Morgunblaðið - 05.10.1976, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 05.10.1976, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1976 45 VELX/AKANDI Velvakandi svarar I slma 10- 100 kl. 10—11 f.h. frá mánu- degi til föstudags. # Lögbrotum hótað Kristinn Jónsson skrifar eftirfarandi hugleiðingu út frá aðgerðum sjónvarpsmanna á dög- unum: „Herra Velvakandi. Ég vildi gjarnan að þú sæir þér fæh að birta eftirfarandi hugleið- ingu i lesendadálkum þínum. Ég var að hlusta á þátt Páls Heiðars frá Egilsstöðum og í því sambandi erindi fréttamanns út- varpsins frá Reykjavik. Mér fannst erindi þetta svo óhugnan- legt, að ég get ekki orða bundist. Þar var ofbeldi og lögbrotum hót- að umbúðalaust ef ekki yrði tafar- laust látið undan þrýstihópum þegar þeim þóknaðist að fara af stað. Hótað var að grípa til hverra vopna sem dygðu. Var þessi boð- skapur í sambandi við framferði sjónvarpsmanna á dögunum. Ef til vili verður það verkfall til að opna augu einhvers hluta þjóðarinnar fyrir því hvar við er- um á vegi stödd á sviði ofbeldis og lögbrota og þegar menn hreykja sér af því að brjóta lög er eitthvað gengið úr skorðum i þjóðfélaginu. Verkfall sjónvarpsmanna var að mínu áliti forkastanlegt og ekki séð fyrir hvaða afleiðingar það hefur, að minnsta kosti stóð ekki á háskólaprófessorum og öðru hálaunafólki að hvetja lög- brjótana og taka fram að þeir kæmu á eftir. Þá var tekið fram að sjónvarpsmenn hefðu fengið stuðningsyfirlýsingu frá útlönd- um og má telja það fínt innlegg frá fólki, sem varla veit að Island er til, hvað þá að það þekki til þjóðlífsaðstæðna á Islandi nú. Verkfallið var sagt kjarabar- átta. Vandlega var haldið leyndu fyrir almenningi hvaða laun þetta fólk hefði. Sjálfsagt er það lágt og sér maður það á sumum frétta- mönnunum, sem varla geta verið sæmilega til fara þegar þeir koma fram á skerminum. Fréttamenn útvarps og sjón- varps hafa talið sig þurfa að stinga á kýlum þjóðfélagsins með umræðuþáttum og fréttum og man ég eftir umræðuþætti um þrýstihópa, sem mér skildist þá að fréttamennirnir teldu krabba- mein í þjóðfélaginu. Hvernig á maður að geta tekið þessa menn alvarlega í framtíðinni. Þeir hafa sýnt að þeir feta hiklaust slóð þeirra sem þeir fordæma, ef þeir sjá sér peningalegan hagnað i því. Ég verð lengi að venjast þessum andlitum á skerminum aftur. Kristinn Jónsson." 0 Um hernámið Húsmóðir skrif ar: „Marx-Lenin-kommúnistarnir á Islandi verða að viðurkenna það að það er ólíkt fjölbreytilegra líf- ið hér i auðvaldsríkjunum þar sem hver og einn getur sungið með sinu nefi, heldur en í komm- únistarikjunum þar sem er ein hjörð og einn hirðir og einn söng- ur sem búið er að kyrja allar götur frá Lenin. Þann 19. sept. var maður óþarflega vel minntur á í útvarpinu, þann sönginn sem skrækastur er hér á landi og það er söngur fyrirbæris sem kallar sig þessu þá lika nafninu, „Her- námsandstæðingar“. Þetta var stofnað eftir að hernáminu á landinu lauk. Þessum félagsskap er stjórnað af útibúi heimsvalda- stefnu Sovétrikjanna og þetta úti- bú gefur lika út blað sem heitir „Þjóðviljinn", sem er líka gott nafn þar sem örugglega aldrei verður hér á landi meira en 5% af þjóðinni sem vill örlög Eystrar- saltslandanna yfir sig og sina. Þeir sem hæst gala um herstöðina á Miðnesheiði sem þar er að okkar beiðni, öllum lýðræðisþjóðum í hag, ættu að muna eftir því að rússnesku setuliðin i lepprikjum Rússa sem almenningur í þessum löndum kostar gera ekki annað en að auðvelda stjórnurunum að halda kúguninni áfram svo þar lifa allir i ótta og ófrelsi. Það er hægt að segja að þessar þjóðir séu hernumdar i þess orðs skelfileg- ustu merkingu. Þessi Þistla- þáttur þann 19. september var svo gagnmerkur að þeir sem stjórna Keflavíkurgöngum ættu að min- um dómi að fá hann lánaðan hjá rikisútvarpinu og spila hann yfir mannskapnum. Þar voru flutt baráttukvæði og söngvar og látið fylgja að þetta væri ný listsköpun og aldrei hefði heyrst betra hér. Ég segi nú bara eins og skáldið: „Ef þjóðin sem lengst hefur lifað við sögur og ljóð“ á að hrifast af þeim trakteringum sem þar voru frambornar þá hjálpi oss allir heilagir. Hvað lengi ætlar ríkisút- varpið að hafa þessa þistla i sin- um jurtagarði? Ilúsmóðir." — Ég get sagt mér til um að það hafi verið hálfvegis til að fela sig. sagði J :ck. — Ég held þeir hafi myrt stúlku, sem var að sletta sér fram ( þeirra mál. Ekkja Walter Carringtons... — Myrtu þeir hana? Hvað kom fyrir. Honum brá ekki vegna andláts frú Carringtons sem slfkrar, held- ur vegna þess að hann gerði sér ljóst I hvflfkri hættu Helene var. — Hún kastaðist af hestbaki og hálsbrotnaði, en ég dreg f efa að það haff verið af slysni... Andlit Jacks speglaði djúpa alvðru. — Það var MÉR að kenna, það var ég sem fékk hana til að hafa úhyggjur af þvf sem fram færi á búgarði Everest. Erin stóð á fætur og fór að ganga hvfldarlaust fram og aftur um gólfið. Hann var að hugsa um stúlkuna, sem tvfvegis hafði vísað honum á bug. Sem betur fer hafði gula pressan aldrei komist f þá sögu. SYSTIR FANGI MES. En gat þetta komið heim og saman. Var þetta sennilegt? Erin leit út á pálmatrén sem köstuðu skuggum inn f herbergið hans. Hann fann HÖGNI HREKKVÍSI HRISGRJON Ioihj (jrain K 4 ......... AMERISK GÆÐAVARA O. Johnson & Kaaber hf. ELLEINI BETRIX 1. flokks snyrtivörur Ný sending komin í slátrið FYRSTA FLOKKS RÚGMJÖL FÆST í NÆSTU BÚÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.