Morgunblaðið - 30.01.1977, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JANOAR 1P77
41
+ Óvenju kalt hefur verið í New York að undanförnu og hafa þvf fbúar
Manhattan þurft að kynda vel. Reykjamökkurinn hylur háhýsin og enn eykst
mengunin sem ekki var þó á bætandi.
Otti við
öldrun minnkar
- ekki ellin sjálf
getuna -
HVERNIG fólk verður fyrst
vart við það að það er tekið að
reskjast og hver séu fyrstu
merki öldrunar voru viðfangs-
efni þriggja ráðstefna, sem ný-
lega voru haldnar í Vestur-
Þýzkalandi, fyrir lækna sál-
fræðinga og öldrunarfræðinga.
Þar sem viðbrögð fólks við öldr-
un og þau áhrif, sem hún hefur
á það, er mjög mismunandi er
mjög erfitt að alhæfa nokkuð
um ellina. Þess vegna komu
fram á ráðstefnunum mjög
mörg og ólík sjónarmið um
hana.
Einn læknir sagði að það væri
ekki maður sjálfur heldur ann-
að fólk, sem fyrst yrði öldrunar
vart hjá manni. Það væri talið
sem kæmi upp um mann á þann
hátt að maður gleymdi skyndi-
lega orðum eða nöfnum, sem
maður hefði í orðaforða sínum
þannig að talið yrði stirðara.
Það tekur lengri tíma að kalla
fram orð og nöfn úr minninu.
Það er almennt álit að öldrun
sé nú hægari en áður, en erfið-
ara er að fullyrða um breyting-
ar á getu heilans, eins og sviss-
neskur vísindamaður, H.D.
Schneider, benti á. Það er hugs-
anlegt að segja að heilanum
geti farið jafn mikið aftur og
öðrum hlutum líkamans, en að
hve miklu Ieyti þetta fylgist að
er ómögulegt að segja um. Hins
vegar sé rangt að segja að and-
leg geta manna minnki alltaf
við öldrun. Réttara sé að segja
að andleg geta verði fyrir eins
konar breytingu.
Sálfræðingurinn K. Schlotka
gerði tilraunir þar sem hann fól
hóp manna á misjöfnum aldri í
sama fyrirtæki eitt verkefni.
Hann komst að raun um það að
menn á aldrinum 30 til 40 ára
leystu verkefnið mun auðveld-
legar og fljótar en hinir eldri.
Önnur svipuð athugun var gerð
fyrir efnahagssamdráttinn 1974
og gaf til kynna að eldri starfs-
menn væru óhagkvæmari fyrir
fyrirtæki þar sem geta þeirra
réttlæti ekki lengur það kaup
sem þeir fengu.
Schneider hefur hins vegar
sýnt fram á að þessi niðurstaða
er heldur fljótfærnisleg. Hann
heldur því fram að andleg geta
manna minnki ekki eftir 50 ára
aldur, nema hjá fólki sem hefur
lága greindarvísitölu og gerir
ekkert til að halda heilanum
virkum. Hann rannsakaði
fjölda manna af meðal og mik-
illi greind og fann það út að
engin merki voru un andlega
hrörnun í elli heldur þvert á
móti þá hélt andleg geta áfram
að vaxa.
Ungt og gamalt fólk var látið
gangast undir próf og útkoman
kom á óvart. i fyrstu virtist
yngra fólkið hafa töluvert meiri
getu til að leysa verkefnið en
hinir eldri. Þeir voru fljótari að
ljúka við það, héldu betur
áfram og verkmennskan var
betri. Það tók eldri þátttakend-
urna lengri tíma að kynna sér
verkefnið, en eftir stutta stund
unnu þeir á forskot unga fólks-
ins. Og jafnvel þar sem þeir
höfðu ekki við þeim í hraða
bættu þeir það upp með meiri
nákvæmni, öryggi og ábyrgðar-
meiri afstöðu til verkefnisins.
etta kemur heim og saman
við reynslu fyrirtækja og bend-
ir það til þess að það sé ekki
öldrunin, sem dregur úr getu
heldur óttinn við öldrunina.
Schneider álítur að fólk bæli
niður ótta sinn við ellina, vilji
láta sig líta út fyrir að vera
yngra, sprækara og fullt orku,
en þjáist jafnframt af vaxandi
ótta um að annað fólk taki eftir
ótta þess við ellina.
Prófessor Ursula Lehr frá
Bonn sagði að þessi níðurbæl-
ing á ótta við ellina og afleið-
ingar hennar kæmi oft út hjá
fólki á aldrinum 45 til 55 ára
sem einhvers konar þunglyndi,
minnkandi þróttur og áhuga-
leysi. Það er engin líffræðileg
eða sálfræðileg ástæða til að
ætla að ellin sé farin að hafa
áhrif á þessu aldursskeiði.
Óttinn við minnkandi and-
lega getu meðal fólks á aldrin-
um 45 til 55 ára hefur engin
áhrif á öldrunina sjálfa. Lækn-
ar og geðlæknar hafa sífellt
meir orðið varir við þennan
ótta meðal fólks á þessu aldurs-
skeiði og segja hann meðal ein-
kenna erfiða tímabils miðaldra
fólks.
Fyrir giftingaveislur, afmæli, árshátiöir
að ógleymdum saumaklúbbum.
-------------------;------------------
A þessu borði eru eftirtaldir skreyttir réttir:
Skinka, lambahryggur, kótilettur, ham-
borgarhryggur, hangikjöt, grísasteik,
roast beef, kjúklingar, reyktur lax, 2 — 3
síldarréttir, örænmet'ssalat, remolaði-
sósa, rækjusalat, coctailsósa, brún heit
kjötsósa, kartöflur amk. 3 tegundir, brauð
og smjör,
Við sérstökum óskum getur verðið lækkað eða
hækkað, ef teknir eru burt, eða bætt við
sérstaklega dýrum réttum t.d. lax tourne-
dos, öndum, aligæs, kalkún o.þ.h.
Ef óskað er getum við sent menn
með borðinu til að setja það upp.
Forréttir (ka/dir)
Kavíar með ristuðu brauði
2 stk. per mann
Blandaðar koktelsnittur
2 stk. per mann
Laxasalat ( koktelglasi
Rækjukokteill í kokteilglasi
Humarkokteill í kokteilglasi
Reyktur lax í kramarhúsum
m/ stífþeyttu eggi
1 rúlla per mann
Soðinn lax I hlaupi
eða smálúða
Skinkurúlla m/ spergil
Köld ávaxtasalöt
Kjúklingasalat.
Kaldar eða heitar tartalett-
ur eftir vali m/ kjöti, fiski
eða ostafyllingu.
Súpur
Kjötseyði Colbert m/
hleyptu eggi
Rjómasveppasúpa —
Aspassúpa
Blómkálssúpa
Frönsk lauksúpa
Aðrar súpur má panta
hjá yfirmatreiðslu-
manni.
+ Hollenska leik-
konan Sylvia Kristl
sem er oröin heims-
fræg fyrir leik sinn í
Emanuelle, segist
aldrei ieika nakin
framar. í tveim síö-
ustu myndum sínum
hefur hún verið í
yfirhöfn alla
myndina og samt
fengið góöa dóma.
Von er á enn einni
Emanuellemynd en
hún segir aö leik-
stjórinn hafi lofað
sér aö hún þyrfti
ekki aö vera nakin.
Hehur matur
I minni eða stærri
samkvæmi.
Buff saute Stroganoff
m/ salati og hrísgrjónum
Grlsasteik m/ rauðkáli
og brúnuðum kartöflum
Hamborgarhryggur
m/ rauðvlnssósu, ananas-
salati og brúnuðum kartöfl-
um.
Grillsteiktir kjúklingar
m/ ijómasveppasósu og
grænmeti.
Roast beef m/bearnaise-
sósu. Belgjabaunum og
pommés saute.
London lamb m/ brúnuðum
kart. rjómasveppasósu. og
grænmeti.
Grisakarriréttur m/hris-
gk grjónum. ,
Desertar
Ábætisréttir
Vanillufs
Mokkais
Sitrónufromage,
Triffle m/ rjóma, sherry og
makkarónum.
I---------------------A
Ýmsir
samkvæmisréttir
og aðrir smáréttir:
Sildarréttir, kabarettdiskur
m/ 5 teg. af sild,
brauði og smjöri.
Kinverskar pönnukökur
fylltar með hrisgrjónum,
kjöti og kryddjurtum m. sal-
ati
Soðinn lax [ mayonnaise
(heitt) m/gúrkusalati og
tómötum.
Kabarettdiskur með humar.
rækjum, kaviar og skinku-
rúllum spergil, roast beef,
salati, brauði og smjöri
itölsk Pizza Pie
Ítalskur kjötréttur
(Irish stew)
Nautatunga m/ remolaði
og hvitum kartöflum eða
piparrótarsósu
Alikálfasnitzel
m/ tilheyrandi
Útvegum borðbúnað ef óskað
er t.d. glös, diska hnífapör
dúka servíettur o.þ.h.
Útvegum einnig
þjónustufólk.
Upplýsingar veitir
yfirmatreiðslumaður
islma 1 1630eða 13835
Óðal
v/Austurvöll
féik í
fréttum