Morgunblaðið - 23.06.1977, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1977
30-40 skip til
loðnuveiðanna
EFTIR ÞEIM upplýsingum að
dæma sem Morgunblaðið hefur
aflað sér er útlit fyrir að 30—40
skip muni leggja stund á loðnu-
veiðar f sumar, en það eru mun
fleiri skip en stunduðu veiðarnar
á slðasta ári, en þær gengu þá
mjög vel eins og kunnugt er og
heildaraflinn varð um 100 þús-
und lestir, og útflutningsverð-
mæti afurðanna hátt á þriðja
miVjarð.
Rannsóknarskipið Árni Frið-
riksson mun jafnvel leggja af stað
í loðnuleit um helgina undir
stjórn Hjálmars Vilhjálmssonar
fiskifræðings. Loðnumiðin undan
Vestur- og Norðurlandi hafa að-
eins verið könnuð í vor á Bjarna
Sæmundssyni en þá var Eyjólfur
Friðgeirsson fiskifræðingur um
borð. Undan Vestfjörðum varð
nokkuð vart við loðnu, en hún var
dreifð. Uti fyrir Norðurlandi
komst rannsóknarskipið lftt inn á
veiðisvæðið sökum íss. Að undan-
förnu hefir átt verið af suðvestri
á þessum slóðum og ísinn því rek-
ið norður á bóginn.
Skákmót á
Lækjartorgi?
SKÁKFÉLAGIÐ Mjölnir i
Reykjavík hefur óskað eftir því
að fá leyfi til að halda auglýsinga-
skákmót á Lækjartorgi til fjár- ■
öflunar fyrir unglingastarfsemi
félagsins. Er ætlun Mjölnis að
halda skákmótið föstudagana 12.
eða 19. ágúst. n.k. Borgarráð hef-
ur heimilað Mjölni að halda um-
rætt mót en samþykki lögreglu-
stjóra er áskilið.
Alstigi hvarf
ÁLSTIGI hvarf frá baklóð Bald-
ursgötu 19 um siðustu helgi. Stig-
inn er tvöfaldur. Þeir sem vita um
hvarf stigans eða hvar hann er nú
niðurkominn eru beðnir að hafa
samband við rannsóknarlög-
regluna í síma 21100.
Athugasemd
MORGUNBLAÐINU barst I gær eftir-
farandi athugasemd frá fulltrúum
Rithöfundasambands íslands, sem
sátu ársfund Norræna rithöfunda-
ráðsins:
Vegna rangra frétta I fjölmiðlum af
ársfundi Norræna rithöfundaráðsins
1 3— 14. júnf s.l. vilja fulltrúar Rithöf-
undasambands íslands, sem sátu fund-
inn, taka fram eftirfarandi:
1 Sigurður A. Magnússon svaraði
spurningum sænska fulltrúans Bengt-
Erik Hedins varðandi svonefnt VL-mál.
2 Spurningar Hedins komu fram
undir liðnum „önnur mál" án vitundar
íslensku fulltrúanna.
3. Engar ályktanir voru gerðar eða
samþykktir um þetta mál
4. Umræður um áðurnefnda fyrir-
spurn tóku um 5— 1 0 mínútur af tíma
þingsins sem stóð I 2 daga og hafði á
dagskrá yfir 20 mál þar sem rædd
voru brýn hagsmunamál rithöfunda á
Norðurlöndum
Reykjavlk, 22. jún! 1977
Ingólfur Jónsson
frá Prestsbakka,
Vilborg Dagbjartsdóttir.
Ása Sólveig.
Ragnar Aðalsteinsson.
Kínverskt flutn-
ingaskip lestar
ál í Straumsvík
KÍNVERSKT flutningaskip, Dongshan, lestar nú 3000
lestir af áli í Straumsvíkurhöfn. Þetta magn kaupa
Kínverjar af ísal í ár. Skipið kom til landsins í byrjun
vikunnar en gat ekki lagst að bryggju strax vegna
verkfalla í Álverksmiðjunni en skipið lagðist að í gær
er hafnarverkfalli hafði verið aflýst. Dongshan er alls
11.300 lestir að stærð og með fjölmenna áhöfn.____
Rannsóknarlögregla ríkisins tekur til starfa í næstu viku;
Annast aðeins rannsókn-
ir meiriháttar brotamála
— en lögreglustjórar annast smœrri málin
RANNSÓKNARLÖGREGLA
rfkisins tekur formlega tii starfa
1. júlf n.k. eða föstudaginn í
næstu viku. Undirbúningsvinna
Ljósm.: Hermann Stefánsson.
RIGNING OG SKEMMTIFERÐASKIP — Tvö skemmtiferðaskip, Sagafjord og
Maxím Gorkí, lágu á ytri höfninni í Reykjavík í gærmorgun og eins og oft áður
þegar skemmtiferðaskip eru í Reykjavík opna veðurguðirnir flóðgáttir sínar og
regnið steypist niður. Á myndinni sjást skipin tvö, Sagafjord t.h. og einnig
Akraborgin eins og lítill bátur á siglingu meðfram þeim.
er f fullum gangi og að henni
vinna Hallvarður Einarsson rann-
sóknarlögreglustjóri, starfsmenn
dómsmálaráðuneytisins og ný-
ráðnir deildarstjórar við Rann-
sóknarlögregluna, Þórir Oddsson,
örn Höskuldsson og Erla Jóns-
dóttir, en þeir hafa nú þegar byrj-
að þar störf.
Rannsóknarlögregla ríkisins
mun aðeins hafa með höndum
rannsóknir meiri háttar afbrota-
mála jafnt á höfuðborgarsvæðinu
sem utan þess ef þörf er talin á.
Hins vegar verða starfandi sér-
stakar rannsóknarlögregludeildir
við embætti lögreglustjóra á
höfuðborgarsvæðinu og nágrenni,
þ.e. 1 Reykjavík, Kópavogi,
Hafnarfirði og Kjósasýslu, Kefla-
vík, Grindavik og Gullbringu-
sýslu. Þessar deildir munu annast
rannsóknir á minni háttar málum
svo sem umferðarslysum og um-
ferðarlagabrotum, brotum á lög-
reglusamþykktum, brotum á
áfengislögum öðrum en áfengis-
smygli, brotum á lögum um til-
kynningu aðseturskipta og aðra
smærri málaflokka, sem nánar
verða ákveðnir i reglugerð, sem
gefin verður út um mánaðamótin.
Ef fólk verður í vafa hvort það
á að snúa sér til Rannsóknarlög-
reglu rikisins eða rannsóknar-
deilda lögreglunnar með mál sín
eftir 1. júlí getur það haft sam-
band við næstu lögreglustöð og
verða þar veittar allar upplýsing-
Þörungaverksmiðjan:
Tilraun með áframhaldandi
rekstur næstu 3 mánuðina
Sveitarfélögin taka
BRÁÐABIRGÐALAUSN hefur
fundist á vandamálum Þörunga-
verksmiðjunnar að Reykhólum,
þannig að nú hefur verið tryggt
að verksmiðjan verður rekin í
þrjá mánuði 1 sumar f tilrauna-
skyni. Sveitarfélögin sem mestra
hagsmuna eiga að gæta, Gufudals-
og Reykhólahreppar, taka við
rekstri verksmiðjunnar en ríkið
tryggir hins vegar fjármagn til
rekstursins.
Vilhjálmur Lúðvíksson,
stjórnarformaður verksmiðjunn-
ar, tjáði Morgunblaðinu í gær, að
þegar í aprílmánuði sl„ þegar fyr-
ir lá úttekt sérfræðinganefndar á
rekstri og framtiðarmöguleikum
við rekstrarhliðinni
verksmiðjunnar, hefði stjórn
hennar skilað tillögum til iðnaðar-
ráðuneytisins um hvernig staðið
skyldi að starfrækslu hennar
áfram. Hins vegar hefðu engin
svör borizt frá rikisvaldinu við
þessum tillögum, og því farið svo
að stjórnin sá sig tilneydda að
segja upp öllu starfsliði og loka
verksmiðjunni.
Vilhjálmur sagði, að þegar
heimamenn hefðu orðið þess
áþreifanlega varir hvernig mál-
um var komið, hefðu þeir myndað
með sér samstarfsnefnd um
vandamál þörungaverksmiðjunn-
ar og gert út sendimenn á fund
ríkisstjórnarinnar. Væri framan-
greind lausn niðurstaða þeirra
viðræðna, en áframhaldandi
rekstur verksmiðjunnar nú — svo
langt sem hann næði — væri
byggður á tillögum stjórnar verk-
smiðjunnar.
Að því Vilhjálmur sagði verður
t.d. þangöfluninni nú hagað með
þeim hætti er lagt hefði verið til í
þessum tillögum en þar var byggt
á þeirri reynslu sem fékkst við
þangöflunina sl. haust. 1 þeirri
bráðabirgðarlausn sem nú hefði
fengizt væri einnig gert ráð fyrir,
að ríkisvaldið tryggði verksmiðj-
unni rekstrarfjármagn á þessu
tímabili en stefnt væri að því að
framleiðslan í sumar gæti staðið
undir rekstrinum. Ef einhver
Framhaid á bls. 24.
Fischer hringdi í
Spassky í Reykja-
vflí og kvadst vilja
tefla á nýjan leik
BOBBY Fischer hringdi f Boris Spassky meðen sá slSarnefndi var vegna
veikinda frá einvlgi þeirra Horts I Reykjavik. í simtalinu gaf Fischer
Spassky ýmis rá5 og gaf jafnframt f skyn að henn leitaði nú fœris á að
koma fram á sjónarsviðið ef aðstæður byðust aftur. Einar S. Einarsson,
forseti Skáksambands íslands, sagði I viðtali við Mbl. f gser, að þetta
hljóð frá Fischer gæfi þeim skáksambandsmönnum nokkrar vonir um
að heimsmeistarinn fyrrverandi Ihugaði nú að hefja taflmennsku á ný
og þá væri Island auðvitað góður staður fyrir hann til að byrja á.
Sem kunnugt er bauð Skáksam- Auk Fischers verður heimsmeist-
band Islands Fischer hingað til aranum Karpov boðið til mótsins.
lands og sagði Einar að stöðugt byði
Fischers farseðill f Chicago. Þá verð-
ur Fischer sent formlegt boðsbréf á
næstunni um þátttöku I næsta
Reykjavlkurskákmóti. „Við erum
svona að gæla við þá hugmynd. að
Fischer láti verða af þvl að nota
farseðilinn og það leiði ef til vil til
þess að hann vilji tefla hér á næsta
ári," sagði Einar.
Spassky hefur látið þau orð falla, að
hann sé fús að koma til mótsins ef
heimsmeistarakeppnin standi þar
ekki f vegi Þá verða Hort, Lubejevic
og Larsen einnig send boðsbréf. en
til mótsins verður boðið að minnsta
kosti 8 erlendum skákmeisturum.
Nefndi Einar einnig til þá Browne og
Miles og einnig hefur Timman lýst
sig fúsan til að tefla hér á landi.
Fiacher
Spassky