Morgunblaðið - 12.03.1977, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977
Hafnarfjörðun
Einar Bollason krefst
tæpra 40 milljóna vegna
brottvikningar úr starfi
Á þriðjudaginn voru þingfest fyrirj
bæjarþingi Hafnarf jarðar tvö mál.
sem Einar Bollason kennari höfðar
vegna meintrar ólögmætrar brott-
vikningar úr starfi forstöðumanns
Námsflokka Hafnarfjarðar Gerir Ein-
ar bótakröfur samtals að upphæð
39.200.036.00 krónur.
í fyrra málinu stefnir Einar bæjar-
sjóði Hafnarfjarðar og er launakrafa
krónur 24 200 036 00 en krafa
vegna miska og röskunar á stöðu og
högum 10 milljónir króna Samtals eru
þetta krónur 34 200 036
í seinna málinu stefnir Einar Bolla-
son meirihluta skólanefndar Hafnar-
fjarðar sem samþykkti brottvikning-
BÆJARSTJÓRN H: fnarf jarðar
hefur samþykkt að taka tilboði
frá Miðfelli og Loftorku um
undirbúning og lagningu malbiks
á 26 götur 1 Hafnarfirði ( sumar,
alls um 52 þús ferm. Samkvæmt
upplýsingum Kristins Guðmunds-
sonar, bæjarstóra sendu bæði
fyrrgreind fyrirtæki tilboð I verk-
ið og var útboðið tvfþætt. Urðu
fyrirtækin lægri sitt á hvað f báða
verkhluta og var þvf ákveðið að
taka tilboðum beggja, en hvort
tilboð um sig er um 35 millj. kr.
Gengid frá
útboði röskl.
3.8 milljarða
erlends láns
tSLENZKA rfkið hefur gengið
frá útboði á erlendu láni meðal
nokkurra banka- og lánastofnana
en undir forustu Westdeutsche
Landesbank. Davfð Ólafsson,
seðlabankastjóri, staðfesti þetta f
samtali við Morgunblaðið f gær
og kvað hann útboð þetta vera f
samræmi við framkvæmda- og
fjárhagsáætlun rfkisins, svo og
lánsfjáráætlunina.
Upphæð þessa lánsfjárútboða
er 20 milljón Bandaríkjadalir eða
tæplega 3840 þúsund milljónir
króna og er gert ráð fyrir að lánið
verði með 8% vöxtum til 10 ára
en vaxtagreiðslur hefjist 1980.
Aðrir bankar, sem útboð þetta
nær til, eru Banque Bruxelles
Lambert s.a., Credit Commercial
de France, Credit Suisse White
Weld ltd., First Boston (Europe)
Ltd., Kredietbank s.a.
Luxembourgoise, Den Norske
Creditbank og Skandinaviska
Enskilda banken, að því er AP-
fréttastofan hermir i gær.
una, þeim Oliver Steini Jóhannessyni,
bókaútgefanda, Páli V Danielssyni for-
stjóra og Vilhjálmi Skúlasyni, prófess-
or Er (3ess krafizt, að þeir sæti
hámarksrefsingu samkvæmt 236
grein laga nr 1 9/ 1 940 (þ e almenn-
ra hegningarlaga) og til vara sam-
kvæmt 235 grein sömu laga, fyrir
ærumeiðandi ummæli um stefnanda i
bókun nefndarinnar 22 9 1976 Þess
er krafizt, að ummælin verði dæmd
dauð og ómerk, krafizt er 5 milljón
króna miskabóta og ennfremur er
krafizt greiðslu vegna birtingar dóms
og málskostnaðar
Lögmaður Einars Bollasonar er Ingv-
ar Björnsson hdl
Göturnar, sem verða malbik-
aðar í sumar, eru i Norðurbæn-
um, Miðbænum og suður á Hval-
eyrarholti. Framkvæmdir hefjast
i næsta mánuði, en verkinu á að
vera lokið i júlí.
Árni Grétar Finnsson, bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði, sagði í sam-
tali við Mbl., að þetta yrðu aðal-
framkvæmdir Hafnarfjarðar-
kaupstaðar í sumar. „Hitaveitan
er komin I meginhluta bæjarins,“
sagði Arni Grétar, „endurnýjuð
vatns- og skólplögn og nú er
komið að þvi að leggja varanlegt
slitlag á göturnar i bænum og
þetta er framhald af stefnu nú-
verandi bæjarstórnarmeirihluta
um Iagningu hitaveitu og síðan
varanlega gatnagerð. Reiknað er
með að ljúka þessu verki á fáein-
um árum og um þetta hefur verið
einhugur i bæjarstórn“.
Stálu neyðar-
hlutum úr björg-
unarbátum
Akranesi 11. marz.
SÁ Furðulegi atburður gerðist
hér eina nóttina að björgunarbát-
ur sementsferjunnar var rifinn
upp og úr honum stolió árunum,
loftdælunni og viðgerðarbótum,
sem allt eru lífsnauðsynlegir hlut-
ir ef voða ber að höndum. Það má
segja að skammarstrikin gerast
viðar en í útlöndum.
— Júlfus.
Fituinnihald
loðnunnar komið
niður fyrir 5%
Fituinnihald minnkar nú með
hverjum deginum sem líður og
samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið fékk hjá
Emiliu Marteinsdóttur, efna-
fræðingi hjá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins, þá er fitan nú
komin niður fyrir 5%. Þá hefur
þurrefnisinnihald loðnunnar
einnig minnkað á allra síðustu
dögum og er nú 15,6%—15.8%.
Krafla:
Enn gliðn-
ar og
hækkar
landið
FJÖLDI skjálfta á Kröflusvæðinu
hefur verið um 120 á sólurhring
s.l. 5 sólarhringa, en sfðasta sólar-
hringinn voru þeir 121.
í samtali i gærkvöldi við Axel
Björnsson jarðeðiisfræðing hjá
Orkustofnun, sagði hann að land-
ið héldi áfram að smá gliðna á
þessu svæði og smá hækka.
„Stöðvarhúsið heldur sínu
striki á uppleið," sagði Axel, „og
þar með landið. Sprungur á
Leirhnjúkssvæðinu gliðna með
heldur meiri hraða nú en fyrir
síðasta sig og við biðum bara eftir
þróun mála.“
Blásara-
kvintett
á háskóla-
tónleikum
á morgun
Á MORGUN, sunnudag, verða
sjöttu háskólatónleikar vetrarins
haldnir i Félagsstofnun stúdenta
við Hringbraut. Þar flytur
blásarakvintett tónlist eftir Jón
Ásgeirsson, Anton, Reice og Jean
Francaix, en kvintettinn skipa
Sigurður Snorrason, klarinett-
leikari, Kristján Þ. Stephensen,
óbóleikari, Hafsteinn Guðmunds-
son flautuleikari, Manuela
Wiesler, flautuleikari, og Stefán
Þ. Stephensen, sem leikur á horn.
Áður hafa þessir hljóðfæra-
leikarar leikið saman opinberlega
og hyggja þeir á frekara tónleika-
hald á næstunni, m.a. á Akureyri.
Tónleikarnir á morgun hefjast
kl. 17 og fást aðgöngumiðar við
innganginn.
13 lestir
af þorski í
línuróðri
Akranesi 11. marz.
VÉLSKIPIÐ Grótta, sem enn er
gert út með veiðar á línu, aflaði
rúmlega 13 lesta, mest góðs
þorsks, í síðasta róðri. Aðrir línu-
bátar eru byrjaðir veiðar með
þorskanetum. Grótta beitti nýrri
loðnu.
Togarinn Krossvík kom úr
veiðiferð í gær með 80 lestir og
togarinn Haraldur Böðvarsson
kom í morgun með 110 lestir af
blönduðum fiski. Þórður Öskars-
son h.f. hefur keypt vélskipið
Fagurey frá Grundarfirði. SFA-
verksmiðjan hefur nú tekið á
móti um 19. þús. lestum af loðnu
og bíða nú 4 skip eftir löndun.
Reykjafoss tekur hér loðnumjöl
í dag til útflutnings.
— Júlfus
— Synti aftur . .
Framhald af bls. 32
var við þá, stökk hann umsvifa-
laust fyrir borð. Synti hann eins
og langt og við sáum út f buskann
en mikill sjór var og stormur.
Nokkru seinna þegar vélin komst
í gang aftur, urðum við varir við
að minkurinn skauzt með báru
inn um lensportið á síðunni og
skauzt fram undir hvalbak. Þar
gáfum við minknum fisk að éta og
var hann hinn hressasti eftir volk-
ið. Minkurinn er ennþá um borð
og skipsmenn gefa honum fisk
sem hann þiggur með mestri
ánægju. Báturinn liggur í höfn í
dag en ekkert fararsnið er á
minknum.
— Páll.
— Tíu fyrir einn
Framhald af bls. 23
tjáð sér, að hann yrði meðal
þeirra fyrstu sem teknir yrðu
af lífi ef málin æxluðust í þá
átt. „Þeir reyndu að hræða
okkur og friða til skiptis", sagði
Simon. Á skyrtu hans voru
blóðblettir en þeir stöfuðu af
sárum annars gísla.
Simon sagði, að endalokin
hefðu komið fyrirvaralaust, og
hefðu þau orðið með þeim hætti
að mannræningarnir höfðu sig
skyndilega á braut: „Einhver
kallaði „beygið höfuðið niður“
og svo blasti undursamleg sjón
við. Lögreglan gekk inn í her-
bergið.“ sagði Bernard Simon.
Eins og fram hefur komið í
fréttum hófst umsátrið í
þremur húsum í Washington á
miðvikudagsmorgun. Að um-
sátrinu stóðu félagar I
múhameðstrúarsöfnuðinum
Hanafi í hefndarskyni fyrir
morð á fjölskyldu safnaðarleið-
togans, Hamas Abdul Khaalis,
árið 1973.
— Menn
sammála
Framhald af bls. 2
þessum fundi hefði verið í sam-
bandi við alþjóðahafsbotns-
svæðin. Átökin voru á milli
þróunarlandanna og iðn-
þróunarríkjanna. Menn voru
sammála um að stofnuð yrði
Alþjóða hafsbotnsstofnun með
þingi og ráði og öðru, sem slíkri
stofnun fylgir. Þróunarlöndin
hafa litð svo á að þessi stofnun
hefði ein völd til þess að vinna
auðlindir á alþjóðahafsbotns-
svæðunum, en hinir hafa viljað,
að a.m.k. til að byrja með hafi
einstök ríki og fyrirtæki aðgang
að botninum.
Þetta stríð um tilhögun þess-
ara mála hefur staðið í mörg ár,
en nú hefur málið þróazt þann-
ig að menn eru sammála um að
næstu 25 ár verði farinn milli-
vegur, þannig að einstök ríki og
fyrirtæki hafi aðgang að helm-
ingi þess svæðis, sem um er að
ræða. Menn hafa verið sam-
mála um að stofnunin yrði sett
á fót, en deilumálið hefur
staðið um hver völd hennar
verði. Hans kvað nýja ráð-
stefnu eftir 25 ár mundu verða
að taka ákvörðun um það hvort
þessi stofnun fengi allt svæðið
til umráða eða ekki. Þá er jafn-
framt gert ráð fyrir því að
stofnunin munu úthluta
vinnsluleyfi á auðæfum hafs-
botnsins til landa, fyrirtækja
eða aðila, sem áhuga hafa á.
Hans G. Andersen kvað menn
sammála um að þessi fundur í
Genf hefði þau áhrif að hann
myndi spara mikinn tíma. Yfir-
leitt kvað hann gott hljóð í
mönnum eftir fundinn.
— Zaireher
Framhald af bls. 1.
Zaire-blaðið Salovio sakar er-
lenda yfirboðara Aogstinho Neot
Angólaforseta um að hafa staðið
að árásunum, en í fréttum frá
Zaire er ekkert sagt um þjóðerni
málaliðanna og yfirvöld neita að
segja hvort um Kúbumenn er að
ræða.
Stjórn Zaire hefur sent bréf til
Kurt Waldheims, aðalfram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, en aðalfulltrúi landsins hjá
SÞ, Umba Di Lutete, segir að hér
sé ekki um formlega kæru að
ræða eða beiðni um fund í
öryggisráðinu, þótt stjórnin
áskilji sér rétt til að fylgja málinu
eftir ef nauðsynlegt reynist.
1 Washington sagði bandariska
utanríkisráðuneytið að fréttir
hermdu að árásarmennirnir
hefðu tekið sjö bandaríska
trúboða til fanga Þeir eru í stofu-
fangelsi I Kapanga samkvæmt
fréttunum og þá mun ekki hafa
sakað. Þeir eru átta samkvæmt
öðrum fréttum og hafa óskað eftir
að verða fluttir úr landi.
Zaire-stjórn skýrði frá innrás-
inni í gær og sagði að málaliðar
hefðu sótt inn i landið tveimur
eða þremur dögum áður.
Fréttastofa Zaire sagði að
Mobutu forseti hefði talið her
sinn á að stilla sig um að gera
hefndarárás á Angóla. Hins vegar
er haft eftir heimildum í stjórn
Zaire að ólíklegt sé að fyrir hendi
séu nægar eldsneytisbirgðir á
svæðinu sem ráðizt var á til um-
talsverðra hernaðaraðgerða.
Mobutu sagði að hann vildi
„hundsa Angóla" og finna
diplómatíska lausn. Hann kvaðst
mundu leggja málið fyrir Sam-
einuðu þjóðirnar, Einingarsam-
tök Afríku og „vissa leiðtoga vin-
teittra ríkja“.
Samkvæmt sumum heimildum í
Zaire var árásin gerð til að reyna
að ná mikilvægum koparnámum
um 250 km frá Dilolo í Kolwezi i
þann mund sem viðreisnarbarátta
sé að hefjast i efnahagsmálum
Zaire. Samkvæmt öðrum heimild-
um var árásin gerð til að hefna
árásar sem sagt er að Zaire-menn
hafi gert á bæ í Angóla í febrúar.
— Gíslarnir
Framhald af bls. 1.
fimm félaga hans á efstu hæð
byggingar B’nai B’rith. Hinir
gíslarnir voru i haldi í bænahúsi
múhameðstrúarmanna og ráðhúsi
Washington.
Khaalis hafði varað við blóðsút-
hellingum ef ekki yrði gengið að
kröfum hans. Hann krafðist þess
að fimm múhameðskir blökku-
menn, sem voru handteknir fyrir
morð á sjö Hanafi-mönnum i
Washington 1973 yrðu færðir á
hans fund ásamt heimsmeistaran-
um í hnefaleik, Muhammed Ali,
og múhameðska blökkumanna-
leiðtoganum Wallace Muhammed.
Að þessum kröfum var ekki
gengið en sýningar á kvikmynd
um spámanninn Múhameð voru
stöðvaðar að kröfu hans.
Walter Washington, borgar-
stjori Washington, slapp af þeirri
hæð ráðhússins sem mann-
ræningjarir Iögðu undir sig og var
sigri hrósandi þegar hann skýrði
frá málalyktum í dag. „134 hafa
verið látnir lausir og geta farið til
fjölskyldna sinna og ég er
hamingjusamur. Þetta er mikill
dagur fyrir okkur alla.“
Washington borgarstjóri lauk
miklu lofsorði á framlag sendi-
herranna og sagði að þeir og
Maurice Cullinane lögreglustjóri
ættu heiðurinn af því að
gíslunum var bjargað.
Carter forseti hrósaði einnig
sendiherrunum, Ardeshir Zahedi
frá íran, Ashraf Ghorbal frá
Egyptalandi og Sahabzada Yaqub-
Khan frá Pakistan. Forsetanum
var skýrt frá gangi mála meðan á
umsátrinu stóð en breytti i engu
áætlunum sinum þótt
byggingarnar væru i innan við
fimm kílómetra fjarlægð frá
Hvíta húsinu.
Einn maður, útvarpsfrétta-
maðurinn Maurice Williams beið
bana i ráðhúsinu og 10 særðust
þar og i byggingu B’nai B’rith.
Khaalis var leyft að fara til
konu sinnar i dag en honum var
bannað að fara út fyrir Washing-
ton án leyfis. Honum var skipað
að afhenda vegabréf sitt á mánu-
dag og bannað að bera vopn.
Hann féllst á að forðast alla aug-
lýsingastarfsemi áður en réttar-
höld hæfust.
Cyrus Vance utanríkisráðherra
þakkaði sendiherrunum innilega
framlag þeirra i dag og sagði að
utanrikisráðuneytið hefði beðið
þá að ræða við Khaalis til að
reyna að binda enda á umsátrið
án blóðsúthellinga. „Þeir náðu
frábærum árangri," sagði Vance.
Fóstbræðrakonur verða með kökubasar og Flóamarkað f Féfagsheimili
Fóstbræðra Langholtsvegi 109—111 sunnudag 13. marz kl. 2 e.h. Á
Flóamarkaðnum verður mikið af góðum fatnaði bæði nýjum og
notuðum og margir góðir munir.
Hafnarfjörður:
26 götur malbik-
aðar í sumar