Morgunblaðið - 23.06.1977, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JUNI 1977
31
KVIKMYNDsem
markar tímamót?
Það verður því ekki annað
séð en að erlendum kvikmynda-
húsgestum standi til boða ýms-
ar girniiegar kræsingar á þessu
sumri. Væri óskandi að kvik-
Úr lokaatriði myndarinnar: Darth Vader, forsprakki hinna illu myndahúsaeigendur hérlendis
afla, og Obi—Wan Kenobi — I forystu hinna góðu, berjast upp á líf sjái til þess að hlutskifti okkar
og dauða með laser-geisia sverðum. verði ekki mjög miklu lakara. -
Rétt fyrir mánaðamótin
mal—júní, var frumsýnd nýj-
asta mynd hins unga leikstjóra
George Lucas, (jafnframt sú
fyrsta sem hann gerir eftir
hina geysivinsælu AMERICAN
GRAFFITI). Nefnist hún
STAR VARS og er visindasögu-
leg fantasia sem fjallar um
himnaferðir og geimstyrjaldir
alifjarlægrar (vonandi) fram-
tíðar.
í sem skemmstu máli sagt, þá
hlaut myndin stórkostlega
dóma gagnrýnenda vestra, og
rekur undirritaðan ekki minni
til þess að nokkurri mynd hafi
verið jafn mikið hælt né hlotið
eins mikið rúm í TIME
magazine og STAR WARS. En
gagnrýnendur þessa virta tíma-
rits hafa löngum verið sparsam-
ir á stóryrði einsog mynd ársins
og aðrar upphrópanir í þá veru.
En nú bregður svo við að um-
rædd grein er nánast lofsöngur
um kvikmyndagerðina og sá fá-
tiði viðburður gerist að blaða-
mennirnir finna myndinni i
rauninni ekkert til foráttu. Er
grein þeirra í rauninni ein stór-
kostlegasta auglýsing sem
nokkur kvikmynd hefur fengið
fyrr eða síðar.
STAR WARS er fyrst og
fremst hælt fyrir þá hjartan-
legu og saklausu gleði sem hún
veitir áhorfandanum og þá frá-
bæru tækni sem Lucas og félag-
ar hans beita við gerð hennar.
Það kemur fram að snilldar-
verk Kubricks,. 2001: A SPACE
ODDYSEY, fölnar í saman-
burði við STAR WARS, hvað
tæknibrellur og „effekta“ varð-
ar. Þar vegur sjálfsagt þyngst á
metunum sú mikla tæknibylt-
ing sem orðið hefur síðan
Kubrick lauk við sína mynd. En
Lucas notfærir sér tæknikunn-
áttu nútímans útí ystu æsar —
myndin er byltingarkennd í
þessu tilliti —, og þá einkum
margbrotna tölvuvinnslu sem
bæði einfaldar myndgerðina,
skapar áður útilokaða mögu-
leika og sparar óhemju tíma.
Lucas segir sjálfur m.a. um
mynd sína: „Myndin (STAR
WARS) fjallar ekki um fram-
tiðina. STAR WARS er fanta-
sia, miklu nær Grímmsævintýr-
Leikstjórinn, George Lucas og kona hans Marcia, en hún þykir einn
hæfasti kvikmyndaklippari vestan hafs um þessar mundir
um en 2001. Megin ástæðan fyr-
ir því að ég gerði myndina var
sú að gefa unglingunum heiðar-
lega, og heilnæma furðuveröld,
svipaða þeirri sem mín kynslóð
átti. Við sáum vestra, sjóræn-
ingjamyndir og allskyns stór-
kostlega hluti. 1 dag hafa þau
THE SIX MILLION DOLLAR
MAN og KOJAK. Hvar er
rómantíkin, ævintýrið og
skemmtunin sem má segja að
hafi verið í hverri einustu
mynd?“
Vafalaust á STAR WARS eft-
ir að njóta gífurlegra vinsælcka
víða um heim á næstu misser-
um, og svo sannarlega óskandi
að ungdómurinn upplifi frekar
þessa ágætu mynd en enn einn
skammtinn af sexmilljón-
dollaramanni eða kódjakki sins
umhverfis. Og þar sem hún
virðist höfða til allra aldurs-
flokka, má jafnvel reikna með
því að myndin JAWS (gerð af
öðrum, ungum bandarikja-
manni, Steven Spielberg —
hann stendur á þrítugu, en Luc-
as er þrem árum eldri), verði
að víkja fyrir henni úr fyrsta
sætinu á listanum yfir vinsæl-
ustu kvikmyndir allra tíma. Og
það mun ekki standa á því að
aðrir framleiðendur og kvik-
myndaver vilji eignast sína eig-
in STAR WARS, sjáiði til.
Sir Alec Guinness fer með eitt
aðaihlutverkið: vitringinn
Obi—Wan Kenobi
En það eru fleiri stórmyndir
en STAR WARS sem fyrst
koma fyrir almennings sjónir á
þessu sumri. I þeim höpi má
nefna tvær, rándýrar og vand-
aðar striðsmyndir; Mc
ARTHUR, gerð af Franklin J.
Schaffner, með Gregory Peck í
hlutverki hins fræga hershöfð-
ingja. Hin er ein dýrasta mynd,
sem ’gerð hefur verið, A
BRIDGE TOO FAR, en hún
státar af hvorki meira né minna
en röskum tug -heimsþekktra
toppstjarna. THE DEEP er
ævintýramynd sem að mestu
leyti gerist neðansjávar, og er
byggð á riýjustu skáldsögu Pet-
er Benchley (JAWS). Með aðal-
hlutverkin fara Robert Shaw og
Jacquline Bisset en leikstjórn
annast Peter Yates. Þá verður
og frumsýnd myndin THE
SORCERER, en hún er fyrsta
mynd Friedkins eftir hina vin-
sælu THE EXCORCIST. En eft-
ir framhaldi þeirrar myndar er
nú beðið með mikilli eftirvænt-
ingu, en það verður einnig
frumsýnt á næstu mánuðum.
Nefnist það EXCORCIST II:
THE HERETIC. Aðalleikarar
eru Richard Burton, Max Von
Sydow, Linda Blair og Louise
Fletcher, (ONE FLEW
OVER. . .).
1 hluta verzlunar Ægis I örfirisey: Frá vinstri: Björk Björgvinsdóttir,
Jón A. Barðdal, ÓIi Barðdal og Einar Þ. Ásgeirsson arkitekt. Ljósmynd
Mbl. Emilia.
Ægir með verzlun og
verkstæði í Orfirisey
Seglagerðin Ægir er nú flutt I ný
og glæsileg húsakynni að Eyja-
götu 7, örfirisey.
í hinu nýja húsnæði er auk
saumastofu ný verzlun, þar sem á
boðstólum eru margar gerðir af
tjöldum tjaldhimnum auk annars
viðleguútbúnaðar.
í nýju verzluninni er aðstaða til
að skoða tjöldin uppsett. Verzlun-
in er öll innréttuð með myndverk-
um úr tjaldadúk og hefur Einar
Þ. Asgeirsson, arkitekt, sér um
hönnun þeirra.
Á saumastofu Seglagerðarinnar
Ægis eru framleidd auk viðlegu-
útbúnaðar m.a. bátasegl, öryggis-
belti fyrir togarasjómenn, yfir-
breiðslur ýmiskonar og sundlaug-
ar. Enn sem áður mun Segla-
gerðin Ægir veita skipaútgerðum
og fleirum ýmsa aðra þjónustu.
Eigendur Seglagerðarinnar
Ægis eru Óli Barðdal og fleiri.
Hjá Seglagerðinni Ægi starfa
10 manns.
4—5 tegundir tjalda eru að
jafnaði á boðstólum hjá Ægi, en
einnig eru þeir að hefja fram-
leiðslu á göngutjöldum, mjög létt-
um tveggja manna tjöldum. Verð
á tjöldum hjá Ægi er frá 19—26
þús. kr., en Óii Barðdal sagði á
fundi með blaðamönnum, að þar
sem þeir væru sjálfir með fram-
leiðsluna og söluna gætu þeir boð-
ið upp á ódýrari tjöíd en ella.
Seglagerðin Ægir var stofnsett
1913.
Nokkrir hressir kappar í heita kerinu ásamt áhugasömum áhorfanda.
Ljósm. Georg Michelsen.
Heilsurækt tekur til
starfa í Hveragerði
Hveragerdi 21. júní.
EFRI hæð sundlaugarhúss-
ins í Laugarskarði hefur
nú verið innréttuð og hef-
ur þá langþráðu takmarki
verið náð. Þarna hefur ver-
ið búin hin bezta aðstaða til
þjálfunar og hvíldar og
býður Heilsuræktin, en svo
'hefur þessi nýi áfangi ver-
ið nefndur, uppá líkamsæf-
ingar, gufubað (sauna),
sund, kerlaugar, ljósaböð,
ágæta hvíldaraðstöðu og
nudd eftir pöntun.
Vinna við Keilsuræktina
nefur að miklu leyti verið
unnin af sjálfboðaliðum án
greiðslu og hefur forstjóri
Dvalarheimilisins Áss,
Gísli Sigurbjörnsson, einn-
ig veitt ómetanlega aðstoð.
Hefur sundlaugarnefndin
fært þessum aðilum öllum
sérstakar þakkir.
Ekki er ákveöió á hvaóa timum
Heilsuræktin verður opin. Örugg-
lega verður opið um helgar og
hópar geta pantað sér tima, sem
væntanlega verða á kvöldin, og er
miðað við lágmark 14 manns i
hverjum hópi.
—Georg
Listræning-
inn á ferðinni
Út er komið sjötta hefti Listræn-
ingjans.
Meðal efnis blaðsins eru Ijóð
eftir Magnús Einar Sigurðsson,
smásaga eftir Fáfni Hrafnsson,
ljóð eftir Pétur Hafstein Lárus-
son, ljóð eftir Geirlaug Magnús-
son, leikur eftir Odd Björnsson,
smásaga eftir Guðlaug Arason,
ljóð eftir Hafliða Magnússon, Jón
Pálsson, Baldur Garðarsson.
Gunnlaug Vilhjálmsson, Steinþór
Jóhannsson, Skúla Thoroddsen,
smásaga eftir Þórgunni Jónsdótt-
ur o.fl.