Morgunblaðið - 24.03.1977, Side 37

Morgunblaðið - 24.03.1977, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1977 37 félk í fréttum + Eins mikið af brauði og rjómakökum og þú getur í þig látið fyrir 400 krónur. Þetta var tilboð sem George MacAree, feitasti maður Bretlands, gat ekki staðist. Hann settist niður og át og át og át. Það er Harrods í London sem býður viðskiptavinum sínum upp á þetta á hverjum degi milli kl. 3.15 og 4.30. George MaxAree er ekki aðeins feitasti maður í Bretlandi heldur allri Evrópu. Hann vegur 37 stone, 10 lb. (Ca. 236 kg — 1 stone 6,4 kg) og hans er getið í metabók Guinness. George reykir 60 sígarettur á dag og drekkur hálfa flösku af rommi, en um helgar dugir ekki minna en tvær flöskur af koníaki. Matur er mannsins megin + Bandaríski kvikmyndaleik- arinn Mickey Rooney er ís- lenskum kvikmyndahússgest- um að góðu kunnur, a.m.k. þeim sem komnir eru á miðjan aldur. Mótleikari hans á þeim árum var oft leikkonan Judy Garland sem Mickey segist aldrei geta gleymt. Hann hef- ur átt sjö konur en segir að engin þeirra hafi haft eins mikil áhrif á sig og Judy Gar- land. 4- Forseti Bandarikjanna, Jimmy Carter, þykir frjáisieg- ur í klæðaburði. Hann hefur jafnvel sést f bláum gailabux- um f Hvfta húsinu. „Ég get ekki skilið hvers vegna ég ætti ekki að klæða mig eins og mér þykir þægilegast þegar ég á frf þótt ég sé orðinn forseti," seg- ir Carter. 4- Þessi ungi maður sem hér sést til vinstri er af islenzku bergi brotinn og heitir Árhi Árnason. Hann er hér aS taka við viðurkenningu úr hendi annars æðsta yfirmanns kanadfska sjóhersins, fyrir að bjarga manni frá drukknun. Árni hefur verið f kanadfska sjóhernum frá árinu 1972 og er núna aðstoðarvélstjóri á kafbát. Árni er fæddur f Reykjavfk 8. mai 1954. Hann fluttist til Kanada árið 1957 með foreldrum sínum, Jóni Árnasyni og konu hans. Afi Árna er Árni Jónsson fyrrum verkstjóri i Járnsteypu Reykjavfkur við Ánanaust. Glæsilegt úrval af hannyraðvörum ný komið t.d. Gunnhildur kóngamóðir, Ride, Ride, Ranke, íslenskir strengir, rokokostólar, áteiknuð punthandklæði og dúkar og margt fleira. 20% afsláttur af smyrnateppum og máluðum strammamyndum. Komið og kynnið ykkur úrvalið. Verzlunin Hof, Ingólfsstræti 1 (gegnt Gamlabíó) Karnabær HLJÓHDEILD Fyrir 2 plötur ókeypis buröargjald. Fyrir 4 plötur10% afsláttur og ókeypis buröargjald. KYNNIR í dag langar okkur að vekja athygli ykkar á nokkrum rokk-hljómsveitum. Sumar þekkið þið eflaust, en aðrar varla. Það er álit okkar að ef þér liki við eina af þessum hljómsveitum séu miklar líkur fyrir því að þér líki einnig við flestar hinar. Hvernig væri að athuga málið? Status Quo — Live Status Quo njóta sin aldrei betur en é hljómleikum það sýna þeir og sanna hér. Genesis — Wind & Wuthering Sumir halda að svonefnt „þróað rokk" sé einungis fyrir „þróað fólk". . .??? Boston — Boston Ef þú þekkir ekki Boston nú þegar spurðu þá félaga þinn hvers þú hefur farið é mis við. Streetwalkers — Vicious, but Fair Roger Chapman er frábær söngvari og tónlist Streetwalkers er hæsta klassa breskt rokk. Kansas — Leftovertune Næst á eftir Boston eru Kansas vinsælasta nýja rokk hljóm- sveit Bandarikjanna i dag. Petar Gabriel — Peter Gabriel Peter Gabriel fyrrverandi söngvari Genesis sýnir á sér nýjar hliðar á þessari sérstæðu og frábæru plötu. City Boy — Dinner at the Ritz City Boy er spáð bjartri framtið, enda eru þeir taldir sameina margt hið besta úrtónlist Qeen og 10cc. Graham Parker — Heat Treatment Tónlist Graham f'arker er sprottin af sömu rótum og t.d. tónlist Rolling Stones o.fl., nema að Graham Parker heldur sig enn við ræturnar. Sutherland Bros. — Slipstream Sutherland Brothers eru alltaf að verða þekktari og þekktari, bráðum verða þeir heimsþekktir. Steve Miller — Fly like an Eagle Þessi plata er ennþá inn á Top 10 i USA., samt er 1 ár siðan hún kom út. Þetta er þeim skiljanlegt sem hlustað hafa á piotuna Starcastle — Starcastle Ný og efnileg bandarisk hljómsveit, sem spilar tónlist sem stendur nær bresku rokki. Auðvitað eigum við líka til allar vinsælustu plöturnar, Boney M, Disco Rocket o.fl., svo og vorum við að taka upp nýja stórglæsilega sendingu. M.a. hin margeftirspurða plata með sænska söngvaranum Harpo, þar sem hann syngur lagið Sem sagt, það gæti verið vel þess virði að kíkja inn eða panta í póstkröfu hjá okkur, ef þú ert á annað borð að leita að góðri piötu. „Movie Star.” Karnabær — Hljómdeild, Laugaveg 66 og Austurstræti 22 sími 28155 SENDUM SAMDÆGURS í PÓSTKRÖFU.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.