Morgunblaðið - 06.04.1977, Síða 19

Morgunblaðið - 06.04.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1977 19 Samband skyldra og frjálsra þjóða Nú á þessum merku tímamótum þessara samtaka gefst mér I fyrsta skipti tækifæri til að stlga hér í ræðustól og ávarpa þingið með örfáum orðum. Ég þakka fyrir það. Margir hafa á liðnum árum varpað fram spurn- ingu, sem hljóðar kannske eitthvað á þessa leið: Norræn samvinna, hvað er það nú eiginlega? Og því er ekki að neita að tónninn hefur stundum verið háði blandinn, og þá helst frá þeim er lítt til þekkja, því að það er svo með þetta sem svo margt annað að þeir segja mest frá Ölafi konungi sem hvorki hafa heyrt hann eða séð. Eg mun að sjálfsögðu ekki ætla mér þá dul að svara ofangreindri spurningu til nokkurra hlítar. En fáein atriði langar mig þó að nefna, einkum er tsland varðar. Undirstaðan sem við allir byggjum á er virðing fyrir einstaklingnum — rétti hans til sjálfsákvörðun- ar og frelsis. An þess að ég ætli að fara að rifja upp gamlar væringar við vini okkar og frændur i Noregi get ég þess hér, að einmitt vegna þessara hugmynda var stofnað rfki á Islandi fyrir 1100 árum, ef Haraldur hárfagri hefði verið jafn mildur og skilningsrfkur og arftakar hans værum við að lík- indum I dag þegnar Noregskonungs og öll ræðuhöld af minni hálfu þvf óþörf, án efa til hugarléttis ýmissa þingfulltrúa. En þessi meginstefna okkar i utanrikismálum gerði það ofur einfalt og eðlilegt fyrir norrænu þjóðirnar að undirrita Helsinki samkomulagið en um leið raunar óþarft. Við erum frjálst fólk, við höldum í heiðri þær hugsjónir sem þar eru fram settar öðrum til eftirbreytni. öll starfsemi Norðurlandaráðs þessi 25 ár hefur stefnt að samræmingu laga, reglna og starfshátta, þannig að einstaklingarnir njóti jafnréttis og jafn- ræðis innan samvinnusvæðisins. Við búum öll við svipaða stjórnarhætti og þegnar landa okkar njóta álikra réttinda I daglegu lifi, enda þótt segja megi að lífskjörin séu nokkuð misjöfn eftir efnum og ástæð- um og nokkuð breytileg frá ári til árs, e.t.v. einkum þó hjá okkur Islendingum, sem búum að sveiflu- kenndum atvinnuvegum, svo sem fiskveiðar hafa löngum verið. „Svipull er sjávarafli", segir islenskt máltæki og það höfum við löngum mátt reyna. Þess vegna er það mín skoðun að brýna nauðsyn beri til þess að renna fleiri stoðum undir efnahagslíf okkar Islendinga og aðrar Norðurlandaþjóðir hafa raunar að minna á, þá legg ég þeim mun rikari áherslu á þá siðari, en það sem ég hef í huga eru þessar endingar úr kvæðinu um Svein Dúfu: að lélegt þótti höfuð hans en hjartað það var gott. Nú, en menningarmál eru ekki og hafa aldrei verið minn málaflokkur og því skal hér látið staðar numið um þau. Þótt segja megi að við búum við að meira eða minna leyti við sömu menningararfleifð og stjórn- málakerfi fylgjum við ekki sömu stefnu I samskipt- um okkar við einstök ríki eða ríkjasambönd út á við. Það er sjálfsagt óþarfi en skaðar þó e.t.v. ekki að nefna það, að Danmörk, Noregur og tsland eru meðlimir NATO. Island, Svíþjóð og Finnland með- limir EFTA og Danmörk meðlimur EBE. Engu að siður hefur okkur á Norðurlöndunum öllum tekisr að halda okkar góða innbyrðissambandi, eins og nýafstaðinn utanríkisráðherrafundur okkar í Reykjavík er gott dæmi um. Þannig á þetta lika að vera að mínum dómi. Þegar vinnumaður leitaði Ræða Einars Ágústs sonar, utanríkisráðherra, á fundi Norðuriandaráðs sýnt skilning sinn á þvi með stofnun norræna fjár- festingarbankans og fyrstu útlánum hans. Jafnframt þessu hefur efíst viðtækt samstarf á sviði menningarmála og öðrum þeim sviðum er stuðla að frekari lifsfyllingu þessara fimm landa. Ég minnist þess frá mínum ungu árum, að þegar ég átti að læra lexíurnar þá stalst ég oft til að lesa bók- ménntir, og þá einkum frá Norðurlöndunum, þ.e Danmörku, Noregi og Sviþjóð en finnsku gat ég þvi miður ekki lesið fremur en nú. Það væri allt of langt mál að telja hér alla þá höfunda sem hrifu mig á þeim árum, enda skal það ógert láti. Þó vil ég segja að þegar ég fyrst átti kost á að heimsækja Norður- lönd, nú fyrir u.þ.b. 30 árum kom mér margt kunnug- lega fyrir sjónir vegna þess, sem ég hafði áður lesið. Og af því að við erum stödd hér i Finnlandi vil ég ekki láta hjá líða að geta þess að finnskir rithöfund- ar voru ekki mér með öllu ókunnir. Þannig voru þeir Runeberg og Zakarias Topelius i miklu uppáhaldi, auk þess sem við eigum ágæta islenska þýðingu á Kalevala kvæðaflokknum. Og þótt ég vilji ekki skil- yrðislaust skrifa undir fyrri ljóðlinuna sem ég ætla vistar á Bergþórshvoli þá hitti hann Bergþóru utan- dyra og bauð hún honum að ráða hann. Maðurinn sagði: „Hver ert þú eða hvort ræðu þú nokkru hér“. Þá sagði húsfreyja: „Ég er Bergþóra, kona Njáls og eigi ræð ég síður hjú en hann“. Þó var þetta besta hjónaband i samanlögðum bókmenntum fornaldar. Þannig skulum við einnig hinar norrænu þjóðir halda sambandi okkar. Hver okkar um sig ræður hjú sin, þau er við hafa viljum en samband okkar versn- ar ekkfvið það, heldur styrkist. Við komum ekki fram sem blokk heldur sem samband skyldra og frjálsra landa, sem hafa samráð um afstöðu til ýmissa mála, en leggja þó mismunandi áherslu á einstök mál eða málsatriði. Þetta samráð er okkur Islendingum sérstaklega mikils virði og ég vil nota þetta tækifæri til þess að færa fram þakkir til hinna Norðurlandanna fyrir þá mikilsverðu aðstoð sem við Islendingar njótum af þeirra hálfu á alþjóða- vettvangi og ég hika ekki við að fullyrða að án hennar gætum við vart tekið þann þátt sem við þó gerum i afgreiðslu mála i ýmsum stofnunum og Framhald á bls. 20. Það er nú sem oft áður að margt er rætt manna meðal og í fjölmiðlum okkar islendinga. Eitt af því sem mjög hefur bor- ið á góma eru kjör bænda og staða landbúnaðarins i þjóð- félaginu. Bændastéttin. er sú stétt sem á afkomu sína undir sól og regn aó sækja og vinnur hörðum höndum án tillits til þess hvað klukkan slær og fjöldinn í þeirri stétt án nokk- urra frídaga árið um kring. Nú hefur þa gerzts víða um land að bændur hafa haldið fjölmenna fundi og látið í ljós megna óánægju með kjör sin og lífsafkomu í heild og mótmælt óbreyttu ástandi. Bændur eru menn seinþreytt- ir til vandræða enda þvi vanast- ir að gera fyrst og fremst kröf- ur til sjálfra sín ekki annarra. Það hefur líka sýnt sig að fundahöld þeirra eru ekki nein ómerkileg sviðsetning, þvi að i ljós hefur komið að þá vantar nú því sem næst 25% upp á laun sin til að halda til jafns við hinar svokölluðu viðmiðunar- stéttir eða m.ö.o. iónaðar og verkamenn. Ég held að allir sanngjarnir og velhugsandi menn hljóti að gera sér þrennt ljóst i þessu sambandi. í fyrsta lagi það aó bændur eru hörmulega afskiptir í þjóð- félaginu, í öðru lagi að það sé siðferðileg skylda þeirra sem málum ráða, að rétta hlut þeirra og í þriðja lagi að einn höfuðatvinnuvegur þjóðarinn- ar er i hættu að óbreyttu ástandi. Vegna þess að til eru máls- metandi menn hér á landi sem telja landbúnaðinn næsta lítils virði og jafnvel hemil á hagvöxt þjóðarinnar, þá vil ég minna á það að fjóra menn þarf til þess að vinna úr og koma á markað afurðum af búi meðalbóndans. Þetta þýðir það að á milli 80 til 90 þúsund manns í okkar 220 þúsund manna þjóðfélagi byggja afkomu sína á landbún- aði. Ég tel mig því ekki taka mér mikið i munn þótt ég segi að hér sé stórmál á ferðinni, Vigfús B. Jónsson Laxamýri: sem þarfnast skjótra aðgerða. íslenska gróðurmoldin er ein af megin auðlindum okkar íslend- inga og til hennar hljótum við jafnan að sækja okkar land- búnaðarvörur að mestöllu leyti. Ef til eru svo undarlegir islend- ingar að þeir geti hugsað sér ísland án landbúnaðar þá ættu þeir að svara eftirfarandi spurningu: Ef landbúnaðurinn væri horfinn hvað ætti þá að gera við þær 80 til 90 þúsundir manna sem nú lifa á landbún- aði og höfum við efni á því að borga erlendum þjóðum fyrir allar þær landbúnaðarafurðir sem við þurfum til neyslu? Efist menn um það að landbún- aðurinn og framtíð hans sé í hættu þá má benda á eftirfar- andi: Meðalaldur bænda er ískyggi- lega hár sem þýðir það að endurnýjun þeirra er of hæg enda tæpast annars að vænta þar sem fyrirgreiðslur til handa frumbýlingum eru harla litlar og stórum lakari er hliðstæðar fyrirgreiðslur i sambandi við sjávarútveginn. Einnig má ljóst vera að þótt núverandi bændur þrauki enn um sinn þá þarf enginn að halda að ungt fólk sæki í þann atvinnuveg sem fæsta gefur frídagana og lægst launin. En hvað veldur hversu komið er? Þvi er e.t.v. ekki auðsvarað svo tæmandi sé enda ástæóurn- ar sjálfsagt margar en hér skal þó nokkuð nefnt. Árferðið á hér mikinn hlut að máli eins og oft áður og kemur að vanda misjafnt við. Þá er verðlagsgrundvöllur land- búnaðarins ekki raunhæfur og má þar einkum nefna fjár- magnsliðinn. Bændur eru dreifðir hvað búsetu snertir og eigi vel settir i félagslegu tilliti og þótt þeir eigi margt ágætismanna i for- ystuliði sinu þá er liðið senni- lega yfirleitt heldur gamalt, heldur þreytt og e.t.v. og ein- synt í pólitiskum viðhorfum. Þá ber að nefna það að hin lofs- verða byggðastefna, sem er góður vottur um aukinn skiln- ing þjóðarinnar á gildi dreif- býlisins hefur ekki náð til bænda sem skyldi, sakir þess ð hún hefur einkum gengið út á það að efla dreifbýliskjarnana en ekki hið eiginlega dreifbýli. Sem dæmi um þetta vil ég geta þess að hér í Þingeyjarsýsiu er verið að reyna að koma upp graskögglaverksmiðju og er áhugi bænda mikill fyrir þeirri framkvæmd, enda vitað að hún yrði mikil lyftistöng fyrir land- búnaðinn í héraðinu og auk þess gjaldeyrissparandi fyrir- tæki. Þessari framkvæmd miðar næsta lítið sakir fjár- magnsskorts þótt ekki muni hún nú kosta meira en H —‘A togari. Hins vegar hef ég ekki orðið þess var að fjármálalega fyrirgreiðslu skorti ef dreif- býliskjarnarnir hér við sjávar- síðuna vilja fá nýtt fiskiskip og er það út af fyrir sig góðra gjalda vert en sýnir þó að mis- jafnt er að staðið. Hvað skal nú gera land- búnaðinum til framdráttar get- ur ménn auðvitað greint á um en í þvi sambandi vil ég drepa á nokkur atriði. Þar sem stefnan í land- búnaðarmálum hefur verið of reikul á undanförnum árum og áratugum ber að marka hana á mun ákveðnari hátt en verið hefur með framtíðaráform i huga. Verðlagsgrundvöll land- búnaðarins verður að taka til gaumgæfilegrar endurskoð- unar og byggja hann upp á raunhæfari hátt en nú er gert. Um niðurgreiðslur á land- búnaðarvörum vil ég segja það að þótt þær hafi löngum verið notaðar sem nokkurs konar allsherjarpatent i sambandi við verðlagsmálin þá tel ég þær mjög óæskilegar nema innan þröngra takmarka. Að minum dómi hafa þær að vissu marki haft óæskileg áhrif á landbúnaðinn, t.d. hafa þær verið misnotaðar og einnig hef- ur áróðursmönnum reynst auð- velt að telja fólki trú um, að þær séu aðeins i þágu bænda, og hefur það reynst þeim lítill greiði. Mun betri leið en niður- greiðsluaðferðin finnst mér að lækka tilkostnaðinn á búrekstr- inum með lækkun á rafntagni og eftirgjöf tolla á innfluttum rekstrarvörum svo eitthvað sé nefnt. Afurðalánin þurfa auð- vitaó að hækka og söluskatt á kjöti ætti skilyrðislaust að leggja niður. Margt fleira mætti nefna í þessu sambandi þótt hér verði látið staðar numið að sinni. Ég vil aðeins að lokum vekja athygli á þvi að án landbúnaðar getum við ekki þrifist í þessu landi. Laxamýri, 28. febr. 1977. V'igfús B. Jónsson. Atvinnuveg- ur í hættu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.