11. Iþróttaþing ISI, haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976 beinir
þvf til framkvæmdastjórnar ISI,
að hún á komandi kjörtfmabili
beiti sér fyrir auknu skipulögðu
samstarfi skóla og fþróttasamtaka
landsins með það markmið að
auka þátttöku f fþróttum.
12. Iþróttaþing ISI, haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976, beinir
þeim tilmælum til IKI og sérsam-
banda ISI, að þessir aðilar hefji
nú þegar samstarf um vinnslu og
útgáfu samræmds kennsluefnis í
hinum ýmsu íþróttagreinum — sé
það samstarf ekki nú þegar hafið.
13. Iþróttaþing ISI haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976 beinir
þeim tilmælum til framkvæmda-
stjórnar ISI, að hún beiti sér fyrir
árlegum fundi með kennurum
Grunnskóla ISI.
14. Iþróttaþing ÍSl haldið á
Akranesi 4. og 5. sept. 1976
þakkar þá viðleitni framkvæmda-
stjórnar að fá ferðakostnað
lækkaðan. Þingið beinir því til
allra fþróttafélaga og sambanda
að skipuleggja tímanlega ferðir
íþróttamanna innanlands og utan,
svo unnt sér enn frekar en orðið
er að lækka ferðakostnaðinn.
Telur þingið, að til greina komi
að ISI geti gerst aðili að samtök-
um, sem ráða yfir eigin farkost-
um, gagngert í þvf skyni að lækka
enn frekar ferðakostnað samtak-
anna og auka á möguleika þeirra
til vaxandi samskipta bæði innan-
lands og utan.
15. Iþróttaþing 1976 lýsir yfir
eindregnum stuðningi sínum við
tillögur skólanefndar Iþrótta-
kennaraskóla Islands til mennta-
málaráðherra um:
1. Byggingu íþróttahúss og sund-
laugar við skólann.
2. Ráðningu sérstaks kennara að
skólanum til þess að annast um
fræðslu leiðbeinenda í íþróttum í
samráði við skólanefnd.
Með nýjum lögum um skólann
sem samþykkt voru á Alþingi
1972 var skólinn gerður að 2ja ára
skóla. Með þeim breytingum
viðurkenndi ríkisvaldið þörfina á
aukinni og fjölþættari menntun
íþróttakennara og leiðbeinenda f
íþróttum en verið hefði fram að
þeim tíma og mátti því ætla að í
beinu framhaldi af þeirri breyt-
ingu myndi rikisvaldið halda
áfram nauðsynlegu uppbygginga-
starfsemi við skólann og sjá
honum fyrir eðlilegri starfsað-
stöðu. Á þessu bryddar ekkert
enn nú 4 árum seinna.
Iþróttaþing telur nauðsynlegt
að ríkisvaldið búi nú þegar þann-
ig að skólanum, að honum verði
gert fært að gegna þvf hlutverki
sínu, sem Alþingi sjálft hefir
ætlað honum I samræmi við 1.
grein laganna um skólann.
Skoðunarferð á Akranesi
I þinghléi síðari fundardagsins
var þingfulltrúum boðið að skoða
nýja fþróttahúsið, íþróttavöllinn
og byggðasafnið. Einnig nutu þeir
gestrisni bæjarstjórnar Akraness,
Sementsverksmiðju ríkisins og
íþróttabandalags Akraness.
Næsta stjórn tSt
I stjórn ISI til næstu 2ja ára
voru kjörnir: Gísli Hafldórsson
forseti, Sveinn Björnsson varafor-
seti, Gunnlaugur J. Briem gjald-
keri, Hannes Þ. Sigurðsson ritari
og Alfreð Þorsteinsson fundar-
ritari, sem kom f stjórnina f stað
Þorvarðar Árnasonar, sem baðst
undan endurkosningu.
Við þingslit var GIsli Halldórs-
son forseti ISI sæmdur gullmerki
Iþróttabandalags Akraness.
Frá tSt-þinginu á Akranesi. t ræðustól er einn stjórnarmanna f framkvæmdastjórn tSl, Hannes Þ.
Sigurðsson, og við háborðið má m.a. sjá Sigurð Magnússon, skrifstofustjóra tSl, Gfsla Halldórsson, forseta
tSl, Rfkharð Jónsson, þingforseta, Svein Björnsson, varaforseta tSl, Gunnlaug Briem, gjaldkera tSl, og
Hermann Guðmundsson, framkvæmdastjóra tSl. Fremst á myndinni eru þingfulltrúar Iþróttabandalags
Reykjavfkur (Ljósm. Kristinn Benediktsson).
;ður kostnaður iþrottahreyfingarinnar
NAM UM 280 MILUÖNUM KRÓNA Á ÁRINU1975