Morgunblaðið - 23.06.1977, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JUNÍ 1977
Ungir
menn
ákreiki
í Kreml
Eftir
Victor Zorza
Skyndileg brottvikning
Nikolai Podgorny forseta Ur
sovézka stjórnmálaráðinu sýn-
ir, að baráttan um hver taka
skuli við völdunum af Leonid
Brezhnev er farin að veikja
innsta kjarna valdaforystunnar
í Kreml.
Allir þeir sem áður hafa verið
reknir úr stjórnmáiaráðinu
urðu að víkja vegna þess að
þeir voru taldir svo ungir, að
þeir gætu ógnað völdum
kynslóðar Brezhnevs, sem er
kominn yfir sjötugt. Meðan
innri kjarninn stóð saman var
ágætur möguleiki á því að
halda mætti yngri mönnunum í
skefjum. Sjálfsbjargarviðleitni
gömlu valdamannanna varð
hvað eftir annað til þess að þeir
ákváðu að setja niður deilur
sínar í stað þess að kljást með
þeim afleiðingum, að einn
þeirra yrði að víkja úr stjórn-
málaráóinu.
Elzti maðurinn úr þessum
innsta kjarna, Mikhail Suslov,
sem er 75 ára, hefur oft tekið
harðari afstöðu en Brezhnev í
utanríkismálum og stundum
gefið til kynna að hann sé and-
vígur þeirri „neytendastefnu",
sem er aðalsmerki stefnu
Brezhnevs í innanlandsmálum.
Af því, sem hefur verið hægt að
lesa á milli línanna í opinber-
um ræðum, hefur líka mátt
merkja í mörg ár, að Brezhnev
og Alexei Kosygin forsætisráð-
herra, sem er orðinn 73 ára,
hefur greint á um efnahags-
stefnuna. Kosygin stjórnar
hinu geysimikla ríkisbákni og
hefur oft orðið að heyja harða
baráttu fyrir því að verja það
gegn yfirgangi flokksbáknsins,
sem er undir forystu
Brezhnevs.
# SKRÍTINN
KEPPINAUTUR
Andrei Kirilenko, nánasti
samstarfsmaður Brezhnevs,
sem er sjötugur eins og hann,
hefur haft á hendi daglega
stjórn flokkskerfisins fyrir
hönd hans. Podgorny, sem er 74
ára, var manna ólíklegastur til
að keppa við Brezhnev um völd-
in — en forsetaembættið, sem
hann gegndi, gat haft úrslita-
þýðingu í valdabaráttunni. Sér-
fræðingurinn Christian Duevel
hjá útvarpsstöðinni Radio
Liberty, sem hefur fylgzt með
baráttunni milli Podgorny og
Brezhnevs eins og hún hefur
þróazt um árin, baráttu sem fá-
ir aðrir tóku eftir, veltir því nú
fyrir sér, hvort Brezhnev vilji
sjálfur fá embættið. En það er
einnig möguleiki, að staðan sé
ætluð yngri manni, sem
Brezhnev vilji ala upp til þess
að taka við af sér.
Margt er til í báðum þessum
tilgátum. Ef Brezhnev er eins
slæmur til heilsunnar og nýleg-
ar fréttir benda til, gæti skipun
hans i forsetastöðunni gert hon-
um kleift að verða áfram i
sviðsljósinu, en losað hann und-
an þeirri þungu byrði, sem fylg-
leiðtoganum Zhivkov.
ir núverandi stöðu hans sem
flokksritara. Ef valdaskiptin
fara fram meðan hann er ennþá
flokkssoringi, gæti hann reynt
að tryggja, að forsetinn hefði
meiri völd til þess að móta
stefnuna en hann hefur haft til
þessa.
En Brezhnev gegndi forseta-
embættinu um skeið í stjórnar-
tíð Krúsjeffs og notaði það
vissulega með ágætum árangri
fyrir stökkpall upp í stöðu aðal-
ritara flokksins eftir aó hann
steypti Krúsjeff af stóli.
Forsetaembættið færði ekki
Brezhnev völd til að ógna
Krúsjeff, en veitti honum tæki-
færi til að koma fram á innlend-
um og erlendum vettvangi, fá
myndir af sér í blöðum og sjón-
varpi, verða miklu þekktari en
áður, í fáum orðum sagt: sjást i
hlutverki ríkisarfa.
• SKÍTVERKIN
Þetta gerði valdatöku
Brezhnev-stjórnarinnar langt-
um auðveldari en ella. Ef eng-
um ríkisarfa hefði verið til að
dreifa, hefði ekki verið eins
auðvelt að vinna skftverkin,
sem nauðsynleg voru á þessum
krossgötum til þess að tryggja
brottvikningu Krúsjeffs er
dvaldist áhyggjulaus í leyfi á
Krím meðan starfsbræður hans
í Moskvu unnu að því að semja
tilkynningu um brottvikningu
hans. Andstæðingar Krúsjeffs
hefðu orðið að koma sér saman
um eftirmann áður en þeir
gerðu ráðstafanir til þess að
vikja honum og það hefði orðið
erfitt þegar bezt lét og sérstak-
lega erfitt ef nokkrir metnaðar-
gjarnir stjórnmálamenn hefðu
eygt möguleika á því að koma
sér í æðstu stöður.
Því mætti halda fram að
Krúsjeff hafi innsiglað örlög
sín með þvi að skipa Brezhnev
eftirmann sinn. Þessa lexíu
hefur Brezhnev vissulega lært,
því hann hefur bæði forðazt að
skipa eftirmann og gert ráðstaf-
anir til að tryggja að enginn
hinna yngri fulltrúa í stjórn-
nálaráóinu komist í aðstöðu til
þess að baða sig í sviðsljósinu
eins og hann gerði í tíó
Krúsjeffs. Sum atriði i stefnu
Brezhnevs hafa vissulega mætt
harðri mótspyrnu samstarfs-
manna hans á valdatima hans
og fjarvera „eðlilegs" eftir-
manns er sennilega eitt af því
sem hann getur þakkað það að
hafa haldizt við völd.
En ef svo er, mundi Brezhnev
velja eftirmann nú með þvi að
skipa yngri mann i embætti for-
seta og stofna þar með í voða
sínum eigin möguleikum á því
að haldast við völd? Hann vill
vissulega haldast nógu lengi við
völd til þess að tryggja sér sess i
sögunni með þvi að koma til
leiðar formlegri samþykkt
„Brezhnev-
stjórnarskrárinnar“, sem nú er
ætlunin aó Æðsta ráðið leggi
blessun sína yfir á nokkrum
fundum í október. Þá getur ver-
ið að nýr Salt-samningur hafi
verið undirritaður, ef allt geng-
ur að óskum, i stað núverandi
samnings, sem er að renna út,
og þar með fengi Brezhnev
framgengt öðru máli, sem er
honum hugstætt.
• ÁHÆTTA
Verið getur, að eitthvað sé til
i bollaleggingum um að
Brezhnev sé i raun og veru að
búa i haginn fyrir sig sjálfan
þannig að hann geti sjálfur tek-
ið við forsetaembættinu síðar á
árinu. Brottvikning Podgornys
getur vel átt rætur að rekja til
þess að hann neitaði að fallast á
fyrirkomulag, sem hefði neytt
hann til að láta af starfi í haust
og vikja fyrir Brezhnev. En
vegna brottvikningar
Podgornys nú þarf Brezhnev
nauðsynlega að taka við
embættinu miklu fyrr en hann
ætlaði sér eða að ‘öðrum kosti
skipa einhvern annan i stöð-
una. Áhætta fylgir hvorri
ákvörðuninni er hann tekur og
hann hefur varað sig á því að
taka álíka áhættu til þessa, því
að afleiðingin getur oróið sú, að
deilurnar um ríkiserfðirnar
blossi upp fyrir alvöru ðg að
staða hans veikist þar með.
Brezhnev hefði vissulega kos-
ið helzt aó Podgorny gegndi
áfram störfum forseta um
stundarsakir. Nú hefur Pod-
gorny sjálfur komið brottvikn-
ingu sinni til leiöar og neytt
Brezhnev til að flýta fyrir-
ætlunum sínum. Podgorny hef-
ur gefið yngri mönnunum í
stjórnmálaráðinu bendingu
um, að kominn sé tími til að
hefja virka baráttu eða leyni-
makk á máli Kremlverja — til
þess að komast í æðstu stöðuna.
Hann hefur lika sýnt þeim, að
eining innsta kjarnans i stjórn-
málaráðinu er ekki lengur
órjúfanleg og að þeir hafi góða
möguleika á þvi að rjúfa hana
ef þeir berjast nógu ákveðið.
Brezhnev tekur eins og þjóðhöfðingi á mðti búlgarska kommúnista-
ÞURFIÐ ÞER HIBYLI
if 2ja herb.
Þórsgata m/6innréttuðu risi
Blikahólar, Asparfell
if 3ja herb.
Jörfabakki, Blönduhlíð
Barónstígur 2. hæð ásamt bað-
stofu í risi sérinng.
if 4ra herb.
Risíb. í Laugarneshverfi
Dalsel m/bílsk.
if í gamlabænum
6 herb, 150 fm. á 2. hæð i
tvíbýlissteinhúsi Verð 10—11
millj.
if Sérhæðir
Goðheimar m/bílskúr
Miðbraut m/bilskúr
if Seltjarnanes
Raðhús i smiðum tvöfaldur bil-
skúr
if Álftanes
Húsgrunnur með plötu
if Skrifstofuhúsnæði
70 fm. nálægt torginu
HÍBÝU a SKIP
Garðastræti 38 Simi 26277
Gisli Ólafsson 201 78
Bjarni Kjartansson 10404
Jón Ólafsson lögmaður
29555
OPIÐ VIRKA DAGA
frá 9 til 21
2ja herb. 60ferm.
Við Nýbýlaveg, 1. hæð. Góður
bílskúr, útb. 4.5 millj.
2— 3 herb. 84 ferm.
Við Kóngsbakka, góð ibúð. útb.
5.5 millj.
2ja herb. 60 ferm.
Við Hamraborg, bilageymsla,
útb. 4.5 millj.
2ja herb. 60 ferm.
Við Snorrabraut, útb. 3.5 millj.
2ja herb. 60 ferm.
Við Hvassaleiti, kjallaraibúð. útb.
3— 3.5 millj.
3ja herb. 100ferm.
Við Barðavog, góður staður, stór
garður, nýr bílskúr. Tilboð.
3ja herb. 90 ferm.
Við Lundarbrekku, góð ibúð og
gott verð. útb. 6 millj.
3ja herb. 92 ferm.
Við Hjarðarhaga, á fjórðu hæð,
endaibúð. útb. 6—6.5 millj.
4ra herb. 100ferm.
Við Æsufell, 7. hæð. Bilskúr.
Falleg ibúð. útb. 6.5 millj.
4ra herb. lOOferm.
Við Vesturberg. útb. 6.5 — 7
millj.
3—4 herb. 105ferm.
Við Stóragerði, tilboð óskast.
7—-9 herb. 210ferm.
I vesturbænum, tvær hæðir, sér-
stæð eign. Tilboð.
Einbýlishús i Garðabæ. Vel stað-
sett, gott hús.
Sumarbústaður i Eilifsdal, Kjós.
Nýr. Mjög gott verð. Tilboð.
Iðnaðar og verzlunarhúsnæði i
smiðum i Kópavogi. Góðir
möguleikar. Uppl. á skrifstofu
Vantar allar
gerðir eigna
á söluskrá.
EIGNANAUST
Laugaveg 96 (við
Stjörnubíó). Sími 29555
Hjörtur Gunnarsson sölum.
Bogi Ingimarsson sölum
Svanur Þór Vilhjálmsson hdl.