Morgunblaðið - 24.03.1977, Síða 2

Morgunblaðið - 24.03.1977, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977 Enn er kropp á loðnumiðunum Loðnuveiði er nú orðin frekar 1 ft- il og á tímabilinu frá kl. 21.30 í fyrrakvöld fram til kl. 17.30 I gær tilkynntu 12 skip um afla, sam- tals 3480 lestir. Loðnuna fengu bátarnir við Reykjanes og í Faxa- flóa. Sjómenn á loðnuskipunum ótt- ast nú, að hver veiðidagur verði siðastur, ef engin ganga kemur að Snæfellsnesi eins og verið hefur undanfarin ár í lok vertiðar. Margir standa í þeirri trú að Reykjaneskjördæmi; Áðat fundur kjör- dæmis- ráðs Aðalfundur kjördæmisráðs Sjálf- stæðisflokksins f Reykjaneskjör- dæmi verður baldinn í Skiphól i Hafnarfirði n.k. laugardag, 26. marz kl. 10.00 f.h. Að loknum aðalfundarstörfum og almennum umræðum flytur Matthfas Johannessen erindi: Orð um Ólaf Thors. loðnugangan sem komið hefur upp að Snæfellsnesi komi suður með Vestfjörðum og er rann- sóknaskipið Árni Friðriksson nú farið til loðnuleitar á þessum slóð- um og mun kanna hvort þessi ganga finnst ekki. Ef loðnan finnst á þessum slóðum, og á eftir að hrygna, þá er ljóst að loðnuver- tíðin getur haldið áfram um ein- hvern tima, en ef ekkert finnst lýkur veriðinni væntanlega á næstu dögum. Skipin sem tilkynntu um afla i gær eru þesSi: Sæbjörg VE 230 lestir, Gullberg VE 250, Svanur RE 270, Gísli Árni RE 400, Náttfari ÞH 400, Eldborg GK 300, Guðmundur RE 300, Freyja RE 200, Ásberg RE 340, Skógey SF 240, Hákon ÞH 330 og Keflvíkingur KE 220 lestir. © INNLENT Ólafur Thors. Höfn í Hornafirði: Fyrsti vorfuglinn kominn llöfn I Ifornafirdi 23. marz FYRSTU vorfuglarnir eru nú komnir hingað og muna elztu menn ekki eftir þvi að þeir hafi komið svo snemma, og á þetta að boða gott vor. Fyrsti vorfuglinn sem hér sást var stelkur og sást hann skömmu eftir hádegi í gær. Annars hefur fuglalíf verið mjög fjölskrúðugt hér í vetur, nokkrir gráhegrar hafa verið i Lóni og Nesjahreppi i svo til alian vetur, þá hafa tveir blá- hrafnar verið að flækjast hér við kauptúnið síðustu daga og dvergkráka hefur verið að flækjast hér um slóðir svo hundruðum skiptir. Jens. Spassky og kona hans ásamt fleiri skákáhugamönnum á kvikmyndasýningunni á Loftleiðum í gær. Sjónvarpsmynd um „einvígi aldarinnar” frumsýnd 1 gær SJÓNVARPSKVIKMYND er sýn- ir nokkur atriði frá „einvígi ald- arinnar" rnilli þeirra Bobby Fischers og Boris Spasskys I Laugardalshöllinni árið 1972 var í gær frumsýnd nokkrum gestum Skáksambandsins, blaðamönnum og skákmönnunum Boris Spassky og Vlastimil Hort á Loftleiða- hótelinu. Sýnir mynd þessi hluta úr nokkrum skákum einvfgisins og sýnt er frá slitum einvfgisins og krýningu hins nýja heims- meistara. Friðrik Ólafsson flytur inngangsorð og er þulur með myndinni. Var myndin á slnum tíma tekin með vilja Fischers, en hins vegar skipti Spassky sér aldrei af kvikmyndatöku f Höll- inni. Að einvíginu loknu vildi Chester Fox, sem hafði einkarétt á myndatöku á einvíginu, fá myndspólurnar, en virtist hins vegar ekki vilja greiða neitt fyrir þær. Er myndin nú talin eign Skáksambandsins og Iðntækni, sem tók myndina. Hefur mynd þessi þvf verið í vörzlu skáksam- bandsins þar til nú að myndin er fyrst sýnd. Fer hér á eftir frétta- tilkynning Skáksambandsins um þessa sjónvarpsmynd. „EFTIRMÁLI AF KVIKMYND- UN EINVlGIS ALDARINNAR Bandaríkjamaðurinn Chester Fox fékk á sínum tíma einkarétt til allrar kvikmyndatöku og ann- arrar myndatöku af heims- meistaraeinviginu 1972. Þó að Fox fengi ekki á sínum tíma að Framhald á bls. 29 Iceland Products velti 9300 millj. kr. á sl. ári MIKIL veltuaukning varð hjá Iceland Products, sölufyrirtæki Sambandsins í Bandarfkjunum, á s.l. ári. Sambandsfréttir hafa það eftir Sigurði Markússyni, fram- kvæmdastjóra Sjávarafurða- deildar Sambandsins, að veltan hafi orðið 48.5 milljónir dollarar á árinu eða um 9300 milljónir króna og er veltuaukningin um 42.5% frá árinu áður. Að sögn Sigurðar þá stafar þessi veltuaukning annars vegar af hækkandi verðlagi á sjávaraf- Hæstiréttur: Málflutningi lokið í meiðyrðamáli 12 manna gegn Þjóðviljamönnum MÁLFLUTNINGI f meiðyrðamáli 12 einstaklinga gegn Ulfari Þormððssyni og Svavari Gestssyni, rit- stjðra Þjððviljans, til vara, lauk f Hæstarétti f gær. Málflutningur hðfst f fyrradag klukkan 10 og var sfðan fram haldið f gær klukkan 14. Þá hélt verjandi Ulfars, Ingi R. Helgason, varnarræðu sfna. Er hann lauk máli sfnu f gær flutti Gunnar M. Guðmundsson aðra ræðu sfna við málflutninginn og honum lauk með því að Ingi tðk aftur til máls. Verður málið nú dðmtekið ekki er Ijðst, hve lengi þarf að bíða dðms, en þess ber að geta að Hæstiréttur er f meiðyrðamáli þessu skipaður dðmurum, sem sérstaklega eru settir f hann vegna þessa máls og'gegna þeir þvf öðrum störfum einnig. Þetta meiðyrðamál gegn Ulf- ari Þormóóssyni, blaðamanni við Þjóðviljann, er fyrsta meið- yrðamálið af fleiri, sem höfðað er gegn nokkrum blaðamönn- um Þjóðviljans og fleiri aðilum, sem létu ýmis ummæli falla um aðila, sem stofnuðu til lands- kunnrar undírskriftasöfnunar, sem kennd var við „varið land“. Málið gegn Ulfari Þormóðssyni er lang viðamest, því að ýmis gögn, sem aflað var í sambandi við það, komu síðar að notum við mál gegn öðrum aðilum. sem fylgdu í kjölfarið. Má þar m.a. nefna yfirheyrslur mjög víðtækar, sem fram fóru. Afrýjendur til Hæstaréttar eru þeir 12 einstaklingar, sem töldu á sig hallað í skrifum Ulfars á árinu 1974. Þeir gera kröfur, sem hefðbundnar eru í meiðyrðamáli. 1 fyrsta lagi að ummælin, sem út af er stefnt, verði dæmd dauð og ómerk; I öðru lagi að dæmd verði hæfi- leg refsing fyrir ummælin sam- kvæmt tilvitnuðum ákvæðum í almennum hegningarlögum, sem fjalla um móðganir og aðdróttanir, og í þriðja lagi að stefnda verði gert að greiða hverjum áfrýjanda um sig 100 þúsund krónur í miskabætur samkvæmt sérstöku ákvæði í hegningarlögum eða samtals 1.200 þúsund krónur. 1 fjórða lagi gera áfrýjendur þá kröfu að áfrýjendum verði greiddur kostnaður úr hendi stefnda, 25 þúsund krónur, til þess að kosta birtingu forsendna og dóms- orðs væntanlegs dóms i opin- berum blöðum og i fimmta lagi að sá, sem dæmdur verði, skuli sjá um að forsendur og dóms- orð væntanlegs dóms verði birt í 1. eða 2. tölublaði Þjóðviljans, er út kemur eftir birtingu dómsins. Þessi siðasta krafa er orðuð á þennan hátt, vegna þess, að Ulfar Þormóðsson auð- kennir greinar sínar í Þjóðvilj- anum með stöfunum „úþ“, og ekki er víst að slík merking greinanna fullnægi áskilnaði prentréttarlaganna um nafn- greiningu. Því er ritstjóra Þjóð- viljans, Svavari Gestssyni, stefnt til vara. 1 héraðsdómi var Ulfar dæmdur og reýndi því ekki á varakröfuna. Þetta álita- efni er aftur uppi í Hæstarétti og því er krafan orðuð svo. Að lokum er krafizt málskostnaðar úr hendi stefnda, en málarekst- ur þessa meiðyrðamáls er mjög kosnaðarsamur, þar sem neuð- synlegt hefur verið að gera ágrip af öllum gögnum héraðs- dóms og málið er mjög um- fangsmikið. Ummælin, sem áfrýjendur telja meiðandi, spanna alllang- an tima í Þjóðviljanum. Hin fyrstu birtust um miðjan janúar 1974 og birtust svo áfram i marzmánuð. Stefnur vegna meiðyrðamálanna voru svo birtar í júnimánuði það ár. Var stefnendum þá mjög Iegið á hálsi, að þeir vildu tengja þessi mál kosningunum, sem voru síðast i júni og var það kölluð „ný pólitísk framtaks- semi“ af þeirra hendi, en þess ber að geta að refsikrafa i meið- yrðamáli fyrnist á 6 mánuðum og réttarfrí hefjast 1. júli og var þvi ekki um annað að ræða en að hefja málssóknina fyrir lok júnimánaðar — að því er Fratnhald á bls. 24. urðum vestra og hins vegar af þvi að mikil aukning hefur orðið á sölu á fiskflökum síðustu tvö árin. Fyrirtækið hefur einkum lagt á það áherzlu að byggja upp mark- að fyrir veitingahús og veitinga- húsakeðjur. Er talið, að styrk- leika sinn eigi markaðurinn fyrst og fremst að þakka ýmsum af þessum bandarísku veitingahúsa- keðjum, sem undanfarið hafa ein- beitt sér að því að selja flök og aðrar sjávarafurðir í háum gæða- flokki. Er talið, að fuli ástæða sé til að ætla að markaðurinn muni halda núverandi styrkleika með- an þessar veitingahúsakeðjur búa við góða afkomu og halda áfram að eflast. Þessir aðilar taka nú við nær öllum þorsk- og ýsuflökum, en ódýrari tegundir eru seldar í smásöluverzlunum og að nokkru leyti til skóla. Iceland Products seldi 8.548 lestir af fiskflökum á s.l. ári og jókst salan um 39% frá árinu áður. Þar af voru þorskflök 6.052 tonn, en söluaukningin í þeim varð 37%. Á árinu 1976 tókst fyr- irtækinu þó ekki að anna allri eftirspurn, og hefði fisksala þess orðið enn meiri, ef ekki hefði skort fiskflök, einkum þorskflök, til að anna eftirspurninni. 30% hækkun á taxta vinnuvéla HEIMILUÐ hefur verið 30% hækkun á taxta vinnuvéla, en vinnuvélaeigendur sóttu um 70% hækkun. Að sögn Georgs Ólafs- sonar verðlagsstjóra er hækkunin tilkomin vegna mikilla hækkana á vinnuvélum og einnig vegna þess, að umræddur taxti hefur ekki hækkað sambærilega við aðra taxta á undanförnum árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.