Morgunblaðið - 24.03.1977, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977
Skák — Skák — Skák - Skák — Skák Skak - SkáL í SL ák - Skák -- Skák > ikak - s ■ J
Stjörnuspáin sveik
Að spá í stjörnurnar
STJÖRNUSPÁ kappanna i dag 22
mars 197 7 hljóðar á þessa leið
samkvæmt 64 tölublaði Morgun-
blaðsms 64 árgangs með leyfi rit-
stjóranna Styrmis og Matthíasar
Boris Spassky
Fæddur í Vatns-
beranum. ..Þú
getur stundum ver-
ið nokkuð þrjóskur
og uppstökkur, en
það má ekki henda
þig í dag Viður-
kenndu að þú getir haft rangt fyrir
þér og biddu vissa aðila afsökunar '
Vlastimil Hort Fæddur í Stein-
geitinni. „Þú munt ná góðum
árangri í öllu sem þú tekur þér fyrir í
dag Þess vegna er um að gera að
fara snemma á fætur og reyna að
koma sem mestu í verk ’
Ekki blæs byrlega fyrir blessuðum
Boris en allt á að fara að óskum hjá
Vlastimil að minnsta kosti ef hann
hefur drifið sig snemma á lappir í
morgun
Áður en ég held lengra verð ég að
biðjast afsökunar á miklum mis-
tökum sem urðu í síðustu grein
minni en er alls ekki mín sök því
síðast af öllu kæmi mér í hug að
ætla að yrkja Stein heitinn Steinarr
uppá nýtt Fyrsta Ijóðlínan sem vitn-
að var í hljóðar náttúrulega svon Að
sigra heiminn er einsog að spila á
spil, o.s.frv. Ekki veit ég hvaða
spekingur hefur gengið með þá
grillu að hann gæti betur í yrkingum
en Steinn Kannski prófarkalesari
eða að minnsta kosti verður þetta
skrifað á hans reikning þangað til
annað sannara kemur fram í dags-
Ijósið
Já, það er þetta með stjörnu-
vfsindin Annað hvort verður
stjörnuhrap eða eitthvað enn verra
eftir daginn í dag Ef Spassky vinnur
þessa skák þá mætti vera nokkurn
veginn gefið að hans stjarna heldur
áfram að skfna. en ef þeir gera
jafntefli þá er viðbúið að þeir f
skáksambandsstjórninni eigi erfitt
með að segja einsog stendur í vísu
Arnar heitins Arnar „Venus hátt í
vestri skin/ við skulum hátta elskan
mín’ En einsog oft hefur verið drep
ið á í greinum mínum eru vestfirð-
ingar í meirihluta stjórnar skáksam
andsins
Það fer ekki milli mála að vfsindin
standa Horts megin í dag en á móti
kemur að Spassky á að stýra hvíta
mannfókinu í dag verða það vis-
indin og mannvitið sem heyja bar
áttu og áreiðanlega verða miklar
sviptingar
Á bökkum Don
Kannski hefur kvenmannsbelgur
komist f spilin hjá Hortinum og
hann getur þá tekið undir með
Hasek þar sem hann segir í bókinni
um ..Góða dátann Svejk'
Þú varst mín sumarsunna
mín sæla trú og von.
Ég beið þfn bjartar nætur
á bökkunum við Don.
Og þá er hægt að breyta siðasta
orðinu og hafa í staðinn fyrir Don
(Elliðaárnar) Björninn býr yfir
sjarma einsog allir af þeirri ætt,
enda sjáanlegt að ungar dömur,
sem ganga hér um sali gjóa augum í
áttina til hans og þá sérstaklega
þær, sem hafa Ijósa lokka og ganga
á hælaháum skóm Nóg um það,
engar getsakir eða meiningar, en á
hinu er enginn vafi að eitthvað lyfti
piltinum uppúr ládeyðunni á sunnu-
daginn en hitt er óvíst hve þessi
lyftingur endist honum lengi
En ég sný ekki aftur með það að
blondfnum er hætt við að falla fyrir
dökkhærðum og bústnum bangsa
körlum sérstaklega ef þeir eru langt
að komnir
Vonandi gengur þetta allt eftir
einhverri áætlun f dag og óneitan-
lega yrði leikurinn meira sp>enn-
anadi. ef annar hvor kappinn stæði
uppi með pálmann í höndunum, þó
ekki væri nema til þess að Spassky
kæmist sem skjótast til Sviss og
Hort geti farið að skrifa f blöðin á
bökkum Don
Mér þotti gott að heyra að Halldór
E. samgönguráðherra kann mann-
ganginn. þvi mér finnst alltaf leiðin-
legt að standa í einhvers konar mis-
skilningi um fólk sem ég þekki ekki
nema í sjón
Nú er Einar utanríkisráðherra að
skemmta frú Karin Söder, sem er
sænsk myndarkona með gleraugu
Einar er þekktur af höfðingsskap og
enginn efast um riddaramennskuna
Mér finnst verst að hann skuli hafa
lent í þessu veseni með draslið sem
kaninn var að fleygja í sjóinn, til að
Styggja þorskinn Þeir vita ekki
mikið um þorsk piltarnir þarna í
heiðinni, það kannast ég við af eigin
raun frá þvi ég var á mála hjá þeim
fyrir 20 árum
Þig vil ég kyssa Þrúða
min
Ef Hort vinnur í dag, þá getur
hann ugglaust tekið undir með
Svejk dáta og sungið ..Þig vil ég
kyssa, Þrúða min", nú ef hann tapar
þá raular hann sjálfsagt vísuna
„Hvar er heimkynni mitt?". Stór-
meistari Smyslov vann glæstan
sigur fyrir austan fjall og hefur sjálf-
sagt tekið lagið á eftir og sungið um
Volgu
Hvar er hún Ella Pálma? Ég hef átt
von á að sjá hana hér f glæstum
sölum Loftleiðahótelsins til að getað
hlustað á hana tala við eiginkonu
Spasskys á frönsku Mér finnst þetta
ekki parfint hjá henni Ellu að mæta
ekki, þegar mest á ríður en hver veit
nema samborgarfulltrúi Albert
Guðmundsson hjálpi upp á skak-
irnar því hann talar lika frönsku par
exelance eins og sagt er
Einhver drykkjusvín voiu að
hrekkja mig í gærkvöldi. sögðu mig
vera að svíkja hugsjónina með því
að skrifa í Moggann Af hverju halda
fyllirútar sig ekki við glösin sín?
Nú er skákin i þann veginn að
hefjast Yfirdómari hefur sett sig f
stellingarog flautan á réttum stað
En fyrir alla muni hlífið okkur áhorf-
endum við flautukonsert, við höfum
fengið nóg af þeirri mússik.
1 leikur Spasskys er c-peðið
fram Úti er dumbungur. Við sem
skráum sögu atburðanna höfum
verið fluttir uppá 4 hæð. Einhverjir
ungir stórkaupmenn eða kramarar
eru að funda i herberginu sem við
höfum haft til afnota niðri á fyrstu
hæð Mikill hugur er i mönnum og
Hort kemur fjórum minútum of seint
og er enn í grænu skyrtunni en
Spassky glerfínn og vestislaus.
Nú er úti um vin okkar Larsen og
sennilega tapaður leikurinn hjá
honum, aftur á moóti önglaði Kort-
snoj sér einn vinning f viðbót og
ætti að vera nokkuð öruggur
Ég er hér einn að pikka á fram-
sóknarritvélina og það er í henni
einhver óþægð. hún lætur ekki
almennilega, hleypur útundan sér
einsog lítt taminn foli.
Hasarskák
Hort leikur riddara f6 og svo
koma nokkrar byrjanir, leikir, sem
enginn kann deili á en það er ekki
alveg að marka þvi enginn löggiltur
skákskýrandi er mættur hér i efri
byggðum. Hlaupastrákurinn sem
kemur leikjunum hingað upp gat
ekki frætt mig um hvað þessi undar-
lega byrjun héti og ég bið í ofvæni
í útvarpinu er verið að leika ein-
hvern hergöngumars sem ég þekki
ekki
Lausnin er komin á byrjuninni
sem sagt enskur leikur og Spassky
fórnar peði.
í 8 skák þeirra Spasskys og
Fischers kom þessi byrjunarleikur
upp hjá Fischer og þá lék Spassky
örlagaleik I 15. umferð b5 og vissi
enginn hvort um var að ræða afleik
eða fórn.
Tveir kostir fylgja þvi að vera
hérna uppi á hæðunum; gott útsýni
yfir Reykjavikurflugvöll og stutt að
fara á klósettið
Ung dama hún Eva Lísa 7 ára
mydnskreytir textann i dag Ég kann
engin deili á þessari ungfrú en
myndirnar eru skemmtilegar.
Þetta verður hasarskák segir
Tima-Gunnar ekki Þjóðvilja-Gunnar
Steinn Hingað er kominn yfir-
iþróttafréttaritari sjónvarpsins Bjarni
Felixson og ríkir almenn kæti yfir
litillæti ríkisfjölmiðilsins á Laugaveg-
inum
Menn ræða hér um sviptingar í
framsókn, sem ég hvorki skil né vil
vita nokkuð um Ég hef aldrei fattað
pólitfk. Ég rétt kemst niður á fyrstu
Framhald á bls. 24.
eftir
Björn
Bjarman
Verður Larsen
enn að gjalda
dirfsku sinnar?
ENN einu sinni tók Bent
Larsen óþarfa áhættu ! ein-
vígisskák sinni við Portisch.
Daninn fékk heldur þægilegri
stöðu framan af, en tók síðan
þann kostinn að skipta upp í
endatafl sem virtist I jafnvægi.
Þá opnaði Larsen skyndilega
taflið að óþörfu og við það losn-
aði svo mjög um stöðu Ungverj-
ans að líklega verður Larsen að
sætta sig við sitt fimmta tap í
einvíginu á morgun.
Hvftt: Bent Larsen
Svart: Lajos Portisch
Spænski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4
Bxc6 (Uppskiptaafbrigóiið, en
það hefur verið mjög vinsælt í
áskorendaeinvfgjunum í ár)
dxc6 5. 0—0 f6. (Algengasta
framhaldið. í 7. einvígisskák-
inni lék Portisch hér 5. . . Dd6
og tapaði) 6. d4 Bg4 7 c3 (Lík-
lega vænlegri leikur en 7. dxe5
eins og Fischer lék í 16. einvíg-
isskákinni við Spassky) Bd6 8.
7 c3 Bd6 8. dxe5 fxe5 9. Db3
Bxf3 10. gxf3 b6 (Ekki er gott
að valda peðið með 10. . . Dc8
vegna 11. Be3 Rh6 12. Rd2 Rf7
13. Khl og hvítur stendur bet-
ur. 10. . . L>5 yrði svarað með 11
a5) 11. Dc4 Re7 12. Be3 b5 13.
De6 Dd7 14. Dg4 Rg6 15. Rd2
De7 16. Khl 0—0 17. Hgl Rf4
18. a4 IIf6 19. Dh4 Haf8 20.
axb5?! (Fram að þessu hefur
Larsen teflt ágætlega, en hér
hefði hann liklega betur leikið
20. Hg4 og síðan reynt að tvö-
falda hrókana á g línunni ef
færi gæfist) axb5 21. Bxf4 Hxf4
22. Dxe7 Bxe7 23. Ha7 Hd8 24.
Rb3 (Eftir 24. Hxc7 Bf8 25. Rb3
Hxf3 kemur upp sama staða og
raun varð á í skákinni) IIxf3
25. Hxc7 Bf8 26. Kg2 (Eftir 26.
Hxc6 Hxf2 hefur svartur greíni-
lega frumkvæðið) Hf6 27. Hfl
Hd3 28. Ra5 H3d6 29. b3 h6 30.
c4? (Þessi leikur gerir ekki
annað en létta á stöðu svarts.
Hvítur átti að halda stöðunni í
horfinu með t.d. 30. b4. Óhag-
stæð staða Larsens í einvíginu
hefur líklega knúið hann til að
taka áhættu). bxc4 31. Rxc4
Hde6 32. Re3 Hf4! (Þvingar
fram 33. f3. Nú er sigið mjög á
ógæfuhliðinu hjá hvitum.) 33.
f3 Hg6+ 34. Kf2 Bc5 35. Ke2
Hh4 36. Rg4 Bd4 37. Hc8+ Kh7
38. Hhl h5 39. Re3 c5 40. Hf8
Hh3 Hér fór skákin í bið.
Larsen virðist standa mjög höll-
um fæti t.d. er vandséð hvernig
hann ætlar að verjast hótuninni
41. .. Hb6.
Jafntefli fyrir-
sjáanlegt hjá
Korchnoi
og Petrosjan
BÁÐIR keppendur forðuðust
mjög að taka áhættu í níundu
einvfgisskák þeirra Korchnois
og Petrosjans sem tefld var á
Ítalíu f gær. Mestum hluta
mannaflans var snemma skipt
upp og f biðstöðunni virðist
sem hvorugur eigi vænlegt
framhald.
Til gamans má geta þess, að
Korchnoi átti afmæli í gær og
hefur hann greinilega gætt sfn
á því að falla ekki f sömu
grygju og Larsen, þvf þegar
Daninn átti afmæli fórnaði
hann fyrst peði en sfðan tveim
mönnum og varð um sfðir að
sætta sig við tap.
'vftt: Viktor Korchnoi
Svart: Tigran Petrosjan
Katalónsk byrjun
I. c4 — e6,2. g3 — d5, 3. Rf3 —
Rf6, 4. Bg2 — Be7 5. d4 — 0-0,
6. Rc3 — dxc4, 7. Re5 — c5, 8.
dxc5 — Dxdl, 9. Rxdl — Bxc5,
(I þriðju skákinni lék
Petrosjan hér 9 . . Rbd7, en
fékk mjög erfiða stöðu eftir 10.
Rxc4 Rxc5 11. Rc3) 10. Rxc4 —
Rc6, 11. Be3 — (í skák þeirra
Friðriks Ólafssonar og Donners
á IBM-mótinu 1976 lék hvítur
hér einfaldlega 11. 0-0 og fékk
örlitið betri stöðu eftkir
II. . . Bd7 12. Rc3 — Had8, 13.
Bf4) Bb4 + ! 12. Bd2 — Bxd2,
13. Rxd2 — Bd7, 14. Rc4 —
Hfd8, 15. Rc3 — Kf8, 16. Rd6 —
Hab8, 17. 0-0-0 — Re8, 18. R6e4
— Ke7, 19. Rc5 — Rf6 20. Rxd7
— Hxd7, 21. Hxd7+ — Rxd7,
22. Hdl — Hc8, 23. b3 — Rdb8,
24. Kb2 — Hd8, 25. Hxd8 —
Kxd8, 26. Rb5 — Kd7, 27. Kc3
— a6, 28. Rd4 — b6, 29. Rf3 —
h6, 30. Rd2 — Kc7, 31. f4 —
Rd7, 32 Bf3 — b5, 33. b4 —
Rb6, 34. a3 — Ra4+, 35. Kd3 —
Re7, 36. Bh5 — f6, 37. Bg4 —
Kd7, 38. Bh3 — Rc8, 39. e4 —
Re7, 40. Rf3 — Rc6
Hér fór skákin i bið. Korchnoi
virðist hafa örlítið meiri mögu-
leika vegna veikleikans á e6, en
hinn frfði aðstoðarmannaflokk-
ur Petrosjans ætti þó vart að
vera f vandræðum með að
leggja honum Iffsreglurnar til
jafnteflis. Biðskákin verður
tefld f dag og tfunda skák ein-
vígisins fer fram á laugardag.
Þá hefur Petrosjan hvftt og má
vænta þess að hann berjist þá
þar til yfir lýkur.
SKák
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
Staðan
HORT — SPASSKY 5‘A:5'Á
Tólfta og sfðasta skákin verður
tefld á sunnudag.
PORTISCH — LARSEN 5:3
Biðskákin úr nfundu umferð
verður tefld í dag
KORCIINOI — PETROSJAN
4‘A:3‘A
Biðskákin frá í gær verður
tefld f dag
POLUGAEVSKY — MECKING
5:4
Tíundu skákinni, sem tefla átti
í gær, var frestað þar til í dag
vegna höfuðverkjar
Polugaevskys.