Morgunblaðið - 05.10.1976, Page 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976
Börnin í
Bjöllubæ
efiir LNGIBJÖRGU JÖNSDÓTTUR
gera, því að hættan býr á hverju strái.
Hann hefði auðvitað átt að segja: — Ég
ætla þangað sem ég ætla og ekkert annað
en i staðinn sagði hann bara: — Ég ætla
rétt fyrir húsgaflinn til að heimsækja
hana ömmu mína Má bjóða þér að koma
með? Það væri heiður fyrir mig.
— Nú já, heiðursfrúna hana ömmu
þina, vinur minn. Og býr hún ein við
gaflinn?
—r Nei, hún á heima þar með fleiri
bjöllum, sagði litli Buggur. — Ég á að
fara með brauðmola til hennar.
— Með brauðmola, já einmitt, sagöi
fuglinn ogsleikt út um. Brauðmolar, ekki
var það svo afleitt. Honum þótti afar gott
að borða brauðmola og litlar bjöllur líka,
svo að ekki sé minnst á stórar, feitar
bjöllur eins og ömmu hans litla Buggs.
— Er amma þín stór, vinur minn?
spurði Fuglinn. — Er hún feit? Sumar
ömmur eru nefnilega feitar, en aðrar
mjóar. Heldurðu að hún sé með harða
skel? Sumar ömmur hafa nefnilega
harða skel, sem stendur í hálsinum á
manni... ég á við, sem sker mann i
augun. Og alltaf varð sólskríkjan
gráðugri og gráðugri.
Þá áttaði litli Buggur sig. Nú skildi
hann ástæðuna fyrir því að þessi heiðurs-
fugl lét svo lítið að tala við hann Hann
vildi auðvitað ná i þau ömmu bæði og éta
svo molana sem eftirmat.
Litli Buggur leit umhverfis sig. Han
vissi vel að fulginn var fljótur að hlaupa
og enn fljótari að gogga, en hann hefði ef
til vill getað sloppið ef einhver hefði
komið inn í garðinn og fælt hann upp, svo
að litli Buggur skyggndist í allar áttir.
Það var bara enginn að koma. Þá
mundi hann eftir stóra brúðuhúsinu, sem
hann hafði séð telpurnar í húsinu leika
sér að um morguninn.
Það var einmitt við húsgaflinn líka.
— Amma er afskaplega stór, sagði
hann — og hún er svo feit, að hún getur
ekki skriðið lengur. Hún er ekkert voða-
lega gömul, en hún er svo löt, að hún
sefur allan daginn og ég veit ekki,
hvernig skel hún hefur. Komdu og gáðu
sjálfur, herra fugl, hrópaði litli Buggur
Jæja, þarna kemur
hún Dúdú hennar
Lóu. Óttaleg
beinasleggja er
hún?
"Vgwii,
KAtfinu \\ je
GRANI göslari
Snöggir krakkar!
£g veit að það er ekki cins
hættulegt, en það er þó óneitan-
lega hlægilegt.
Jón: Hvernig stendur eiginlega
á því, að þú getur verið með
henni Stfnu?
Sveinn: Vegna þess, að hún er
allt öðruvísi en aðrar stúlkur.
Jón: Hvernig þá?
Sveinn: Hún er eina stúlkan,
sem vi 11 vera með mér.
„Herra, konan min sagði, að ég
ætti að fara fram á kauphækk-
un.“
„Gott, ég skal spyrja konuna
mína, hvort ég á að veita yður
hana.“
Magga: Georg er alveg brjálað-
ur í mér.
Sigga: 0, þú þarft ekki að
Þetta verður góð teikning af
þjófnum hjá honum.
halda, að það sé allt þér að
kenna. Hann var brjálaður
löngu áður en þú kynntist hon-
um.
„Dóttir mfn er komin f sam-
band við alla helztu menn
bæjarins."
„Nú, hvernig þá?“
„Hún hefur fengið vinnu á sím-
stöðinni."
„Áður en Albert giftist mér
sagðist hann ætla að verða hús-
bóndinn, eða þá vita ástæðuna
fyrir því, hvers vegna hann
væri það ekki.„
„Og nú?“
„Hann veit ástæðuna."
Fangelsi
óttans
Framhaldssaga eftir
Rosemary Gatenby
Jóhanna Kristjónsdóttir
þýddi
38
um var að ræða trúverðugan
blaðamann eins og Jack
Seavering var hann tilneyddur að
trúa orðum hans.
Og vegna llelene hlaut hann að
finna til þarfar að skipta sér af
málinu.
— Hér er greínin með leiðrétt-
ingum hans. Og hér sérðu hvernig
ég hef ráðið dulmálið sem hann
kom til mfn: SVIKARI — SYST-
IR FANGI MEX.
— fig skil ekki almennilega
hvers vegna hann hefur band-
strik á eftir svikari, sagði Bruce
hugsandi. — En þetta gefur til
kynna að þau séu bæði f yfirvof-
andi iífshættu...
— Nú veit ég loksins hvers
vegna hann gat ekki varað mig
við þegar blaðamennirnir voru
viðstaddir, sagði Jack. — Helene
White hefði verið drepin á samri
stundu hvar sem hún var niður-
komin. Hendur Everest hafa ver-
ið hundnar allan tfmann.
— Nú verðum við bara að reyna
að finna hana og fá yfirvöld til að
ráðast gegn varðmönnum Everest
áður en þeir komast að þvf að við
höfum frelsað hana. Það ætti ekki
að vera erfitt þar sem hér er
enginn sfmi, svo að enginn getur
varað þá við.
Jack Seavering hné þreytulega
niður f stól.
— Frábært! Ég dáist að sjálfs-
trausti yðar. En það er nú ekki
svona einfalt. Hvar f Mexico er
hún niðurkomin?
— Eg sá hana f sfðustu viku,
sagði Erin rólega.
— Hvað segið þér? Þér sögðust
ekki hafa séð hana f óratíma.
— Nei, ég sagðist ekki hafa
talað við hana. Þegar ég flaug
hingað á þriðjudaginn flugum við
yfir sumarhús Everest. Ég flaug
yfir sundlaugina og hún var þar.
Hún veifaði til mín.
— Ó, guð minn góður.
Þjáningin f rödd Jack
Seaverings var svo einlæg að það
fór hrollur um Bruce.
— Einn af vinum mfnum sem
er Ijósmvndari á blaðinu og heitir
Vern Fix sá Ijósmyndirnar sem
þér tókuð f Baja og hann varð svo
yfir sig hrifinn að hann fór hing-
að f fyrri viku til að veiða og taka
myndir. Nú er hann horfinn.
— En hvað kemur hann þessu
við?
— Hann lofaði að taka myndir
fyrir mig af heimili Everest f
leiðinni, ef ég gæti notað eitthvað
af þeim f greinina mfna.
— Nú svoleiðis.
— Ef hann hefur verið á ferli
með myndavélina og uppgötvað
að Helene var þar...
— Hvenær og hvaðan hvarf
hann?
— Hann hélt til f hinum enda
bæjarins. Ilann fór af stað um
miðja nótt og tók farangur sinn
með án þess að borga. Það dytti
honum aldrei f hug að gera undir
eðlilegum kringumstæðum.
— Kannski hefur hann upp-
götvað að hann var kominn út á
hættulega braut og hefur talið
vissast að forða sér?
— Já. En það veldur mér
áhyggjum að hann hefur ekkert
látið f sér heyra. Hann hafði sam-
ið um það við ritstjórann okkar að
hringja til hans strax og hann
kæmi aftur. En f gær — fimm
dögum eftir að hann hvarf —
hafði ritstjórinn ekki heyrt frá
honum.
— Kannski hann sé enn ein-
hvers staðar f Baja.
— Já, dauður eða hefur verið
tekinn til fanga. Bflstjórinn minn
er að reyna að komast að ein-
hverju. En haldið áfram frásögn-
inni um Helene. Þegar þér höfð-
uð nú séð hana úr lofti, fóruð þér
þá yfir aftur?
— Ég fór þangað daginn eftir.
En vörðurinn sagði mér að Ever-
estsystkinin væru farin. Eg sagði
honum frá stúlkunni sem hefði
veifað til mfn og hann sagði að
það lyti að hafa verið Rosalia.
— Rosalia. Og að yður hafi
skjátlazt. Hver var þessi vörður?
— Stór og kraftalegur maður.
Bandarfkjamaður. Eg held ég
hafi séð hann á búgarðinum
þeirra f Texas, þegar ég kom
þangað.
— Án efa.
— Annars er ég sannfærður um
að það var Helene sem ég sá. Það
gæti auðvitað átt sér stað að
mexikönsk stúlka hefði veifað til
flugvélar sem flýgur yfir. En ekki
svona ákaft eins og ég sá að Hel-
ene gerði.
— Ég get fmyndað mér að upp-
haflega hafi þeir sett hana f íbúð-
ina f New York, sagði Jack. —
Svikakvendið segði mér þegar ég
var f Texas að hún hefðf verið 1
New York á sfðasta ári. Kannski
það hafi verið Helene og ekki hún
sem var þar...
— Það hljómar ekki ótrúlega.
Þeir hafa bara þurft að flytja
hana á milli eftír þvf sem þeim
hefur hentað. Þeir vita að þeim er
óhætt.
— Já, en nú sagði Dwigth Percy
mér að hann hefði selt fbúðina f
New York.
— Þá hafa þeir séð sig til-
neydda að koma með hana hing-
að. En hvers vegna fóru þeir þá
skyndilega hingað með Jamie og
tefldu þar með öllu f tvfsýnu.