Morgunblaðið - 28.11.1976, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. NÖVEMBER 1976
13
sem var stillt þannig að hún spryngi í
vissri hæð Til allrar hamingju komu
stúlkurnar tækinu fyrir í farangri sinum
og héldu ekki á því á leiðinni og komu
þannig í veg fyrir að flugvélin spryngi í
loft. upp. Farangursgeymslurnar i flug-
vélum El Al eru brynvarðar og gerði
sprengjan því tiltölulegan lítinn skaða,
en flugstjóranum tókst að nauðlenda
vélinni. ísraelsmenn álitu Zvaiter vera
annan Arabanna, sem hafði kvatt stúlk-
urnar með gjöfinni
Dráp Zvaiters var ákveðið og dag-
setningin valin: 1 6 október. Það kvöld
var hann i heimsókn hjá ítalskri vin-
konu sinni. Á leiðinni heim til sin kom
Zvaiter við á bar og hringdi en um kl.
10.30 var hann kominn i blokkina þar
sem hann bjó. Hann var skotinn á
ganginum,, tólf byssukúlur gerðu út
um hann Ein byssukúla lenti í eintaki
af 1001 nótt, sem hann var með í
vasanum.
Meðan Aleph-mennirnir tveir
frömdu morðið. beið Beth fyrir utan,
það voru þau Mike og Tamar. Þau voru
fallegt par, hann í Ijósgráum jakkaföt-
um og hún með Ijósa hárkollu. Þau
sátu í grænum Fiat 125, undankomu-
bifreiðinni og reyndu að vekja sem
allra minnsta athygli. Þarna var tölu-
verð umferð. fólk að fara og koma i
bílum og þau Mike og Tamar reyndu
að koma í veg fyrir að einhver legði bíl
sínum á stæðinu beint fyrir framan
þau, svo flóttinn yrði sem skjótastur.
Loks komu morðingjarnir hlaupandi út
úr blokkinni. Zamir. sem var nálægt I
öðrum bíl, til að fylgjast með, sá sér til
mikillar skelfingar, hvar Mike þaut Ijós-
laus af stað og hafði næstum lent í
árekstri við „rúgbrauðsbil". Þar með
hefði verið úti um þau öll. En Mike
tókst að forðast árekstur og þeim tókst
að komast út á flugvöll og ná vélinni til
Tel Aviv samkvæmt áætlun
„Eiginkonan
horfði á. . ."
Uppástungur um skipan morðsveitar
af þessu tagi höfðu komið fram áður
en Munchenar-hryðjuverkin áttu sér
stað. Golda Meir hafði ævinlega neitað
slíkum aðferðum í baráttunni gegn
arabísku skæruliðunum þar eð henni
þótti það meira virði að halda virðingu
ísraels á loft út á við en að drepa
nokkra hryðjuverkamenn hér og þar.
„Hvernig getið þið ábyrgzt, að eigin
mistök eigi sér stað?” spurði hún.
„Einn góðan verðurdag kemst upp um
okkur og þá munið þið spyrja, hvað
eigum við að gera?" ísrelska ríkis-
stjórnin gat, að mati Goldu Meir, ekki
verið ábyrg fyrir kaldrifjuðum morðum
En Golda Meir átti þó eftir að gefa
opinberar yfirlýsingu um aðgerðir
morðsveitarinnar og þar með lýsa yfir
ábyrgð sinni og stjórnarinnar Það var
eftir morðin í apríl 1 9 73.
Kl. 1.30 að morgni 9. apríl 1973
komu 1 5 kafarar upp á yfirborð sjávar-
ins úti fyrir strönd Beirut Þetta voru
ísraelskir njósnarar Þeir drógu á eftir
sér gúmmíbát og stigu á land neðan
við strandgötu borgarinnar. í bátnum
voru palstpokar fullir af fatnaði. vopn-
um, sprengjum og útvarpstækjum.
ísraelarnir skiptu um föt og fóru upp i
bifreiðar, sem biðu þeirra á strandgöt-
unni, allir fullir af benzíni, með lyklana
á sinum stað Þarna voru fimm bifreið-
ar og þrír njósnarar fóru i hverjum
þeirra Þeir lögðu öllum bifreiðunum
úti fyrir stórri íbúðarblokk í miðri
Beirut og sneru þeim í þá átt, sem þeir
höfðu komið úr. Einn maður úr hverri
bifreið fór inn i blokkina, sem var i eigu
PLO og allir íbúarnir tilheyrðu þeirri
hreyfingu Dyravrðd nivoru skotnir nið-
ur. Að þvi loknu bættist ísraelunum
liðsauki frá bifreiðunum. skiptu sér í
þrjá hópa og brutust inn i þrjár ibúðir
samtimis. Þeir skutu á læsingarnar.
í fyrstu ibúðinni bjó Abu Youssef,
yfirmaður i Svarta september. þriðji
valdamesti maðurinn í PLO ísraelar
álitu hann ábyrgan fyrir mörgum morð-
um og flugvélaránum. Þeir skutu hann
niður með vélbyssu Eigmkona hans
særðist en börn þeirra, sem horfðu á
hildarleikinn. sluppu ómeidd. Kona i
næstu íbúð, sem heyrði hávaðann og
kom fram á gang til að athuga hvað
væri um að vera, var einnig skotin til
bana.
Á næstu hæðjyrir ofan horfði önnur
eiginkona á mann sinn deyja fyrir
byssukúlum ísraelsmanna Það var
Kemal Adwan, annar framámamaður
Svarta september
í íbúðinni við hliðina á þeirra bjó
Kamal Nasser, palestinskt Ijóskáld og
háttsettur í PLO Nasser sat við skrif-
borð sitt og var að semja ræðu. þegar
ísraelarnir hentust inn til hans. Þeir
skutu hann í bakið og Nasser féll fram
á skrifborðið
ísraelarnir yfirfóru ibúðirnar og
komu út úr blokkinni með þrjá skjala-
skápa Þyrla sveif yfir gangstéttinni
meðan þeir komu skápnum fyrir i spil-
taug hennar og þyrlan sveif siðan á
brott. Árásarmennirnir stukku upp i
bifreiðar sinar og óku aftur þá leið sem
þeir komu, niður að ströndinni og
niutíu mínútum eftir að þeir komu fyrst
upp á yfirborð sjávarins, voru þeir aftur
horfnir í djúpið Bifreiðarnar stóðu á
bakkanum, og lyklarnir sveifluðust í
rofanum
Daginn eftir sagði Golda Meir
ísraelska þinginu og dagblöðunum:
„Þetta var stórkostlegt, við drápum
morðingjana, sem voru að skipuleggja
fl^iri morð. .
Auga fyrir
auga,tönn
fyrir tönn
Ellefu israelskir iþróttamenn féllu
fyrir arabískum skæruliðum i Munchen
1972 Morðingjsveit ísraels hefndi
grimmilega fyrir dauða þeirra, og
sumarið 1973 hafði þeim tekizt að
drepa ellefu meðlimi Svarta september
og PLO Þjónninn saklausi i Lillehamm-
er varð sá tólfti Allir þeir jsraelar, sem
þar áttu hlut að máli. hættu drápsað
gerðum eftir mistökin i Noregi og fara
nú huldu höfði i Evrópu, ísrael eða
Suður-Ameríku
Þýtt og endursagt. The Times
Heth — „felufólk
Beth — varðmenn og
aðstoðarmenn morð-
ingjanna
Alep — morðingjarnir sjálfir
Yariv — serstakur ráð-
gjafi Goldu Meir.
Engin Ijósmynd fáanleg.
Zvi Zamir — höfundur
morðingjasveitar.
Stundum fylgdist hann
með mönnum sfnum við
manndrápin.
Ayin — 6—8 manna
flokkur, sporhundarnir
Ooph — tenglarmr
Lá tið raf m agns-
AÐM FENTl JLJÓS
heimili lýsa u\ ð 'i skai / itmai c9fogeh »p nmdeginu Mon h.f.
(Gaggenau)
Bökunarofnar
með innbyggðu grilli og viftu, sem jafnar hitanum
um ofninn. Bæði eru til einfaldir og tvöfaldir.
Myndin sýnir tvöfaldan ofn Allir ofnarnir eru
sjálfhreinsahdi.
Helluborð
með fjórum hellum, krómaðar eða í lit (béige og
mocca). Helluborð með tveimur hellum, bæði
venjulegar og með coringáferð (sléttar). Auk þess
kolagrill, djúpsteikingarpottar og viftur • borð.
Einnig eldhúsvaskar i litum, bæði hringlaga og
venjulegir. Litir: Mocca, mosagrænir, beige og
rauðir. Til afgreiðslu í þessari viku.
© \ förumarkaðurinn hl.
Ármúla 1A. Matvörudeild S. 86111 Húsgagnadeild S 86112
Vefnaðarvörudeild S 86113
Heimilistækjadeild S 8611 7.