Morgunblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1977 41 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11 , FRÁ MÁNUDEGI ' ‘thyi/JsunPK-atá'iJ ir var að ég þurfti að leita hjálpar að Vífilsstöðum og var búin að vera lengi slæm af astma, sem mikil andþrengsli fylgdu, sérstaklega á nóttunni og á morgnana. Þetta gekk svo undra vel þarna á spital- anum að ég var útskrifuð eftir tvær vikur, og siðan er ég eins og ný manneskja. Því langar mig að nota tækifær- ið og þakka læknum og öllu hjúkrunarfólki og starfsliði á lungnadeild fyrir þessa góðu hjálp og elskulegheit í minn garð. En ég get ekki svo horfið frá þessum hugieiðingum mlnum að ég ekki nefni prestinn í Garðabæ, séra Braga Friðriksson. Honum vil ég þakka fyrir hans hlýja handtak þegar hann kom inn i stofuna til mín og beiddi fyrir mér og spurði mig hvort ég væri ekki svo hress að geta komið nið- ur í setustofu kl. 20.15, þá yrði hann með helgistund, og ég kvað svo vera. A tilteknum tima fylltist stofan af fólki, sumt i hjólastólum og sumt með súrefniskútana drag- andi með sér. Þetta var indæl stund. Einnig var þar söngvari og undirleikari, sem stóðu báðir vel I sinu stykki. Einnig vil ég þakka Valborgu Bentsdóttur fyrir henn- ar skemmtilegu þætti, Hin gömlu kynni, sem hún skemmtir okkur eldra fólkinu með í útvarpinu. Vona ég að hún verði með þessa þætti áfram. En ég ætla ekki að þakka fyrir leikritið, sem sjón- varpið flutti okkur á annan dag hvitasunnu. Finnst mér það vægast sagt smekkleysa að sýna svona leikrit um hátiðar. Þökk fyrir birtinguna. Guðbjörg Jónasdóttir.** 0 Hver er réttur leigjenda? „Kæri Velvakandi. Mig langar að biðja þig að koma á framfæri nokkrum spurningum fyrir mig: 1. Hafa húseigendur leyfi til að okra á hita og rafmagni til leigjenda sinna eða á ég að orða spurninguna svona: Hafa húseig- endur leyfi frá ríkinu til að taka gjald fyrir að rukka inn hita og sameiginlegt rafmagn af leigjend- um sínum? 2. Eru húseigendur ekki skyld- ugir til að leggja fram reikninga frá hitaveitu og rafmagnsveitu fyrir leigjendur þegar þeir (hús- eigendur) rukka fyrir þessi gjöld? 3. Eru leigjendur skuldbundnir til að greiða í hússjóð eins og um eiganda væri að ræða ofan á topp- húsaleigu og ekkert sameiginlegt fyrir utan hita og gangaljós? Ef svo er á þá ekki að leggja fram fyrir leigjendur reikninga sem sýna I hvað hússjóðapeningarnir fara? 4. Ef sami aðili er leigjandi hjá sama húseiganda um lengri tíma, þrjú til fimm ár, er húseiganda þá ekki skylt að mála ibúðina svona einu sinni á þvi tímabili? A þessum dýrtiðartímum þegar húsaleiga og hiti, rafmagn og sími taka af áttatíu og fimm þúsund króna mánaðarkaupi einar litlar sextiu þúsund krónur, er ekki von til að leigjandinn sé ánægður með að greiða aukagjöld fyrir eitthvað sem hann aldrei sér eða hvað heldur þú, Velvakandi? Ég er for- vitin um hvað félag húseigenda segir um þessi mál. Ekki sýnist vanþörf á að félag leigjenda verði stofnað og er það stór furða að slíkt félag skuli ekki þegar vera til og starfi af fullum krafti. Ein forvitin." Það er rétt að það er undarlegt að ekki skuli hafa verið stofnað eitthvert hagsmunafélag leigjenda, svo fjölmennir sem þeir eru sjálfsagt, en hér vantar greinilega dugandi og framtaks- sama leigjendur til að bæta úr þessum skorti. Þessir hringdu . . / • Ekki útvarpað beint? Kona nokkur, sem kveðst oft hlusta á messur i útvarpi, hafði samband við Velvakanda og spurðist fyrir um það hvers vegna ekki hefði verið útvarpað messu á hinum almenna bænadegi kirkj- unnar í mai-mánuði, þ.e. útvarpað beint. Velvakandi sneri sér með spurninguna til sr. Halldórs S. Gröndal, sem er einn þeirra er sér um að raða niður útvarpsmessun- um og sagði hann að það væri stefna útvarpsins að gefa prestum og söfnuðum úti á landi tækifæri SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Skákþingi Moskvuborgar i ár er nú nýlokið. Sigurvegari varð Zeitlin með 11 v. af 15 möguleg- um, en næstir komu þeir Gutop og Dolmatov með 10 v. Fjórði varð Cehov með 9!4 v. Staðan hér að neðan kom upp á mótinu 1 skák þeirra Gutops, sem hafði hvítt og átti leik, og Kuindzhis. 30. Dh5! — g6, (Ekki gekk 30... h6 vegna 31. Dxe8+) 31. Dxh7+! — Hxh7, 32. Hxe8+ — Kg7, 33. til að vera með útvarpsmessur og gefa hlustendum þannig tækifæri til að heyra þær frá fleiri stöðum en af Stór-Reykjavíkursvæðinu. Sagði sr. Halldór að umrædd messa á bænadaginn hefði verið tekin upp i Lögmannshliðar- kirkju og hefði sr. Pétur Sigur- geirsson vigslubiskup prédikað. Sagði sr. Halldór að ekki væri alltaf hægt að láta efni dagsins koma fram ef messurnar væru þannig hljóðritaðar fyrirfram, eins og verið hefði í þessu tilviki. 0 ójafnar lífeyrisgreiðslur Ekkja: —Mig langar að benda á eina tegund misréttis sem ég hef rekið mig á varðandi lífeyrisgreiðslur til ekkna og ekkla. Ekkja fær aðeins sem svarar 40% tekna eiginmanns síns i ekknabætur er hann fellur frá þótt hún sé með mörg börn á framfæri sínu, en ekkill, fær 60% af tekjum i bætur ef kona hans fellur frá. Hvers vegna ætli þessi mismunur sé? HÖGNI HREKKVÍSI Mér sýnist hann vera í vafasömum félagsskap! — Strjálbýli Framhald af bls. 18 byggða innbyrðis, sem nú til dags teljast nauðsynleg forsenda eðli- legrar og æskilegrar byggða- þróunar. Er það raunar sama sagan og i öðrum landshlutum. Öll þróast þessi mál þó í rétta átt, enda stöðugt viðfangsefni sveitar- stjórna, sveitarstjórnasambanda og þingmanna. Vegagerðin hefur og haldið vei á sinum hlut, þar og annars staðar, miðað við tiltækt fjármagn hverju sinni. Okkar litla þjóð þarf mörgu að sinna i stóru og strjálbýlu landi — og fjárhagsgeta ræður ferð i fram- kvæmdum. En sagt hefur verið að samgöngur séu æðakerfi bæði þjóðlífs og atvinnulifs, og ef svo er, veltur heilsa þjóðarbúsins ekki sízt á því, að þessi farvegur sé góður og greiður. Fullt h ús matar TIL HELGARINNAR: Okkar Leyft verð verð Útb. hangilæri kr. kg. Útb. hangifram- 1790 2T7« partar 1580 TBSflL Reykt rúllupylsa 850 Kálfalæri 545 Kálfahryggir 450 Kálfakótilettur 545 Kindahakk 685 Saltkjötshakk 685 Nautahakk 770 Nautahakk 10 kg 690 Ærhakk 550 Nýtt svinakjöt læri 1075 Svínabógar 1290 T398- Svínakótilettur 1990 2492 Svínahakk 890 T944 Útb. ný lambalæri 1590 tW Lambaschnitzel kr. kg. 1450 Lambagullasch 1380 Nautagullasch 1530 Nauta Roast-Beef 1580 21-2« Nauta T-Bone 980 T2*2 Nauta Grillsteik 730 T54 Nauta Bógsteik 730 754 Nauta Snitchel 1650 2506 2050 ?69«- 733 Nauta Mörbráð Lambaskrokkar I. II. flokkur Lambaskrokkar III. flokkur Ananas 1/1 dós kr. Ferskjur 1/1 dós Aprikósur 1/1 dós Coctail 1/z dós Ananasmauk V2 dós Appelsínur 3 kg. Opið til kl. 7 föstudaga Lokað á laugardögum Laugaicsk 2. REYKJAVIK. simi 3 So 2o 19 21 AUG 76Form 31

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.