Morgunblaðið - 27.03.1977, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ.SUNNUDAGUR 27. MARZ 1977
3
Rúnar Gunnarsson fyrir framan eina af myndum slnum é sýningunni.
„Vil stórar myndir
með miklum gæðum”
RabbviðRúnar Gunnarsson ljósmyndara
Rúnar viS tvœr mynda sinna en myndin sýnir vei Hve stórar myndir
Rúnarseru. Ljósmyndir Mbl. áj.
Ljósmyndasýningu Rúnars
Gunnarssonar I Sólon íslandus I
ASalstrnti lýkur I dag, en Rúnar
sýnir þar 22 mjög stækkaSar Ijós-
myndir úr Grjótaþorpinu og New
York. Sýngin hefur veriS fjölsótt.
en aSgangur er ókeypis.
„Sýningarsalurinn i Sólon island-
us er eins og hellir og þessar myndir
sem hanga hér uppi eru I rauninni
nútlma hellaristur, ekkert annað,"
sagði Rúnar Gunnarsson Ijósmynd-
ari I spjalli okkar um sýningu sýna.
— Þessar myndir sem hér eru
urðu til þannig að ég ákvað að gera
myndaflokk úr Grjótaþorpinu, ekki
til þess að sýna, heldur til að vinna
með I stækkun. Þegar ég hafði tekið
nokkuð mikið af myndum hljóp I
mig sú ákvörðun að sýna en sú
hugmynd hafði leitað á mig
Þegar þessi sýning liggur fyrir þá
er það min skoðun að beztu
myndirnar, kjarna sýningarinnar,
hafi ég tekið áður en ég tók ákvörð-
un um að sýna Þegar ég vann
aðeins myndanna vegna kom beztur
árangur, en hitt finnst mér ef til vill
til lýta, ég veit það ekki.
Beztu myndirnar að mlnu mati eru
þvottur á snúru. skyrtur, stelpa og
strákur, veggurinn, bíllinn og mynd-
in af Kollu í kringum þessar myndir
er sýningin byggð
— Allar myndirnar eru brúntón-
aðar.
— Margar ástæður liggja til
þess. Fyrst og fremst til þess að fólk
geti upplifað þessar myndir með þvl
að sjá eitthvað nýtt Daglega eru
svart-hvitar myndir I hundruðu tali I
blöðunum Stór brúntónuð mynd
dregur fremur athygli fólks til sln,
býður fólki nær og að auki verður
endingin á myndunum meiri með
brúna tóninum. Ég vil að þessar
myndir endist Þessar 22 myndir
eru stækkaðar mjög mikið, um og
yfir metri á kant. Stærð mynda hefur
mikið að segja í Morgunblaðinu
birtast ef til vill yfir 100 Ijósmyndir
á hverjum degi og þegar maður vill
vekja athygli á einhverju er væn-
legra að halda út fyrir það venju-
lega, ella staldrar fólk ekki við Stað-
an má ekki vera eins og I kaffibolla
sem er orðinn svo fullur að út úr
flóir. Sprenging verður að koma til.
Ég er þreyttur á þessum litlu mynd-
um, vil stórar myndir með miklum
gæðum Ef ég hlusta á tónlist vil ég
heyra hana vel. Ég vil ekki rugla þvl
góða saman við eitthvað annað
Framhald ð bls. 31
Blllinn I Grjótaþorpi, ain af
myndum Rúnars.
Kammersveitin í
Hamrahlíðinni
Páll Pampichler á æfingu með Kammersveit Reykjavfkur.
SEINUSTU tónleikar Kammer-
sveitar Reykjavikur á þessum
vetri verða haldíiir í dag,
sunnudag 27. marz, kl. 16 i sal
Menntaskólans við H: mrahlið.
Þrjú tónverk eru á hljóm-
leikaskránni.
Frumflutt verður verk eftir
ungt norskt tónskáld, Ketil
Særerud, sem hann nefnir „Til-
brigði fyrir kammersveit".
Verkið er samið sérstaklega
fyrir Kammersveit Reykja-
vikur en Norræni menningar-
málastjóðurinn hefur veitt
styrk til greiðslu höfundar-
launa.
Þá verður fluttur hinn frægi
septett Beethovens, opus 20, en
I gær, laugardag, 26. marz var
150. ártið tónskáldsins.
Siðast en ekki sist verður
fluttur strengjakvartett Jóns
Leifs, Mors et vita. Verkið
samdi Jón Leifs í Þýzkalandi
haustið 1939.
Stjórnandi á tónleikunum er
Páll Pampichler Pálsson.
Aðgöngumiðar að tónleikun-
um eru seldir við innganginn.
vid Miðjarðarhaf
fargjöldin og
Ódýrasti en jafnframt einn bezti ferðatíminn
— þegar aliur gróður er ferskur og hitinn
þægilegur.
PáskaferS 6. aprfl. 12 dagar.
Verðfrá kr. 58.200,- Örfá sæti laus.
Vorferð: 1 7. aprll og 8. mal
3 vikur. Verð frá kr. 58.200. -
Vorferð 11. mal — 3 vikur.
Finnið ilm vorsins I rómantlsku
umhverfi ítallu. Verðfrá kr. 63.400.
Vorferð 20. mai. 3 vikur. Fá sæti laus
Verð frá kr. 62.700.-
COSTA DEL SOL
LIGNANO
- GULLNA STRÖNDIN
COSTA BRAVA
Ferðaskrífstofan
UTSYN
Austurstræti 17, sími 26611.