Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1976 \ 0 KOMMÚNISMIHHIH Gamall maður leysir f rá skjóðunni ERNST Kohlman heitir stærðfræðingur og heim- spekingur. Hann er hálf- nlræður að aldri. Hann fæddist og ólst upp i Prag I Tékkóslóvakíu en fór ungur til Sovétríkjanna og bjó þar lengi siðan. 1 september sfðast liðnum komu Kohlman og Jekaterina, kona hans, til Stokkhólms að heim- sækja dóttur sfna. Hinn 5. október ritaði Kohl- man Leonid Bresnef opið bréf og sagði sig úr sovézka kommúnista- flokknum. Daginn eftir báðu þau Kohlmanhjón sænsk yfirvöld um hæli og var þeim veitt það 19. október. Um svipað leyti birti sænska blaðið Dagens Nyheter útdrátt úr endurminningum Kohl- mans. Hann hafði samið þær f félagi við tengda- son sinn, Frantisek Janouch, kjarneðlisfræð- ing f sænsku vfsindaaka- demiunni. Alls staðar f endurminningunum gæt- ir þess mjög, hve Kohl- man þykist svikinn af kommúnismanum, þeim málstað, er hann þjónaði lengur en hálfa öld. Hann kemst svo að orði, að trú sfn á kommúnis- mann hafi verið þver- brotin, ekki einu sinni heldur margsinnis. Kohlman kom strfðs- fangi til Sovétríkjanna árið 1915. Hann hafði þá lokið námi f Prag, numið þar hjá Albert Einstein, og þótti efnilegur og upp- rennandi stærðfræðing- ur. Hann kynntist Valdi- mir Lenin árið 1919. Len- in vildi, að Kohlman neytti vfsindahæfileika sinna f þágu Sovétrfkj- anna. En Kohlman var ekki á þeim buxunum og gekk hann f Rauða her- inn. Sfðar fór hann til Þýzkalands og átti sæti f miðstjórn kommúnista- flokksins þar. I Þýzka- landi var hann hnepptur I fangelsi fyrir skoðanir sfnar; áiti það eftir að henda hann margsinnis. Hann var fyrst dæmdur f fimm ára þrælkunar- vinnu. Þegar til kom var hann þó aðeins hafður hálft ár f einangrun en því næst sendur til Sovét- rfkjanna. Aratuginn fyrir seinna stríð gegndi Kohlman mörgum mikils háttar embættum, pólitískum og vfsindalegum, f Moskvu. Hann var t.d. f miðstjórn sovézka komm- únistaflokksins og sovézku vfsindaakademf- unni. Svo fór Stalfn að hreinsa til, sem frægt er f sögum. Bróður Kohl- mans, er hafði fylgt hon- fangelsi f Sfberfu og hann drepinn þar árið 1940. Sjálfur slapp Kohl- man með naumindum. Eftir strfð sneri Kohl- man aftur til Prag og var þá settur yfir áróðurs- deild tékkneska komm- únistaflokksins. En þremur árum seinna var hann handtekinn fyrir þá sök að gagnrýna stjórn flokksins. Var hann nú sendur f Lubiankafang- elsi f Moskvu. Þar sat hann einangraður f þrjú ár. Á þvf bifi voru kona hans og dóttir sendar f útlegð til Ulyanovsk. Þar hfrðust þær um tfma f salerniskompu og sultu hálfu hungri. Sfðar var Kohlman sagt að þessi meðferð á fjölskyIdunni hefði verið mistök! En hann féll svo aftur f ónáð upp úr 1950. Þá var hann yfirmaður heimspeki- stofnunarinnar f Prag. Honum varð það á að gagnrýna kommúnista- flokkinn og halda þvf fram, að nokkuð skorti á . lýðræði f landinu. Kohlman fluttist aftur um til Sovét, var varpað f til Moskvu árið 1963. t endurminningunum seg- ir hann, að enn hafi vonir sfnar um framgang gam- alla hugsjóna vaknað, er þiðnaði f Tékkóslóvakfu f stjórnartfð Alexanders Dubceks. En þær vonir urðu fljótt að engu: Var- sjárbandalagið réðst inn f landið eftir fárra mán- aða þfðu. Upp frá þvf gerði Kohlman sér engar vonir framar. Og þegar hann kom til Stokkhólms um miðjan september sfðast Iiðinn lét hann svo um mælt: „Ég fer ekki f það fangelsi aftur“. blöðin, sem sagt var fremst, að Jimy Carter sigraði f bandarlsku forsetakostningunum um daginn. Það skipti sköpum í Concordemál- inu, ef vélunum yrði leyfð lend- ing f New York. Hefur staðið á þvi hingað til og þess vegna hafa flug- félög skirrzt við að kaupa Concorde. En hvað Jimmy Carter viðvíkur er hann yfirlýstur and- stæðingur hljóðfrárra flugvéla. Og þegar hann sigraði f kosn- ingunum varð aðstandendum Concorde alldimmt fyrir augum. Hættu þeir framleiðslu þá f sömu vikunni og verða ekki smfðaðar fleiri Concordevélar fyrr en fleiri kaupendur gefa sig fram. Nú eru 16. vélar f smfðum- og fimm óseld- ar. Engir hafa keypt vélarnar nema British Airways og Air France. Air France hefur fjórar þeirra í förum til Washington og Suðuramerfku; býst félagið við því að tapa á þeim 32 milljónum dollara á þessu ári. Eigi Concorde- vél að borga sig verður hún að vera í förum 2500 stundir á ári og 65% sæta skipuð að jafnaði. Mun engin von til þess, nema leyft verði að lenda vélunum í New York. Fengju Air France og British Airways að senda Concordevélar sínar þangað fyndu önnur flugfélög bráðlega svo til samkeppninnar, að þau pöntuðu sér Concorde. Bretar og Frakkar eiga þvf mikið undir Jimmy Carter í þessu máli. Von- ast þeir nú til þess að vinna hug hans með „diplómatiskum þrýst- ingi“, áður en flugvé'apartarnir ryðga á færiböndum, sem stöðvuð voru um daginn ... —ROBIN SMYTH. Áður hafði hann gefið út bók um fátækrahverfín f London. f þá bók „jós hann meira af ungu hjarta sfnu en f nokkra bók aðra“ svo, að tekin séu orð hans sjálfs. Og ekki löngu sfðar kom út „Járn- hæfiinn". Um „Járnhælinn" sagði Anatole France f formála endur- útgáfu árið 1924, að hann hefði boðað komu fasismans. Þá má nefna um leið „Martin Eden“, hina fyrstu fjölmargra bóka um skuggahliðar „amerfska draums- ins“ „Martin Eden“ er sú bók Londons, sem fer næst sjálfsævi- sögu. Hún er um Iftt menntaðan sjómann, sem verður vfðfrægur af ritstörfum, en þykist loks svik- inn af lífinu og drekkir sér. London taldi sig löngum sósfa- lista. Þegar hann var frægastur gaf hann út ritgerðir og smásögur f strfðum straumi til framdráttar málstaðnum; hann fór einnig fyrirlestrarferðir milli háskóla um þver og endilöng Bandarfkin. Sagði hann áheyrendum sfnum jafnan, að „það væri komið að byltingu og gæti hver reynt að hindra hana sem vildi!" Leizt mönnum ekki meir en svo á þetta. London lenti f mörgum ævin- týrum öðrum en þeim, sem nefnd hafa verið. Hann sigldi snekkju sinni til Salómonseyja við fjórða mann og hann var fregnritari i strfðinu milli Rússa og Japana 1905 og byltingunni f Mexfkó. Hann hélt þvf alltaf fram, að hann skrifaði aðeins peninganna vegna. Þetta var uppgerð sumpart en nokkuð var Ifka til I þvf. Undir lokin skrifaði hann oft tilneydd- ur; hann skorti mjög fé f ýmis fyrirtæki — snekkjuna sfna, bú- garðinn og fleira. A.m.k. ein saga hans frá seinni árum nær máli; það er „Mánadalur". En flestar bækurnar frá þessum tfma drógu úr áliti manna á honum fremur en hitt. Og hann komst jafnvel f þrot með söguefni — varð t.d. að kaupa hugmyndir af Sinclair Lewis, sem þá var óþekktur. Borg- aði London eitt sinn 70 dollara fyrir 14 hugmyndir. Seinustu æviárin kvaldist hann af þvagteppu og gigtarköstum. Honum hvarf allur metnaður til skáldskapar. Hann var þrotinn að flestu, er hann lézt, hinn 22.nóv. 1916. Ofstór skammtur af læknislyfi nokkru dró hann til dauða. Verð- ur ekki vitað héðan af, hvort hann framdi sjálfsmorð eða ekki. Á þeim 60 árum, sem sfðan eru liðin, hefur orðstfr Londons hrak- að nokkuð, ekki sfzt af þvf, að lærðir gagnrýnendur hafa látið hjá Ifða að sinna honum. En nú þegar hundrað ár eru liðin frá fæðingu hans vil ég beina þeirri ósk til annarra, að þeir heiðri minningu hans mcð öðrum hætti — lesi bækurnar hans. Það dugir þá, þótt annað komi ekki til. —RAY GARDNER. MYNDASÖGUR Hergé: 4 „Konur eru yfirleitt ekki hlægilegar" Madurinn sem skap- aði hann Tinna litla TINNI, sú víðfiæga söguhetja, er orðinn 47 ára gamall; það er að segja sögurnar um hann. Hann hefur lent i 24 ævintýrum fram að þessu. En þau hafa ekki sett mark á hann. Hann er ævinlega 16 ára (17 eða 22, ef menn vilja heldur). Höfundur Tinna, Hergé, hefur aftur á móti elzt með árunum. Hann er orðinn 69 ára. Hann er búinn að teikna myndasögur í 60 ár. Þær fyrstu voru ekki um Tinna, heldur aðra hetju, sem stríddi þýzkum hermönnum f Belgíu á árum heimstyrjaldar- innar fyrri. Tinni kom til sögunn- ar, þegar Hergé vann við smáblað í Belgiu og ritstjórarnir afréðu að gefa út sérstaka barnalesbók vikulega. Fáir hafa komizt betur áfram i heiminum en Tinni. Þúsund manna hafa myndir hans fyrir verndargrip á lyklakippum sínum. Fjölþjóðleg fyrirtæki nota hana i auglýsingum sér til fram- dráttar. Foreldrar um allan heim hafa hann í hávegum; þeir hafa margreynt, að fátt friðar börnin betur en Tinnabók. Ctgefendur Tinna i Paris stilltu upp á húsi sinu fimm metra hárri styttu af honum og hundi hans, sem Milou heitir. Tinni og félagar hans allir tróna á Grevinsafninu I Paris, mótaðir i vax. De Gaulle, hers- höfðingi, lét eitt sinn svo um mælt, að Tinni væri eini mikils háttar keppinautur sinn í Evrópu. Það kom og í ljós i skoðanakönn- un meðal franskra skólakrakka, að de Gaulle hafði á réttu að standa. Og krökkunum þótti þrisvar sinnum meira koma til Tinna en Napóleons! Nú er búið að þýða Tinnasög- urnar á 24 þjóðtungur. En það var ekki fyrr en eftir seinna stríð, að þeim jukust svo mjög vinsældir. Að visu tókst allvel til um fyrstu söguna. Blaðið sem Hergé vann við, tók upp á þvi að búa einhvern strákling eins og Tinna og útvega honum hund á borð við Milou, og sendi þá til Briissel. Þeir voru naumast komnir inn i borgina, er aðdáendur fóru að flykkjast að þeim og áttu þeir félagar fótum sínum nærri fjör að launa. En vinsældir Tinna voru að mestu bundnar við Brússel fyrstu 15 ár- in; það var meðan sögurnar birt- ust í svarthvitu. Hróður Tinna barst þá fyrst út um löndin, þegar Hergé fór að teikna hann i lit. Til þess var Hergé reyndar neyddur hálft i hvoru. Sögurnar, sem komu út fyrir heimstyrjöidina seinni voru geysimiklar að vöxtum, jafnvel 140 blaðsiður, og sex teikningar á hverri síðu. Eftir stríð varó pappírsskortur og horfði þá illa fyrir Tinna. Utgefendur Hergé settu honum þau mörk, að sög- urnar yrðu ekki lengri en rúmar 60 siður, myndirnar minni en áður og 12 á hverri síðu. Til þess að bæta Hergé þetta upp buðu þeir honum að prenta sögurnar i lit. Hergé för aldrei í listaskóla. Og hann lætur sér það í léttu rúmi liggja núna, þótt honum þætti ekki meira koma tii teikninga sinna hér fyrr á árum en svo, að hann fór að teikna undir dul- nefni. Hergé fór snemma að hafa gaman af teikningum. Faðir hans vann í vefnaðarvöruverzlun og teiknaði barnaföt jafnframt. Var Hergé oft að fylgjast með þvi. Að öðru leyti var ekki mikilli „menn- ingu“ til að dreifa á heimilinu. Fjölskyldan var efnalítil og keypti ekki bækur; það hefði þótt svo sem að kasta peningum á glæ. Hergé var kominn á fullorðinsár, Frainhald á bls. 25

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.