Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÓVEMBER 1976
Zvi Zamir,
yfirmadur
ísraelsku
leyniþjón-
ustunnar.
Upphaflega til
að drepa
Nazista
ísraelska leyniþjónustan er óháð
stofnun með sínar eigin reglur og að
ferðir Hún er að mörgu leyti hægri
hönd ríkisstjórnarinnar, leynilegt utan-
ríkisráðuneyti sem sér um samband
ísraels við þau ríki, sem kæra sig ekki
um stjórnmálasamband við ísrael af
einhverjum ástæðum Meðal slíkra
ríkja eru t d Tyrkland, íran og
Marokkó
Ein deilda leyniþjónustunnar er
Deild sérstakra aðgerða Þessi deild er
drápsdeildm Hún er ábyrg aðeins
gagnvart Zamir Eins og nafn hennar
ber með sér. er henni ætlað það eina
hlutverk að finna og drepa erlenda
njósnara Deildin varð upphaflega til í
þeim tilgangi að drepa nazista Hún
tók emnig að sér að myrða eða hræða
burt þýzka vísmdamenn, sem Nasser
Egyptalandsforseti réð til að starfa við
eldflaugarannsóknir Siðustu árin hafa
starfsmenn deildarinnar snúið sér
meira og meira að hryðjuverkamönn-
um Svarta september En þegar hér
var komið í sögunni, hafði starfsemi
deildarmnar legið niðri um nokkurt
skeið
Zvi Zamir fékk hlutverkið að endur
skipuleggja þessa deild í hefndarskym
við Svarta september Auk hans var
fyrrverandi yfirmaður leyniþjónust-
unnar, Yariv. skipaður og jafnframt
gerður að sérstökum ráðgjafa Goldu
Meir varðandi þessi mál
Skipulag
Zamir og Yariv gerðu sér Ijósa grein
fyrir erfiðleikunum, sem þeir yrðu að
yfirstíga Ef ætlunin var að stemma
endanlega stigu við hryðjuverkastarf-
semi, nægði ekki að drepa aðeins einn
foringja skæruliðanna, heldur alla Þeir
yrðu að gera líf skæruliðaforingja svo
hættulegt, að enginn myndi þora að
taka að sér slikt hlutverk Til að nálgast
þetta markmið urðu þeir Yariv og Zam
ir að búa til nýja tegund stríðsaðferða
Eins og einn morðingjanna átti síðar
eftir að segja ,,Morð þarf að fram-
kvæma af list” Fjöldamorð þarfnast
emnig skipulagningar Þeir komu sér
saman um 1 5 manna sveit, sem skipt
yrði í fimm hluta, sem hver var nefnd
eftir hebreskum bókstöfum Aleph:
tveir morðingjar, sem annaðhvort
væru fengnir úr Mossad sjálfu eða
þeirri deild ísraefshers, sem sérhæfð er
í þöglum drápsaðferðum. Þessir tveir
yrðu annaðhvort að drepa af hugsjón
eða vera afar harðsviraðir — helzt
hvort tveggja, því þeim yrði ætlað að
drerpa úr seilingarfjarlægð, ólíkt því
sem tíðkast i striði
Beth: tveir varðmenn, sem sæju um
undankomuleið og aðstoðuðu morð-
ingjana i hugsanlegum ógöngum
Annar þessara yrði að vera góður bíl-
stjóri, annar góður skotmaður Enginn
þessara fjögurra mætti hafa neitt sam-
neyti við aðra félaga sveitarinnar
Heth: „felufólk', sem sæi um fyrir-
komulag eins og t d hótelpantanir.
bílaleigu, farmiða Helzt þyrfti Heth að
vera par, sem vekti síður athygli en
tveir menn eða tvær konur Helzt
þurftu þau að hafa alþjóðlegt yfirbragð
til að tengsl þeirra við ísrael væru síður
áberandi
Ayin: Sporhundar, 6 til 8 Þetta fólk
myndi leita uppi fórnarlömbin og að-
stoða við undankomu.
Ooph: Tveir tenglar, annars vegar milli
félaga allrar sveitarinnar og hins vegar
milli sveitarinnar og Mossad
fFYRIR rúmum mánuði birtist í sunniP
dagsblaði Mbl. grein um morðingjasveifl
lísraelshers, sem stofnað var til eftir
hryðjuverk Araba á Ólympíuleikunum í
ÍMiinchen 1972. Markmið morðingjasveit-
arinnar var að hefna þeirra, sem féllu í
Miinchen, og beindist athygli ofan-
| nefndrar greinar einkum að mistökum í
Lillehammer, þegar ísraelsmenn myrtu
þjón af arabísku bergi brotinn. Hér á
, eftir fer nánari lýsing á skipulagningu
morðingjasveitarinnar og hefndarað-
fgerðum hennar.
Jafnskjótt og fregnir um innrás skæru-
lliðanna í búðir íþróttafólks Israels í
iMiinchen bárust forsætisráðherra ísra-
fels, Goldu Meir, kallaði hún ráðherra og
aðra ráðamenn til fundar við sig. Niður- (
istaða þessa fundar var ákvörðunin um
stofnun morðingjasveitar. Uppástungan
|kom frá hershöfðingja að nafni Zvi
Zamir, sem jafnframt var yfirmaður
ísraelsku leyniþjónustunnar, en morð-
ingjasveitin skyldi vera sérstök deild^
Ihennar. Leyniþjónustan heitir á
hebresku Mossad.
„Þetta
var
stórkostlegt.
Við
myrtum
morðingjana*
Það var ákveðið að skipa gamalreynt
Mossad starfsfólk í sveitina og var það
kallað til ísraels frá Evrópu, þar sem
það bjó og starfaði Aleph og Beth,
tvær fyrstu deildirnar, þörfnuðust sér-
stakrar hæfni og val þeirra var mikil-
vægast Zamir valdi Mike, austur-
evrópskan Gyðing á fimmtugsaldri,
sem hafði unnið fyrir Mossad í fjölda
ára Mike var settur í Aleph og jafn-
framt gerður að yfirmanni morðingja
sveitarinnar Honum var falið að velja
samstarfsmenn í Aleph og einnig að
finna hæft fólk í Beth
Mike byrjaði á því að gera ástkonu
sína Tamar, að Beth-konu. Tamir var
tæplega þrítug, fögur kona, sem ekki
var hrædd við að drepa og hún var því
einnig gerð að auka meðlim í Aleph
Jonathan Ingleby hét þriðji Alephinn
Ingleby var búsettur í London Við-
skiptaheimurinn áleit hann verzlunar-
mann með viðskipti við austur-Evrópu
og Frakkland. Þótt hann væri að nafn-
inu til búsettur í London, dvaldist hann
meira í Paris. Ingleby var nafn á raun-
verulegum Englendingi, sem ekki hafði
hugmynd um tilveru njósnarans, sem
hafði rænt nafninu hans.
Yfirmaður Heth, „felufólksins', varð
Sylvia Rafael, falleg, Ijóshærð kona um
þrítugt, sem bjó i Paris Hún var þekkt
þar sem kanadiskur Ijósmyndari,
Patricia Roxburgh Hún var vinsæl
meðal blaðamanna, spilaði forkunnar-
vel bridge og hélt uppi skemmtilegum
samræðum í samkvæmum Hin raun-
verulega Pat Roxburgh bjó enn í
Kanada og líkt og Jonathan Ingleby,
hafði hún ekki hina minnstu hugmynd
um tilveru nöfnu sinnar
Höfuðstöðvar Mossad voru á tímum
de Gaulle í París en voru síðar fluttar til
Brússel En Sylvia og Ingleby voru þó
áfram í Paris, þar eð þeim hafði þá
tekizt að byggja upp svo sannfærandi
gervi, að ekki þótti þess virði að byrja
upp á nýtt
Öllu þessu fólki var nú safnað saman
í ísrael til endurþjálfunar Lögð var
áherzla á likamsrækt, kunnáttu í með-
ferð rafmagnstækja og minnisþjálfun
Allir þeir, sem Mike valdi, höfðu þegar
dvalizt í æfingabúðum áður, 1 2 mán-
uði í allt. í þeim búðum eru meðlimir
leyniþjónustunnar og israelshers búnir
undir störf sín.Aðeins 1 5% þeirra, sem
hefja 12 mánaða dvölina, eru þarallan
tímann Sem dæmi um þær raunir,
sem ætlazt er til af „dvalargestum'' þar,
er „ferðin til Petra” eins og það er
nefnt. Petra er yfirgefin borg, 30 mílur
frá ísraelsku landamærunum og leiðin
þangað liggur yfir jórdönsku eyðimörk
ina.
Það tekur 4 eða 5 daga að komast
þangað gangandi og er hættulegt ekki
sízt vegna þess, að fara þarf yfir vot-
lendi þar sem fótspor verða greinileg
og auðveldar það óvinaverndarsveitum
svæðisins að elta og finna ferðalanga
A.m.k. 1 2 dóu á þessari ferð
Á meðan morðingjasveitin tilvonandi
undirbjó störf sín, var verið að smíða
morðvopnin. Byssurnar þurftu að vera
smáar, og hljóðlátar og fyrir valinu
varð 22 kalibera byssa. Þessa byssu
hafa öryggisverðir notað um borð í El
Al flugvélum — hún drepur aðeins i
návígi og kúlan missir kraft sinn fljót-
lega, en hefur með þann kost að eyði-
leggja ekkert innanborðs ef skotið
geigar. Mike hafði þetta i huga er hann
valdi 22 kalibera byssu af Beretta-gerð
handa morðingjunum
Allt var til reiðu, morðingjarnir og
vopn. Fyrsta fórnarlambið var enn
ófundið Hvar átti að byrja?
Fyrsta
fórnarlambið
í Róm Þar bjó Abdel Zvaiter Hann
var þekktur meðal listamanna og
vinstri sinnaðra vina sinna sem hæglát-
ur menntamaður og þeir héldu að
hann ætti aðeins tvö áhugamál, að
þýða arabiska Ijóðlist á Evrópumál og
málstað Palestínu Hann vírtist þeim
meinlaus. alltaf auralaus en þægilegur.
ítalska lögreglan var á annarri skoðun
Hún hafði hann grunaðan um þátttöku
í hreyfingunni Svarta september og
hafði einu sinni tekið hann til yfir-
heyrslu vegna þess Og ísraelsmenn
höfðu enn sterkari grunsemdir i garð
Zvaiters, þeir álitu hann vera yfirmann
Svarta september I ítaliu og að hann
væri m a ábyrgur fyrir sprengingu um
borð í ísraelskri flugvél i ágúst 1972.
Þá höfðu tveir Arabar fylgt tveimur
enskum stúlkum út á flugvöllinn i Róm
og gefið þeim segulbandstæki i brott-
farargjöf, en þær voru að fara til Tel
Aviv. I segulbandstækinu var sprengja.