Morgunblaðið - 24.03.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMT.UDAGUR 24. MARZ 1977
5
Klukkan 21.40:
„Bréf til
Þýzka-
lands”
eftir Hermann Hesse
KLUKKAN 21.40 í kvöld
les Haraldur Ólafsson lekt-
or þýðingu sína á „Bréf til
Þýzkalands" eftir þýzka
nóbelsskáldið Hermann
Hesse, sem lést árið 1962.
Hermann Hesse, um það leyti,
sem hann hlaut bókmenntaverð-
laun Nóbels.
Hermann Hesse er fædd-
ur 2. júlí árið 1877 í
Wurtemberg í Þýzkalandi.
Hann hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels í
nóvember 1946.
Hann var sonur mót-
mælendaprests og trúboða
og var sjálfum æltað það
hlutskipti, en gerði upp-
reisn, þar sem hann gat
ekki hugsað sér hefðbund-
ið háskólanám. Gerðist
hann um tíma bóksali, en
tuttugu og sjö ára gamall
var hann farinn að lifa á
ritstörfum sínum.
Meðan síðari heims-
styrjöldin stóð yfir bjó
Hesse í Sviss, þar sem hann
var dyggur talsmaður frið-
ar og hlutleysis. En sjálfur
gerðist hann svissneskur
ríkisborgari árið 1923.
Hann skrifaði margar póli-
tískar greinar, sem komu
út í ritsafninu „Krieg und
Frieden" (1946). Hermann
Hesse lést í Montagnola í
Sviss 9. ágúst 1962.
Skáldskapur hans þykir
ljóðrænn og oft byggður á
rómantísku stefnunni i
Þýzkalandi á 19. öld, þótt
fyrri ritsöfn hans
(Diesseits, 1907, Nach-
barn, 1908, Umwege, 1912)
þyki lýsa þýzku smábæjar-
lífi með kaldhæðnislegu í
vafi og þunlyndislegum
blæ. Á þriðja áratug þess-
arar aldar fór vaxandi
áhugi hans á nýrri stefnu
og þróun sálarfræðinnar
að skína í gegnum ritverk
hans og þá sérstaklega
kenningar G.C. Jung.
r
Grein um Island
í þýzku stórblaði
ÍSLAND, eyjan milli golfstraums
og heimskautsíss, er þeim hvatn-
ing sem þreyttir eru á borgmenn-
ingu. Þannig er á borgmenningu.
Þannig hljóðar fyrirsögn á grein
um tsland sem nýverió birtist í
V-þýzka stórblaðinu Welt am
Sonntag. Birtist greinin á forsíðu
sérblaðs um ferðamál, en hún er
ágæt kynning á landi og þjóð. í
henni er ekkert glansmyndamál,
heldur reynt að fjalla um hlutina
á óhlutdrægan hátt. Mikið er gert
úr fjölbreytilegri náttúru lands-
ins og friðsæld. Gjarnan er vitnað
í ýmsa þekkta íslendinga og jafn-
vel f frásagnir fornsagna.
í fyrirsögn er einnig spurt á
óbeinan hátt, hvort ferð til
íslands sé ferð á heimsenda,
hjara veraldar. Með greininni er
birt stór 7 dálka mynd af fénaði í
óbyggðum. Myndatexti hennar
hljóðar á þá leið, að sauðfé, hrein-
dýr, stóðhestar og syngjandi svan-
ir séu alla tíð á leið ferðamanna
um óbyggðir íslands, hvort sem
ekið er, riðið eða gengið. Þær
upplýsingar koma fram í grein-
inni, sem er mjög hagstæð fyrir
ísland sem ferðaland, að ódýrasta
ferðin frá Þýzkalandi fáist fyrir
598 mörk, eða tæpar 50 þúsund
krónur. Sé það einnar viku ferð
fyrir tvo, í júní mánuði, en reikn-
að er með að gist sé í tjaldi.
Arsþing iðnrek-
enda hefst í dag
ÁRSÞING Félags íslenzkra iðn-
rekenda verður haldið á Hótel
Borg f dag og á morgun, föstudag.
Hefst þingið kl. 11 f dag. 1 frétta-
tilkynningu frá FÍI segir að mál-
efni iðnaðarins hafi aldrei verið
til jafn ítarlegrar umfjöllunar
eins og á undanförnu misseri, og
þess vegna muni þingið að þessu
sinni standa f tvo daga.
Auk fastra þingstarfa svo sem
stjórnarkjörs, ársskýrslu og fleira
verða aðalmál þingsins skattamál,
fjármál og tollamál auk þess sem
rætt verður um þjónustustofnanir
iðnaðarins.
Davíð Sch. Thorsteinsson, for-
maður Félags íslenzkra iðnrek-
enda, flytur erindi þar sem gerð
verður grein fyrir viðhorfi iðn-
Athugasemd
frá stjórn
Hjúkrunar-
félagsins
Morgunblaðinu barst f gær eftir-
farandi fréttatilkynning frá
stjórn Hjúkrunarfélags Íslands:
,,Að gefnu tilefni vill stjórn
Hjúkrunarfélags islands kom a
eftirfarandi á framfæri:
Stjórn Hjúkrunarfélags íslands
stóð á sínum tíma ekki að
uppsögnum hjúkrunarfræðinga á
Borgarspítala, Landakoti og
Vífilsstöðum.
Hjúkrunarfélag íslands er aðili
að heildarsamtökum BSRB og fer
þar af leiðandi að gildandi lögum
um kjarasamninga.
Stjórn félagsins hefur hins
vegar fyllstu samúð með uppsagn-
araðilum og viðurkennir þörfina
fyrir bættum kjörum hjúkrunar-
fræðinga.
Stjórn Hjúkrunarfélags
Íslands."
AtCI.VSLNCASÍMIXN KH:
22480
rekenda til fyrrnefndra mála-
flokka. Dr. Gunnar Thoroddssen,
iðnaðarráðherra, flytur yfirlitser-
indi um þróun og stöðu iðnaðar-
ins, Matthias Á. Mathiessen, fjár-
málaráðherra, erindi um skatta-
mál og Jón Sigurðsson, hagrann-
sóknastjóri, mun í erindi sinu
fjalla um skýrslu Þjóðhagsstofn-
unar, sem nýverið kom út og ber
nafnið „hagur iðnaðar".
Hér má sjá mynd af forsfðu þýzka stórblaðsins Welt am Sonntag, sem á
sínum tima birti ferðamálgrein um Island. Eins og sjá má er greininni
slegið vel upp, en hún er f alla staði mjög hagstæð fyrir land og þjóð.
Biskupsfyrir-
lestur um
vísindi og trú
i KVÖLD, fimmtudagskvöld, mun
biskup íslands, herra Sigurbjörn
Einarsson, flytja fyrirlestur um
efnið Vísindi — tortiming trúar?
Fer fyrirlesturinn fram í Lög-
bergi, stofu 102, og hefst kl. 20.30,
og er hann öllum opinn. Fyrir-
lestur þessi er á vegum Kristilegs
stúdentafélags og er hann hald-
mn í tengslum við sérstakan
kynningardag félagsins innan
Háskólans. Seldar verða bækur í
Árnagarði, aðalbyggingu Háskól-
ans og í matstofu stúdenta i
hádeginu i dag.
Svona
á frystikista aó vera!
,,DERBY“ frystikistur, 5 stærðir, 2 verðflokkar, frystiskápar, 2 stærðir,
,,DERBY“ frystitækin hafa vandað yfirbragð, með haganlega lausn á hverju smáatriði eins og:
* „Hermetisk" frystiþjappa sem tryggir hámarks frystiafköst.
* Ytrabyrði úr stáli, rafzinkhúðuð til ryðvarnar, búið hitarörum gegn daggarmyndun.
* Innrabyrði úr hömruðu áli, en kostir þess eru ótvíræðir, ál er mjög góður varmaleiðari með
afar lágan eðlisvarma, þetta flýtir djúpfrystingunni. Jafnframt er ál framúrskarandi auðþrifið.
* Lokið lokast óaðfinnanlega þétt, búið jafnvægisgórmum sem létta það við opnun, læsingu og
ljósi. Ennfremur er yfirborð þess klætt plasthúð til prýðis og til varnar gegn rispum.
* Sérstakt djúpfrystihólf er í ,,DERBY“, þannig má djúpfrysta ný matvæli án þess að kosta til
frekari kælingu á matvælum sem þegar liggja frosin fyrir í kistunni.
Petta hraðar djúpfrystingunni og sparar rafmagn.
* Einangrunin er hið viðurkennda ,,Pelyuretan“ frauðplast.
* í „DE|IBY“ frystikistum er botninn auðvitað frystiflötur líka.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670