Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR
277. tbl. 63. árg.
SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ankara 27. nóvember — Reuter
STÓRAR, bandarískar
flutningaflugvélar mynda
nú loftbrú með hjálpar-
gögn til Austur-Tyrklands,
þar sem þúsundir heimilis-
lausra hafa átt sína þriðju
nótt í nístandi kulda undir
berum himni.
Mikið af lyfjum, ullarteppum,
tjöldum og öðrum búnaði hefur
borizt frá erlendum ríkjum en
erfitt er að koma búnaðinum til
þeirra svæða, þar sem ástandið er
verst.
Þá er enn óljóst hve margir
týndu lífi, þegar um 100 sveita-
þorp eyðilögðust I jarðskjálftan-
um á miðvikudag. t gærkvöldi var
opinber tala 3.302. Tala látinna
hefur þó stigið stöðugt og yfirvöld
óttast að skjálftarnir hafi kostað
allt að helmingi fleiri menn lífið.
Mikill skortur er á vatni og mat-
vælum og kuldinn gerir fórnar-
lömbunum erfitt fyrir. Sjónar-
vottar segja að lítil börn deyi úr
kulda. Þá er mikil eftirspurn eftir
skóflum, en fólk vill reyna að
grafa lík ættingja sinna áður en
jörð verður einn freri.
Upptök stærsta jarðskjálftans,
sem mældist 7.6 stig á Richter,
urðu undir bænum Muradyie.
Alitið er að um þriðjungur bæjar-
búa, sem voru 6000, hafi látizt, en
aðeíns tvær byggingar standa
uppi i bænum. Musterið og stjórn-
arskrifstofur.
Bandaríkin, Iran, Bretland,
Vestur-Þýzkaland, Italía, Sviss,
Ástralía og Saudi-Arabia hafa
veitt eða lofað að veita Tyrkjum
aðstoð vegna hamfaranna.
Húsið að Vesturgötu 32 á Akranesi eftir hina kraftmiklu sprengingu, sem varð í því f
fyrrinótt. Aðeins urðu lítilsháttar slys á fólki. Sjá nánar á baksíðu og miðsíðu
blaðsins. (Ljósm. Friðþjófur).
Bandaríkin semja við Rússa
um veiðar innan 200 mílna
Washington 27. nóv.
Reuter.
Bandaríkjastjórn hefur
komizt að samkomulagi við
stjórnir Sovétríkjanna og
Mexíkó um fiskveiðirétt-
indi innan 200 mílna fisk-
veiðilögsögu Bandaríkj-
anna, sem taka á gildi 1.
marz nk. Talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytis-
ins sagði, aó samkomulag
hefði náðst milli Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna
um að sovézk fiskiskip
Austin Laing:
Varar við illskeyttum viðbrögðum
London 27. nðvember — AP:
FORMAÐUR Sambands
brezkra fiskiskipaeigenda,
Austin Laing, hefur varað við
illskeyttum viðbrögðum togara-
manna við fréttum um að
samningar hafi ekki tekizt á
milli Efnahagsbandalagsins og
fslendinga.
„Ég er agndofa yfir hvað
framkvæmdanefnd bandalags-
ins vinnur léttúðlega að þvf að
ná samkomulagi," sagði Laing.
Margir togaraeigendur hafa
hætt við að senda skip sfn til
tslands og þvf er álitið að að-
eins 5 eða 6 brezkir togarar
verði þar að veiðum á miðviku-
daginn þegar Óslóarsamkomu-
Iag Breta og tslendinga gengur
úr gildi.
Brezka stjórnin hefur gert
það ljóst öllum útgerðarmönn-
um, sem hyggjast halda áfram
veiðum á Islandsmiðum eftir 1.
desember, að þeir muni gera
það án herskipaverndar.
Michael 'Brotherton, sem er
íhaldsþingmaður fyrir Louth,
hefur hvatt Anthony Crosland,
utanrikisráðherra, til að bjarga
brezkum sjómönnum frá þvi
sem hann kallaði „óþolandi
ástand". Síðan sagði hann:
„Hvilik þversögn væri það ef
Bretum, sem eru langmesta
fiskveiðiþjóð innan EBE, yrðu
meinaðar veiðar við Island eftir
1. desember á meðan þjóðir,
sem leggja mun minni áherzlu
á fiskveiðar, eins og Vestur-
Þjóðverjar, fá að halda áfram
veiðum á Islandsmiðum."
Annar íhaldsþingmaður,
Alex Fletcher frá Edinborg,
sem á sæti I Evrópuþinginu,
sagði:
„Það veldur sárum vonbrigð-
um að brezkir sjómenn, sem
hafa treyst framkvæmdanefnd
Efnahagsbandalagsins fyrir
þessum viðræðum verða að
horfa á samninginn renna út í
næstu viku og verða þar með
útilokaðir frá veiðum við Is-
land. Það gefur ekki góðar von-
ir um getu okkar til að gera
nýtt fiskveiðisamkomulag við
aðrar þjóðir Efnahagsbanda-
lagsins."
sæktu um leyfi til veiða á
miðum, sem liggja innan
200 mílna markanna við
Atlantshafs- og Kyrrahafs-
strönd Bandaríkjanna. Áð-
ur höfðu sovézkir fiski-
menn aðeins orðið að sækja
um leyfi til veiða innan 12
mílna lögsögunnar.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins sagði að sovézkum fiskiskip-
um yrði úthlutað leyfum til veiða
í samræmi við hefðbundna sókn
þeirra á hin ýmsu fiskimið og yrði
miðað við meðaltalsaflamagn sið-
ustu ára. I samningnum viður-
kenna Sovétríkin i reynd 200
mílna fiskveiðilögsögu Bandarikj-
anna.
Samningur Bandarikjanna og
Mexíkó er I samræmi við 200
milna reglugerðina, þar sem kveð-
ið er á um að Bandaríkjastjórn
geri nýja samninga um gagn-
kvæm fiskveiðiréttindi við þjóðir,
sem aðild hafa átt að eldri samn-
ingum.
Olíudreifing í Dan-
mörku kemst í eðli-
legt horf á morgun
Kaupmannahöfn 27. n6vemhri;NTB.
Stjórnmálafréttaritarar f Kaup-
mannahöfn eru sammála um að
rfkisstjórn Anker Jörgensens
hafi staðið af sér hinn pólitfska
storm síðustu daga þrátt fyrir að
mörg vandamál séu enn óleyst og
ekki séð hvort stjórnin getur
haldið velli. Benda fréttaritarar á
að sá möguleiki sé fyrir hendi
hvenær sem er að stjórnin fái
meirihluta á móti sér í danska
þinginu.
Anker Jörgensen sagði á fundi
með fréttamönnum í gær að
stjórnin væri þess fullviss að það
væri grundvöllur fyrir að taka
upp nýjar samningsviðræður við
stjórnarandstöðuna og myndi hún
einskis látið ófreistað I þvi sam-
bandi. Ekki er talið að slikar við-
ræður muni hefjast fyrr en eftir
helgi, þar sem stjórnmálamenn
muni nú hvílast yfir helgina eftir
annasama daga og endurskoða
stöðuna.
Útkeyrsla oliu og benzins var
með nær eðlilegum hætti í dag, en
þó mun oliudreifing ekki verða
komin I eðlilegt horf fyrr en á
mánudag og eiga margir Danir
fyrir höndum fremur napra helgi
í kuldakastinu, sem nú gengur
yfir landið.
Jarðskjálftarnir í Tyrklandi:
Fórnarlömbin sitja
í nístandi kulda
undir berum himni