Morgunblaðið - 23.06.1977, Page 28
'2R
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23, JUNI1977
Karpov
er enní
framför
Heimsmeistarinn í skák, Ana-
toly Karpov, vann glæstan sig-
ur á hinu sterka alþjóðlega
skákmóti í Las Palmas á Kana-
ríeyjum.
Karpov hlaut 13'A vinning af
15 mögulegum, sem er hretpt
ótrúlegur árangur í svo sterku
móti. Sú skemmtilega tilviljun
átti sér stað að það var einmitt
á 26 ára afmæli sínu, 23. maí,
sem Karpov tryggði sér sigur-
inn, en þá hafði hann hlotið 12
v. af 13 mögulegum.
Bent Larsen lenti i öðru sæti
með 11 v. Ágætur árangur út af
fyrir sig, en fellur i skuggann
af afreki Karpovs.
Þriðji varð svo góðkunningi
okkar, Timman, með 10 v.
Hann hefur aldrei teflt betur
en nú og er greinilega kominn í
hóp hinna fremstu.
í 4.—6. sæti komu þeir Tal,
sem olli nokkrum vonbrigðum,
Browne, Bandaríkjunum, og
lítt þekktur Kúbumaður,
Hernandez að nafni, en
árangur hans kom mjög á óvart,
allir með níu vinninga.
Um önnur úrslit er undirrit-
uðum ekki kunnugt, en hér
fylgja lokin á einni af sigur-
skákum Karpovs:
eftir MARGEIR
PÉTURSSON
Svart: Martin, Spáni
Hvitt: Karpov, Sovétríkjunum
27. Bxf6! — gxf6 28. Rgxf6 —
Bxf6 29. Rxf6+ — Kf8 (Eftir
29. ... Kh8 30. Rxe8 — De7
vinnur hvítur með 31. fxg6 —
Dxe8 32. g7+ — Kxg7 33.
Dg4+) 30. fxg6 — hxg6 31. Dg4
— Rf7 32. Dxg6 — Rce5 33.
Rh7+ og hér gafst svartur upp,
enda er staða hans vonlaus eftir
33. ... Ke7 34. Df6+ — Kd7 35.
Rg5! T.d. nú 35. ... He7 36.
Rxf7 — Rxf7 37. Dg6 — Hf8 38.
e5!
14. minningarmót Capa-
blanca, en það fer fram í Cien-
fuegos á Kúbu, er nú hafið. Að
10 umferðum loknum var staða
efstu manna þessi:
1. Dorfman, Sovétríkjunum
8!4 v. 2.—4. Romanishin, Sovét-
ríkjunum, Ermenkov, Búlgaríu
og Lechtynski, Tékkóslóvakíu 7
v.
Af öðrum þátttakendum má
nefna stórmeistarna Anderson,
Svíþjóð, Antoshin, Sovétrikjun-
um og Farago, Ungverjalandi.
Hér gefur að líta skák úr
fjórðu umferð, á milli tveggja
sem fyrir fram mátti ætla að
yrðu með í baráttunni um efsta
sætið:
Hvítt: Andersson, Svíþjóð
Svart: Romanishin, Sovét-
rfkjunum
Pirc vörn með skiptum litum
I. g3 — e5 2. d3 — d5 3. Rf3 —
Rc6 4. Bg2 — Bg4 5. h3 — Bh5
6. 0-0 — f5 7. c4 — e4 8. Rh4 —
dxc4 9. Rxf5 (Hvitur ætti nú að
standa vel að vígi, þar eð hann
er að tefla Pirc vörn með leik-
vinningi. Þessi staða er reyndar
þekkt með skiptum litum og
talin tvisýn) cxd3 (Svartur hef-
ur ekki tíma fyrir hina venju-
legu áætlun 9.... exd3 10. g4 —
Bg6 11. exd3 — g6 vegna 12.
Hel+ og ef nú Rge7 þá 13. Bxc6
— bxc6 14. Rxe7 — Bxe7 15.
Bg5 og vinnur) 10. g4 — Bg6
II. Rc3 — dxe2 12. Dxe2 — Dd3
13. Dxe4 — Dxe4 14. Rxe4?
(Betra var 14. Bxe4, en þá
stendur hvítur síst lakar eftir
t.d. 14. ... Rf6 15. Bxc6+ —
bxc6 16. Hel +) Bxf5 15. gxf5 —
0-0-0 16. Rg5 — Hd7 17. Be3 —
Rh6 18. Be4 — Rd4! (Svartur
hefur þegar undirtökin) 19.
Bxd4 — IIxd4 20. Hfdl — Hb4
21. Hacl (En ekki 21. Re6 —
Bd6 22. Rxg7 — Hg8 23. f6 —
Hxe4) Be7 (Hvitur hótaði 22.
Re6 — Bd6 23. Hxd6) 22. Re6
— c6 (Misráðið væri 22. ...
Hxe4 vegna 23. Hxc7 + — Kb8
24. Hxe7 — Rxf5 25. Hxb7 + !)
23. f3 — Hxb2 24. Hd3 — Rf7
(Lúmsk gildra var 24. ...
Hxa2? 25. Bxc6!) 25. Bd5 —
Re5 26. He3 — Bf6 27. Bb3 —
Hd2 28. f4 — Rf7 29. Hg3 —
Rd6 30. Rxg7?
staða hans er hvort eð er töpuð
eftir 31. Hg4 — Rf2 32. Hg2
(32. Hg3 — Rd3 33. Hdl —
Karpov vann sinn bezta árang-
ur frá upphafi f Las Palmas
Bd4+ og vinnur) Rxh3+ 33.
Khl — Hxg2 34. Kxg2 — Rxf4 +
35. Kf3 —. Bxg7 og ef nú 36.
Kxf4þáBh6 + .
Um síðustu helgi fór fram á
Eiðum undanrásariðill í skák-
keppni Ungmennasambands
íslands. Urslit urðu þessi: 1.
Umf. Víkverji 9!4 v. 2. U.Í.A. 8
v. 3. H.S.K. 6 v. 4. Umf. V-
Skaftfellinga 'A v.
Sigursveitina skipuðu allt
þekktir reykviskir skákmenn,
þeir Þröstur Bergmann, Sævar
Bjarnason, Þorsteinn Þor-
steinsson, og Einar Valdimars-
son. Við skulum nú líta á eina
stutta skák úr keppninni.
Hvftt: Eiríkur Karlsson Svart:
Þorsteinn Þorsteinsson
Kóngsindversk vörn
1. d4 — Rf6 2. c4 — g6 3. Rc3 —
Bg7 4. e4 — d6 5. Be2 — 0-0 6.
Bg5 (Averbach afbrigðið)
Rbd7 7. Dd2 — c6 8. Rf3 (8.
g4!? kemur einnig sterklega til
greina, sem svar við hægfara
taflmennsku svarts) e5 9. 0-0 —
Db6!?. (9. ... exd4 10. Rxd4 —
Rc5 11. f3? — Rfxe4!! 0—1
Holm—Geller Olympíumótinu í
Lugano 1968) 10. d5 (Betravar
10. Hfdl) cxd5 11. cxd5 — Rc5
12. Be3 — Bd7 (Eftir 12. ...
Rfxe4 13. Rxe4 — Rxe4 14. Dc2
— Db4 15. a3 tapar svartur
manni) 13. Bd3 — Rg4 14.
Hfbl?! (14. Habl!) Rxe3 15.
Dxe3 — Rxd3 16. Dxd3 — Bh6!
17. Rd2?? (Betra var 17. De2 þó
að svartur standi betur eftir 17.
.. . Hac8)
Jozef Dorfman hefur örugga
forystu á minningarmóti
Capablanca
Dd4! Hvítur gafst upp, þvi að
mannstap verður ekki umflúið.
Um hvitasunnuna fór fram í
Reykjavík Skákþing íslands i
drengja- og kvennaflokki. Ur-
slit urðu þessi:
Drengjaflokkur: 1. Jóhann
Hjartarson, TR 8!4 v. af níu
mögulegum. 2. Jóhannes G.
Jónsson TR 8 v. 3. Gunnar
Freyr Rúnarsson, TR 6‘A v. 4.
Þör Stefánsson, Hafnarf. 6'A v.
5. Ágúst Karlsson, Hafnarf. 6 v.
6. Ásgeir Heimir
Guðmundsson, Neskaupsstað 6
v. 7. Árni Á. Árnason, TR 5'A v.
8. Elvar Guðmundsson, TR 5'A
v. o.s.frv. Þátttakendur voru
alls 38, allir 14 ára og yngri,
víðs vegar að af landinu.
Kvennaflokkur: 1. Ólöf
Þráinsdóttir, TR 4'A v. af 6
mögulegum. 2. Birna Nordahl,
TR 4 v. 3. Svana Samúelsdóttir,
TR 2 v. 4. Áslaug Kristinsdóttir,
TR l'A v.
/
Arsskýrsla Landsbankans:
Innlánsaukning nam 39%
— en aukning útlána 20%
Á SÍÐASTLIÐNU ári var tekjuaf-
gangur af rekstri Landsbanka
íslands án vaxta af eigin fé 258
milljónir króna. Er það svipuS út-
koma og var8 hjá bankanum
1975, en þá varð tekjuafgangur
250 milljónir. samkvæmt árs-
skýrslu bankans.
EigiS fé Landsbankans nam I
árslok 1976 2.243 milljónum
króna og hafSi á árinu hækkað um
499 milljónir. Ári8 á undan nam
hækkun eigin fjár 387 milljónum.
Hlutfalli eigin fjár af heildareign
tókst a8 halda óbreyttu en hluttall
eigin fjár af innlánum féll úr 9.9%
áriS 1975. I 9.2% 1976. StafaSi
þetta af mikilli aukningu innlána.
Nam aukning innlána 6.903
milljónum króna 39% og voru inn-
lán í árslok 1976 24.474 milljón-
ir. Er þetta all miklu meiri aukning
en veri8 hefur undanfarin ár. og
eiga vaxtaaukalánin mestan þátt I
þessu. Spariinnlán. en þar gætti
mestrar innlánsaukningar, jukust
um 5.428 milljónir e8a 45% og
námu i árslok 17.512 milljónum.
Ári8 á undan varð spariinnláns-
aukningin 28%.
Veltiinnlán jukust um 1.475
milljónir eða 27% og námu I árs-
lok 6.962 milljónum króna. Er
þetta minni aukning en undanfar-
in ár og er það að hluta til afleið-
ing vaxtaaukareikninga og lækk-
unar vaxta af veltilánum.
Heilda' ,llán Landsbankans námu
29.673 milljónum króna í árslok
1976, að frátöldum endurlánuðum
erlendum lánum Var útlánaaukn-
ingin 5 032 milljónir eða 20%.
Útlán án endurseldra lána og reglu-
bundina viðbótarlána jukust um
18%.
Útlánaaukningin varð mest til
sjávarútvegs eða 2 183 milljónir. en
meginhluti þessarar hækkunar staf-
aði af hækkun afurðalána. Minni
útlánaaukning varð til landbúnaðai
á árinu 1 976 en 1 975, en þá hafði
hún verið óvenju mikil Jukust útlán
til landbúnaðar um 956 milljónir og
munar bar mestu um afurðalán.
Mjög dró úr aukningu lána til verzl-
unar og nam hún aðeins 143
milljónum króna 1976. Einnig dró
úr aukningu lána til iðnaðar og nam
útlánsaukningin til þeirrar greinar
408 rhilljónum.
Veruleg aukning varð á útlánum
til einstaklinga, eða sem nemur
1.025 milljónum króna samanborið
við 359 milljón króna aukningu
1975
í skýrslunni er fjallað nokkuð um
vaxtaauka. sem tekinn var upp I
apríl 1976 Vaxtaaukareikningar eru
bundnir í 12 mánuði í það
skemmsta og hafa borið 22% árs-
vexti.
„Hið nýja innlánsform hlaut góðar
móttökur," segir ! skýrslunni. „Að
mánuði liðnum höfðu rúmlega
1 700 milljónir króna verið lagðar
inn á vaxtaaukareikninga i Lands-
bankanum, en að sjálfsögðu var að-
eins hluti þess nýtt sparifé. Aukning-
in varð hröðust fyrsta tvo og hálfan
mánuðinn, en hefur verið nokkuð
stöðug upp frá því. eða um 165
milljónir króna i nýjum innlánum I
hverjum mánuði. Staða vaxtaauka-
innlána var 3 812 milljónir króna i
árslok og eru þar með taldar 439
milljóna króna vaxtatekjur innstæðu-
eigenda "
Likt og á árinu 1975 batnaði
lausafjárstaða Landsbankans mikið i
fyrra I ársbyrjun 1976 var staðan
jákvæð um 301 milljón. Fyrstu tvo
mánuði ársins versnaði hún, en fór
siðan ört batnandi fram i miðjan
ágúst. Þá versnaði hún aftur til
nóvember loka, er hún styrktist
verulega. í árslok var staðan jákvæð
um 1.557 milljónir og hafði þá
batnað um 1.256 milljónir á árinu.
Nettóinneign bankans erlendis
var 795 milljónir í árslok 1976 og
hafði þá lækkað um 104 milljónir.
Staðan gagnvart Seðlabankanum
hafði þvi styrktst meira en heildar-
staðan, eða um 1 360 milljónir
króna
„Vegna mikilla sveiflna innlána og
að nokkru leyti útlána innan hvers
mánaðar og á milli árstiða, er Lands-
bankanum mikíl nauðsyn á sterkri
Sjávarútvegur 32,5%
Verslun 13.2%
(olíufél. meðtalin)
Iðnaöur 12,8%
Landbúnaður 13,8%
íbúðabyggingar 5,9%
Annað 10,8%
Opinberir aðílar 11,0%
300
250
200
150
100
50
0
TEKJUAFGANGUR LANDSBANKANS
1972-1976 ( MILLJ. KR.
2700
2400
2100
1800
1500
1200
900
600
300
EIGIÐ FÉ LANDSBANKANS 1972-1976
( MILLJ. KR.
lausafjárstöðu um áramót. Einnig
þarf bankinn á rúmri stöðu erlendis
að halda, vegna mikilla viðskipta við
fjölda erlendra banka Þrátt fyrir
bata undanfarinna ára, er staðan
ekki nægílega traust til að fullnægja
þessum þörfum, og er stefnt að
frekari bata á árinu 1977," segir I
skýrslunni .
72 73 74 75 76