Morgunblaðið - 28.12.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
279. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Uppgjör
í flokki
Gandhis
Nýju Delhi, 27. des. Reuter AP
SJÖ stuðningsmenn frú Indiru
Gandhi fyrrverandi forsætisráð-
herra sögðu sig f dag úr einni
valdamestu nefnd Kongress-
fiokksins og klofningurinn f
fiokknum virðist orðinn álger.
Jafnframt birtu forseti flokks-
ins, Brahmananda Reddi, og þing-
leiðtogi hans, Yeshwantrao Chav-
an, yfirlýsingu þar sem fram
kemur harðasta árásin sem frú
Gandhi hefur sætt opinberlega til
þessa og hún er sökuð um að
sölsa undir sig völdin í flokkn-
um.
í yfirlýsingunni er ráðizt á
landsfund sem stuðningsmenn
frú Gandhis hafa boðað til f næstu
viku, Frú Gandhi hefur reynt f
nokkra mánuði að ná aftur þeim
áhrifum sem hún hafði i
Kongressflokknum unz hún beið
ósigur i kosningunum í marz.
Stuðningsmenn Gandhis segjast
Framhald á bls. 18
Rússar stilla
upp risaflaug
Washington, 27. dcsember. AP.
BANDARtSKIR sérfræðingar eru komnir á þá skoðun eftir margra
mánaða ðvissu að Rússar séu farnir að tefla fram eldflauginni SS-20
sem geti hæft skotmörk f Bandarfkjunum.
Eldflaugin er talin draga 4.800 km f núverandi mynd, en ef bætt er
einu þrepi við hana þannig að þau verði þrjú mun hún draga 9.600 km
og þar með geta hæft skotmörk f Bandarfkjunum.
Begin og Sadat takast í hendur eftir blaðamannafundinn
að loknum fundi þeirra í Ismailia.
Bandarískir sérfræðingar óttast
að kjarnorkujafnvægið raskist
Bandaríkjunum í óhag ef eld-
flauginni verður breytt. Samning-
urinn um takmörkun kjarnorku-
vígbúnaðar nær ekki til eldflaug-
arinnar f núverandi mynd og
Rússar hafa ekki sýnt áhuga á
tillögum Carters forseta á banni
við hreyfanlegum langdrægum
eidflaugum.
Sérfræðingarnir telja að verið
sé að koma SS-20 fyrir f Austur-
Rússlandi þannig að þcim virðist
miðað á skotmörk f Kina. Þeir
telja að undirbúningur sé hafinn
að staðsetningu slfkra flauga f
Vestur-Rússlandi þar sem þeim
yrði miðað á Vestur-Evrópu og i
Mið-Rússlandi þar sem þeim væri,
miðað á Miðausturlönd.
Jafnframt vöruðu Rússar
Bandarikjamenn við því i dag að
Framhald á bls. 18
Israelsmeitn fúsír að
skila Egyptum Sinai
Kafró, 27. des. AP. Reuter.
ANWAR Sadat, forseti Egypta-
lands, sagði f viðtali í dag að
Israelsmenn hefðu enn ekki tekið
„erfiða ákvörðun" sem þeir yrðu
að taka til að tryggja frið í Mið-
austurlöndum, en kvaðst vongóð-
ur um að samkomulag tækist inn-
an tveggja mánaða.
Sadat sagði að ekkert svigrúm
hefði verið á jólafundinum f
Ismailia vegna afstöðu
Menachem Begins forsætisráð-
herra f Palestínumálinu. Sadat
sagði að Bcgin kynni að telja að
hann hefði slakað til en hann
væri á öðru máli.
Blaðið A1 Ahrani hermir að
Sprengjualda
í Frakklandi
París, 27. desember. AP. Reuter
IBÚÐ þekkts dómara f Parfs eyði-
lagðist f dag f kröftugri
sprengingu, hinni sfðustu af
mörgum sem hryðjuverkamenn
hafa staðið fyrir f Frakklandi um
jólin og valda lögreglunni heila-
brotum þar sem skotmörkin
virðast hafa verið valin af handa-
hófi.
Sprengjur hafa valdið tjóni á 16
stöðum á átta dögum meðal
annars veitingastað, næturklúbbi,
járnbrautarstöð, sumarbústað
fyrrverandi þingmanns á Kors-
íku, aðalstöðvum verkalýðsfélags
í Cambrai og f raforkuverum,
endurvarpsstöðum, stjórnarskrif-
stofum, verksmiðjum, sendiráð-
um og klaustri.
Þrennt hefur slasazt nokkuð i
árásunum, þar á meðal kona í
árásinni í dag á íbúð Michel
Zollingers dómara í 16. hverfinu i
París, en eini tilgangurinn með
árásunum virðist hafa verið sá að
valda eignatjóni. íbúð dómarans
stóð auð er árásin var gerð.
Leynihreyfingin Þjóðfrelsis-
fylking Korsfku (FLNC) kveðst
hafa staðið fyrir sprengjuárás á
járnbrautastöð í Villepinte, 17 km
norðaustur af París, og
sprengingu sem jafnaði við jörðu
sumarbústað Parísarstjórnmála-
mannsins Alain Griotteray.
Meðal annarra hópa sem hafa
Framhald á bls. 18
samkomulag hafi náðst á fundin-
um um brottflutning ísraels-
manna frá Sinaiskaga og Israels-
menn hafi viljað skýra frá sam-
komulaginu en Sadat verið því
andvígur þar sem tilgangur við-
ræðnanna hafi verið sá að finna
heildarlausn.
Sadat veittist einnig harkalega
að andstæðingum sínum í Araba-
heiminum og sagði að aldrei yrði
tekið á móti þeim mönnum í
Egyptalandi sem réðust á hann
vegna fundarins með Begin.
Hann sagði i sjónvarpsræðu:
,,Nei, í þetta skipti mun ég aldrei
fyrirgefa andstæðingum mínum.
Ég tek aldrei á móti nokkrum sem
ræðst á Egypta."
Forsetinn gaf í skyn að Israels-
menn væru reiðubúnir að skila
öllu því landsvæði sem þeir tóku
af Egyptum i striðinu 1967 þar
sem hann hafði eftir Begin að
enginn ágreiningur væn um al-
þjóðleg landamæri Egypta.
Hann sagði að verkefnið fram-
undan væri ekki lengur orrusta
um Sinai heldur uppbygging
landsins. Hann kvaðst ekki hafa
viljað fallast á birtingu yfirlýsing-
ar um fundinn með Begin vegna
Framhald á bls. 18
Kiev reynt
eftir bilun
Ósló, 27. des. Reuter.
SOVÉZKA flugvéla-
móðurskipið Kiev, sem
fréttir herma að alvar-
leg bilun hafði orðið á
einu ári eftir að það var
tekið í notkun er aftur
komið á rúmsjó og er nú
á siglingu undan vestur-
strönd Bretlandseyja í
fylgd með beitiskipi, að
sögn norskra hernaðar-
yfirvalda.
Kiev er 54.000 lestir og
hefur aðeins tvisvar
sinnum siglt frá
Murmansk síðan það
kom þangað frá Svarta-
hafi þar sem það var
smíðað í fyrra. Talið er
að þiljur skipsins hafi
sviðnað við lendingar
flugvéla af gerðinni
YAK-66 eða vélarbilun
hafi orðið í skipinu.
A-þýzk útfærsla
Austur-Berlfn. 27. desember Reuter
AUSTUR-Þjóðverjar fóru í
dag að dæmi Svía og Pól-
verja og lýstu því yfir að
þeir mundu færa út fisk-
veiðilögsögu sína á Eystra-
salti.
Fréttastofan ADN sagói að út-
færsla væri til þess ætluð að verja i
hagsmuni Austur-Þjóðverja og
svar við svipuðum ráðstöfunum
annarra strandríkja.
Diplómatar telja að með út-
færslunni vilji Austur-Þjóðverjar
treysta aðstöðu sína i samningum
við Efnahagsbandalagið um
veiðar í 200 milna lögsögu banda-
lagsins.
Chaplin fékk
látlausa útför
Sji grein i bls. 16— 1 7
Corsier-sur-Vevey,
27. desember AP
ÚTFÖR Charlie Chaplins var gerð I
ausandi rigningu I dag I þorpinu
Corsier-sur-Vevey fyrir ofan
Genfarvatn I Sviss þar sem hann
lézt i jóladag. og itti heima s(8-
ustu 25 ir ævinnar.
ABeins um 30 aðstandendur,
vinir og þjónustufólk voru viS út-
förina sem var litlaus. Lögregla
kom fyrír tilmunum umhverfis
kirkjugarðinn og um 150 blaða-
menn. Ijósmyndarar og þorpsbúar
fylgdust með útförinni úr fjarska.
Brezkur klerkur, séra David Miller.
flutti úrfararræðuna Annar brezkur
prestur. séra Richard Thomson,
flutti bæn Með Oonu ekkju Chapl-
ins voru við útförina sjö af átta
börnum þeirra
Geraldine Chaplin. elzta barn
þeirra, gat ekki verið við útförina þar
sem hún vinnur við kvikmynd á
Spáni. Sydney. sonur Chaplins af
fyrra hjónabandi, var einnig við-
staddur.
Sendiherra Breta i Sviss. Alan
Keir Rothnie. var eini embættis-
maðurinn sem mætti við útförina.
Oona Chaplin (lengst til hægri), ekkja Charlie Chaplins og aðrir
úr fjölskyldu kvikmyndaleikarans við útförina t Corsier-
Sur-Vev.v.