Morgunblaðið - 05.10.1976, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTOBER 1976
47
2. sjón-
varpsein-
vígi Fords
og Carters
á morgun
Washington 4 október.
AP —Reuter
FORD Bandarfkjaforseti og
Jímmy Carter frambjóðandi
demókrata I forsetakosningun-
um 2. nóvember n.k. komu til
San Francisco í kvöld, til að
undirbúa sig undir 2. sjón-
varpseinvfgi þeirra sem fram
fer f San Fransisco á miðviku-
dagskvöld og verður þar
fjallað um utanrfkismál.
Hefur Carter heitið þvf að
hann muni taka á málunum af
meiri festu en hann gerði í
fyrsta einvfginu fyrir II dög-
um, þar sem fjallað var um
innanrfkismál en skoðana-
kannanir eftiiv það einvfgi
sýndu að fleiri töldu að Ford
hefði staðið sig betur.
Niðurstöður skoðana-
kannanna, sem kunngerðar
voru um helgina, gefa til
kynna að barátta frambjóð-
endanna muni fara harðnandi
og hefur bilið milli þeirra
minnkað. í skoðanakönnun
New York Times og CBS-
sjónvarpsstöðvarinnar kom í
ljós, að Carter hefur 294 at-
kvæði í Kjörnefnd Banda-
ríkjanna, sem byggir niður-
stöður sínar á kosningaúrslit-
unum en 270 atkvæði þarf í
kjörnefndinni til að hljóta for-
setaembættið. Hins vegar kom
í ljós að fylgi Carters hefur
minnkað i flestum fylkjum.
Gallupskoðanakönnun sýndi
að Carter hefði stuðning 50%
kjósenda, Ford 42% og 8%
voru óákveðnir. Hefur bilið
minnkað úr 18% í 8% frá því í
sumar. Skoðanakönnun Time
Magazine sýndi að báðir nutu
stuðnings 43%, en 14% voru
óákveðnir.
Bernharð
segir af
sér síðustu
stöðunni
Haag 4. okt. Reuter.
BERNHARÐ Hollandsprins sagði
í dag af sér formennsku Bilder-
bergráðstefnunnar, sem hann átti
frumkvæði að að var stofnuð
1954. A þessum ráðstefnum, sem
haldnar voru með algerri leynd,
komu saman stjórnmálafræðing-
ar, bankastjórar, iðnjöfrar og
verkalýðsleiðtogar til að fjalla um
heimsmálin af hreinskilni. Bern-
harð skrifaði framkvæmdaráði
ráðstefnunnar bréf, þar sem hann
tilkynnti ákvörðun sfna. Er þetta
síðasta meiriháttar staðan sem
prinsinn hélt eftir að hafa sagt af
sér öllum embættum sínum í kjöl-
far Lockheedhneykslisins.
Fólk I héraðinu La Paz I Mexfkó blður f röð eftir vatni úr tankbd. Að minnsta kosti 675 hafa beðið hafa I
héraðinu af völdum fellibylsins Liza. Þúsundir hafa slasazt og misst heimili s(n.
Hermenn á verði eft-
ir fellibylinn í Mexikó
La Paz, Mexíkó, 4. okt. Reuter.
VOPNAÐIR hermenn voru á
verði I borginni La Paz I norðvest-
urhluta Mexlkó I dag til að koma I
veg fyrir rán og gripdeildir og
hafizt var handa um að hreinsatil
I borginni I kjölfar mesta felli-
byls sem um getur I Mexfkó á
þessari öld og kostað hefur að
minnsta kosti 675 manns lffið.
Um 65.000 mamns hafa misst
heimili sín í héraðinu, margir
hafa komið sér fyrir í bráða-
birgðaskýlum úr pappa, bárujárni
og pálmablöðum og sumir hafa
enn ekki fengið nóg af vatni og
mat.
íbúar borgarinnar La Paz eru
um 70.000 og um það bil þriðj-
ungur hefur misst heimili sin.
Fólk beið í biðröðum í dag eftir
matar- og vatnsskammti. Alls
hafa verið grafin upp 650 lík en
óttast er að fleiri hafi farizt, eð
minnsta kosti 675 samkvæmt sum-
um heimildum en 1.000 sam-
kvæmt öðrum.
Hermennirnir voru á verði i
suðurhverfi borgarinnar þar sem
rán voru framin I eyóilögðum
heimilum eftir eyðileggingarnar
af völdum fellibylsins sem fór yf-
ir borgina og héraðið með 200 km.
vindhraða á klukkustund og flóða
frá stiflu sem brast.
Fjölskyldur grófu i rústum
bygginga og leituðu að eigum sín-
um en síðan voru jarðýtur notað-
ar til að jafna þær við jörðu þar
sem talið var að hætta stafaði af
þeim. Reynt er að bólusetja alla
sem komust lífs af gegn tauga-
veiki en skortur er á bóluefni. Frá
því hefur verið skýrt að sjúkdóm-
ar hafi komið upp hjá börnum og
slösuðu fólki sem lifði af hamfar-
irnar.
í Mexíkóborg skýrði Luis
Echeverria forseti frá áætlunum
Framhald á bls. 46
Norðmenn
vilja Panam-
atogara af
Barentshafi
Osló 4. október NTB.
EIVIND Bolle, sjávarútvegsráó-
herra Noregs sagði f dag, að
norska stjórnin ákvæði á morgun
til hvaða ráða yrði gripið til að fá
rfkisstjórn Panama til að kalla
heim tvo verksmiðjutogara, sem
nú stunda veiðar f Barentshafi.
Bolle sagði að ef stjórnin tæki
ákvörðun um að beita sér fyrir
þvf að togararnir færu á brott
væri augljóst að svipaðar aðgerðir
yrðu gerðar gagnvart örðum þjóð-
um, sem ekki ættu sæti f NA-
Atlantshafsfiskveiðinefndinni,
en senda skip sfn á þessi mið.
Norðmenn hafa áhyggjur af því
að skip utan Evrópu stundi veiðar
á Barentshafi, þar sem fiskstofn-
ar þar séu þegar i hættu. Öttast
þeir að fleiri þjóðir muni feta i
fótsporin ef ekkert verður að
gert, eftir þvi sem þrengist um
fiskimið vegna útfærslu fiskveiði-
lögsögu þjóða heims. Jens Even-
sen hafréttarráðherra Noregs
sagði i dag, að norska stjórnin
íhugaði nú bann við fiskveiðum
þjóða, sem ekki hafa kvóta til
veiða á NA-Atlantshafi, en frum-
varp norsku stjórnarinnar um 200
milna útfærslu, sem lagt hefur
verið fyrir Stórþingið, inniheldur
ákvæði um þetta atriði.
Umfangsmesta bólusetn-
ing í Bandaríkjunum hafin
Búizt við að 147 millj. skammta verði til fyrir áramót
BANDARlSKA stórblaðið The
New York Times segir að ein-
hver umfangmesta herferð f
Bandarfkjunum f bólusetn-
ingarmálum, þar sem eru að-
gerðir gegn svfnainflúensu,
hafi byrjað nú um mánaðamót-
in, eftir að ýmsar alvarlegar
tafir urðu á framleiðslu mót-
efnisins og ágreiningur hafði
einnig komið upp.
Bólusetningin hófst f tveim-
ur borgum, Boston og Indiana-
polis, um mánaðamótin og
höfðu forgang roskið fólk og
fullorðnir, sem teljast f sérstök-
um hættuhópum, vegna þess að
þeir eru haldnir ólæknandi
sjúkdómum. t flestum borgum
og bæjum mun bólusetning sfð-
an hefjast næstu daga og verða
komin f nokkurn gang fyrir
miðjan október.
Sjúkdómaeftirlitsstöðin f
Atlanta hefur yfirumsjón með
bólusetningunni. Talsmaður
stöðvarinnar sagði að fyrir fá-
einum dögum hefðu tæplega 25
milljónir skammtar af bóluefni
verið sendir til dreifingar i
hvoru þeirra rfkja sem ríða á
vaðið.
1 Washington hefur dr.
Theodore Cooper, aðstoðar-
ráðuneytisstjóri í heilbrigðis-
og menntamálaráðuneytinu
sagt, að um það bil 147 milljón-
ir skammtar verði tilbúnir f árs-
lok. Sagði hann að það myndi
duga fyrir þá sem komnir væru
yfir 18 ára aldur.
Sjúk börn bólusett
tvisvar
Ráðlagt er að börn sem þjást
af alvarlegum, ólæknandi sjúk-
dómum verði bólusett tvfvegis
með nokkurra vikna millibili.
Ekki er búizt við að þær bólu-
setningar hefjist fyrr en um
miðjan mánuðinn. Uppruna-
lega hafði verið áætlað að 200
milljónir bóluefnisskammtar
yrðu tilbúnar fyrir árslok. Tafir
hafa orðið af ýmsum ástæðum.
I ljós kom meðal annars að fyr-
irtæki eitt hafði framleitt þó
nokkrar milljónir bóluefnis-
skammta gegn annarri vírus-
tegund og varð það að sjálf-
sögðu til að koma áætluninni úr
jafnvægi og minnka það magn,
sem tekst að hafa tilbúið fyrir
áramót. Þá hefur bólusetning-
aráætlunin gefið tilefni til tölu-
verðra umræðna, einkum
vegna þess hve stór hún er f
sniðum og var hleypt af stokk-
unum vegna einstaks tilfellis,
sem upp kom í herstöðinni í
Fort Dix í New Jersey, en þar
smituðust um 500 manns. Fram
til þessa er ekki vitað um önnur
tilfelli af flensunni, en sérfræð-
ingar sem eru hlynntir áætlun-
inni segja að svínainflúensa
muni vart brjótast út sem far-
aldur fyrr en sfðla hausts eða
seinna í vetur.
Aðalástæðan fyrir töfum i
framkvæmd íætlunarinnar
hafa verið deilur um tryggingar
sem framleiðslufyrirtækin hafa
krafist að um yrði samið.
Tryggingafélög og framleiðend-
ur bóluefnisins hafa neitað að
taka á sig áhættu og skaðabóta-
mál, sem kynnu að koma upp.
Þetta mál var að verulegu leyti
leyst í ágústmánuði, þegar
bandariska þingið samþykkti
lagafrumvarp er gerði ráð fyrir
að stjórnin tæki á sínar herðar
það sem uppá kynni að koma af
slíku tagi. Flest fyrirtækjanna
sem hafa framleitt bóluefnið
hafa samt sem áður verið treg
að láta það frá sér fyrr en seint
f september, vegna þess að í
lögunum er gert ráð fyrir að
aðeins yrði sinnt kröfum af
þessum toga sem fram kæmu
eftir 30. september.
Eiitt lyfjaframleiðslutækið,
Marck Sharp & Dome, hóf að
senda bóluefnið frá sér fyrir
viku eða svo, hin þrjú, Wyeth,
Parke, Davis & Company og
Merrel National, hafa ekki
byrjað að ganga frá sendingum
fyrr en allra sfðustu daga.
Enn rfkir nokkur óvissa með-
al starfsmanna f heilbrigðismál-
um um hvernig, hvenær og hve
mikið þeir fá f sinn hlut. Meira
að segja til Indianapolis, þar
sem bólusetningin hófst fyrst,
komu skammtarnir ekki fyrr en
daginn áður.
Framhald á bls. 46
^%E NSKa
ENSKft danskí\
EÐLlS^oi
SKÖLI SEM HEFUR A1J.AR
HELSTU NÁMSGREINAR
GRUNNSKÓLA
SKÓU SEM KENNIR
TUNGUMÁL MEÐ BRÉFANÁMI