Morgunblaðið - 23.06.1977, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. JÚNl 1977
33
sjónum vann hann við hafnargerð
á Akranesi þar til hann varð fyrir
vinnuslysi árið 1950, og varð
óvinnufær í tvö og hálft ár. Um
þetta leyti fékk ég að fara til
sumardvalar til afa og ömmu. Þau
bjuggu þá í húsi er þau byggðu að
Suðurgötu 23 á Akranesi. Ég var 6
ára og minningarnar eru bjartar
og kærar. Ég minnist afa míns
sem hossaði mér á höndum sér, og
ömmu minnar sem strauk mér
bliðlega um andlit og hendur og
breiddi yfir mig í stóra rúminu
hennar. Margar slíkar minningar
veita mér gleði nú, þegar þau eru
horfin yfir landamæri lífs og
dauða. Þau sýndu kærleik sinn og
umhyggju á margan hátt. Mig
langar að minnast á fyrstu kynni
mín af afa. Þá var hann enn á
sjónum. Ég get ekki munað að ég
hafi séð hann þessi fyrstu ár ævi
minnar en stundum á morgnana
þegar við fórum á fætur, lá kippa
af nýjum fiski í tröppunum handa
okkur. Þá hafði afi fengið að
skjótast þennan spöl upp á
Bjarkargötu en ekki haft neina
stund til að gera vart við sig. En
hann sýndi hug sinn I verki og
þreyttur eftir róður hefur hann
gengið með fiskinn þessa leið og
ekki hefur nú verið mikill tími til
hvíldar framundan þegar flýtir-
inn var slíkur. I maí 1954 fluttu
afi og amma til Reykjavíkur og
eignuðust íbúð örskammt frá
heimili okkar. Afi vann sem vakt-
maður um tíma en vann síðan hjá
Eimskipafélagi Islands þar til
hann hafði náð 73 ára aldri. En
afi minn var atorkumaður og karl-
menni að burðum og honum féll
þungt að fá ekki að vinna. En til
síðasta dags fann hann sér ein-
hvern starfa. Þótt árin yrðu 83
bar hann það ekki með sér. Hann
var vel ern og sterkur. En það er
aðeins eitt fótmál héðan og yfir
um — og nú er hann allur. Á
miðjum morgni 16. júní s.l. lést
hann á Hrafnistu þar sem hann
hafði dvalið í liðlega 7 ár. Sfðasti
dagurinn í lífi hans byrjaði ekki
öðruvfsi en aðrir dagar, og þegar
kallið kom hafði gamli maðurinn
verið að frá því snemma morg-
uns og lokið þvi sem öðrum þætti
ágætt dagsverk.
Amma min var fædd 15.apríl
1898 í Stykkishólmi. Foreldrar
hennar voru Lárus Michael
Knudsen, fæddur f Keflavik, og
Guðríður Eyleifsdóttir, fædd á
Akranesi. Þau bjuggu lengst af
sinn búskap í Stykkishólmi og þar
ólst amma mín upp með tveim
systkinum sínum. Sem ung stúlka
fluttist hún til Reykjavfkur og réð
sig þar í vist. Oft sagði hún mér
frá þeirri vandvirkni sem krafist
var af henni, enda varð hún mesta
myndarkona i hvfvetna. Sfðan
fluttist hún til Akraness. Meðan
hún enn dvaldist i Reykjavík
eignaðist hún sína bestu vinkonu
og entist sú vinátta allt þar til
dauðinn aðskildi þær. Þessi vin-
stúlka var Guðborg Ingimundar-
dóttir, fædd 20. desember 1896 að
Staðarhóli i Dalasýslu, dáin i sept-
ember 1931. Árið 1920 giftist hún
Gísla Jónssyni Hvanndal, sem var
fæddur i Ytri-Galtavík i Skil-
mannahreppi 3. mars 1895, dáinn
27. nóvember 1929. Árið 1921
tóku þau við búi í Ytri-Galtavfk,
er faðir Gfsla lést. Gísli og Guð-
borg eignuðust sex börn, en þau
voru öll á á unga aldri er foreldr-
ar þeirra féllu frá. Elsti sonur
þeirra varð mörgum árum siðar
faðir minn, og þykir mér alltaf
gaman að hugsa til þess aó báðar
ömmur minar skuli hafa verið svo
góðar Yinkonur á uppvaxtarárum
sínum.
Ásrún amma mín og Hjörtur afi
stofnuðu heimili sitt á Akranesi,
og bjuggu á Breiðinni, allt þar til
þau eignuðust húsið við Suður-
götu 23. Amma var alla tið í stúk-
unni á Akranesi, sat Stórstúku-
þing og starfaði að bindindismál-
um sem henni voru hugleikin.
Hún lést 12. júli 1967. Nú eru
liðin 10 ár frá þvi hún lést, og enn
lengra síðan ég kvaddi hana í
sfðasta sinn. Þá var ég á förum
vestur um haf með eina lang-
ömmubarnið hennar sem þá var.
Um nóttina rétt áóur en ég hélt af
stað komu gömlu hjónin og leidd-
ust upp holtið, eins og svo oft
áður. Þau komu til að kveðja okk-
ur, þá fann ég svo vel kærleikann
sem í þeim bjó. Þessi kveðjustund
hefur varðveist í minningunni um
hana ömmu mína og er mér
ógleymanleg. Þegar ég hugsa til
baka man ég aðeins brosandi and-
lit hennar. Hún fann alltaf björtu
hliðarnar, og hvatti okkur ætíð.
Oft minnist ég þeirra stunda er
amma, mamma og ég sátum þrjár
og unnum að slátri, bakstri eða
öðru. Sjálfsagt hefur nú ekki ver-
ið mikið lið í mér við hlið þeirra
mæðgna, en ég fékk að vera með,
og það er gott að eiga slíkar minn-
ingar. Sem síðustu kveðju til þess-
ara horfnu ástvina minna og einn-
ig í minningu föðurforeldra
minna læt ég fylgja hér á eftir
þessi fallegu erindi Sveins Vík-
ings. t Ijóssins ált stefnír I[fsins Jirá
sú leit er þvf dvpst f eðlið
borin.
Að vaxa til dýrðar duftinu frá
er draumurinn Ijúfi. sem rætist
á vorin.
Öttastu ei. Sú hönd er mild og
hlý,
sem hvarmi þreyttum lokar
hinstasinn.
Þá nóttin dvfnar. dagur rís við
ský
og dauðinn, Iffsins þjónn. er
vinur þinn.
Já dauðinn, hann er Drottins
hinstagjöf
til dauðlegs manns, sem ferðast
hér á jörð.
Og fegra Iff þfn hfður hak við
gröf.
því ber að kveðja hér með
þakkargjörð.
Guðborg Jónsdóttir.
í Kerlingarfjöllum
- sólskinsparadís
- ekki alltaf, en lygilega oft.
Og ekki skaðar fjallaloftið. Skellið ykkur í Kerlingarfjöll í
sumar. Skíðakennsla, gönguferðir, náttúrufegurð, luxus
matur, fjörugar kvöldvökur, heit böð og skálalíf. í einu orði
sagt: ÆVINTÝRI
Um verzlunarmannahelgina:
Nokkur sæti laus í 5 daga almennu námskeiði 29. júlí
— 2. ðgúst.
Pantið strax.
Bókanir og miðasala:
FERDASKRIFSTOFAN "I
URVAL^r
Eimskipafélagshúsinu simi 26900
Ath.bidjiö um upplýsingabækiing.
Skíðaskólirn
í Kerlingarfjöllum
MEKKA
Stórglæsileg ný skápasamstæða
með höfóingjasvip
Nýja skápasamstæðan frá Húsgagnaverksmiðju Kristjáns Siggeirssonar
hefur vakið sérstaka athygli fyrir smekklega hönnun, fallega smíði og
glæsilegt útlit. Sérstök hillulýsing í kappa.
Þér getið valið um einingar, sem hæfa yður sérstaklega, hvort sem þér óskið
eftir plötuhillum, vín-og glasaskáp, bókaskáp, hillum fyrir sjónvarp og
hljómburðartæki, o.s.frv.
Mekka samstæðan er framleidd úr fallegri eik í wengelit, sem gefur stofunni
höfðingiegan blæ. Mekka er dýr smíði, sem fæst fyrir sérstaklega hagkvæmt
verð.
Skoðið Mekka samstæðuna hjá:
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Reykjavík: Kristján Siggeirsson
Híbýlaprýði
JL-húsið
Akureyri:
Akranes:
Blönduós:
Borgarnes:
Bolungarvík:
Húsavík:
Hafnarfjörður:
Keflavík:
Augsýn h.f.
Verzl. Bjarg h.f.
Trésmiðjan Fróði h.f.
Verzl. Stjarnan
Verzl. Virkinn
Hlynur s.f.
Nýform
Garðarshólmi h.f.
hf.
Neskaupstaður: Húsgagnaverzl.
Höskuldar Stefánssonar
Ólafsvík:
Ólafsfjörður:
Sauðárkrókur:
Selfoss:
Siglufjöröur:
Vestmannaeyjar:
Verzl. Kassinn
Verzl. Valberg h.f.
Húsgagnaverzl. Sauðárkróks s.f.
Kjörhúsgögn
Bólsturgerðin
Húsgagnaverzl. Marinós
Guðmundssonar
FRAMLEIÐANDI:
KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF.
HÚSGAGNAVERKSMIÐJA.