Morgunblaðið - 23.06.1977, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JUNI 1977
+
Minningarathöfn um
SR. JAKOB EINARSSON
fer fram í Dómkirkjunni kl 3 00, föstudaginn 24. júnl. Jarðarförin fer
fram kl. 2 00 daginn eftir að Hofi I Vopnafirði
Aðstandendur
Móðir min,
ÞÓRLAUG GUNNLAUGSDÓTTIR,
Gaukshólum 2,
Reykjavík
áður Aðalstræti 14, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 24 júní kl 1 3:30.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna.
Erla Hjálmarsdóttir.
+
ÓLAFÍA PÉTURSDÓTTIR
frá Engey
til heimilis að Stigahllð 73, Reykjavlk, lést 1 7 júnl. Útförin fer fram frá
Dómkirkjunni föstudaginn 24 júnl kl 1 3 30
Ragnhildur Helgadóttir,
Þór Vilhjálmsson.
Hjónammning—Asrún
Knudsen Lárusdóttir
og Hjörtur Bjamason
Gef oss drottinn góðan dag
gott og fagurt sólarlag.
Eptir Iffsins endað skeið
oss f vegsemd þfna leið.
í dag er hann afi minn Iagður
til hinstu hvíldar. Hann var fædd-
ur 19. maí 1894 á Gneistavöllum á
Akranesi sonur hjónanna Sigur-
laugar Helgadóttur írá Neðra-
Nesi, Stafholtstungum og Bjarna
Guðmundssonar sem ættaður var
frá Bjarghóli i Húnavatnssýslu.
Afi ólst upp með sex systkinum i
föðurhúsum, og var aðeins níu
ára þegar hann fór að sækja sjó-
inn með föður sinum. Þá voru
timarnir aðrir en nú þekkjast, og
það hefur þótt sjálfsagt að strák-
urinn legði hönd á plóginn er
aldur og kraftar leyfðu. En hon-
um féll þetta vel enda þekkti
hann ekkert annað en sjóinn og
vandist ekki öðru. Strax eftir
fermingu réð hann sig á skútuna
Millý. 1 fyrsta túrnum höfðu þeir
siglt vestur um og lagt inn í Aðal-
vík, en þar vildi það það óhapp til
að pilturinn féll rænulaus fyrir
borð, en það tókst að krækja í
■•
hann og honum var borgið. Þann-
ig var nú byrjunin á hálfrar aldar
sjólífi hans. En fall er fararheill. í
sjö vertíðir var hann á skútum.
Árið 1914 réð hann sig á b.v. Rán
með þeim sama skipstjóra sem
vígði hann tii sjómennskunnar
forðum. En eftir það fór hann á
ýmsa mótorbáta sem Haraldur
Böðvarsson átti t.d. m.b. Val. Um
það leyti lærði hann til mótorista
hjá Ólafi Kelvin sem kallaður var
svo, og réð sig síðan á m.b. Víking
sem mótorista, og siðar á aðra
báta sem vélstjóri, t.d. Keili,
Reyni, Ver og Ægi. Annantjanúar
1925 er afi svo lögskráður háseti á
Síríusi gamla (Ceresia) frá Hull.
Fyrsta túrinn fóru þeir austur að
Horni. Lentu þeir 1 slæmu veðri
og fengu á sig brotsjói, minnstu
munaði að hann afa minn tæki þá
út, því hann sat úti á lunningu er
sjóinn skolaði burt. En eftir að
gert var við skipið héldu þeir á
Halamið. Þetta var 6. febrúar
1925. Brast þá á hið vesta veður
og hófst þá löng og hörð barátta
að ná til lands, en þar beið hún
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir. amma og langamma,
SIGRÍÐUR ÁRNADÓTTIR
frð Ytri Njarðvík,
Skólaveg 32, Keflavrk,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 25 júni kl. 2 e h
Árni Valdimarsson, Dómhildur Guðmundsdóttir,
Hörður Valdimarsson. Sigurrós Sigurðardóttir,
Margrét Valdimarsdóttir, Guðjón Steingrfmsson.
Fjóla Valdimarsdóttir, Halldór Alfreðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Faðir okkar. tengdafaðir, tengdasonur og afi.
SIGURJÓN HELGASON,
Kðrsnesbraut 20.
er lést I Borgarspítalanum 16. júní. verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 24. júnl kl. 1.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er
bent á Krabbameinsfélag íslands.
Gunnar Jón Sigurjónsson. Sóley Olgeirsdóttir
Árni Sigurjónsson, Guðný Jónasdóttir,
Jórunn Sigurjónsdóttir, Guðjón Atli Auðunsson,
Jórunn Magnúsdóttir. 0g barnabörn.
Móðir okkar. tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNEA SIGURVEIG JÓNSDÓTTIR.
verður jarðsungin frá Kálfholtskirkju laugardaginn 25 júnl kl 14
Kveðjuathöfn fer fram I Fossvogskirkju föstudaginn 24. júní kl 15.
Guðjón Sæmundsson, Kristín Jóhannesdóttir,
Úlfar Magnússon. Bjarndis Guðjónsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir, Guðbjörg Hannesdóttir,
Guðmundur Magnússon. Gróa Þórðardóttir,
Rannveig Magnúsdóttir. Ragnar Georgsson,
Jón Magnússon, Lilja Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðaför, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa.
ELÍASAR NÍELSSONAR
Jaðarsbraut 19
Akranesi.
Börn tengdarbörn. barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall óg útför
eiginmanns mins, föður okkar. tengdaföður og afa. (
HARÐAR ÞORSTEINSSONAR
Suðurlandsbraut 64,
Reykjavlk.
Vigdfs Steina Ólafsdóttir.
Ingibjörg Sigriður Engilberts, Ingólfur Jónsson
Arilfus E. Harðarson Steinunn Jónsdóttir
Kolbrún Ó. Harðardóttir. Ásbjörn Björnsson
Hafsteinn Harðarson , Amalfa Árnadóttir.
og barnabörn.
Björn 0. Carlsson
—Minningarorð
Fæddur 19. jánúar 1910.
Dáinn 8. júnf 1977.
Kveðja frá Knattspyrnu-
félaginu Val.
Þaö sem gefur ástundun hóp-
íþrótta einna mest gildi er vafalít-
iö félagsskapurinn sem menn lifa
og hrærast í. Ánægjan af iðkun
íþrótta er mikil en auk þess efla
íþróttirnar félagslegan þroska
einstaklingsins. Honum verðu#
ljóst hve heildin er viðkvæm fyrir
utanaðkomandi áhrifum. Á sama
hátt verður heildinni ljóst, að
mikilvægi sitt á hún einstaklingn-
um að þakka.
Þessi sannindi éru ekki öllum
auðlærð. Það er því ánægjulegt að
kynnast mönnum, sem náð hafa
félagslegum þroska án þess að
hafa ,,lært“ hann. Björn Carlsson
var einn þeirra manna.
Björn var kominn á fullorðinsár
þegar hann kom til starfa fyrir
Knattspyrnufélagið Val. Vegna
framangreindra eiginleika sinna
varð frami Björns skjótur, hjá
félaginu. Björn var einn hinna
tryggu vallargesta, sem aldrei
létu sig vanta á völlinn, þegar
Valur lék. Áhuginn geislaði af
honum hvar sem hann fór. Glað-
værðin og hressleikinn var þó það
sem mesta athygli vakti í fari
hans.
Persónulega ver mér það mikið
ánægjuefni, þegar ég frétti að eld-
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi.
BJÖRN GÍSLASON
Fri SauSárkróki
Hátúni 10A
lézt þann 21. júnl á Landakotsspitala
HólmfrtSur Jónsdóttir,
Steingrtmur Björnsson Elsa Einarsdóttir,
Jóhannes Björnsson, Ester Svavarsdóttir.
Dagrún Björnsdóttir, Valdimar Gunnarsson
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðaför
eiginmanns mins og föður okkar,
ÁRNA GUÐJÓNSSONAR.
frá Stafholtsveggjum.
Eltn GuSmundsdóttir
og böm.
+
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
SVEINBJÖRNS ÁRNASONAR,
Kothúsum, Garði
Fyrir hönd aðstandenda
Anna Steinsdóttir.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
MATTHILDAR E. GOTTSVEINSDÓTTUR
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks sjúkrahúss Selfoss.
Vandamenn.
amma min elskuleg, þá ung kona í
blóma lífsins. Þessa nótt 7.
febrúar ól hún afa mínum dóttur.
Mikil gleði hefur ríkt við heim-
komuna er hún heimti eigin-
manninn úr slikum háska. Þau
eignuðust saman fjögur börn:
Helgu, sem gift er Jóni Gíslasyni
trésm.m.; Hauk, sem kvæntur er
Gísleyju Gisladóttur; Héðin, sem
kvæntur er Hrefnu Jónsdóttur, og
Ásu, sem gift er Gunnari Bjarna-
syni bifv.v.
Ýmis atvik urðu á sjómannsævi
afa míns sem aldrei fyrntust í
huga hans. Má þar nefna tvennt
hér. Annað var hin erfiða og tví-
sýna barátta við að bjarga skip-
verjum af Jóni forseta er hann
strandaði 27. febrúar 1928. Fór
afi ásamt mörgum öðrum til
hjálpar. Hann hafði verið háseti á
Jóni forseta og um borð voru
margir vinir hans og félagar. Tíu
mönnum tókst að bjarga en hinir
drukknuðu. Hitt var björgun
Pourquoi Pas 18. september 1936.
Þá var afi á Ægi frá Akranesi og
fóru þeir ásamt björgunarsveit
Akraness a strandstað. Með í ferð-
inni var bróðir afa míns, Sigurður
Bjarnason, en hann var mótoristi
á Ægi. Þarna bjargaðist aðeins
einn af 39 mönnum. Við báðum
afa oft að segja okkur frá þessu
og fannst merkilegt að fá að skoða
skjalið og orðuna sem veitt var
fyrir þetta björgunarafrek. En
þetta geymdi afi alltaf uppvafið í
sívölum bauk. Eftir að afi hætti á
huginn Björn Carlsson var kjör-
inn til trúnaðarstarfa hjá Knatt-
spyrnudeild Vals árið 1965 og þá
strax sem formaður deildarinnar.
Undanfarin ár höfðu verið mögur
i knattspyrnunni hjá Val. Þessu
undi Björn ekki. Hann boðaði til
mikils „baráttufundar" siðla sum-
ars 1965 og hélt þrumuræðu yfir
leikmönnum félagsins. Er ekki að
orðlengja það, að áhugi og eld-
móður Björns smitaði út frá sér.
Þá strax haustið 1965 urðu Vals-
menn Bikarmeistarar og Islands-
meistarar bæði 1966 og 1967. Var
mál manna að fáir hefðu átt
drýgri þátt i þeim sigrum en
Björn heitinn. 1 gamni og alvöru
kölluðu félagar Björns hann „for-
mann meistaraflokks“ og lét hann
sér það vel líka. Ég er þess full-
viss að þessi ár voru Birni dýr-
mæt og ánægjuleg og vönandi
gott vegarnesti í þá baráttu, sem
hann átti framundan. Björn lét af
formennsku vegna ■ vanheilsu
1967 en sat þó áfram í stjórn
Knattspyrnudeildarinnar oftast
sem varaformaður fram til 1971.
Þá er Björn kjörinn f aðalstjórn
félagsins 1972 og verður vara-
formaður. Þá átti Björn sæti í
Fulltrúaráði Vals síðustú ár sín.
Það má því segja, að starf
Björns hafi verið mikið þann
tíma, sem hann starfaði. Kraftur
hans og áhugi mun seint hverfa
úr minni okkar á Hlíðarenda. Ég
minnist þess, er Björn hafði á oröi
hve leitt sér þætti að hafa komið
svo seint til starfa fyrir Val.
Öhætt er að fullyrða að sá áratug-
ur, sem Valur naut krafta Björns
Carlssonar, skilaði Val svo miklu
starfi, að félagið stendur í ævar-
andi þakkarskuld við Björn heit-
inn. Sú skuld verður seint greidd
enda ekki til þess ætlast af vini
minum, Birni Carlssyni.
Ég vil ekki bera á torg þær
raunir sem veikindi Björns leiddu
yfir hann. Sú saga geymist í minn-
ingunni og styrkir trúna á mátt
mannsandans.
Hvil í friði.
Bergur Guðnason.