Morgunblaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1977 ALLGÚÐUR ÁRANGUR EN DAUF ÞÁTTTAKA ALLGÓÐUR árangur náðist í meistaramóti Islands í atrennulausum stökkum sem fram fór í ÍR-húsinu við Túngötu á sunnudaginn. Þátttaka var hins vegar mun minni en búizt hafði verið við, og til dæmis um það má nefna að í langstökki kvenna mættu aðeins 8 stúlkur til leiks af 16 sem skráðar höfðu verið og í þrístökki karla mættu aðeins 4 af 16 skráðum. Elías Sveinsson vann senni- lega bezta afrek mótsins er hann stökk 1,68 metra í há- stökki án atrennu, og mun þar vera um að ræða fjórða bezta árangur Islendings í þeirri grein frá upphafi. Þrátt fyrir þetta ágæta afrek varð Elías ekki yfirburðasigurvegari i greininni, þar sem Friðrik Þór Óskarsson stökk 1,65 metra. Skemmtilegust var hins veg- | ar keppnin i langstökki án at- rennu. Þar náði Elias Sveinsson snemma forystunni, en Gústaf Agnarsson, lyftingamaður úr KR, tók hins vógar á öllu sínu i siðustu umferð og „stal“ þá sigrinum af Eliasi. Var þetta sannarlega grein „hinna sterku" þar sem lyftingamenn voru í þremur af sex efstu sæt- unum. Helztu úrslit i mótinu urðu þessi: Langstökk kvenna án atrennu: Lára Sveinsdóttir, Á 2,44 Helga Halldórsdóttir, KR 2,43 Sigrún Sigurðardóttir, Á 2,39 Þórdís Gísladóttir, ÍR 2,31 íris Jónsdóttir, UBK 2,30 Sigurlaug Friðþjófsdóttir, HSH 2,30 Hástökk án atrennu: Elías Sveinsson, KR 1,68 Friðrik Þór Óskarsson, ÍR 1,65 Guðmundur Jóhannesson, UBK 1,56 Langstökk án atrennu: Gústaf Agnarsson, KR 3,25 Elías Sveinsson, KR 3,23 Hreinn Halldórsson, KR 3,07 Snorri Agnarsson, KR 3,06 Jason ívarsson, HSK 3,06 Guðmundur Sigurðsson, Á 3,00 Þrfstökk án atrennu: Friðrik Þór Óskarsson, ÍR 9,87 Elías Sveinsson, KR 9,54 Jason ívarsson, HSK 8,91 Sigurður Sigurðsson, Á 8,60 Elías Sveinsson vann ágætt afrek f hástökki án atrennu, stökk 1,68 metra. Lára Sveinsdéttir — sigurveg- ari f langstökki. * Friðrik Þór Óskarssort — sigraði f þrfstökki og varð annar f hástökki án atrennu. Gunnar Gunnarsson hefur sloppið í gegnum leka Leiknisvörnina og skorar. Sjö marka sigur Þórs gegn Leiknismönnum 2. deild karla KR hafði alltaf yfirhöndina KR sigraði Víking í 1. deild kvenna f Höllinni á sunnudaginn með sex marka mun. Úrslitin 15:9 eftir að f hálfleik hafði verið 7:4 fyrir KR. LIÐ Þórs kom suður um helgina og lék þrjá leiki. Tapaði fyrir Fram í bikarkeppninni á föstudaginn, vann ÍBK í 2. deildinni á iaugardaginn og síðan Leikni 24:17 á sunnu- daginn. Verður síðar fjallað um leik Þórs og ÍBK, en um leik norðanmanna við Leikni er það að segja að heldur var lítið um lagleg tilþrif í þeim leik, en Akureyringarn- ir áberandi betri. Háði það mjög liði Leiknis, að Ásgeir Eliasson lék ekki með lið- inu vegna meiðsla, sem hann hlaut í innanhússknattspyrnu við Þrótt á laugardaginn. Gekk Ás- geir um á sunnudaginn með staurfót, en hann fékk slæmt högg á hnéð. Vonaðis hann þó til að meiðslin væru ekki alvarlegs eðlis. Þórsarar tóku strax forystuna i viðureigninni við Leikni og leiddu með fjórum mörkum í leik- hléi, 11:7. í byrjun síðari hálfleiks minnkaði munurinn og varð minnstur 1 mark, en þá dró aftur sundur með liðunum og munaði 7 mörkum í lokin, 24:17. Beztu menn Þórs eru þeir Elias, Sigtryggur og Þorbjörn, liðið stendur og fellur með þessum leikmönnum. i Leiknisliðinu voru þeir beztir að þessu sinni Asmundur Kristinsson og Hafliði Kristinsson, sem lék nú sinn ann- an leik með Leiknisliðinu og gerði lagleg mörk I leiknum. Mörk Þórs: Elías 9, Þorbjörn 6, Sigtryggur 5, Gunnar 2, Jón 2. Mörk Leiknis: Ásmundur 7, Hafliði 6, Finnbjörn, Sigurður, Árni E. og Guðmundur K. 1 hver. —áij Úrslit leiksins voru sanngjörn, KR- stúlkurnar voru betri allan leikinn, ef undan eru skildar nokkrar mlnútur i seinni hálfleiknum, en þá munaði litlu að Vikingsstúlkunum tækist að jafna KR-liðið er byggt upp i kringum skytturnar Hjördisi og Hansinu og þegar þær voru báðar teknar úr um- ferð i seinni hálfleiknum varð leikur liðsins mjög svo ráðleysislegur um tima. Vikingum tókst þó ekki að nýta sér þetta til fulls og KR-liðið sótti sig á ný undir lok leiksins. Beztar I liði KR voru H-in þrjú, Hansína, Hjördis og Hjálmfriður — án þeirra væri liðið ekki neitt, með þær innanborðs sennilega þriðja bezta liðiði 1. deildinni. í liði Vikings FH VANN UBK A ENDASPRETTINUM FII vann 17—13 sigur í leik sínum við Breiðablik í 1. deildar keppni kvenna I handknattleik, en leikur þessi fór fram I Iþróttahúsi Hafnarfjarðar á sunnudaginn. Máttu FH-stúlkurnar raunar þakka fyrir að hreppa sigur f leiknum, þar sem Breiðablik hafði lengst af yfirhöndina í leiknum, og hafði náð þriggja marka forystu um tfma f fyrri hálfleik. Var það fyrst og fremst sú ráðstöfun FH-stúlkna, að taka Öldu Helgadóttur í Breiðabliksliðinu úr umferð, sem færði þeim sigurinn, þar sem allt spil Breiðabliksliðsins datt þar með niður og farið var að reyna meira af skotum úr lélegum færum. var Jóhanna Magnúsdóttir I sér- flokki, bæði I vörn og sókn. Ágætir dómarar þessa leiks voru þeir Vilhjálmur Sigurgeirsson og Sig- urbergur Sigsteinsson. Hvorugur þeirra hefur raunar dómarapróf, en hlupu I skarðið þegar skráðir dómar- ar mættu ekki án þess að boða forfoll MÖRK KR: Hanslna 6, Hjördls 3, Hjálmfrfður 2, Anna Lind 2, Ellý 1, Sigrún 1. MÖRK VÍKINGS: Jóhanna 3. Ragnheiður 2, Ingunn 2, Heba 2, Ástrós 1. Það verður annars að segjast eins og er að leikur þessi var ákafiega lélegur, — bar rækilega vitni þeirri deyfð sem nú er yfir kvennahandknattleiknum hér- lendis. Mistök á mistök ofan ein- kenndu leik beggja liða tímunum saman, og áhuginn og baráttu- gleðin virtust vera í algjöru lág- marki. FH náði strax tveggja marka forystu í leiknum, en Breiðablik jafnaði og komst síðan yfir um miðjan hálfleikinn, mest 3 mörk er staðan var 8—5. I hálfleik munaði tveimur mörkum: 9—7 fyrir Breiðablik. FH jafnaði í upphafi seinni hálfleiks, og síðan var leikurinn nokkuð jafn um tíma. Þegar 10 mfnútur voru til leiksloka var staðan 13—13, en FH skoraði siðan fjögur síðustu mörk leiksins. Beztar í liði FH voru þær Svan- hvlt Magnúsdóttir og þó einkum Margrét Brandsdóttir, en hjá Breiðablik áttu beztan leik Alda Helgadóttir og Ása Alfreðsdóttir, en sú siðarnefnda er þó einum of skotglöð. Mörk FH: Svanhvit 7 (3v), Margrét 4, Kristjana 2, Sigrún 2, Katrín 2. Mörk Breiðabliks: Ása 5 (lv), Heiða 3, Hrefna 2, Alda 1, Þórunn 1, Grétal. — stjl. — AIJ 1. deild kvenna Þróttur lagði fslandsmeistara ÍS í skemmtilegum og vel leiknum leik ÞRÓTTUR heldur enn áfram sigurgöngu sinni i 1. deild karla i blaki og nú um helgina lögóu Þróttarar aöal keppi- nauta slna, stúdenta, 3—1 I skemmtilegum og vel leiknum leik. Fyrsta hrinan var mjög jöfn og skemmtileg og var um mikla baráttu að ræða og var til dæm- is jafnt á 10—10, 12—12 og 14—14 en þá tókst Þrótturum að knýja fram sigur með mik- illi hörku og lauk hrinunni með 16—14 þeim f vil. Þessi hrina var mjög vel leikin af báðum liðunum og sást margt fallegt í henni. Stúdentar byrjuðu aðra hrin- una svo mjög illa og Þróttur komst í 4—0 og var aldrei nein spurning um það hver ynni þessa hrinu, Þróttarar sýndu mun betri leik, voru með góða hávörn og náðu einnig mörgum góðum skellum og lauk þessari hrinu með 15—9 Þrótti I vil. t 3. hrinunni náðu stúdentar loks að sýna góðan leik, löguðu þeir uppspilið, sem fram að þessu hafði verið of náiægt net- inu og þvi var auðveldara fyrir Þróttarana að blokkera skell- ina, og árangurinn lét ekki á sér standa, stúdentarnir voru óstöðvandi, náðu mörgum góð- um skellum sem rötuðu beint i gólfið hjá Þrótti og lauk þessari hrinu með yfirburða sigri stúdentanna, 15—4. 1. deild í blaki Fjórða hrinan var svo aftur á móti algjörlega Þróttaranna og komust þeir í 9—0 og 14—3, en þá loksins náðu stúdentar að rétta aðeins úr kútnum og náðu þeir að komast i 9 stig áður en yfir lauk og unnu Þróttar:r hrinuna þvi 15—9 og leikinn þar með. Eins og áður sagði var þetta skemmtilegur og vel leikinn leikur og er greinilegt að blakið er í nokkurri framför og reyndar ótrúiega mikilli þegar að því er gáð að þeir sem nú er á toppnum byrjuðu ekki að leika blak fyrr en undir tvítugt og hafa því ekki fengið neina leiðsögn að ráði og það vita allir að til að ná árangri í [þróttum þurfa menn að byrja að stunda þær mjög ungir. Beztu menn Þróttar f þessum leik voru þeir Guðmundur Böðvarsson, Guðmundur E. Pálsson og Anton Bjarnason, Guðmundarnir báðir eru okkar sterkustu skellarar, en Anton er hins vegar afar leikinn við að lauma og kom hann stúdent- unum oft í opna skjöldu I þess- um leik. Beztir af stúdentunum voru þeir Sigfús Haraldsson, Jean Pierre og Júlfus Birgir Kristjánsson. Um helgina var einnig leikið f kvennaflokknum og 2. deild og fóru leikar þar þannig að Þróttur vann IS f kvenna- flokknum með 3—0 (15—12, 15—9 og 15—4) og f 2. deild vann b-lið UBK b-lið Vfkings 3—2 (15—13, 4—15, 9—15, 15—13 og 15—5) HG MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1977 25 NJARÐVÍKINGAR TRÓNA Á TOPPNUM - unnu Breiðablik 90-66 Njarðvfkingar halda enn for- ystunni í 1. deildar keppninni í körfuknattleik eftir að hafa sigrað Breiðablik nú um helg- ina og eru þeir nú efstir, hafa 2 stigum meira en Ármann, en hafa jafnframt leikið einum leik meira. Það var aldrei nein spurning um það hver ynni þennan leik, Njarðvíkingarnir voru mun sterkari og unnu verðskuldað 90—66. Annars var gangur leiksins sá að Blikarnir komust í 4—2 f upphafi leiks- ins, en siðan ekki söguna meir og tóku Njarðvikingar leikinn algjörlega í sfn- ar hendur og I leikhléi var staðan orðin 38—29. Njarðvíkingar hófu svo seinni h'álfleikinn með miklum látum og á 6. mfnútu var staðan orðin 52—32 þeim í vil og mestur varð munurinn á 10. mínútu, 66—39 Njarðvík I vil, en leikn- um lauk svo með yfirburðasigri þeirra, 90—66. Njarðvíkingar léku þennan leik fremur vel enda mótstaðan ekki mikil og eins og venjulega var lið þeirra mjög jafnt og dreifðist stigaskorunin mjög jafnt á alla liðsmenn og er varla hægt að hæla nokkrum einstaklingi fyrir leikinn, en þó stóð Björn Skúla- son, ungur og óreyndur leikmaður, sig vel í leiknum, en þetta var í fyrsta skipti sem hann fékk að reyna sig að nokkru ráði í 1. deildar leik. Af Blikunum átti Guttormur Olafs- son beztan leik, en þeir Rafn Thoraren- sen og Óskar Baldursson áttu einnig þokkalegan leik. Stigin fyrir UMFN skoruðu: Kári Marísson 15, Þorsteinn Bjarnason 15, Gunnar Þorvarðarson 14. Guðsteinn Ingimarsson 12, Stefán Bjarkason 11, Brynjar Sigmundsson 10, Jónas Jóhannesson 6, Björn Skúlason 4 og Guðbrandur Lárusson 3 stig. Stigin fyrir UBK skoruðu: Guttorm- ur Ólafsson 22, Rafn Thorarensen og Óskar Baldursson 14 hvor, Sigurbergur Björnsson 8, Erlendur Markússon 5 og Ágúst Lindal 2 stig. mz- TILÞRIFALITLUM LEIK LAUK MED SIGRI KR KR vann Val í 1. deildar keppninni í körfuknattleik nú um helgina og lauk leiknum meö 75—63 KR í vil eftir að staðan í leikhléi var 43—35. KR-ingar höfðu nær alltaf forystuna, en um miðjan fyrri hálfleikinn náðu Valsmenn forystu, 23—20, og var það í eina skiptið sem þeir höfðu yfir, því að KR-ingar náðu frumkvæðinu strax aftur og höfðu þeir yfir í leikhléi, 43—35. í seinni hálfleik höfðu KR-ingar svo alltaf frumkvæðið og tókst Valsmönn- um aldrei að ógna sigri þeirra verulega þó að þeim tækist að minnka muninn um miðjan hálfleikinn niður í 5 stig, 56—51, og lauk leiknum svo með 75—53 KR i vil. Leikurinn var ákaflega tilþrifalítill og virtist sem leikmenn hefðu ákaflega takmarkaðan áhuga á honum og að það væri bara formsatriði að leika leikinn, því að KR væri alltaf öruggur sigurveg- ari og reyndu Valsmenn lítið til að breyta þvf og virtust þeir ekkert kæra sig um að vinna leikinn. Það er varla hægt að hæla nokkrum leikmanni fyrir frammistöðuna f þessum leik, flestir leikmenn beggja liða léku undir getu og virtist áhugaleysið allsráðandi. Af Valsmönnum voru þó friskastir þeir Torfi Magnússon, Kristján Ágústsson og Gisli Guðmundson. Af KR-ingum var það aðeins Einar Bollason sem átti þokkalegan leik, en aðrir voru slakir. Stigin fyrir KR skoruðu: Einar Bolla- son 22, Birgir Guðbjörnsson og Kolbeinn Pálsson 12 stig hvor, Gísli Gíslason og Bjarni Jóhannesson 8 stig hvor, Árni Guðmundsson 6, Gunnar Ingimundarson 4 og Gunnar Jóakims- son 3. Stigin fyrir VAL skoruðu: Torfi Magnússon 17, Kristján Ágústsson 16, Gísli Guðmundsson 15 , Helgi Gústaf- son 8, Ríkharður Hrafnkelsson 5 og Þorvaldur Kröyer 2 stig. HG Einar Bollason reynir að stöðva Kristján Ágústsson undir körfunni f leik Vals c KR um helgina og Rfkharður Hrafnkelsson og Bjarni Jóhannesson fylgjast með. BÁÐIR AÐILAR LÉKU LANGT UNDIR GETU - er ÍR sigraði ÍS 90-68 ÍR sigraði ÍS í leik liðanna í 1. deildar keppninni í körfuknattleik nú um helgina með 90 stigum gegn 68 í afar leiðinlegum og tilþrifalitlum leik og má segja að getuleysi stúdentanna hafi nánast verið algjört. Ingvar Jónsson 1S og Kolbeinn Kristinsson f baráttu um knöttinn í leik liðanna nú um helgina. Gangur leiksins var annars sá að ÍR-ingar náðu forystunni strax í upp- hafi leiksins, en á 7. mínútu komust stúdentar yfir 14-11 og var það í eina skiptið sem þeir höfðu forystu í leikn- um og það sem eftir var af fyrri hálf- leik var leikurinn mjög jafn og i leik- hléi var staðan 29-28 ÍR i vil og hafði þetta þá verið einhver leiðinlegasti leikur sem undirritaður hefur séð og var getuleysi beggja liða algjört, nán- ast allt sem reynt var mistókst, hittni í algjöru lámarki og varnir lélegar. ÍR-ingar mættu hins vegar mjög ákveðnir til leiks eftir leikhlé og náðu strax afgerandi forystu, komust i 41-32 á 3. mínútu og siðan juku þeir bilið jafnt og þétt og lauk leiknum með yfirburðasigri þeirra, 90-68, og var leik- ur ÍR-inganna í seinni hálfleik mjög góður og i honum skoruðu þeir hvorki meira né minna en 61 stig. Leikur stúdentanna var hins vegar jafn léleg- ur allan tímann og var aldrei heil brú í honum og er alls ekki hægt að hæla nokkrum þeirra fyrir leikinn, þeir léku allir langt undir getu. Kristinn Jörundsson og Jón Pálsson voru friskastir ÍR-inga, en annars áttu þeir allir þokkalegan leik i seinni hálf- leiknum. Stigin fyrir ÍR skoruðu: Kristinn Jörundsson 31, Jón Pálsson 22, Kolbeinn Kristinsson 16, Agnar Friðriksson 8, Jón Jörundsson og Þorsteinn Hallgrímsson 4 stig hvor, Kristján Sigurðsson 3 og Steinn Logi Björnsson 2 stig. Stigin fyrir ÍS skoruðu: Ingi Stefáns- son 17, Steinn Sveinsson 15, Ingvar Jónsson 14, Bjarni Gunnar Sveinsson 14, Helgi Jensson 6 og Þorleifur Björnsson 2 stig. HG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.