Morgunblaðið - 12.03.1977, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12 MARZ 1977
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Fiskibátar — skemmti-
bátar
Við útvegum fjölmargar gerðir og stærðir
af fiski- og skemmtibátum byggðum úr
trefjaplasti. Stærðir frá 19.6 fetum uppí
40 fet. Ótrúlega lágt verð.
Sunnufel/ h. f.
Ægisgötu 7
S/'mi 11977 box 35 Reykjavík
Mosfellssveitungar
Byggingavöruverzlunin er hætt störfum.
Þökkum viðskiptamönnum okkar og
velunnurum samstarfið á liðnum árum.
Markho/t h. f.
landbúnaður
Auglýsing
Jörðin Urðarbak
Þverárhreppi V.-Hún.
er til sölu og laus til ábúðar frá næstu
fardögum. íbúðarhús er á jörðinni, tún
19,4 ha, fjárhús yfir 250 fjár. Tilboð
sendist oddvita Þverárhrepps fyrir 10.
apríl, 1977.
Jóhannes E. Levy. Hrísakoti.
húsnæöi óskast
Óskast til leigu
Fjögurra manna fjölskylda, hjón með
uppkomin börn, óska eftir að taka til leigu
rúmgóða íbúð, raðhús eða einbýlishús,
með a.m.k. þremur svefnherbergjum.
Leigutími minnst tvö ár. Upplýsingar í
síma 24965.
Punktamót S.K.R.R.
í alpagreinum 1977
verður haldið í Bláfjöllum helgina 19. og
20. marz.
Keppt verður í svigi og stórsvigi fullorð-
ina.
Þátttökutilkynningar sendist til Sæmund-
ar Óskarssonar S.K.R.R. fyrir 1 5. marz.
Skíðadeild Ármanns.
AKil.VSIMiA
SÍMINN KR:
22480
— Skólastarf
Framhald af bls 11
Samræmd próf eru aðeins i af-
mörkuðum bóklegum greinum —
bæði vegna þess viðhorfs sem
nefnt var og vegna þess að nær
útilokað er að prófa samræmt þær
námsgreinar sem byggja meira á
frumkvæði og sköpunargáfu nem-
enda heldur en því að læra utanað
flokkunarkerfi, nöfn á fyrirbær-
um o.s.frv. Þar að auki eru alltaf
einhverjir nemendur dæmdir
fyrirfram til að verða undir,
hversu mjög sem þeir streitast
við, einfaldlega vegna þess að
þeir eru mældir með sama mæli-
tækinu — þeir eru hornir saman
— prófið er búið til í þeim til-
gangi að bera nemendur saman.
Þetta er að sjálfsögðu skylt því
að ætlast er til hins sama í grund-
vallaratriðum af öllum nemend-
um grunnskólans og helst á sama
tima.
ég tel að nauðsynlegt sé að rjúfa.
Próf sem byggjast á samanburði
eru takmörkuð mælitæki — mæla
fyrst og fremst hve vel eða illa
nemendum tekst að læra utanað
hugmyndir annarra eða afla sér
færni sem ákveðin er og skil-
greind af öðrum en þeim sjálfum.
Skólastarfið mótast af slikum
prófum og verður að miklu leyti
fólgið í utanaðbókarlærdómi.
Þægilegast er að prófa svo nefnd-
ar bóklegar greinar. Þessar grein-
ar eru þvi kallaðar mikilvægustu
greinarnar og öllum þröngvað til
að leggja ofurkapp á ástundun
þeirra. Skólastarfið verður
,,leiðinlegt“, enda allt of margir
nemendur sífellt að fást vð við-
fangsefni sem höfða ekki til
áhuga og hæfileika þeirra. Aö
auki er vonlaust verk fyrir stóran
hluta þeirra að ná árangri og allir
vita hve niðurdrepandi er að
vinna verk og fá sífellt neikvæðan
dóm annarra.
Menntun er ekki nauðsynlega
fólgin í að vera „vel að sér“ í
bóklegum fræðum eða að hafa
langt skólanám að baki. Menntun
er að geta tengt á fjölbreytilegan
og skapandi hátt þætti innan og á
milli fjölmargra þekkingarsviða.
Slíka menntun öðlast sumir í skól-
um, en hún er ekki eingöngu fólg-
in í að læra „grundvallaratriði“.
heldur í fjölbreytilegri virkni: að
hugsa, að tjá sig, að vega og meta,
nota og skapa. Skólastarf sem ætl-
ar lítinn tíma í slíka virkni stuðl-
ar mjög takmarkað að menntun
nemendanna.
Það segir sig sjálft að skóli þar
sem starfið miðast við samræmd
próf getur varla orðið mennta-
■itofnun í þessum skilningi. þ.e.
■tcfnun sem gefur nemendum
kost á menntun í þeirri merkingu
sem lögð er í það orð hér að ofan.
Hér er um að ræða vítahring sem
LGKAORÐ
Ég hef dregið upp mjög einfald-
aða mynd af því vandamáli sem
mér virðist þurfa að ræða hvað
varðar námsmat í grunnskóla, sér-
staklega hvað varðar samræmd
próf.
Ég tel að nýja prófa- og ein-
kunnafyrirkomulagið við lok
grunnskólans sé betra en það sem
við höfðum áður. Samræmt rnat
er minnkað, mat einstakra skóla
aukið og fleiri fá tækifæri til fjöl-
breyttara framhaldsnáms. Ég tel
einnig að brevtingin sé í anda
grunnskólalaganna en þau marka
ákveðna stefnu um að revnt verði
að koma til móts við hvern ein-
stakling sem í grunnskólanum er.
Mikillar umræðu er þörf um
skólamál. Káir málaflokkar snerta
fleiri einstaklinga í þjóðfélaginu.
Höfuðatriöi er að sem flestir
myndi sér skoðanir um skólamál-
in — en þeír þurfa að vera mál-
efnalegir. Fjölmiðlar eru leiöandi
áhrifavaldur á skoðanamvndun i
nútima þjóöfélagi og mikil áb.vrgð
hvílir á þeim: sú að leitast við að
draga fram kjarna málanna og
skýra þau fvrir almenningi.
— Alþjóðlegt
gigtarár
Framhald af bls. 10
góðra undirtekta landsmanna við
fjáröflunina. En einnig má geta
þess að gjafir til félagsins eru
frádráttarbærar til skatts, svo
siíkur stuðningur væri kær-
komínn félaginu um leið og gef-
endur styrktu mikið velferðar-
mál.
Fræðslustarfsemin mun halda
áfram fram eftir árinu og er allt
slfkt starf unnið í samvinnu við
Gigtsjúkdómafélag Isl. lækna,
sem starfað hefur hér síðan árið
1963.
Við höfum einnig sótt um inn-
göngu í Evrópusamband gigtar-
félaga, sem er 30 ára á þessu ári,
en með þátttöku í því munum við
afla okkur ómetanlegra
þekkingar og alþjóðlegrar
aðstoðar eftir þvf sem f boði er á
hverjum tíma.
Alþjóðlegt gigtarár er að sjálf-
sögðu haldið af knýjandi nauðsyn
vegna þess, að sjúkdómurinn er
stórt vandamál vfða um heim. Við
íslendingar höfum heldur ekki
farið varhluta af þessum sjúk-
dómi, enda hefur hann hrjáð
okkur allt frá landnámstíð.
En frá sviði nútfma heilsugæslu
er eitt stærsta vandamálið það, að
gigtarsjúklingar skipta mörgum
þúsundum hér á landi, en gallinn
er sá að alla skýrsluöflun skortir,
en það stafar mikip af því að sá
hugsunarháttur er æði algengur,
að gigt sé ólæknanleg og þvf
gagnslaust að leita læknis.
Það er mjög algengt svar, þegar
fólk tekur tal saman og spyr sem
svo er nokkuð að þér? Nei, nei
bara gigtin. Enn menn gleyma þvf
að gigt er alvarlegur sjúkdómur,
sem birtist í mjög mörgum
myndum, og gigtin er alls ekki
einkasjúkdómur þeirra öldnu,
heldur eru töluvert mikil brögð
að þvi að hún ráðist á börn og
ungt fólk.
Á alþjóðlegu gigtarári er
einmitt rétti tíminn til að hugsa
þessi mál frá raunhæfara sjónar-
miði en gert hefur verið hingað
til, enda eigum við íslendingar á
að skipa mjög góðum læknum á
sviði gigtsjúkdóma. Gallinn er
aðeins sá að þeir eru of fáir. Sömu
söguna er að segja um sjúkra-
þjálfarana, nokkrir ágætir en allt
of fáir
En með samstilltu átaki
almennings, lækna, sjúkraþjálf-
ara og allra heilbrigðisstétta
getum við gert stórátak á þessu
sviði.
Gigtarfélag islands mun á
þessu ári vinna af alefli að
málefnum gigtarársins f sam-
vinnu við ofangreindar stéttir, en
samvinnan við almenning er þó
einna mikilvægust, og okkur
vantar miklu fleiri félaga og
okkur vantar fé, en verkefnin
blasa alls staðar við.
Með því að gerast félagar f
Gigtarfélagi islands stuðlið þér að
þátttöku okkar í gigtarárinu og
verðið um leið þátttakendur f bar-
áttunni við gigtarsjúkdómana.
Við viljum gera stórátak fyrir
alla gigtveika á alþjóðlegu gigtar-
ári 1977.
Nú er rétti tíminn til að við
tökum höndum saman.
Guðjón Hólm.
— Lóðaúthlutun
Framhald af bls. 15
ekki í ráði að úthluta neinum
nýjum ibúðarhúsalóðum þar á
þessu ári, en á siðastliðnu ári
var hins vegar úthlutað 29 til 30
slíkum lóðum. Hins vegar er að
því stefnt að úthluta iðnaðar-
lóðum á þessu ári og liggur
skipulag að slfku hverfi þegar
fyrir. Þessa dagana er verið að
úthluta 6 iðnaðarlóðum og
næstu daga munu fleiri
iðnaðarlóðir verða auglýstar í
þvi skyni að kanna eftirspurn-
ina og þeim lóðum siðan úthlut-
að samkvæmt þeirri útkomu.
Að því er Jón sagði, eru
ástæður fyrir því, að ekki eru
auglýstar nýjar íbúðarhúsa-
lóðir margvíslegar. Bæði vill
sveitarfélagið leggja áherzlu á
að gengið verði fullkomlega frá
þeim hverfum, sem þegar eru í
byggingu og hyggst gera veru-
legt átak í þeim efnum i hverf-
um sem þegar eru í byggingu.
Hyggst sveitarfélagið gera átak
1 gatnagerð á þessu ári. Ýmsir
aðrir kostnaðarsamir þjónustu-
þættir eru aðkallandi, svo sem
viðbygging við skolann. Þá mun
einnig á næstunni losna úr
leigu og erfðafestu land, sem
var i beinu framhaldi af
núverandi nýbyggingahverfi og
þykir eðlilegt að bíða eftir því.
Jón nefndi að þegar væru í
smfðum í Mosfellssveit 239 hús
og að fbúatala sveitarfélagsins
hefði tvöfaldazt frá-þvi 1974.
þannig að fbúar eru nú rétt um
2 þúsund.
- Crosland
Framhald af bls. 12.
þanmg að hægt sé að komast í mat á réttum
tima "
RÓMANTÍSKUR.
EN ÓDÆLL VIÐ KONUR
Á hinn bóginn gat hann líka verið ónotaleg-
ur og jafnvel ruddalegur, sérstaklega í garð
kvenna, þegar hann var ungur að árum. En
hann kunni að gera grin að sjálfum sér og
venjulega viðurkenndi hann fúslega mistök
sin.
Sósíalísk kenning hans var einföld, — „að-
eins það bezta er nógu gott fyrir alla". Hann
kunni vel að meta það sem gladdi augað og
hreifst af þvi sem var stórbrotið og mikilfeng-
legt. j hvert skipti sem lestin hans fór fram hjá
lincoln-dómkirkjunni reis hann á fætur til að
geta virt hana fyrir sér Hann var rómantiskur
en fór leynt með það, og hann varð fyrir
miklum vonbrigðum þegar hann var I Casa-
blanca og ætlaði að leita uppi kaffihúsið þar
sem Humphrey Bogart á að hafa sagt þá frægu
setningu . Play it again, Sam " Þegar til átti að
taka komst hann að þvi að þetta kaffihús var
alls ekki til
Hann var ákafur aðdáandi Bogarts. en hvers
vegna? Persónur Bogarts voru yfirleitt ófyrir-
leitnar. sjálfsöruggar og einkenndust af innri
spennu. Crosland hafði sjálfstraust, en eftir
þau þrettán ár, sem hann hafði ýmist verið í
stjórn eða stjórnarandstöðu, hafði honum lærzt
að fara að öllu með gát í umræðum um
lánaskilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins tókst
honum að sverfa svo að Healey, að hann hafði
að lokum öll tromp á handi en að leikslokum
gerði hann sér ekki mat úr sigrinum, heldur
dró saman seglin.
Það er mögulegt, að það hafi einmitt veriö
að loknum þessum umræðum i þingínu að
hann sendi mér þessi skilaboð: „Segðu honum
aðég sé þolhlaupari."
Undanskílið er, að hann taldi sig ekki hafa
möguleika á að komast I mark I þessum
spretti, og einnig að hann ætlaði sér það
heldur ekki i þetta skipti. Hann hefði ekki tekið
þvi með þolinmæði ef hann hefði orðið að blða
dauðans lengi eftir að ófullkominn líkaminn
hafði eyðilagt andlegt atgervi
Konan hans var hjá honum þegar hann lézt,
steinsnar frá gamla skólanum sinum, Trinity
College, og þar lauk dýrlegri ævi glæsitegs
hlaupara