Morgunblaðið - 23.06.1977, Side 22

Morgunblaðið - 23.06.1977, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JUNI 1977 fMtogtmlifftfeft Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingasjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthfas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn GuSmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sfmi 10100. Aðalstræti 6. sfmi 22480 Áskrfftargjald 1300.00 kr. i mánuði innanlands. í lausasólu 70.00 kr. eintakið. Framför í samningagerð Kjarasamningar hafa nú verið undirritaðir milli flestra launþegafélaga og vinnuveitenda. Nokkrir starfs- hópar eiga þó enn eftir að ganga frá sinum samningum og verður það væntanlega gert á næstunni, en þá er enn ósamið við sjómenn og opinbera starfsmenn. Hinir nýju kjarasamn- ingar og áhrif þeirra á efnahagsþróun og atvinnulíf munu verða mjög til umræðu á næstunni, en nú við lok þessarar umfangsmiklu samningsgerðar er ástæða til að fara nokkrum orðum um framvindu samningaviðræðna og þau vinnubrögð, sem höfð hafa verið uppi við þessa samningsgerð. Hér á landi höfum við vanizt býsna hörðum átökum milli vinnuveitenda og verkalýðsfélaga. Verkalýðshreyfingin hefur oft verið gagnrýnd fyrir það, að hún'hafi verið of fljót á sér að grípa til verkfallsvopnsins. í því sambandi hefur verið vísað til vinnubragða við gerð kjarasamninga í nálægum löndum og þá ekki sízt t.d. í Svíþjóð og V-Þýzkalandi, þar sem tekizt hefur að gera kjarasamninga í áratugi án þess að til verulegra verkfallsaðgerða hafi komið og þar með tekjutaps fyrir laun- þega, atvinnureksturinn og þjóðfélagið í heild. Þegar þetta er haft í huga er sérstök ástæða til að vekja athygli á því, að framvinda þeirrar samningsgerðar, sem nú er lokið, hefur verið með nokkuð öðrum hætti en við höfum átt að venjast. Samningaviðræður hafa staðið á fjórða mánuð, en hinir gömlu kjarasamningar féllu úrgildi i apríllok. Samkvæmt fyrri venjum og starfsháttum verkalýðshreyfingarinnar hefði mátt búast við þvi, að gripið yrði til almennra verkfallsaðgerða um miðjan maímánuð. Svo varð þó ekki, heldur tilkynntu verka- lýðsfélögin 1. maí, að þau hefðu ákveðið að setja á yfirvinnu- bann. Þegar líða fór á maimánuð var síðan gripið til lands- hlutaverkfalla og starfsgreinaverkfalla, sem bundin voru við einn dag. Enda þótt þessar takmörkuðu og tímabundnu verkfallsaðgerðir hefðu að sjálfsögðu haft tr"flandi áhrif á atvinnulífið i landinu og sú óvissa, sem ríkt hefur um niðurstöðu kjarasamninga í langan tíma hafi haft samdráttar- áhrif í öllu athafna- og viðskiptalífi, er auðvitað Ijóst, að hér er um allt önnur vinnubrögð að ræða og skynsamlegri en verkalýðshreyfingin hefuráður beitt. Sjálfsagt má deila um það, hvers vegna þessi samningsgerð hefur þróazt á annan veg en við íslendingar höfum yfirleitt átt að venjast í nokkra áratugi. Vafalaust er það svo, að andrúms- loftið i þjóðfélaginu hefur átt ríkan þátt í að beina aðgerðum verkalýðsfélaganna inn á þessar brautir. Það hefur ósköp einfaldlega komið i Ijós undanfarnar vikur, að hjá almenningi hefur ekki verið hljómgrunnur fyrir almennum og lamandi verkföllum. Verkalýðsforystan hefur orðið að taka tillit til þessara ríkjandi viðhorfa launþega i landinu, og af þeim sökum gripið til mun mildari verkfallsaðgerða en áður. Þegar hliðsjón er höfð af fyrri starfsaðferðum verkalýðsfélaganna er um jákvæða þróun að ræða og framför i gerð kjarasamninga á vinnumarkaðnum. j þetta sinn hafa samningsmenn verið reiðubúnir til að taka sér góðan tíma i að fjalla um málin almennt og einstök atriði þeirra án þess að beita almennum verkföllum. Enda er ekki við öðru að búast en verulegan tíma þurfi til að ráða kjaramálum megin þorra landsmanna. Vonandi er framvinda kjarasamninga nú vísbending um, að verkalýðshreyfingin sé að fara inn á nýjar brautir í baráttu sinni og vinnubrögðum. Þegar fjallað er um þessa kjarasamninga út frá þessu sjónarmiði eingöngu og burtséð frá efnahagslegum áhrifum þeirra hlýtur því niðurstaðan að verða sú, að þeir séu að þessu leyti framför og rík ástæða til að beina samningsgerðinni í framtíðinni í rikari mæli inn á þessar jákvæðu brautir. Alþýðusambandið og Vinnuveitendasambandið hafa smátt og smátt verið að byggja upp starfslið sérfræðinga, sem hefur einnig auðveldað mjög samningagerðina og gert aðilum kleift að leggja sjálfstætt mat á ýmsa efnisþætti samninganna. Það er einnig framför. Við lok hverra samninga undanfarin ár hefur sú ósk mjög almennt komið fram, að tíminn milli samninga verði notaður til þess að koma á umbótum t samningagerð Nú þegar nokkuð hefur áunnizt í þeim efnum er ekki sízt ástæða til að hvetja til þess að þeim framfaraspor- um verði fylgt eftir. Ritsaf n Gunnars Gunnarssonar Á liðnu ári komu út sjö bindi I ritsafni Gunnars Gunnarssonar hjá Almenna bókafélaginu: Dimmufjöll, Fimm fræknisögur, Fjandvinir, Jón Arason, Sálu- messa, Sælir eru einfaldir og Vargur I véum. 1 Dimmufjöllum og Fjandvinum eru smásögur og I Fimm fræknisögum Aðventa, Brimhenda, Blindhús, Á botni breðans og Drengurinn. Öll þessi skáldverk birtast nú í gerð Gunnars sjálfs, enda var það honum kappsmál að þau kæmu endanlega út með hans eigin tungutaki. Að sögn Eiríks Hreins Finnbogasonar vann Gunnar við það síðustu tíu árin að þýða og alveg fram á síðustu stundu skildi eftir í ritvélinni hálfskrifaða örk. í þessum fáu orðum sem ætlað er það hlutverk að minna á útgáfu ritsafnsins verður ekki farið út í neinn samanburð við eldri útgáf- ur. Aðeins skal því fagnað að Gunnari skyldi endast aldur til að ganga frá jafn mörgum bókum og raun ber vitni til útgáfu. Utgáf- unni er ekki lokið. Væntanlegar eru m.a. skáldsögurnar Fóstbræð- ur, Hvíti Kristur, og Ströndin auk ljóða, leikrita, ritgerða og greina. Ekki verður sagt um tungutak Gunnars Gunnarssonar að það sé lipurt. Það getur aftur á móti ver- ið stirt, oft hrjúft eins og stórskor- ið landslag. Setningar eru stund- um óþarflega langar, orðaröð óvenjuleg og orðaval sérvisku- legt. Fyrir kemur að fyrnska í notkun orða spillir fyrir. En les- andinn má ekki láta þetta aftra sér. Tungutak skáldsins venst og verður hugstætt vegna þess að lesandinn finnur að efni og form eiga samleið. Sum verk Gunnars eru siður en svo auðtekin. Þau krefjast mikils af lesandanum. Fáar bækur Gunnars geta flokk- ast undir skemmtilestur, en vilji lesandinn fylgja skáldinu eftir á ferð þess um mannheima verður honum endurgoldið. í Sælir eru einfaldir sem að minu mati er ein bezta skáldsaga Gunnars Gunnarssonar standa þessi orð: „Ástundið að auðsýna náunganum umburðarlyndi og góðsemi". Sú viska sem við þurf- um á að halda rúmast í þessari setningu að hyggju skáldsins, ekki síst þegar þess er gætt að „hróp mannsandans eftir eilifð og fullkomnun“ er „hégóminn ein- ber og eltingar við vind“ Sælir eru einfaldir er ekki verk bjart- sýnismanns, hverfulleiki og fall- valtleiki haldast í hendur í bók- inni, Válegir atburðir gerast hið ytra og innra. Af miskunnarleysi brýtur skáldið til mergjar þau undarlegu öfl sem búa í manns- huganum. Gunnari hefur sjaldan tekist betur en í Sálumessu að ná tökum á lesandanum, maður verð- ur gagntekinn af þessari bók. Það er líkt og hún sé skrifuð i einum áfanga, á náðarstund, og umfram allt ber hún þess vitni að vera höfundi sínum nauðsyn. Vargur í véum hefur ekki til að bera þá dýpt sem einkennir Sælir eru einfaldir. Engu að síður er bókin athyglisverð saga um mannleg örlög. Söguhetjan Ulfur hagar lífi sínu á annan hátt en gert hafði verið ráð fyrir. Hann gerir uppreisn gegn spillingu og skinhelgi á æðri stöðum, snýr baki við embættisframa og gerist sjómaður. Þeir sem ráða eru að hans dómi fulltrúar rotins kerfis, tilfinningar þeirra eru gervitil- finningar, hjá þeim skiptir mestu að skara eld að eigin köku. Sjó- mennskan er dæmigerð fyrir hið náttúrlega i manninum, á sjónum fer fram barátta milli lífs og dauða og sjómennirnir færa björg í bú. Vargur í véum er í hópi veigaminni skáldsagna Gunnars. Efnistök eru ekki markviss og þrátt fyrir það að sagan er læsileg á köflum reynir hún á lang- lundargeð lesandans. Mesti gall- inn er sá að skáldið er of ákaft í boðun sinni. Sálumessa er framhald Heiða- harms. Ég er einlægur aðdáandi Heiðaharms, en get ekki sætt mig við Sálumessu. Sagán er lang- dregin og margklofin þannig að lesandinn á erfitt með að fylgja skáldinu eftir. Það sem máli skiptir um líf fólksins á heiðinni er að finna i Heiðaharmi, Sálu- messa bætir iitlu við. Sagan er aftur á móti gott dæmi um hinn breiða epíska stíl skáldsins, metn- Gunnar Gunnarsson Bðkmenntlr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON að sagnaskálds sem vill draga upp yfirgripsmikla mynd. Einstakir kaflar Sálumessu eru lika vel gerðir og átakanlegar myndir úr lifi fólks, samanber drukknun Hjálmu. Gnnari er mikið i mun að tengja saman gamlan og nýjan tíma í Sálumessu, sýna innreið nýrrar aldar með undratækinu sima og annarri tæknivæðingu og mettun þjóðar á leið til sjálfstæð- is. En einhvern veginn verður lít- ið úr þeim ásetningi skáldsins að túlka þessi aldaskil. Ekki tekst með nógu skýrum dæmum að sýna áhrif nýjunganna á sveita- fólkið. Jón Arason er eins og nafnið bendir til söguleg skáldsaga. Jóni Arasyni og sonum hans eru gerð viðeigandi skil í þessari bók sam- kvæmt hefðbundnum söguskiln- ingi. Saga þjóðarinnar var Gunn- ari Gunnarssyni hugleikin eins og Jón Arason, Jörð; Hvíti-Kristur og Grámann eru til vitnis um. Frum- legasta verk Gunnars með sögu- legu efni er án efa Vikiv.aki þar sem fortíð og nútið renna saman í eitt. Smásögur Gunnars Gunnars- sonar í Dimmufjöllum og Fjand- vinum sækja flestar efnivið í lifs- baráttu þjóðarinnar. Þótt meitlað- ur og hóflegur stíll sé ekki ein- kennandi fyrir Gunnar eru smá- sögur hans margar þessu marki brenndar. í smásögunum er oft að finna drög að síðari verkum skáldsins og eitt af því sem gerir þær eftirtektarverðar er sér- kennileg kýmni. Gunnar laðast að kynlegum kvistum og þeir njóta sín einna bezt I smásögunum. Meðal sagna í fimm fræknisög- um er Aðventa. Þar segir frá Benedikt sem ásamt hundi sinum Leó og forystusauðinum Eitli heldur til fjalla i byrjun Jólaföstu til að svipast um eftir eftirlegu- kindum sem leitarmönnum hefur sést yfir. Aðventa getur naumast kallast smásaga, en á það sam- merkt með öðrum sögum í Fimm fræknisögum að vera stutt skáld- saga þegar undan er skilin smá- sagan Á botni breðans. Hinar sög- urnar eru Brimhenda, Blindhús og Drengurinn. Saga Benedikts, fyrirmyndin er Fjalla-Bensi, er einstök í sagna- gerð Gunnars Gunnarssonar og án efa eitt af helstu afrekum hans. Galdur þessarar sögu er með fá- dæmum, efni hennar og stíll eru í æskilegu samræmi. I rauninni minnir þessi saga um manninn sem leggur lífið í sölurnar „til þess eins að bjarga fáeinum flökkurollum, sinni úr hverri átt- inni“, en á sjálfur „aðeins fáar kindur og vantar enga“ á helgi- sögu. Sagan um Jesúm sem hélt innreið sína í Jerúsalem ríðandi á asna er Benedikt ofarlega í huga. Jesús, konungurinn, er hógvær, það veit Benedikt. Aöventa er lof- söngur hógværðarinnar og ein- faldleikans I samskiptum manna og dýra: „Ekkert lifandi né dautt er of lítilmótlegt til þjónustunn- ar“. Brimhenda, sagan um Sesar eða Sesam, og Blindhús sem segir frá Sigurbirni-sigurbirninum, eru sögur um hetjur hversdagsleik- ans. Brimhenda er að mörgu leyti flókin saga, Blindhús sver sig i ætt við smásögur Gunnars frá yngri árum. í Brimhendu sem kom út 1955 og frumsamin er á íslenzku leggur Gunnar að nokkru inn á nýjar brautir í lýs- ingu sinni á torfskurðumanninum Sesari. 1 Brimhendu er listilega beitt eintali eins og víðar í verk- um Gunnars, söguhetjan talar við sjálfa sig, rifjar upp ævi sína, sagan gerist öðrum þræði í huga hennar. Steingrfmur J. Þorsteins- son sagði í tilefni Brimhendu að Gunnar væri orðinn ungur í ann- að sinn. En það átti eftir að koma í ljós að Brimhenda stendur að mörgu leyti sér i sagnagerð Gunn- ars þótt tengsl við aðrar sögur hans séu augljós. Kannski var sagan aðeins tilraun frá skáldsins hálfu. Drengurinn getur vel kallast undanfari Fjallkirkjunnar eins og bent hefur verið á. Þetta er að mörgu leyti heillandi saga með ljóðrænu ivafi, en skortir list- rænan aga Fjallkirkjunnar. Dulræn náttúruskynjun og dauða- þrá fá útrás i þessari sögu sem samin er í anda tímans, kom fyrst út á dönsku 1917. Upphafsorð Á botni breðans gætu staðið sem einkunnarorð margra smásagna Gunnars Gunnarssonar: „í sveitum sem liggja að opnum norðurhöfum andar stundum kalt.“ í þessari sögu segir frá konu og börnum hennar sem lokast inni i bæ sin- um af völdum snjóa. Konan og börnin gefast ekki upp, þraut- seigja þeirra verður að hetjudáð og hjálp berst að lokum. Frá- sagnarmáti þessarar sögu er hljóðlátur. En einfaldur og hóf- samur still sögunnar gerir hana eftirtektarverða. Mér finnst stundum að smásög- ur Gunnars Gunnarssonar verði útundan. Um of er einblínt á Fjallkirkjuna þegar framlag Gunnars til íslenzkra bókmennta er metið. 1 skólabókum eru birtir kaflar úr Fjallkirkjunni þegar jafn vel eða betur færi á því að birta smásögur hans. Fjall- kirkjuna þarf að lesa í heild, ekki einstaka kafla slitna úr samhengi. Það er misráðið. Sjálfum var Gunnari Gunnarssyni annt um smásögur sínar, vildi að þær væru á sinum stað I ritsafni hans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.