Morgunblaðið - 12.06.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. JUNÍ 1977
23
Sextugur:
Hermann Guðmunds
son póst- og símstjóri
Sextugur er í dag Hermann
Guðmundsson, póst og símstjóri á
Akranesi og fyrrum á Súganda-
firði.
Hann er Súgfirðingur , fæddur
í Botni, Súgandafirði, ólst þar upp
til 10 ára aldurs, fluttist þá til
Suðureyrar og átti þar heimili til
ársins 1974, er hann fluttist til
Akraness og gerðist þar póst og
símstjóri.
Foreldrar hans voru Guðmund-
ur Ág. Halldórsson og Sveinbjörg
Hermannsdóttir, bæði Vestfirð-
ingar.
Menntun sina sótti Hermann
sem unglingur í Núpsskóla og sið-
ar í Samvinnuskólann. Hann er
mikill félagshyggjumaður, og tók
þar af leiðandi þátt í ótal félaga-
samtökum á Suðureyri. Hann er
góður gamanleikari og lék mörg
stór hlutverk í leikritum, sem
Súgfirðingar léku á Suðureyri og
víða um Vestfirði. Átti hann mjög
gott með að koma fólki i létt skap.
Auk starfa sinna sem simstjóri,
rak Hermann bókaverzlun og
hafði á boðstólum allskonar gjafa-
vörur, einnig annaðist hann sölu-
skrifstofu Flugfélags Islands á
Suðureyri frá 1965 og þar til hann
fluttist brott.
Hann var í hreppsnefnd Suður-
e^tarhrepps frá 1946—1966, þar
af oddviti í 8 ár. Formaður
Sjúkrasamlags Súgfirðinga frá
stofnun þess og þann tíma sem
það starfaði. Einnig sat hann í
sóknarnefnd, skólanefnd og fleiri
nefndum og stjórnum ýmissa
félaga, sem of langt yrði upp að
telja.
Á þessari upptalningu sést, að
Hermann hefir verið gagnlegur
mjög sinni heimabyggð og vann
— Hindsgavl
Framhald af bls. 38
einhvers gamals og góðs að
gæta og hún sér, að hún eykur
gildi heimsmenningarinnar
með því að gera það, þá veit
hún, að hún á að halda áfram að
vera þjóð, hversu litlu sem hún
kann að geta áorkað á veraldar-
visu.
Fimmtíu þátttakendur frá
öllum norðurlöndum sátu ráð-
stefnuna gerðu mjög góðan róm
að erindum þeim er flutt voru.
Tveir Islendingar voru meðal
þeirra auk frummælanda, for-
maður og framkvæmdastjóri
Norræna félagsins, Hjálmar
Ólafsson og undirritaður en
þeir voru gestir danksa félags-
ins á ráðstefnunni. Ráðstefn-
unni stjórnaði Frantz Wendt
fv. aðalritari Norðurlandaráðs.
Norrænu félögin á öllum
norðurlöndum vinna að því, á
þessu 25. afmælisári Norður-
landaráðs, að kynna starfsemi
þess og var ráðstefna danska
félagsins sannarlega gott fram-
lag til þeirrar kynningar.
Jónas Eysteinsson
— Hertar
aðgerðir
Framhald af bls. 40
vanrækslu ganga frá greiðslu en
aðeins örfáir kjósa að senda málin
til dómsmeðferðar.
Reyndin hefur verið sú, að sekt-
ir hafa verið lítið hærri hjá saka-
dómi ef málin hafa gengið þá leið
en sektirnar hefðu orðið, ef
afgreiðslu málanna hefði lokið
hjá lögreglunni. Nú stendur til að
breyta þessu og hækka sektirnar
verulega hjá sakadómi ef sekt
þykir sönnuð og dómur fellur í
málinu.
— Útflutningur
. Framhald af bls. 40
inn gæti orðið íslendingum mikil-
vægur í framtiðinni og ætlaði
Hampiðjan að leggja áherzlu á
hann. Meðal annars myndi fyrir
tækið taka þátt i sjávarútvegssýn-
ingu í Halifax í Kanada í haust.
tilbob
á framköllun
A___________
örugglega það bezta
_ .2________________
hann hér oft langan og erilsaman
vinnudag, og kom miklu i verk.
Frágangur hans á öllum skjölum
og reikningum var til fyrirmynd-
ar, einstaklega snyrtilegur og
vandaður. Lítið þorp, sem hefir
slíkan úrvalsmann innan sinna
vébanda, og getur vegna félags-
lyndis hans og þegnskapar, leitað
til hans hvenær sem liggur, er vel
sett. Drenglund og rettsýni og
ásköpuð prúðmennska fylgja Her-
manni hvar sem hann fer.
Kona Hermanns er Þórdís
Ólafsdóttir, einnig Súgfirðingur.
Hún hefir búið manni sínum
myndarlegt heimili og hefir oft
verið gestkvæmt hjá þeim. Þau
hafa eignast fimm börn: Sólrúnu,
símastúlku í Reykjavík, Svein-
björgu, hjúkrunarkonu, frú í
Reykjavik, Herdísi, frú í Þorláks-
höfn, Guðmund Óskar, kaupfél-
agsstjóra á Suðureyri og Halldór
Karl, nemanda í Verzlunarskóla
íslands.
Að lokum vil ég flutja Her-
manni sextugum, heillaósk frá
okkur hjónum og börnum okkar,
sem hann hefir alltaf sýnt ein-
staka velvild, og þökkum við hon-
um allar ánægjulegu samveru-
stundirnar og vináttuna. Veit ég
aó margir vina hans á Suðureyri,
vildu gleójast með honum í dag.
Stína.
Ný litfilma INTERCOLOR II: MeS hverri framköllun fáið þér án nokkurs aukagjalds nýju Intercolor II litfilmuna sem tryggir bjartari og betri litmyndir en, nokkru sinni fyrr. Myndaalbúm Og hér er aukabónus: Þér fáið I hvert sinn mjög skemmtilegt vasamyndaalbúum án aukagjalds.
A
Allar myndir framkallaðar á PrfPatt nýja matta pappírinn sem atvinnuljós myndarar nota til að tryggja bezta árang- ur. II Sjáið verðlistann: ViS bjóöum ySur örugglega beztu kjörin og beztu þjónustuna. Og vi8 ábyrgjumst þa8l Framköllun 20 myndir. VerSlisti me8 litfilmu og vasamynda- albúmi ínnifaliS: Venjulegt búðarverð: 2 890 0KKAR VERÐ: 2.450
®/»rt
'Ur.
Verzlið hjá okkur, það borgar sig
myrn
ASTbOR t
HJIrvHF
H,
Hafnarstræti 17og Suðurlandsbraut 20
Vatnsfirði
FERÐIST um Vestfirði
og njótið hinnar stórbrotnu náttúru, sem þeir hafa upp á að
bjóða. FLÓKALUNDUR er tilvalinn dvalarstaður fyrir þá, sem
vilja kynnast Vestfjörðum og skoða sig þar um f nokkra daga.
Veðursæld er mikil. í vatninu er silungsveiði. Laxveiði möguleg
með fyrirvara. — Bjóðum upp á góð 1 og 2ja manna herbergi,
með baði. Ennfremur fallega svftu. Góður matur. Fjölbreyttur
matseðill. Setustofa með sjónvarpi og bókasafni. — Sfmi um
Patreksfjörð.
Vatnsdalur er fallegur kjarri vax-
inn dalur inn af Vatnsfirði og
Vatnsfjörður er friðlýst land. Ath.
— Á Vestfjörðum er líka „hring-
vegur". Hægt er að aka um ísa-
fjarðardjúp í annarri hvorri leið-
inni. Vestfirska hálendið er tilvalið
fyrir þá, sem vilja vera lausir við
örtröð ferðamannastraumsins. Fyr-
ir göngugarpa er úr mörgu að
velja, svo sem: Horna-tær, Kald-
bak og fjöllin milli Arnarfjarðar og
Dýrafjarðar — (Vestfirsku Alpana).
Aðeins Vi klst. akstur til hinna
fallegu Dynjandi-fossa, 2ja klst.
akstur á Látrabjarg, sem nú er
iðandi af lífi milljóna bjargfugla.
Hægt er að aka á öllum bílum
alveg út á bjargið að vitanum. 15
mín. gangur á Ritugjá. 1 klst.
akstur á Rauðasand og örstutt af
akveginum að Sjöundaá. Heim-
sækið sjávarþorpin í hinum fallegu
fjörðum. Flóabáturinn Baldur
kemur 4 sinnum í viku að Brjáns-
læk, hann tekur 1 2— 1 3 bifreiðar.
Bæði er hægt að stytta sér akstur-
inn og heimsækja Breiðafjarðar-
eyjar.
Velkomin í Flókalund