Morgunblaðið - 18.02.1977, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. FEBRUAR 1977
IIANN heitir Hovhanness I. Pilikian og þykir einn fremsti leikstjóri
Bretlands á sfgildum leikhúsverkum ( dag. Hann er þrjátíu og fjög-
urra ára, kvæntur bandarískri konu og á tvo syni. Fram á þennan dag
hefur hann leikstýrt bæði fornri klasslk og nútfmaverkum og skipta
þau orðið tugum. I London, en hann lærði við Royal Academic og
Dramatic Art, fór hann fyrst að vekja verulega athygli upp úr 1970 og
þá fyrir leikstjórn sína á grlskum, sfgildum verkum eins og Electru
eftir Euripides, en fyrir hana útnefndi skozka sjónvarpið hann bezta
leikstjóra ársins 1971.
Hann þykir brautryðjandi í algerlega nýrri túlkun á grískri klassík,
sem þykir ólfk allri fyrri túlkun á slfkum verkum og hefur vakið
geysilega athygli, eins og glögglega kemur f Ijós 1 gagnrýni stórblaða á
heimaslóðum hans. Ilefur hann fengið þá dóma að vera mest spenn-
andi ungi leikstjórinn við brezka leikhúsið um þessar mundir.
Arið 1972 var honum boðið til Bandarfkjanna til þess að leikstýra
nútfmaverki eftir verðlaunahafa frá Harward, William Alfred. Leikrit
það hét Agamemnon og var stór sigur bæði fyrir leikstjóra og
leikritahöfund. En f hlutverkum voru margir frægir leikarar frá
Broadway.
1974 leikstýrði hann Ödipus konungi eftir Sófókles og þar gerði
Ralph Koltai leikmynd, sem hann fékk m.a. gullverðlaunin í Prag
fyrir árið 1976. En Koltai þykir einn fremsti leikmyndagerðarmaður
Bretlands f dag.
Þetta sama ár leikstýrði Pilikian Ræningjunum eftir Schiller og var
það í fyrsta sinn, sem leikritið var flutt á enska tungu, f Bretlandi og
þá einnig í fyrsta sinn, sem tvö aðalhlutverkin voru leikin af sama
leikaranum.
Pilikian er einnig stofnandi og listrænn leiðbeinandi tveggja fyrir-
ta'kja, sem eru bæði mjög frumleg, annað heitir „Hana-no Naturalistic
Mask Theatre Company," og hefur sú stofnun átt frumkvæðið að nýrri
notkun leikgrfma innan leikhússins sem eru f stfl Hellena forðum. Hin
stofnunin heitir „Cervantes Players" og er það eina leikfélagið f
Evrópu, sem eingöngu samanstendur af negrum.
Auk þess að leikstýra. kenna og halda fyrirlestra, er hann sjálfur að
skrifa doktorsritgerð um „Lé konung“ eftir Shakespeare við Lundúna-
háskóla. Ilann hefur svo og skrifað þrjár bækur um verk Shakespeares
og hét sú fyrsta „My Ilamlet", en hana skrifaði hann nftján ára gamall.
Hann hefur verið fenginn til að skrifa formála um Max Reinhardt f
nýjustu útfáfu „Encyclopedia Britannica".
Ilann hefur haldið fyrirlestra um leikhústækni f Hollandi, Dan-
mörku, Þýzkalandi og vfðar, og talar fimm tungumál reiprennandi.
Og nú þer þessi maður kominn til tslands til þess að leikstýra
vcrkinu, sem hann er að skrifa doktorsritgerð um, þ.e. Lé konungi,
sem verður frumsýnt f Þjóðleikhúsinu f byrjun marz. /Lfingar hafa nú
verið f fullum gangi sfðan fyrir áramót en aðstoðarleikstjóri er Stefán
Baldursson. Leikmynd gerði Ralph Koltai, sem getið er hér á undan,
en hann kom til tslands f janúar, en stóð stutt við og er væntanegur
aftur fyrir frumsýningu
Pilikian kom hins vegar til landsins f desember og verður hér fram
yfir frumsýningu á Lé. Mér bárust spurnir af þvf einhvern tfma fyrst f
janúar, að til Þjóðleikhússins væri kominn einhver furðufugl, sem
gerði f þvf að taka leikara fyrrnefnds leikhúss á taugum, spryrði hann
þá spjörunum úr (mjög persónulega) og sálgreindi þá sfðan.
Ég er armenskur. . .
Sjálf hitti ég Pilikian á
Mokka eigi alls fyrir löngu og
spurði hann spjörunum úr og
var það auðvelt, því hann er
fljótur til svara og eigi stirt um
mál. Hann er maður fremur
lágur vexti, þrekinn, dökkur
yfirlitum með svart skegg. Það
leynir sér ekki að hann er ætt-
aður einhvers staðar austar að
en frá Bretlandi, þótt hann hafi
slitið barnsskónum þar og sé
þar búsettur.
,,Ég er fæddur í London þann
15. apríl 1942, á sama afmælis-
dag og Leonardo da Vinci. Ég
er armenskur. Leonardo da
Vinci fór til Armeníu einhvern
tíma á endurreisnartímabilinu
og þaðan flutti hann með sér
hugmyndir, sérstaklega í sam-
bandi við arkítektúr, sem höfðu
mikil áhrif á allt endurreisnar-
tímabilið. Armenía er ein elzta
kristna þjóðin í heiminum. Öll
þjóðin tók kristna trú árið 301
eftir Krist. Fyrsta dómkirkjan
var reist í Konstantinópel, það
er Ava Sophia kirkjan, byggð af
armenskum arkitekt að nafni
Dertad og frá þessari dóm-
kirkju drógu margir
renessancemenn lærdóm sinn
og hugmyndir.
P'oreldrar mínir voru bæði
fædd og uppalin í Armeníu.
Þau flúóu þaðan eins og megin-
þorri þjóðarinnar, þegar Tyrkir
hertóku landið og brytjuðu fólk
niður árið 1915. Þá var sagt að
Efrat, fljótið, sem rennur yfir
sýrlenzku eyðimörkina, væri
roðið armensku blóði. Faðir
minn var sex ára að aldri og
flótti hans stóð í þrjú ár. Það
var eiginlega kraftaverk að
hann skyldi ná til Austurlanda
nær, eða nánar tiltekið til ír-
aks. Móðir mín komst til Grikk-
lands, þar sem þau svo siðar
kynntust.
Sem þjóðflokkur hafa Ar-
menar alltaf verið mjög hjátrú-
arfullir. Þeir eru einnig mjög
friðsæl þjóð, sem alltaf hefur
orðið fyrir barðinu á nær-
liggjandi þjóðum. Fyrst voru
það Rómverjar, síðan Tyrkir og
svo Rússar. Þar voru aldrei
jarðskjálftar fyrr en eftir inn-
rás Tyrkja, þá varð ofsalegur
jarðskjálfti í hinni fornu höfuð-
borg Armeniu, Van, og litu. Ar-
menar á það sem Guð væri að
refsa á Tyrkjum.
Ég er stoltur af uppruna mín-
um, sérstaklega þegar mér
verður hugsað til þess, að Ar-
menar eru eina forna þjóðin,
sem ekki hefur ráðizt á aðra.
Aldrei! Armenar sem kynþátt-
ur eru ljúfir, vingjarnlegir og
friðsamír. Kannski er ást okkar
á friði stór galli. Þegar tyrk-
neska heimsveldið fann mátt
sinn dvína í byrjun þessarar
aldar, en Armenía hafði lengi
verið hjarta þess, þá get ég
ímyndað mér að Enver, for-
sætisráðherra Tyrkja, hafi
fyrirskipað að Armenum yrði
útrýmt með öllu, einn fengi að
lifa og yrði sá notaður sem safn-
gripur. Ætlunin var að þurrka
Armena úr sögunni, en það
tókst ekki. Þetta voru nákvæm-
lega sömu áætlanir og hjá Hitl-
er 1935 með Pólland, hann hef-
ur eflaust hugsað með sér: Hví
skyldi ég hafa áhyggjur af
„Þetta er ég, Hovhanness I. Pilikian — geislandi af
húmor og lífsþrótti," sagði hann þegar hann sá
þessa mynd af sjálfum sér.
Þjóð-
félag
okkar er
gjörðum mínum. Heimurinn
gleymir fljótt. Hann hefur þeg-
ar gleymt Armeníu.”
Enginn er spámaður
í sínu föðurlandi
— Og nú býrðu í Bret-
landi?
Hann hlær og segir: „Enginn
er spámaður í sínu föðurlandi.
Ekki þú, ekki ég og ekki þeir
stóru. Þeir, sem ekki fara að
heiman, gera aldrei nein stór-
virki — verða aldrei miklir
listamenn. Ég talaði um
Leonardo da Vinci áðan, en
þetta á einnig við um James
Joyce, Picarso — þeir voru í
eilífri útlegð. Shakespeare for
frá Stratford til London, í þá
daga var það löng leið. Og
Leonardo da Vinci fór f tiu ára
útlegð til Armeniu.
En ég er ekki að tala um mig
sem spámann, því ég er ekki
listamaður. Ég er leikhúsmaður
og ég valdi leikhúsið af marg-
vislegum ástæðum. Sú stærsta
er líklega sú, að leikhúsið er
vettvangur til þess að kanna
ofan í kjölinn öll mannleg sam-
skipti. Leikhúsið er spegilmynd
af lifinu. Það er ekkert til dá-
samlegra en mannleg sam-
skipti, eða réttara sagt, það ætti
ekki að vera til neitt dásam-
legra en mannleg samskipti, en
því miður er heimurinn eins og
hann er, vegna þess að sam-
skipti manna eru ekki eins og
þau ættu að vera.
Við mótumst af því viðmóti
og þeirri ást, sem við mætum í
æsku, ekki rétt? Ástæðan fyrir
öllu þvi ruglaða fólki, sem mað-
ur mætir á lifsleiðinni, er sú, að
það hefur ekki notið ástar for-
eldra sinna f æsku. Það hefur
ekki verið elskað jafn mikið af
báðu foreldri, eða það hefur
elskað annað foreldri sitt
meira.
Sem barn var ég elskaður
jafn mikið af báðum foreldrum
mínum, en þau eru mjög ólik.
Allt, sem ég hef öðlazt hingað
til í lifinu, er þeim að þakka.
Pabbi er húmanisti. Sumir
mundu kalla hann fifl, svona
eins og fíflið í Lé konungi. Ef
einhver biður hann ölmusu
veitir hann þeim hinum sama
ásjá, sama hversu illmögulegt
er að leysa vandann. Hann læt-
ur aldrei neinn synjandi frá sér
fara. Móðir mín er aftur á móti
hagsýn. Hún segir hluti, sem
hitta alltaf beint í mark. Konan
mín er mjög lík móður minni.
Ég álít að misskipt ást foreldra
sé undirstaða allra sálrænna
byggt á lygi
Rætt viö ,
leikstjórann
Hovhanness
I. Pilikian
„Þjóðfélagið, sem gerir það að verkum, að sumir
drekka, aðrir eru reiðir, verða brjálaðir eða fremja
sjálfsmorð."
Ljósmyndir: RACiNAH AXELSSON og KRISTINN ÖLAFSSON