Morgunblaðið - 29.09.1977, Síða 16

Morgunblaðið - 29.09.1977, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1977 Vilhjálmur Einarsson, skólastjóri í Reykholti, skrifar um skólamál: „Mikilvægustu starfsdagar skólaársins” Eirfkur, Asdls og Ingimundur. Anægðir þátttakendur. Árið 1965 hófu þrír ungir skólastjórar störf samtímis í Borgarfirði: Sigurður Guðmundsson Leirárskóla, Sigurður Heigason Laugagerðisskóla og Valgeir Gests- son Varmaiandi. Þeir fengu strax til liðs við sig Hjört Þórarinsson Kleppjárnsre.vkj- um, sem þá hafði starfað þar sem skólastjóri í 4 ár. Samvinna og samstarf hófst fljótt með þessum skólamönnum, sem margt gott hefur leitt af. Grein þessi fjallar um síðasta vott samstarfsins. Dagskráin, sem er prentuð í rammanum skýrir sig sjálf. Þeim minnugu lesendum, sem áttu von á því, að næsta grein fjallaði um skóla í Skotlandi vil ég segja það, að það bíður betri tíma vegna þess að hér er um efni að ræða, sem á erindi í öll skólahverfi landsins einmitt nú við upphaf skólahalds. Víða er samvinna og samstarf skóla og kennara sjálfsagt jafn gott eða betra en í Borgarfirði. En trú mín er sú, að fréttir af þessum tveim starfsdögum hinna fjögurra skóla, geti verið ýmsum kveikja til svipaðra aðgerða. Þá vakna og ýmsar spurningar, sem varpað verður fram í lok greinarinnar. Fyrri degi er I grein þessari gerð lítil sem engin skil. Ætlunin er að rita síðar sjálfstæða grein um mynd- og handmennt. í matartímanum á síðari daginn var notað tækifærið og spjallað við þrjá námsstjóra, sem allir voru komnir upp i Borgarfjörð til þess bæði að miðla fróðleik og hlusta á ábendingar eða svara spurningum kennara. Þetta voru þau Anna Kristjánsdóttir (A), Erla Kristjánsdóttir (E) og Hörð- urBergmann (H). „Það er leikur að læra...“ V: Erla, þú varst að fræða okk- ur áðan um námsleiki? E: Já, ég var að kynna nýja bók eða bækling, sem heitir „Að leika og látast“. Annars er ég starfandi kennari við Melaskólann jafn- framt námsstjórn i samfélags- fræðum. V: Þú ert hér að sannfæra kennarana um það, að ýmsir þroskaleikir og leikræn tjáning geti gert kennslu og nám í öllum fögum fjölbreyttara, skemmti- legra og jafnframt gagnlegra? E: Jog mér fannst máli minu tekið af miklum áhuga og skiln- ingi. V: Þú sagðir áðan frá skemmti- legu dæmi um barn, sem kom heim úr skólanum á mánudag. Mamman spurði: „Hvað gerðuð þið í skólanum í dag?“ Barnið svaraði: „Við vorum að leika okk- ur“. Með smá-orðalagsbreytingum fóru sömu samskipti fram milli móður og barns dag eftir dag. Hvað fór móðirin að hugsa? Mjög liklega eitthvað i þessa átt: „Kennararnir eru hættir að kenna neitt. Þeir standa ekki í stöðu sinni, bregðast hlutverki sínu, svíkjast um o.s.frv. Er slík afstaða til námsleikja algeng? E: Of algeng, alröng og byggist á misskilningi, vanþekkingu. Þegar fólk fer að taka þátt í leikj- um, eða námsspilum sem þessum skiptir það um skoðun. (Eftir- þankar greinarhöfundar: Kennar- ar, sem nota námsspil! Því ekki að leyfa nemendunum að fara með slíkt spil heim til að spila við foreldra sína? Mundi það ekki eyða misskilningnum?) Sjónvarpið í þágu uppeldismála V: Nú hefur þú Erla, ásamt Ingvari Sigurgeirssyni þýtt þetta bráðskemmtilega kver „Að leika og látast". Eru leikirnir í kverinu ekki alveg upplagt sjónvarpsefni, ódýrt, skemmtilegt og þroskandi? Börn, sem eru að leika sér í þrosk- andi leík! Ég tel að við notum sjónvarpið ekki nærri þvi nóg í þágu uppeldismála. Slíkt efni má þó ekki vera hundleiðinlegt. En höfum við ekki einmitt lausnina í námsleikjum? H: Sjónvarp á íslandi er ekki notað til að flytja eitthvað til þröngra hópa. Þetta þykir sjálf- sagt of þröngur hópur. A: Allur foreldrahópurinn? V: Hér tel ég að við þurfum að vinna að viðhorfsbreytingu. Því skólamál eru að mínum dómi mál allra landsmanna. A: Vissulega! Ef nokkuð er mál allra landsmanna, þá eru það skólamál. En viðkomandi þroska- spilunum er það mjög mikilvægt Fjórir af leiðbeinendum starfsdaganna: frá vinstri: Anna Kristjáns- dóttir, Ingibjörg Þorkelsdóttir, Eria Kristjánsdóttir og Hörður Bergmann. Erla að „leika og látast". Dr. Ingimar Jónsson námsstjori I fþróttum ásamt íþróttakennurum í Borgarfirði. Anna Kristjánsdóttir námsstjóri í stærðfræði ásamt stærðfræði- kennurum eldri bekkja Dagskrá slarfsdaganna: Efni: IJndirhúningur kennslu 21.—22. sepl. Slaður: Kleppjárnsrevkjaskóli. IV1IÐV1KI DAGI R 21. sepl. kl. 9.30 Komu tfmi, kaffisopi ofl. 10.00 tslenska fyrir alla aldursflokka. Leiðbeinendur verða Indriði Gfslason og Þóra Kristinsd. Framhald á þessari grein fyrir fslenskukennara allan daginn. 10.00 IVIynd og handmennt. Leiðbein.: Þórir Sigurðsson. Framhalri í þessari grein gelur orðið báða dagana. Verkefni: Umræður um námskrána, skólasýningar, skuggamyndir. áællanir, hannyrðir. smfði, teiknun. Þáttlakendur skulu koma með sýnishorn af verkefnum og mvndir frá sýningum. Kennsluáætlun gerð. 10.00 Tónmennt. Leiðbeinandi Njáll Sigurðsson. Námsefni og námskrá kynnt og dæmi tekin til æfingar. 12.00—13.30 Hádegisverður. framhald verkefna, 15.30—16.30 kaffihlé. 16.30 Félags- og fþróttamá! skóianna. Lmræðustjóri: Ingim. Ingimundar. Rætt verður ogskipulagt félagsmálastarf og fþróttasamskipti skólanna. 19.00 Kvöldverður. 21.00 Danskennsla. Kennarar skólanna leiðbeina hvor öðrum og kynna nýja dansa, bæði „Gamla“ og „Nýja" dansa. 22.30 Kvöidhressing. 23.00 Söngæfing. FIMMTI DAGUR 22. sept. 9.00 Morgunverður 10.00 Námsleikir og spil. Leiðbeinendur: Anna Kristjánsd. og Erla Kristjánsdóttir. Kvnnlir verða möguleikar leikja og spila f kennslu. Tilraunastörf kynnt frá s.l. vetri. 12.00—13.30 IIádegisverður 13.30 Stærðfræði: Leiðbeinandi Anna Kristjánsdóttir vegna eldri barna. en Ingibjörg Þorkelsd. vegnayngri barna. 13.30 Erlend tungumál: Leiðbeinandi Hörður Bergmann. 13.30 Samfélagsfræði: Leiðbeinandi dr. Erla Kristjánsd. 13.30 tþróttir. Leiðbeinandi dr. Ingimar Jónsson. 16.00 Sfðdegiskaffi og námskeiðsslit. V armalandsskóli, Andakflsskóli, Heiðarskóli. Kleppjárnsreykjaskóli og Laugargerð- isskóli standa að þessu námskeiði og skipuleggja það í samráði við námsf jórana. — Skólastjórar — Skólakerfið kostar rúmlega V5 hluta ríkistekna, eða 13460 milljónir króna samkvæmt fjárlögum 1977 — Það bindur nær fimmta hvern landsmann mestan hluta ársins og varðar hvern einasta þjóðfélagsþegn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.