Morgunblaðið - 23.06.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNl 1977
5
IIM HVU VAR SAMMD?
MEGINATRIOI kjarasamninganna, sem undirritaðir voru I gærmorgun
eða sólstöðusamninganna eins og Torfi Hjartarson sáttasemjari nefndi
þá eru að á 18 mánaða tlmabili, sem þeir gilda, hækkar kaup
samkvæmt upphafshækkun samninganna og áfangahækkunum, sem
eru þrjár um 32 þúsund krónur samtals. Koma hækkanirnar með jafnri
krónutölu á samningstímanum á öll mánaðarlaun og hlutfallslega á
viku- og tímakaup. Vakta- og yfirvinnuálög haldast sem hlutfall af
dagvinnukaupi. Sárkröfur einstakra aðildarfélaga ASÍ voru leystar
innan 2.5% meðaltalshækkunar kauptaxta viðkomandi félags eða
sambands.
Kauphækkunin, sem um var sam-
ið kemur til framkvæmda með eftir-
farandi hætti:
Við undirskrift: 18.000 —
1 desember 1 977: 5.000 —
1. júnl 1978: 5 000 -
1. september 1 978 4 000 —
VerSbæturá laun
Útgjöld, sem vegið hafa i visitölu-
grundvelli og tákna hækkanir á
áfengi og tóbaki, fara nú út úr
grunni hinnar nýju verðbótavisitölu.
Einnig kemur inn i samninginn sér-
stakur verðbótaauki, sem er nýmæli
og ætlað er að bæta þá kaupmáttar-
rýrnun, sem verður vegna biðtimans
milli útreiknings visitölunnar og þar
til þær koma til greiðslu. Hinn 1.
september verður fyrst greidd verð-
lagsuppbót á laun og þá i krónutölu
880 krónur fyrir hvert stig, sem
verðbótavisitalan hækkar um og
hinn 1 desember verður aftur
greidd krónutala, 930 krónur fyrir
hvert stig visitölunnar á öll laun. Frá
og með 1 marz 1 9 78 greiðast verð-
lagsbætur á laun i sama hlutfalli og
verðbótavísitalan hækkar, þ.e.a.s,
prósenta á öll laun.
Kaupmáttur
Lægsta kaup, sem fyrir samning-
ana var 70 þúsund krónur, hækkar
við undirritun samningsins um
26%. Hærra kaup hækkar hlutfalls-
lega minna vegna krónutölureglunn-,
ar, 100 þúsund krónur hækka
þannig um 18%, ef ekki er tekið
tillit til sérkröfuprósentunnar, 2Vi%,
en sé hún talin með er hækkunin
20'/z%.
Reikna má með — segir í sér-
stöku blaði, sem ASÍ hefur gefið út
til félagsmanna sinna, að kaupmátt-
ur meðalkaups verði að meðaltali á
þessu ári 5 til 6% hærri en var á
síðastliðnu ári, þ.e. 1976. Það sem
eftir er af þessu ári verður kaupmátt-
ur hins vegar væntanlega um 1 0%
yfir meðaltali siðasta árs. Milli ár-
anna 1977 og 1978 má búast við
um 7% hækkun kaupáttar meðal-
kaups. Krónutöluhækkanir vega
eins og áður sagði þyngra á lægsta
kaup og má þvi reikna með að
kaupmáttur lægsta taxta verði á
þessu ári að meðaltali 10 til 11%
hærri en á árinu 1976 og hækki
enn um 13% milli áranna 1977 og
1 978. í þessum tölum er ekki tekið
tillit til áhrifa væntanlegra skatta-
lækkana.
Gildistími
Samningurinn gildir frá undir-
skriftadegi til 1. desember 1978.
Þó eru í samningnum ákvæði um að
honum megi segja upp með eins
mánaðar fyrirvara ef stjórnvaldsað-
gerðir skerða á einhvern hátt verð-
tryggingarákvæði samningsins.
Slíkt atriði hefur ekki áður verið í
kjarasamningi ASÍ og vinnuveit-
enda. Einnig er í samningnum hefð-
bundið atriði um að samningurinn
sé uppsegjanlegur, verði veruleg
breyting á gengi íslenzku krónunn-
ar.
Lífeyrismál
Samkomulag varð um að vinna
áfram að þeirri endurskipulagningu
lífeyrissjóðakerfisins, sem hafin var
á síðastliðnu ári, og er stefnt að þvf
að tillögur verði fullmótaðar fyrir
mitt ár 1 978 og nýtt lífeyriskerfi taki
gildi í ársbyrjun 1980. Greiðslur
lífeyrissjóða til lífeyrisþega eru
hækkaðar og verða nú hækkaðar og
endurskoðaðar 4 sinnum á ári í stað
tvisvar áður.
Með það fyrir augum, að hækkun
lífeyrisgreiðslna lífeyrissjóðanna
valdi yfirleitt ekki lækkun tekjutrygg-
ingargreiðslna frá almannatrygging-
um, verður tekjumark tekjutrygging-
ar hækkað Ýmsar breytingar aðrar
verða gerðar í kjölfar viðræðna við
ríkisstjórnina, sem aðilar samnings-
ins áttu Meðal annars verður tekin
upp sérstök uppbót, 10 þúsund
krónur á mánuði, á lífeyri allra tekju-
tryggingarþega, sem búa einig á
eigin vegum. Bótafjárhæðir al-
mannatrygginga verða frá 1 júlf
hækkaðar jaannig, að lágmarkstekjur
lífeyrisþega hækki í sama hlutfalli
og laun verkamanna hækka I kjara-
samningunum.
Vinnuverndarmál
í samninginn kom inn ákvæði um
rétt starfsfólks til þess að neita að
vinna án þess að laun skerðist, sé
öryggisútbúnaður á vinnustað ófull-
nægjandi. Jafnframt hét ríkisstjórn-
in því að samin yrði ný löggjóf í
samráði við aðila vinnumarkaðarins
um aðbúnað, hollustuhætti og ör-
yggi á vinnustöðum og f skipum.
Lög um þetta efni eiga að taka gildi
eigi sfðar en fársbyrjun 1979. Þá
mun á næstu mánuðum fara fram
sérstök athugun á aðbúnaði, holl-
ustuháttum og öryggi á vinnustöð-
um f því skyni að koma á úrbótum í
þessum málum og skal hafa niður-
stöður hennar til hliðsjónar við setn-
ingu laganna og gerð
Slysatryggingar
Samkomulag varð um verulega
hækkun á slysa-og örorkubótum og
verða dagpeningar nú greiddir f
slysatilvikum í allt að 52 vikur
Orlof
í kjarasamninginn kom nú inn
ákvæði um það að þeir, sem sam-
kvæmt ósk vinnuveitenda fá ekki 21
dags sumarleyfi á tfmabilinu frá 2
maf til 30 september skulu fá 2 5%
lengingu á þeim hluta orlofsins. sem
veittur er utan ofangreinds tíma Ef
um er t.d. að ræða 4 daga verða
þeir 5 f slíkum tilfellum
TrúnaSarmenn
Samkomulag varð milli aðila um
að starfsaðstaða trúnaðarmanna yrði
bætt og þeim tryggður ótvfræður
réttur til að sinna trúnaðarmanns-
störfum sínum f vinnutíma og gefin
heimild til þess að halda tvisvar á ári
fundi með starfsfólki, þannig að ein
klukkustund falli f vinnutíma án
launamissis. Þá skulu trúnaðarmenn
halda dagvinnutekjum í allt að eina
viku á ári til þess að sækja nám-
skeið.
Skattamál
Breyting fékkst á skattstiga ein-
staklinga við álagningu skatta 1 977
og hefur rfkisstjórnin þegar gefið út
bráðabirgðalög. sem tryggja fram-
kvæmd þessa nýja skattstiga 20%
þrepið I skattstiganum verður lengt
nokkuð og tekið upp nýtt skattþrep
með 30% skatti Hjá hjónum greið-
ist þannig 40% skattur fyrst af tekj-
um umfram 2 milljónir króna sam-
anborið við tæplega 1.400 þúsund
krónum samkvæmt fjárlögum Einn-
ig munu niðurgreiðslur á búvörum
verða auknar eða gerðar aðrar ráð-
stafanir er leiði til allt að 1.5%
lækkunar á vfsitölu framfærslu-
kostnaðar
Húsnæðismál
Rikisstjórnin hét samningsaðilum
að skipuð yrði sérstök nefnd til að
endurskoða þau ákvæði laga um
Húsnæðismálastofnun rikisins. sem
fjalla um byggingu ibúða á félags-
legum grundvelli. ASÍ. mun eiga
helnting fulltrúa í nefndinni Nefnd-
in skal taka sérstaklega til meðferðar
greinargerð og tillögur ASÍ. þar sem
áherzla er lögð á byggingu verka-
mannabústaða og leiguhúsnæðis
fyrir fólk með ákveðnar félagslegar
forsendur, félagslegar íbúðarbygg-
ingar verði ekki minni en þriðjungur
heildarfbúðarþarfar, verkalýðsfélög-
in hafi aðild að úthlutun ibúðanna
og greiðslubyrði kaupenda verði
ákveðið hlutfall tekna Hér er í
höfuðdráttum um að ræða fram-
kvæmd yfirlýsinga. sem gefnar hafa
verið við fyrri samningsgerðir, allt
frá árinu 1 974, en nú er ákveðið, að
frumvarp skuli lagt fyrir næsta þing
til afgreiðslu.
Dagvistunarmál
Rikisstjórnin heitir þvi að beita sér
fyrir hækkun fjárveitingar til dagvist-
unarheimila og eflingu fósturskól-
ans. A dagvistunarheimilum sem
ríkið á hlut að sem vinnuveitandi
munu stjórnvöld beita sér fyrir þvi
að allar starfsstéttir fái jafna að-
stöðu
Verðlagsmál
Rfkisstjórnin hefur heitið þvi að
verðhækkanir opinberrar þjónustu
komi ekki til framkvæmda nema
siðustu 10 daga fyrir útreikning
verðbótavisitölu, þannig að launa-
fólk þarf ekki að bera hækkanirnar
lengi bótalaust Rfkisstjórnin tekur
undir það sjónarmið verkalýðssam-
takanna að leggja beri aukna áherzlu
á öflun gagna um verðlag erlendis
og miðlun upplýsinga um verðlag
hérlendis og lýsir sig fúsa til þess að
treysta aðstöðu Verðlagsskrifstof-
unnar til þess að sinna .þessum
þáttum Þá er verkalýðssamtökun-
um gefið fyrirheit um aukna aðild að
verðgæzlu og áherzla lögð á aðhald i
afgreiðslu verðhækkana
A. Paul Weber sýnir
að Kjarvalsstöðum
í DAG fimmtudaginn 23. júnl kl.
20.00 verður opnuð sýning að
Kjarvalsstöðum á verkum hins
þekkta þýska grafíklistamanns A.
Paul Weber. Sýningin er haldin á
vegum þýska bókasafnsins f
Reykjavfk og félagsins íslensk
graffk. Sýningin stendur til 12.
júlf næstkomandi. Á blaðamanna-
fundi með listamanninum kom
fram að þetta er stærsta sýning á
verkum hans til þessa og lista-
maðurinn mun dvelja hér á landi
út sýningartfmann.
Andreas Paul Weber er fæddur
árið 1893 í Arnstadt í Þýskalandi.
Eftir að hann hætti í skóla fór
hann að iðka grafík og er hann
sjálfmenntaður á þvf sviði. Frá
1919 hefur hann starfað mikið við
myndskreytingar bóka, þar á
meðal hefur hann myndskreytt
söguna um Róbinson Krúsó, sögur
Munehausen, ritverk Kafka og
fleiri þekkt bókmenntaverk. Árið
1928 hóf hann þátttöku í samtök-
um, sem börðust gegn- Hitler.
Hann barðist í báðum heims-
styrjöldunum og hefur hryllingur
þeirra átaka oft orðið honum efni-
viður i myndir sinar. Hann hefur
hlotið ýmsar viðurkenningar og
var m.a. útnefndur prófessor árið
1971.
30 kr. fyrir hvert
kíló af hörpudiski
YFIRNEFND verðlagsráðs sjávarútvegsins ákvað á fundi sinum í gær
lágmarksverð á hörpudiski frá 1. júní til 30. september n.k. Fyrir
hörpudisk 7 cm og yfir verða greiddar kr. 30 á hvert kíló og fyrir
hörpudisk 6 cm og að 7 cm kr. 23 á hvert kíló.
Verð þetta var ákveðið af oddamanni og fulltrúum seljenda gegn
atkvæði annars fulltrúa kaupenda, Eyjólfs ísfelds Eyjólfssonar, en
hinn fulltrúi kaupenda Árni Benediktsson greiddi ekki atkvæði. Aðrir
í nefndinni voru Gamaliel Sveinsson, sem var oddamaður nefndarinn-
ar, og Guðmundur Jörundsson og Jón Sigurðsson af hálfu seljenda.
MARQIR I1ÁLDÁ ÁÐ
MÁTALARAR
SEIJ AÐEINS FYRIR
ATVINNUMENN
• ••
en auðvitað geta allir þeir sem vilja vandaða og nákvæma hátalara,
notið þess að hlusta á AR hátalara í stofunni heima hjá sér.
Það eru góð meðmæli að atvinnumenn eins og Judi Collins, Miles
Davis og Herbert von Karajan skuli velja sér AR til einkanota, því þeir
vilja aðeins það besta, hin þjálfaða heyrn þeirra krefst þess.
AR hátalarar eru á góðu verði - gæðin getur þú verið viss um -
VELJIÐ AR HÁTALARA.
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
■
SENDUM
BÆKLINGA