Morgunblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.06.1977, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JUNÍ 1977 21 EBE fær frest við Færeyiar Frá Jogvan Arge, Þórshöfn f Færeyjum í gær. FÆREYSKA lögþingið samþykkti á sérstökum aukafundi i gær að fram- lengja bráðabirgðasamn- ing Færeyinga við Efna- hagsbandalagið um fisk- veiðar til 5. ágúst. Samkvæmt tillögu sem Lög- þingið samþykkti er gert ráð fyrir að fiskiskip frá EBE—löndum fái að veiða 1320 lestir af þorski og kolmunna á færeyskum miðum frá 1. júli til 5. ágúst. Á þessum tíma fá skip frá EBE—löndum einnig að veiða það magn sem þau veiddu ekki af því hámarksafla- magni sem gert var ráð fyrir þegar kvótum var úthlutað i april. Sá kvóti nam 2870 lestum. Landstjórn Færeyja hafði lagt til að bráðabirgða fiskveiðisamn- ingurinn við EBE yrði framlengd- ur í einn mánuð eða til 31. júli, en markaðsmálanefnd Lögþingsins lagði til að samningurinn yrði framlengdur til 5. ágúst þannig að hjá því yrði komist að kalla þyrfti Lögþingið aftur saman til annars aukafundar. Aukafundi Lög- þingsins iauk í dag og þingið verð- ur ekki kallað aftur saman fyrr en 29. júlí. Tillagan um framlengingu fisk- veiðisamningsins við EBE var samþykkt með 22 atkvæðum. Lög- þingið samþykkti hins vegar ekki tillögu frá langstjórninni þess efnis að landstjórin og markaðs- nefnd Lögþingsins fengju heim- ild til þess framvegis að fram- lengja bráðabirgða fiskveiðisamn- inga við önnur lönd. Einvígi Spasskys og Portischs að byrja EINVÍGI Boris Spasskys frá Sovétrfkjunum og Lajos Port- ischs frá Ungverjalandi í keppn- inni um réttinn til að skora á heimsmeistarann f skák hefst í Genf 1. júlí. Sextán skákir verða tefldar og leikreglur verða hinar sömu og f einvígi Spasskys og Horts f Reykjavfk. Einvfgið er haldið á vegum svissneska skáksambands- ins og fer fram í Hotel Mediterr- anée. Verðlaunin eru 25.000 sviss- neskir frankar og sigurvegarinn fær fimm áttundu verðlaunanna. Hitt einvígið um áskorandarétt- inn, einvígi Viktors Korchnois og Lev Polugayevskys, fer fram í Evian handan Genfarvatns á veg- um franska skáksambandsins. Dómarinn í einviginu þar verður Lothar Schmidt frá Vestur- Þýzkalandi, en dómari í einvíginu í Genf verður Harry Golombek frá Bretlandi. Úrslit fyrri einvigja urðu þau Comecon f jallar um orkumál Varsjá, 22. júnf. Reuter. ORKUMÁL eru efst á baugi á árlegum fundi æðstu manna markaðsbandalags Austur- Evrópuríkjanna (Comecon) er hafinn er f Varsjá og lögð hefur verið fram áætlun sem gerir ráð fyrir því að kjarnorkuframleiðsla aðildarlandanna verði stóraukin. Samkvæmt áætluninni verður kjarnorkuframleiðsla aðildar- landanna aukinn um rúmlega helming með hverri nýrri fimm ára áætlun. Samþykkt áætlunar- innar verður liklega aðalverk fundarins. Óviss framtíð oliu- birgða vekur ugg í Comecon—löndum, aðallega smærri aðildarríkjunum. Þau fá olíu sina aðallega frá Rússum. að Spassky vann Hort í Reykjavik með 8i4 vinningi gegn 7 Vi, Portisch vann Bent Larsen i Rotterdam með 614 vinningi gegn 3'A, Korchnoi vann Tigran Petros- ian með 6VS vinningi gegn 5V4 í Lucca á ítaliu og Polugayevski vann Henripue Mecking í Luc- erne i Sviss með 6V4 vinningi gegn 5V4. Harry Golombek segir i skák- dálki sínum i The Times að flestir spái þvi að Korchnoi sigri Polugayevski þar sem hann sé betri skákmaður. Hins vegar telur hann ekki eins auðvelt að spá þvi Framhald á bls. 24. Myndin sýnir bandarfska blaðamanninn Robert T. Toth við komuna til Los Angeles um helgina ásamt fjölskyldu sinni, en hann sat f 13 klukkustundir f yfirheyrslu hjá sovézku leyniþjðnustunni KGB með njósnaákæru yfir höfði sér. Nýr loft- ferðasamning- ur gerður London, 22. júnf. AP. BANDARtKJAMENN og Bretar vinna nú að endanlegri úrvinnslu samkomulagsins um nýjan loft- ferðasamning milli þjóðanna. sem undirritaður var f dögun í gær rúmum klukkutfma eftir að Bermudasamkomulagið, sem gilt hafði í 30 ár, rann út. Var ástand- ið orðið tæpt og spennan svo mik- il, að TWA — farþegaþota, sem var að koma til London frá New York sveimaði yfir Heathrowflug- velli f tæpan klukkutfma, áður en flugstjórinn fékk tilkynningu um að hann gæti lent og afgreiðsla yrði með eðlilegum hætti. í stuttu máli segja samninga- menn að niðurstöður séu að þá' leió, að hinn nýi samningur ætti að leiða til lægri fargjalda á flug- leiðinni milli Bretlands og Banda- ríkjanna og hagkvæmari reksturs flugfélaga á þeirri leið. Næst þetta með þvi að hafa hemil á þeim sætum, sem í framboði eru, en meðalsætanýting á þessari leið er aðeins um 60%. Ekki vildu samningamenn þó segja um hve mikill sparnaðurinn gæti orðið. Helzti ágreiningurinn í þessum samningum var um eftirlit með flugi og frjálsa samkeppni, sem Bandarikjamenn lögðu höfuð- Framhald á bls. 24. Kaupkröfur bundnar verðlagi í Bretlandi London, 22. júni. Reuter. LEN Murray fram- kvæmdastjóri brezku verkalýðssamtakanna Trades Union Congress (TUC) skýrði frá því í gær- kvöldi að Denis Healey f jármálaráðherra væri sammála verkalýðsleiðtog- um um að ekki væri heppi- legt að halda kaupgjaldi áfram í jafn föstum skorð- um og gert hefur verið undanfarin tvö ár. Kom þetta fram i ávarpi Murr- ay við upphaf lokaviðræðna leið- toga TUC við viðkomandi ráð- herra í London um nýja kjara- samninga, sem taka eiga gildi 1. ágúst. Tók Murray það fram að ráðherrann hefði lagt áherzlu á þörfina fyrir að varast spreng- ingu í launakerfinu. Murray sagði að verkalýðssam- tökin væru reiðubúin til að taka að sér að halda launakröfunum í skefjum, ef rikisstjórnin gæti sannfært þau um að verðlagi yrði haldið niðri. Verkalýðsfélagar hafa lagt hart að leiðtogum sinum að ná nú samningum um verulegar kaup- hækkanir, jafnframt þvi sem tryggt verði að verðlag haldist óbreytt. Telja þeir sig hafa staðið nógu lengi undir tilraunum ríkis- stjórnarinnar til að hamla gegn efnahagsörðuleikunum. Kaup- gjaldi hefur verið haldið niðri í Bretlandi undanfarin tvö ár. Fyrra árið voru kauphækkanir takmarkaðar við 10%, en undan- farið ár máttu hækkanirnar ekki fara yfir 4V4%. Holland: Öryggiseftirlit með Mólúkkum hert Portiseh Haag, 22. júnf. Reuter. t YFIRLVSINGU frá hollenzku stjórninni í dag segir, að framveg- is verði Suður-Mólúkkum ( Hol- landi ekki leyft að halda uppi sérstökum varðsveitum, sem hafa á undanförnum árum annazt lög- gæzlu meðal hinna 40 þúsund Suður-Mólúkka, sem búsettir eru Skorað á Carter að tryggja Solzhenitsyn-sjóðnum starfsfrið Moskvu, 22. júnf AP. FORSTÖÐUMENN sjóðs þess, sem kenndur er við Nóbelsskáld- ið Alexander Solzhenitsyn og hef- ur þanu tilgang að styrkja fjöl- skyldur andófsmanna, er orðið hafa fyrir barðinu á sovézkum yfirvöldum, hafa skorað á Jimmy Carter Bandarfkjaforseta að beita áhrifum sfnum til að sjóðurinn fá: starfsfrið. Segja þeir að yfir- völd hindri eftir megni að peningasendingar frá útlöndum komist til skila og ofsæki þá, sem annist starfsemina þar eystra, með þeim afleiðingum að sjóður- inn sé nú að komast á heljarþröm. Á fundi, sem núverandi fram- kvæmdastjóri sjóðsins, málfræð- ingurinn Tatjana Khodorvic, hélt með fréttamönnum 1 dag, að við- stöddum Andrei Sakharov, kom meðal annars fram að sjóðurinn hefur greitt 700 bágstöddum fjöl- skyldum andófsmanna andvirði um það bil 68 milljón islenzkra króna. Sjóðurinn var stofnaður fyrir þremur árum og var fram- kvæmdastjóri hans til skamms tíma Alexander Ginzburg, náinn vinur Solzhenitsyns, en hann var handtekinn í febrúarmánuði s.l. Fé þaó, sem sjóðurinn hefur haft til umráða, er að langmestu leyti komið frá Solzhenitsyn. Tatjana Khodorvic heldur því fram að sovézk yfirvöld hafi þeg- ar lagt hald á mikið fé, auk þess sem fáránlegir skattar séu lagðir á greiðslurnar er þær berast er- lendis frá. Hafi Solzhenitsyn fyrir nokkru hætt að senda peninga af þessum ástæðum, með þeim af- leiðingum, að sjóðurinn hafi ekk- ert fé til ráðstöfunar lengur. Þvi sé það helzt til ráða að vekja at- hygli Carters forseta og umheims- ins á þvi hversu komið sé í þeirri von að takast megi að tryggja afkomu sjóðsins og starfsfrið. i landinu. Er hér um að ræða öryggisráðstafanir, sem koma i kjölfar harmleiksins mikla á dög- unum, þegar 8 manns létu lífið eftir þriggja vikna umsátur í járnbrautarlest og skóla i Norður- Hollandi. Þá hefur stjórnin gefið til kynna, að öryggiseftirlit verði mjög hert á svæðum, þar sem Suður-Mólúkkar eru fjölmennir, svo og að hafin verði skipulögð leit meðal þeirra að ólöglegum vopnum og sett verði strangari löggjöf um meðferð skotvopna. Undanfarið hefur lögreglan veigrað sér við vopnaleit af óttavið að auka spennu meðal Mólúkkanna, að þvi er segir í yfir- lýsingu stjórnarinnar. Er að vænta frekari stefnuyfirlýsingar stjórnarinnar um málefni Mól- úkka en þau verða tekin til um- ræðu i þinginu á morgun i ljósi atburðanna á dögunum. Frá því að umsátrinu lauk hef- ur nokkrum sinnum komið til átaka milli unglingahópa og varð- lögreglu á ibúðarsvæðum Mólúkk- anna, og hefur i sumum tilvikum verið beitt skotvopnum og benzín- sprengjum. Heilsu Karenar Anne Quinlan hrakar New Vork. 22. júnl. AP. DAGBLAÐIÐ The New York Daily News segir i dag að heilsu Karenar Anne Quinlan fari nú hrakandi, og hún sé nær dauða komin. Karen hefur legið í dái i rúmt hálft annað ár, allt frá þvf foreldrar henn- ar fengu heimild dómstóla til að slökkva á hjálpartækjum þeim, sem talið var að héldu Iffinu í henni. Blaðið hefur það eftir Fred Swanson, framkvæmdastjóra sjúkrahússins, þar sem Karen Anne Quinlan liggur, að hún sé nú hætt komin, en hann vildi ekkert segja um ástæð- una fyrir versnandi heilsu hennar. Blaðið segir að getgát- ur séu uppi um að Karen hafi orðið fyrir alvarlegri smitun, og að læknar sjúkrahússins hafi verið sammála um að ekki væri rétt að grípa til neinna róttækra ráðstafana til að reyna að bjarga lifi hennar. Karen varð fyrir alvarlegu áfalli og heilaskaða 15. april 1975 eftir að hafa neytt bæði áfengis og róandi lyfja. Hún var meðvitundarlaus, en henni haldið á lifi í öndunartæki, þar til foreldrar hennar, sem voru sannfærð um að hún ætti sér enga batavon, fóru fram á dómsúrskurð um að Karen Framhald á bls. 24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.