Morgunblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JUNl 1977
19
Loðnuvertfð 1977 — fullhlaðið skip kemur til hafnar,
losun að ljúka úr öðru.
• 3) Vöruhafnir.
Hafnir, þar sem vöruumferð er
yfirgnæfandi rekstrarþáttur
(Reykjavíkurhöfn, sem raunar er
einnig fiskihöfn að hluta til).
0 —4) Iðnaðarhafnir.
Hafnir við iðnaðarfyrirtæki,
þar sem vöruumferð er svo til
eingöngu háð framleiðslu viðkom-
andi fyrirtækja. (Dæmi: höfnin
við álverið í Staumsvik og
væntanleg Grundartangahöfn).
Hlutur rfkisins.
Hlutur ríkisins í stofnkostnaði
hafna er þvi mjög mismunandi.
Hafnir í eigu sveitarfélaga fá allt
að 75% stofnkostnaðar greiddan
úr ríkissjóði. Hins vegar greiðir
rikissjóður allan stofnkostnað
landshafna og ferjubryggja.
Reykjavíkurhöfn fær hins vegar
ekkert rikisframlag vegna
hafnarframkvæmda. Hér gætir
þvi nokkurs misræmis milli hafna
innbyrðis — að því er varðar
stofnkostnaðarhluta ríkisins, sem
ýmist er enginn, hluti eða allur.
Vörugjöld gegndu áður veiga-
miklu hlutverki i tekjuöflun
hafna, og gegna enn nokkru.
Þessi tekjupóstur hefur hins veg-
ar skroppið verulega saman sök-
um þess að vöruflutningar, innan-
lands, hafa færst yfir á þjóðvega-
kerfið. Þessi staðreynd, sem og
verðbólguvöxtur olli þvi, að fjöl-
margar hafnir voru um tima rekn-
ar með verulegum halla, sem
ásamt stofnkostnaðarhluta
sveitarfélaga í nýframkvæmdum,
skerti framkvæmdagetu þeirra á
öðrum sviðum. Sveitaríélög, sem
stóðu undir fiskihöfnum, voru þvi
við lakara borð en hafnlaus
sveitarfélög á ýmsan hátt, þrátt
fyrir þýðingu fiskihafna i þjóðar-
búskapnum. Ur þessu hefur að
nokkru verið bætt, með leiðrétt-
um gjaldskrám hafna, eftir að
stofnað var Hafnarsamband
sveitarfélaga, er unnið hefur
mjög þarft verk á undanförnum
árum. Enn eru þó nokkrar fiski-
hafnir reknar með halla, þó af sé
það ástand, sem ríkti fyrir fáum
árum. Sf.
(Heimild ,,Fjárhagur og gjald-
skrá hafna/Gylfi ísaksson og Ars-
skýrsla SH).
9000 fermetrar
húsnæðis til heilsu-
gæzlu í byggingu
9000 ferm. húsnæði, i hönnum og
frumathugun sé um 2500 ferm. hús-
næði. i hönnun og frumathugun sé um
2500 ferm húsnæði. sem enn hefur
ekki verið veitt fé til á fjárlögum. Sam-
tals er gert ráð fyrir, segir i skýrslunni.
að húsnæðisþörf fyrir heilsugæzlu á
öllu landinu sé 25 400 ferm., þar af
18.000 ferm utan Reykjavikur og
7 400 ferm. i Ri ykjavlk.
í skýrslunni segir að I árslok 1976
hafi allar stöður lækna, hjúkrunarfræð-
inga og Ijósmæðra verið setnar, sam-
tals 103 stöður. En til þess að lög um
heilbrigðisþjónustu komi að fullu til
framkvæmda, megi gera ráð fyrir
150—160 stöðum lækna, hjúkrunar-
fræðinga og Ijósmæðra. en að sjálf-
sögðu sé hér ekki um nýjar stöður að
ræða. heldur að meginhluta tilfærslu á
læknum úr almennu læknisstarfi til
heilsugæzlustarfa og frá hjúkrunar-
fræðingum úr heilsuverndarstarfi til
heilsugæzl ustarfa.
Nú eru starfandi (um sl áramót) 50
mismunandi sjúkrastofnanir með
4030 legurúmum.
í skýrslunni segir ennfremur: ísland
hefur nú komizt I tölu þeirra þjóða, þar
sem aukin útgjöld til heilbrigðismála
ganga ekki til þess að lengja ævi
manna eða lækka dánartölu ungbarna,
heldur til þess að fyrirbyggja sjúk-
dóma, leita þá uppi og reyna að lækna
þá. en síðast en ekki sizt til þess að
auka og bæta þjónustu við þá, sem
haldnir eru langvarandi og eða ólækn-
andi sjúkdómum og meinum og þar
eru án efa stærstu hóparnir, geðsjúkir,
aldraðir og þroskaheftir."
Miklir far-
þega-, bíla-
og vöruflutn-
ingar með
Herjólfi
Samgöngur milli lands og Eyja
hafa batnað stórkostlega með hin-
um daglegu og skjótu ferðum
Herjólfs rríilli Eyja og Þorláks-
hafnar og mikið hefur verið um
bílaflutninga með skipinu bæði
hjá heimamönnum og fastalands-
búum. öruggar daglegar ferðir
milli lands og Eyja eru nýnæmi,
þvi oft hefur veður hamlað flug-
samgöngum dögum saman. Síðan
i maílok hefur Herjólfur flutt um
4000 farþega, um 1000 bíla og um
600 tonn af vörum.
Herjólfur að koma til Eyja með um 400 farþega og tæplega 50 bíla, en
bflaþilfarið fylltist og varð að taka nokkra bfla á efra þilfar. Ljósmynd
Mbl. Sigurgeir.
—
AUGLtSlNGADEIlDIN/ LX>SM S ÞORGEIRSSON
eiga að vera fallegir fyrir
POSTSENDUM PONTUNARSIMI: 273 09 BEINLINA
Austurstræti 10
sími: 27211
1 36-40 BRÚNIR 2.990-
2 36-41 SVARTIR 6.440-
3 35-41 BRÚNIR 5.450-
4 35-41 HVÍTIR 1.875-