Morgunblaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 34
34 Leiðbeiningar i ing tek juskatts fleiri opinberra Leiðbeiningar þessar um útreikning þeirra opinberu gjalda sem birtast í skatt- og útsvarsskrá, svo og um ákvörðun ónýtts persónuafsláttar og barnabóta, eru fyrst og fremst miðaðar við launþega, þó svo að framteljendur með sjálfstæðan atvinnu- rekstur geti haft þar nokkur not af. Því aðeins koma þessar leiðbeiningar að notum að fram- teljandi hafi fyllt út framtal sitt fyrir '«rið 1977 og lagt saman alla liði þess. Með leiðbeiningunum er eyðublað sem framteljandi getur skrifað þær upphæðir á sem um er að ræða við útreikning hvers gjalds. Til hagræðis fyrir framteljendur fylgir texti leið- beininganna stafliðum eyðublaðsins. Jafnframt fylgja tvö dæmi um útreikning á opinberum gjöld- um á eyðublaðinu og eru tekin sem dæmi barnlaus hjón í Reykjavík sem búa í eigin íbúð og einstætt foreldri með þrjú börn, yngri en 16 ára, 31. des. 1976. Einstæða foreldrið á ekki íbúð. __________ _______________ ím útreikn- , útsvars og gjalda 1977 A. Tekjuskattur eða ónýttur persónuaf- sláttur. 1. Hreinar tekjur til skatts eru mismunur tekjukafla framtals- ins, III, á bls. 2 og beggja írádráttarkaflanna, IV og V, á 2. bls. framtalsins. 2. Ef framteljandi telur sig eiga rétt til ívilnunar skv. 52. gr. skattalaganna (sjá nánar í Leiðbeiningum um útfyllingu skattframtals 1977) skal hann draga þá upphæð frá hreinum tekjum. (Skattstjóri úrskurðar fjárhæð ívilnunar.) 3. Skattgjaldstekjur eru annað- hvort sama upphæð og hreinar tekjur til skatts eða hreinar tekjur til skatts að frádreginni ívilnun skv. 52. gr. Skattgjalds- tekjur eru því þær tekjur sem skattúr er reiknaður af. 4. Þegar skattgjaldstekjur hafa verið reiknaðar út skal reikna skatt af þeim á eftirfarandi hátt: a) Hjá einstaklingum og hjónum telji þau fram hvort í sínu lagi: Af fyrstu 975.000 kr. skatt- gjaldstekjum reiknast 20% skattur. Af því sem umfram er reiknast 40% skattur. b) Hjá hjónum sem samskött- uð eru og hjá sambýlisfólki sem átt hefur barn saman og óskað hefur eftir að sameina skattgjaldstekjur sínar og skattgjaldseign: Af fyrstu 1.381.300 kr. skatt- gjaldstekjum reiknast 20% skattur. Af því sem umfram er reiknast 40% skattur. Færið síðan reiknaðan skatt í samtalsreit. í'ærið inn viðeigandi persónu- afslátt en persónuafsláttur er: a) 157.625 kr. fyrir einstakling og hjón sem telja fram hvort i sínu lagi. b) 235.625 kr. fyrir hjón sem samsköttuð eru, einstætt for- eldri með barn, yngra en 16 ára á heimili óg á framfæri 31. des. 1976, og sambýlisfólk sem átt hefur barn saman og óskar eftir að sameina skattgjalds- tekjur sinar og skattgjalds- eign. Heiknið út mismun reiknaðs skatts og persónuafsláttar. Ef persónuafsláttur er hærri en reiknaður skattur myndast ónýtt- ur persónuafsláttur (sjá síðar hvernig má nota ónýttan persónu- afslátt til greiðslu útsvars). Ef reíknaður skattur er hærri en persónuafsláttur kemur fram sá tekjuskattur sem framteljanda ber að greiða. Þó þarf að bæta þar við 1% álagi til Byggingarsjóðs ríkisins er greiðist með tekju- skatti. B. Eignarskattur. Eignir alls í I. kafla framtalsins á bls. 1, eins og framteljandi á að ganga frá þvi, fela i sér gildandi fasteignamat húss og lóðar sem tók gildi 31. des. 1976. sbr. Leið- beiningar um útfyllingu skatt- framtals 1977. Skv. gildandi lagaákvæðum, þ.e. 26. gr. laga nr. 68/1971, sbr. 12. gr. laga nr. 7/1972, greiðist enginn eignarskattur af 1.000.000 kr. skattgjaldseígn. Af næstu 1.000.000 kr. skattgjaldseígn greiðist 0,6%, en af því sem þar er umfram greiðist 1%. Við útreiknaðan eignarskatt skv. framansögðu bætist 1% álag til Byggingarsjóðs ríkisins. Athygli skal vakin á þvi að ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 97/1975 og bráðabirgðalögum frá 5. júlí 1976, giltu aðeins fyrir álagningu gjaldárið 1976. Skv. ákvæðum bráðabirgðalaga frá 5. júlí 1976 var enginn eignar- skattur greiddur af fyrstu 2.700.000 kr. skattgjaldseign, af næstu 1.500.000 kr. skattgjalds- eign var greiddur 0,6% eignar- skattur og af þvi sem umfram var, var greiddur 1% eignarskattur. Við eignarskatt var bætt 1% álagi til Byggingarsjóðs ríkisins. C. tJtreikningur út- svars. Útsvarsskyldar tékjur eru reiknaðar út á eftirfarandi hátt: Dragið samtölu IV. kafla fram- talsins á bls. 2, ,,Breytingar til lækkunar á framtöldum tekjum skv. III.", frá samtölu III. kafla framtalsins á bls. 2, „Tekjur árið 1976“. Mismunur sá sem fram kemur er nefndur „Vergar tekjur til skatts". Útsvarsskyldar tekjur og vergar tekjur til skatts eru sama upphæðin hjá þeim sem eru eingöngu launþegar og eiga ekki eigin íbúð. Frá „vergum tekjum til skatts" skal draga reiknaða leigu af íbúðarhúsnæði sem framteljandi notar sjálfur og fram kemur í a-lið 3. töluliðar III. kafla fram- talsins á bls. 2. Framteljandi, sem er eingöngu launþegi og býr í eigin ibúð, hefur nú reiknað út ÚtsvarsskyIdar tekjur sínar. Þeir framteljendur sem hafa tekjur af eignaleigu eða útleigu íbúðarhúsnæðis, eiga að skila rekstraryfirliti þar sem fram koma leigutekjur og gjöld. Við framtalsgerð á framteljandi að færa hreinar tekjur skv. slíku rekstraryfirliti í tekjulið 2 i III. kafla framtalsins eða, ef tap hefur orðið, að færa tap í frádráttarlið 12 í V. kafla framtalsins. Vaxtagjöld og fyrningar á gjaldahlið áður getins rekstrar- yfirlits má ekki draga frá leigu- tekjum þegar útsvarsskyldar tekjur eru ákvarðaðar þó að leyfi- legt sé að draga þessa gjaldaliði frá við ákvörðun hreinna tekna til tekjuskatts-álagningar. Þessa tvo gjaldaliði þarf því að draga út úr rekstraryfirlitinu við ákvörðun útsvarsskyldra tekna. Sam- svarandi leiðréttingu þurfa þeir aðilar að gera sem láta öðrum í té íbúðarhúsnæði án eðlilegs endur- gjalds, sbr. b-lið 3. töluliðar III. kafla framtalsins, og hafa fært þessa gjaldaliði í 1. tölulið V. kafla framtalsins. Ekki þykir ástæða til þess að lýsa hér heimildum sveitarfélaga til hækkunar tekna til útsvars enda gilda þær heimildir ein- göngu gagnvart framteljendum með sjálfstæðan atvinnurekstur og auk þess notfæra mörg sveitar- félög sér alls ekki þessa heimild. Verður því sérhver, sem þessi heimildarákvæði gætu tekið til, að áætla sjálfur um þetta atriði en getur við þá áætlun haft útsvars- álagningu sína frá fyrri árum til hliðsjónar. Þegar framteljandi hefur reikn- að út útsvarsskyldar tekjur skv. framansögðu færir hann þá upphæð í 1. tölulið C á eyðu- blaðinu og reiknar út útsvarið með þeirri prósenttölu sem hann telur að verði notuð við álagningu árið 1977. (Liklegt má telja að flest sveitarfélög noti sömu prósenttölu og á árinu 1976 þó að ekki sé óhætt að fullyrða það. Ef útsvör voru reiknuð í skýrsluvél- um 1976 má finna prósenttöluna á álagningarseðli 1976). Þeir framteljendur sem telja sig eiga möguleika á ívilnun skv. 27. gr. útsvarslaganna, verða að ákvarða sjálfir þá upphæð sem til greina gæti komið því að vonlaust er að gefa nokkrar leiðbeiningar um þetta atriði, aðrar en þær að reikna skal 10% af þeirri upphæð sem framteljandi ákvarðar og lækka útsvarið um nefnd 10% í 2. tölulið C á eyðublaðinu. (Ein- hverja hiiðsjón gæti fólk haft af ivilnun fyrri ára þó að um það gildi engin föst regla.) Að lokum skal lækka útsvarið með hliðsjón af fjölskyldustærð á eftirfarandi hátt og færa þá lækkun í 3. tölulið C á eyðublaðinu: a) Um 17.065 kr.: Hjá hjónum sem útsvarslögð eru sameiginlega. Hjá einstæðu foreldri sem heldur heimili með barni sínu, yngra en 16 ára 31. des. 1976. Hjá karli og konu í óvígðri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.